Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 11.05.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ Í979. | fór í framhaldsskóla í Reykjavík. Guðrún er fædd og uppalin í Hvítár- síðu í Borgarfirðinum. Þau eru bæði 28-ára gömul. lyfirS&vers Einar Ólafsson kaupmaður færði ungu vinningshöfunum okkar úr- beinað hangikjöt að gjöf þegar þau voru búin að verzla fyrir hiuta þeirrar úttektar sem þau fengu í vinning. „Leyfum okkur meira en áður" „Við getum nú leyft okkur svolítið meira en áður þegar maður er svona heppinn að fá heils mánaðar úttekt eru góðar verzlanir sem hafa á boð- stólum ágætis vöruúrval, — væri helzt ábótavant að kryddúrvalið gæti verið betra. Sömuleiðis hafði Guðrún orð á að skóúrval væri ekki mikið á Akranesi. „En það hefur nú bjargazt, því ég hef pantað mér skó úr Reykjavík eftir auglýsingum i Dagblaðinu, þar sem birtar eru myndir af skónum og verðið skráð með. Ekki hef ég þó séð barnaskó auglýsta á þennan hátt og finnst mér að þeir sem verzla með barnaskó ættu .að bæta þar úr,” sagði Guðrún. Einar sagði að úrvalið af bygg- ingarvörum væri gott og verðið mjög sambærilegt við verð í höfuðborg- inni, — í sumum tilfellum kannski lægra. Guðrún og Einar með Gyðu litlu I innkaupakörfunni. Smjörið sem keypt var var auðvitað úr Borgarfirð- inum, en Guðrún er fædd i Hvítársíð- unni. »«*** w» Guðrún sagði að Gyða litla hefði góða lyst á þessum hafra-bitum, Gefur hún henni þá frekar en kex eða tvíbökur. upp í hendurnar,” sagði Einar um leið og hann læddi ýmsu góðgæti ofan í innkaupakörfuna í búðinni. Upphæðin sem ungu hjónin verzluðu fyrir var 46.234 kr. og það tók ekki nema rétt um hálftíma. í innkaupa- körfunni var ýmislegt sem þau sögðust ekki vera með í henni dags- daglega, eins og svínakjöt, rækjur og pizza. „Eins og þú sérð er vöruúrvalið mjög gott hérna í verzluninni og allar kjötvörur nijög snyrtilega pakkaðar í lofttæmdar umbúðir,” sagði Einar um leið og hann sýndi okkur saltkjöt í lofttæmdum poka. Það var orð að sönnu. Verzlunin var mjög vistleg og gott úrval af hin- um ýmsu vörutegundum. Verzlunin Einar Ólafsson er „kaupmannsverzl- un” sem hefur þróazt upp í eins konar „súper-markað”. Verzlunin var stofnuð árið 1935 af föður núver- andi kaupmanns, Einars J. Ólafs- sonar. Guðrún og Einar hafa verið búsett á Akranesi í fjögur ár, en Einar er fæddur þar og uppalinn þar til hann Hann var að vonum ánægður yfir því að ungu vinningshafarnir kusu að verzla úttektina sína í verzlun hans og er hann kvaddi þau færði hann þeim bústna hangikjötspylsu að gjöf. Ungu hjónin héldu síðan glöð heimleiðis með varninginn en blm. og ljósmyndari áleiðis til sinna heim- kynna. - A.Bj. Það fer svo sem ekki ýkja mikið fyrir varningi fyrir rúmlega 46 þúsund krónur, en ungu hjónin keyptu eitt og annað sem ekki er daglega á borðum hjá þeim. 1 I 1 llllllpilli

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.