Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1979. Óhóf legur bílaleigukostnaður óeðlilegar verðbætur til verktaka „Kostnaður við bilaleigubíla er óhæfilega mikill hjá ýmsum ríkis- stofnunum og er Kröflunefnd ekki einsdæmi i þeim efnum,” segja yfir- skoðunarmenn Alþingis t athuga- semdum við ríkisreikning fyrir 1977, sem lagður var fram á Alþingi í gær. „Kostnaöur við bilaleigubila varð það ár 19,4 milljónir,” og itreka yfir- skoðunarmenn rikisreiknings, að þeir telja hæpið, að þar hafi verið gætt hagsýni sem skyldi. Á reikningum Kröflunefndar kemur fram, aðgreiðslur til verktaka námu 1977 1719,6 milljónum. Þar af var samningsupphæð 1073,7 millj- ónir, 439,7 milljónir voru greiddar fyrir aukaverk og verðbætur námu 206,1 milljón. Skoðunarmenn segja: „Sérstaka athygli vekur, aö Rafafl svf. hefur fengið 22,5 milljónir í verðbætur, þar sem tilboð var 30,4 milljónir, en aukaverk nema þar 50,1 milljón.” „Meðalbilafjöldi i notkun hverju sinni 1977 var um það bil 6 bílar,” segir 1 svari iðnaðarráðuneytis. ,,Að undanskildum bilum þeim tveim, er Gunnar 1. Gunnarsson staðartækni- fræðingur og framkvæmdastjóri Kröflunefndar höfðu afnot af við vinnu, skiptust bílarnir á 10 vélstjóra og 7 eftirlitsmenn auk tilfailandi. ferða. Að meðaltali þýöir þetta að 4—5 menn noti hvern bíl til jafnaðar, sem má telja allgóða nýtingu á bíl,” segir framkvæmdastjóri Kröflu- nefndar í svari við aðfinnslum skoð- unarmanna. í svari Kröflunefndar vegna Raf- afls kemur fram, að hönnun raflagna hafi ekki verið lökið, er útboðsgögn voru send út, en ráðgjafarverkfræð- ingur verið þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt væri að festa rafverk- taka í flýti. Upphaflegt tilboð Rafafls svf. var 28,5 milljónir en samnings- upphæðin 30,4 milljónir. Greiðslur til Rafafls námu aö lokum alls 123,7 milljónum. Skoðunarmenn segja um svar Kröflunefndar, að „við svo búið veröi að standa,” en þeir leggja áherzlu á, að „undirbúning verk- samninga og útboða beri að vanda sembezt en rasa ekkium ráð fram.” Þeir benda á, að annar háttur var hafður á og ekkert útboð gert, þegar samið var við Miðfell hf. um bygg- ingu stöðvarhússins. „Svar iðnaðarráðuneytisins ber með sér, að aukaverk og verðbætur hafa stundum orðiö óeðlilega mikil hjá einstökum verktökum og torveld- að þannig, að nauðsynlegu aðhaldi yrði við komið,” segja yfirskoðunar- menn um þessar aðferðir. -HH. Innlendu skipasmíðastöðvarnar hálfnýttar á meðan innflutningur er fjórfaldur: Næstversta ár f heilan áratug Á fundi Félags dráttarbrauta og skipasmiðja nýverið kom m.a. fram að si. ár voru skrásett hér 24 ný skip og bátar, samtals 7.152 brúttólestir, en aðeins innan við 1.400 brúttólestir voru smíðaðar hér. Afkastageta is- lenzkra skipasmíðastöðva er þó áætl- uð um 2000 brúttólestir á ári. Árið í fyrra var það næstversta í skipasmíðaiðnaðinum, hvað nýsmíði varðar, siðan 1968. Félagið vísar á bug aðdróttunum þess efnis að ekki sé ástæða til að fullnýta afkastaget- una með tilliti til fiskverndarsjónar- miða. Bendir það á að í fyrra voru sex stórvirk fiskiskip, samtals 4.000 brúttólestir, flutt inn og um síðustu áramót voru a.m.k. fimm fiskiskip í smíðum fyrir íslendinga upp á 1.800 brúttólestir. Félagið leggur nú þunga áherzlu á að stjórnvöld beiti sér fyrir efiingu Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs með tilliti til þess að á næstu árum verður mikil endurnýjunarþörf í flotanum. Um sl. áramót voru 229 skip í flotan- um 20 ára og eldri og eftir 3 ár verða 428 komin á þann aldur. Óttast félagið því enn eina hol- skeflu nýrra innfluttra skipa ef ís- lenzku stöðvarnar verða ekki byggð- ar upp til að mæta þörfinni, a.m.k. mun frekar en nú. Þá er iðnaðarráðuneytið loks nú að vinna að reglugerð um gerð útboða og mat á tilboðum vegna skipa\ið- gerðn.En vöntun á henni hefur orðið til þess að skip hafa flykkzt utan til viðgerða og breytinga án þess að nokkur athugun hafi verið gerð hér heima á þvi hvort unnt hefði verið að fá verkin unnin á sambærilegum eða betri kjörum hér. -GS. Innrás Bauna — eða hvað? Ætla mætti að ljósmyndarinn hafi brugðið sér yfir pollinn til frænda vorra Dana, þvi þetta er algeng sjón þar í landi. Þetta eru hins vegar ramm- íslenzkir krakkar úr 8. bekk í Haga- skóla. Krakkarnir eru meira að segja ekki að hjóla þarna „í sínum eigin tíma” heldur eru þau í skólatíma. Þau sögðust vera á leiðinni upp í Heiðmörk. Þá datt okkur auðvitað strax í hug nátt- úruvísindi, — það reyndist ekki rétt. Þau voru í íþróttatíma! Þeir virðast eitthvað skemmtilegri íþróttatímarnir í dag heldur en í gamla daga! Nýja símaskráin 420 gr léttari: Nú heitir Mosfellssveit- in Varmá Það dugir ekki að fletta upp á Brúar- landi í nýju símaskránni viljir þú hringja í Mosfellssveitina — því sím- stöðin þar heitir nú Varmá. Nafnbreyt- ingin átti sér stað um leið og símstöðin var fiutt milli húsa þar i hreppnum. Þetta er ein nokkurra breytinga í símaskránni 1979, sem farið verður að afhenda notendum eftir helgina. Símaskráin í ár er áberandi minni en undanfarin ár — 200 síðum þynnri og nær hálfu kílói léttari. Ástæðurnar eru nokkrar: letur er tveimur punktum minna, sem gerir mögulegt að hafa fjóra dálka á síðu í stað þriggja, pappír er þynnri og skrá yfir reikningshafa hjá Póstgíróstofunni, upplýsingar um póst- mál og fieira hefur fallið út. í símaskránni nýju eru um 110 þús- und nöfn — og í fyrsta skipti stendur hún undir sér, tekjur af henni eru áætl- aðar um tvær milljónir. Skráin tekur gildi 1. júní. ÓV. Athugasemd í grein minni um samsýningu í Gall- erí Suðurgötu 7 varð sá leiði misskiln- ingur að Jóni Karli Helgasyni var eign- að verk á gólfi. Verkið er eftir Kristin G. Harðarson. Jón Karl Helgason sýnir þarna kvikmyndir. A.I. Verkamannasambandið krefst „hörku” af ríkisstjóminni Framkvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins krefst þess af ríkis- stjórninni, að hún verji launastefnu sína , ,af fullri einurð og hörku”. „Verkamannasamband íslands hefur frá upphafi stutt eindregið þá launastefnu, sem núverandi rikis- stjórn setti sér, en hún var i því fólgin að vernda kaupmátt allra almennra launa, tryggja aukið launajafnrétti, berjast gegn verðbólgunni og lögfesta ýmis þau félagslegu réttindi, sem verkalýðshreyfingin hefur barizt fyrir i áratugi,” segir i ályktun fram- kvæmdastjórnarinnar frá í gær. „Verkamannasambandið lýsir áhyggjum sínum af þróun mála nú að undanförnu, þar sem hálaunastéttir hrifsa til sín umtalsverðar launa- hækkanir og verðlagsþróunin er geig- vænleg. Verkamannasambandið telur að ef svo heldur áfram sem nú horfír, aukist launamisrétti, ný óða- verðbólguholskefla skelli á, er leikur haröast almennt verkafólk og veldur þar að auki atvinnuleysi,” segir þar. „Þvi krefst Verkamannasam- bandið þess, að ríkisstjórnin verji þá iaunastefnu, sem hún boðaði í upp- hafi ferils síns, af fullri einurð og hörku. Geri hún það hins vegar ekki, glatar hún því trausti, sem verkafólk bar til hennar í upphafi og kjörum og lífsafkomu þess er stefnt i voða um ófyrirsjáanlega framtið. Sinni rikis- stjórnin ekki þessum viðvörunar- orðum, hefur hún brugðizt þeim stefnumálum, sem henni var ætlaðað framkvæma og tilvera hennar byggist á,” segir Vekamannasambandið.HH. „Ósannindi Péturs” „Við vísum á bug ósannindum Péturs Péturssonar í þessu efni,” segir i svari fréttastofu útvarpsins við sakargiftum Péturs þess efnis að Andóf ’79 hafi orðið út undan í frétt- um af úrslitum í atkvæðagreiðslu BSRB. „í að minnsta kosti fjórum dag- blöðum í gær og í dag heldur Pétur Pétursson þulur því fram, að ríkis- fjölmiðlarnir hafi vísað á bug til- mælum Andófs ’79 um að segja orð um úrslit atkvæðagreiðslu BSRB,” segir fréttastofan. „Af þessu tilefni skal tekið fram, að hvorki Pétur Pét- ursson né aðrir andófsmenn báru fram slík tilmæli við fréttastofu út- varpsins, þannig að fréttastofan vís- aði engu slíku á bug. Fréttastofan leltaði ekki álits Andófs '79 á úrslit- unum og ekki heldur formælenda fjölmennra félaga ríkis- og bæjar- starfsmanna, sem þegar í janúarmán- uði, löngu áður en Andóf ’79 varð til, andmæltu samkomulagi BSRB og fjármálaráðherra og unnu að því að samkomulaginu yrði hafnað, enda hefði þá fátt annað komizt að í fréttatímum útvarpsins,” segir frétta- stofan í tilkynningu, ’sem undirrituð er af Sigurði Sigurðssyni aðstoðar- fréttastjóra hljóðvarps. -HH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.