Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 1980. 17 Tálknfirðingar sigurvegararáný í marz fór fram á Hálfdáni skiðakeppni millij grunnskólanna á Bildudal, Tálknafirði og Patreks-! firði. Keppt var i svigi og urðu Tálknfirðingar sigur- vegarar. Patreksfirðingar urðu i öðru sæti og Bíld- dælingar ráku lestina. Veður var hið fegursta og fólk fjölmennti til að fylgjast með keppninni. Sveit Tálknafjarðar fékk tímann 626.8 sek. Þeir eldri 346.3 sek. en yngri 280.5 sek. Sveit Patreks- fjarðar fékk timann 638.8 sek. Eidri 358.0 sek. og yngri 280.8 sek. Sveit Bíldudals fékk samt. 659.2 — eldri 367.3 sek. yngri 291.9 sek. Röð efstu keppenda i 11 ára og yngri. 1. Skjöldur Hjálmarss., Patrfj. 25,3-26,5, samt. 5 1,8] 2. Viðar Pálsson Tálknaf., 26,1—27.1 samt. 53.2 3. Sverrir Hjálmarss Bildud., 26,4—27.0samt. 53.4 4. Atli Jónsson Tálknaf., 27.1—27.3 samt. 54.4 5. Jón I. Jónsson Tálknaf., 26,6—27,9saml. 54.5 Röð 5 efstu keppenda 12 ára og eldri. 1. Sig. Jónsson Tálknaf., 35,4—32,5 samt. 67.9 2. Konráð Péturss., Tálknaf. 35,4—32,6 samt. 68,0 3. Hafjrór Jónsson Patreksf. 35,0—33,4 samt. 68.4 4. Ingibjörg Jónsd., Tálknaf., 35,6—33,7 samt. 69.3 5. Víkingur Gunnarss. Bíldud.35,4—34.0samf. 69,4 Keppni af þessu tagi fór l'yrst fram i fyrraveturog báru Tálknfirðingar þá einnig sigur úr býtum. I ionsklúbbur Patreksfjarðar gaf í fvrra bikar i þessu tilefni og sá skóli, sem vinnur hann oftast á fimm árum, fær hann til eignar. Þiið er lofsvert framtak hjá skólunum á þessum stöðum að efna til þessarar keppni, sem eykur mjög áhuga ncmcnda á skíðaí- þróttinni. Skólakeppni FRÍ — um helgina í Laugardalshöll Skólakeppni F.R.Í. fyrir börn á aldrinum 12—14 ára fer fram í Laugardalshöll (kl. 12—14.30) og i Baldurshaga (kl. 15—17) nk. laugardag 19. apríl. Keppt verður í tveim aldursflokkum og eru þált- lakendur 8 úr hverju fræðsluumdæmi landsins, eða alls 64. Keppnisgreinar eru 50 m hlaup, langstökk, hástökk, kúluvarp og 8 x 30 m boðhlaup. Keppni þessi fer fram undir kjörorðinu „Bindindi bezt" og er hún styrkt af ýmsum samtökum, sem vinna að bindindismálum. Keppl er um farandgrip sem það lið hlýtur er flest stig fær. í fyrra fór þessi keppni fram i fyrsta sinn og urðu úrslit þá sem hérsegir: Reykjavik 72.5 stig Auslurland 60.0 stig Vesturland 59.0 slig Veslfirðir 56.0 stig Norðurland eystra 41.0 stig Suðurland 25.0 slig Reykjanes 22.5 slig Norðurland veslra 13.0 stig Búizt er við mjög jafnri og skemmtilegri keppni að þessu sinni og hafa í flestum fræósluumdæmum verið haldin sérstök skólamót til að velja liðin. Frá útbreiðslunefnd F.R.Í. Tvö lið úr Borgarf irði í 3. deild Borgarfjarðarmótið 1980 í innanhússknattspyrnu var haldið i iþróttahúsinu á Akranesi á skirdag. Mótið var í umsjá Ungmennafélaganna Hauks- Þrasta-Vísis. Úrslit urðu þessi: Borgarfjarðarmeistarar: UMF Haukur-Þrestir-Vísir (A-lið) lOstig UMF' Skallagrímur (A-lið) 8 stig UMF Skullagrímur (B-lið) 4 stig UMF Haukur-Þrestir-Vísir (B-lið) 2 slig UMF Haukur-Þrestir-Visir (C-lið) Ostig Sem gestir kepptu ,,Old boys” Akranesi og hlutu þeir 6 stig. H—Þ—V vann til varðveislu bikar sem Samvinnuskólinn Bifrösl gaf til þessa móts og var nú keppt um i annað sinn. Mikill áhugi er hjá knattspyrnumönnum héraðsins, m.a. taka 2 lið þált i Islandsmóti 3. deildar. Það eru UMF Skallagrímur og nú Haukur-Þrestir-Visir i fyrsta sinn. Æfingar eru byrjaðar af fullum krafti og er mikill hugur í Borgfirðingum að standa sig i sumar. UMSB hefur verið falið að sjá um riðil i undan- keppni knattspyrnunnar fyrir landsmót ungmenna- féiaganna 1981. Riðillinn verður að öllum líkindum í Borgarnesi helginu 8.til 10. ágúst i sumar. í riðlinum eru auk UMSB, UMSK, HSH og UDN (Dalamenn); Þess má geta að H—Þ—V. hefur ráðið Andrés Ólafsson fyrrv. Í.A. mann til að þjálfa liðið og mun hann einnig leika með liðinu. Lið Þróttar, sem vann sæti i 1. deild. Efri röð frá vinstri. Magnús Oskarsson, for- maður Þróttar, Gunnar Gunnarsson, liðsstjóri, Magnús Margeirsson, Sveiniaugur Kristjánsson, Ólafur H. Jónsson, fyrirliði og þjálfari, Sigurður Sveinsson, Ari Einarsson, Grétar Vilmundarson, Árni Svavarsson, aðstoðarþjálfari, og Þorsteinn Jónsson, formaður Handknattleiksdeildar Þróttar. Fremri röð. Einar Sveinsson, Lárus Lárusson, örn Thors , Sigurður Ragnarsson, Gísli Öskarsson, Páll Ölafsson og Snorri Siggeirsson. DB-mynd Hörður. „Ánægjuleg uppskera eftir 4 úrslitaleiki 211 —sagði Magnús Óskarsson, f ormaður Þróttar, eftir að Þróttur hafði tryggt sér sæti á ný í 1. deild eftir þriggja ára veru f 2. deild „Þetta er ánægjuleg uppskera hjá liðinu og það hefur sannarlega þurft að hafa fyrir því að vinna sæti í 1. deild — fjórir úrslitaleikir. En við eigum góða ieikmenn, sem æft hafa vel í vetur og verið í fremstu röð í deildinni undir stjóm frábærs þjálfara, Ólafs H. Jónssonar. Hann hefur bjggt þetta uppogþaðer af eigin verðleikum, sem Þróttur er í 1. deild á ný — ekki |óverðskuldað," sagði Magnús Óskars- son, formaður Þróttar, eftir að lið hans hafði sigrað ÍR öðru sinni í keppninni um sæti í 1. deild. ÍR varð I næst neðsta sæti í 1. deild — Þróttur í 2. sæti í 2. deild íslandsmótsins I handknattleik. í viðureign liðanna var ekki vafi á þvi að Þróttur var með sterkara lið — vann öruggan sigur 17—14 í gær og hafði einnig sigrað í fyrri leik liðanna, 21—19 á þriðjudag. Þróttur hafði yfirburði gegn heldur daufum — þunglamalegum ÍR-ingum i gær, og þeir yfirburðir fólust fyrst og fremst i snjallri vörn liðsins i heild og frábærum sóknarleik Páls Ólafssonar. Leiknir á Fáskrúðsfirði fjörutíu ára — Drætti frestað í happdrættifélagsins Það er margt á döfinni hjá Ung- mennafélaginu Leikni á Fáskrúðsfirði i sumar i tilefni af fjörutíu ára afmæli félagsins. Meðal annars verður gefið út afmælisrit og verður þar stiklað á stóru f sögu félagsins. Happdrætti er í gangi og verður dregið 15. mai næstkomandi um fimm vinninga — mánuði siðar en upphaf- lega var áætlað. Af ýmsum ástæðum varð að fresta drættinum og verða miðar þvi til sölu fram f miðjan mai. Við hann réðu ÍR-ingar ekkert og skrítið að þeir skyldu ekki reyna að taka hann úr umferð eins og Sigurð Sveinsson. Það sást strax að hverju stefndi, þegar Páll skoraði tvö fyrstu mörk Þróttar i leiknum. Ólafur H. Jónsson stjórnaði varnarleiknum eins og herforingi — hvatti menn sína til dáða og lék þar aðalhlutverk. Svo sterk var vörn Þróttar að ÍR-ingar skoruðu aðeins fjögur mörk með langskotum eða gegnumbrotum fyrstu 50 mínútur l^iksins. Höfðu þá skorað átta mörk — fjögur úr vítaköstum. Vissulega átti markvörður Þróttar, Sigurður Ragnarssson, sinn hlut að þessari lágu markatölu. Hann hefur varið snilldar- lega i flestum leikjum Þróttar síðustu vikurnar, eins og reyndar oftast í vetur. Það vantaði kraft í ÍR-liðið í gær. Bjarni Bessason, aðalmarkaskorarinn, ekki nálægt sinu bezta og leikur liðsins lengstum þunglamalegur. Furðulegt að Bjarni Bjarnason, hinn eldfljóti leikmaður, var lítið sem ekkert notaður. Ekki hefði þó veitt af að hressa upp á sóknarleikinn. Fljótt i siðari hálfleik höfðu ÍR-ingar gefið upp alla von að standa I Þrótti — gefið sæti í 1. deild á bátinn. Staðan í dag er allt annað en björt hjá liðinu — lítil, sem engin breidd. Ásgrímur Friðriksson, markvörður, var áberandi bezti leik- maður liðsins í gær. Bjargaði liði sínu frá stórtapi. Jafnræði var með liðunum framan af. Eftir að ÍR hafði skorað fyrsta mark leiksins skoruðu Þróttarar þrjú mörk á stuttum tíma. Páll tvö og Sigurður Sveinsson, sem tekinn var úr umferð allan leikinn, eitt með miklu þrumuskoti. Skoraði þrjú slík i leiknum, en kom að öðru leyti ekki mikið við sögu. ÍR jafnaði í 3—3 á 11. mín. og eftir 20 mín. var enn jafnt 5— 5. Fleiri urðu ÍR-mörkin ekki í hálf- leiknum, en Magnús Margeirsson og Ólafur H. skoruðu fyrir Þrótt við mikinn fögnuð áhorfenda. Hvatning var mikil í leiknum — lúðrablástur og hvað eina. Staðan i hálfleik 7—5 fyrir Þrótt i hálfleik, sem mjög hafði einkennzt af góðum varnarleik og markvörzlu. Þróttur gerði strax út um leikinn í byrjun siðari hálfleiks. Skoraði tvö fyrstu mörkin, Olafur H. og Páll, 9—5, og þá reyndar sex marka munur ef mörkin tvö frá fyrrj leiknum voru talin með. Þróttur jók síðan muninn í fjögur, þá fimm mörk, 13—8, og aðeins tíu min. til leiksloka. Öruggur sigur Þróttar í höfn. Talsvert slakaðá í lokin og festan miklu minni en áður. ÍR skoraði fimm mörk síðustu tiu mínúturnar — eða næstum jafnmörg mörk og þær 50 min. sem á undan voru gengnar. Þróttur ætti að geta staðið sig vel I 1. deild á næsta keppnistímabili, en þó er sú blika á lofti, að Ólafúr H. leggi skóna á hilluna — þó ýmsir haldi því fram, að hann sé að gera því skóna að ganga aftur yfir i Val. Um það vill Ólafur þó ekkert segja. Þróttur verðskuldar sæti í 1. deild — sæti, sem félagið missti vorið 1977. Hins vegar er liklegt að róðurinn verði erfiður hjá ÍR — jafnvel i 2. deildinni næsta vetur. Mörk Þróttar í gær skoruðu Páll 8, Jafntefli Spánverja ogTékka Spánn og Tékkóslóvakia gerðu jafntefli í landsleik í knattspyrnu f Gijon á Spáni I gær, 2—2. Spánverjar' voru heppnir að tapa ekki fyrir Evrópumeisturum Tékka. Spánn byrjaði þó betur en á 35. mín. náði Tékkóslóvakia forustu með marki Nehoda. Á 48. mín. tókst Migueli að jafna fyrir Spán — skallaði knöttinn í markið eftir hornspyrnu. Það stóð ekki lengi. Nehoda skoraði fyrir Tékka á 53. mín. en á 68. mín. jafnaði varamaðurinn Enrigue Quini með heppnisskoti af löngufæri. Sigurður 3, Olafur 3 og Magnús 3. Mörk ÍR skoruðu Bjarni Hákonarson 4/4, Guðmundur Þórðarson 3/1, Bjarni Bessason 2, Pétur Valdimarsson I, Sigurður Sverrisson 1, Hörður Hákonarson 1 og Ársæll Kjartansson 1. Dómarar Björn Kristjánsson og Rögnvaldur Erlingsen og komust allvel frá leiknum. ÍR fékk sex vitaköst í leiknum — Þróttur ekkert, og tveimur mönnum úr hvoru liði var vikið af velli. Evrópumeistaramótið í badminton í Hollandi: KristínMag. eini sigur- vegari íslands í gærdag Einliðaleikurinn á Evrópumeistara- mótinu i badminton hófst i Gröningen i Hollandi í gær. Þá voru sjö íslend- ingar i eldlinunni. Kristínu Magnús- dóttur tókst að sigra pólsku stúlkuna Ewu Rusznica í fyrstu umferðinni í þremur lotum. Tapaði þeirri fyrstu 10— 12 en vann siðan 11—9 og II—3. Hafði yfirburði í siðustu hrinunni og þetta er jafnframt fyrsti sigur íslend- ings í einstaklingskeppni á Evrópu- meistaramótinu i badminton. Aðrir keppendur íslands töpuðu enda áttu þeir við ramman reip að draga. I annarri umferðinni i dag leikur Kristin við norsku stúlkuna Anne Svarstad, sem sigraði Francoise Kaiser frá Belgíu í gær með 11—0 og 11—4. Einliðaleikur kvenna var fyrst á dag- skrá á mótinu í gær — hófst i gær- morgun. í fyrsta leiknum sigraði Barbara Sutton, Englandi, Renate Dietrich, Austurriki, með 11—2 og 11— 5 en siðan kom að Kristínu Krisjánsdóttur, sem lék gegn sovézku stúlkunni Alla Prodan. Sú sovézka vann með nokkrum yfirburðum, 11—4 og II—0. í gærdag lék Sif Friðleifs- dóttir svo við Allison Bryson. Fyrri hrinan var nokkuð jöfn. Sú skozka sigraði með II—6 en hafði yfirburði í þeirri síðari. Vann þá 11—0. Úrslit urðu óvænt aðeins í einum leik í gær í kvennakeppninni. Hin 17 ára Kirsten Larsen, Danmörku, sem raðað var i fimmta sæti, tapaði fyrir Lenu Axelsson, Svíþjóð, með 10—12 og 4— 11. Margir hafa spáð því að Kirsten Larsen verði Evrópumeistari í framtið- inni. í fyrsta leiknum i einliðaleik karla lék Guðmundur Adolfsson við Morten Frost, Danmörku, sem er spáð sigri í keppninni. Það er skemmst frá því að segja, að Frost vann yfirburðasigur en Guðmundur fékk þó fjóra punkta i leiknum. Frost vann 15—2 og 15—2. íslandsmeistarinn Broddi Kristjánsson lék við Steven Baddeley, Englandi og tapaði. Baddeley vann fyrri hrinuna 15—4 en i þeirri síðari stóð Broddi vel í honum. Tapaði þó 15— 10. Sigurður Kolbeinsson mætti einum Knattspymu- námskeið íþróttafélagið Leiknir í Breiöhollinu efnir til knattspyrnunámskeiða fyrir 6—7—8 ára aldursflokkana og verður það fyrsta nk. sunnudag kl. 17.00 í íþróttahúsi Fellaskóla. Námskeiðin eru ætluð byrjendum þeim, sem ekki hafa verið í knattspyrnu áður. sterkasta badmintonmanni heims, Ray Stevens, Englandi, og tókst auðvitað ekki að standast þessum snjalla Englending snúning.Stevens vann með 15—1 og 15—6. Þá lék Sigfús Ægir Árnason við Viktor Sjvatsjko og tapaði. Sá sovézki sigraði með 15—4 og 15—3. Engin óvænt úrslit urðu i karla- keppninni. Flemming Delfs, Dan- mörku, núverandi Evrópumeistari, vann auðveldan sigur á Thomas Muller, Sviss, 15—4 og 15—3. Ef allt gengur eftir áætlun og röðun mót- stjórnar stenzt ættu þeir Flemming Délfs og Morten Frost að leika til úrslita — og Frost er spáð sigri í þeirri viðureign. Fjórir unglingalands- leikir við Wales-búa - í körf uknattleik—Sá fyrsti á morgun Unglingalandslið Islands og Wales í körfuknattleik leika fjóra landsleiki hér á landi á næstu dögum. Fyrsti leikurinn verður í Hagaskóla á laugardag og hefst kl. 14.00. A mánudag leika liðin í Njarðvík — á miövikudag í íþrótta- húsinu í Hafnarfiröi. Báöir þessir leikir hefjast kl. 20.00. Á fimmtudag, 24. apríl, verður leikið í Borgarnesi og hefst leikurinn þar kl. 13,30 — sumar- daginn fyrsta. Islenzka unglingalandsliðið hefur verið valið og leika þessir piltar i þvi. Axel Nikulásson, IBK, Benedikt Ingþórsson, ÍR, Hálfdán Markússon, Haukum. Helgi Jensson, Haukum, Hörður Arnarsson, Ármanni, Jón KR. Gíslason, IBK, Leifur Gústafsson, Val, Pálmar Sigurðsson. Haukum. Sigurður Sigurðsson, ÍBK, Sverrir Hjörleifsson, Haukum, Valdimar Guðlaugsson, Ármanni, Valur Ingimundarson, Njarðvik. Viðar Vignisson, ÍBK, Viðar Þorkelsson, Fram, og Willum Þórsson KR. Flestir leikmenn því frá Keflavík og Haukum eða fjórir úr hvoru félagi. Kristín Magnúsdóttir — sigraði á Evrópumeistaramótinu. Hefur reglum í vítaspymum ekki verið breytt hjá FIFA? — KR sigraði Fylki eftir bráðabana í Reykjavíkurmötinu f gærkvöldi KR sigraði Fylki i bráðabana á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu á Melavclli í gærkvöld. Ekkert mark var skorað i venjulegum leiktíma. Þó fékk KR vítaspyrnu, sem Hálfdán Örlygsson — hann lék með Val í fyrrasumar — lók en markvöröur Fylkis, Ögmundur Kristinsson, gerði sér lítið fyrir og varði. Dómarinn taldi að Ögmundur hefði hreyft sig of fljótt og var víta- spyrnan þá endurtekin. Hálfdán reyndi aftur en spyrnti knettinum framhjá markinu. I tilefni þessa atviks má geta þess, að dómaranefnd FIFA, alþjóðaknatt- spyrnusambandsins, ákvað nýlega að breyta reglunni í sambandi ,við víta- Páll Ólafsson rennir sér I gegnum vörn tR — eins og hann gerði svo oft I leiknjtm — og skorar eitt af átta mörkum slnum. spyrnur, að markverðir megi hreyfa sig áður en spyrnan er tekin. Ekki vitum við betur en að þetta atriði hafi verið samþykkt og sé komið í lögin. Að minnsta kosti ætti KSÍ og dómara- McDermott aftur kosinn Terry McDermott, enski landsliðs- maðurinn hjá Liverpool, var I gær kjörinn „knattspyrnumaður ársins” á Englandi af enskum blaðamönnum. Atvinnuknattspyrnumennirnir höfðu áður sæmt hann sama titii og þetta er í fyrsta sinn, sem sami maður hlýtur báða titlana. McDermott haföi mikla yfirburði í kosningu blaðamannanna. Hlaut um 75% atkvæða. í öðru sæti varð Trevor Brooking, West Ham, og Glen Hoddle, Tottenham, í þriðja. Terry McDermott er fimmti leik- maður Liverpool, sem hlýtur titil blaðamanna síðustu sjö árin. Áður voru það þeir Ian Callaghan, Kevin Keegan, F.mlyn Hughes og Kenny Dalglish. Úrslitaleikur á Akranesi — ÍA-Þórleika um sæti Í2. deild Siðari leikur ÍA, Akranesi, og Þórs, Akureyri, um sæti í 2. deild handknalt- leiksins næsta leiktimabil, verður háður á Akranesi í kvöld. Hefst hann ki. 20.30 í íþróttahúsinu við Vestur- götu. Gífurlegur áhugi er á leiknum meðal Akurnesinga. Reiknað með troðfullu húsi áhorfenda en þar rúmast um sjö hundruö áhorfendur. Fyrri leik liðanna — á Akureyri — lauk með jafntefli og ættu Akurnesingar því að standa betur að vígi i kvöld á heima- velli. Þeir fá áreiðanlega mikinn stuðn- ing frá áhorfendum, sem eygja nú i fyrsta skipti að eignast lið í 2. deild. félagið að kynna sér málið sem fyrst — og breyta þásinni reglu til samræmis. En nóg um það. Ekki tókst KR og Fylki að skora í venjulegum leiktima og þurfti því bráðabana samkvæmt reglugerð KRR. Þá var Stefán Jóhannsson, markvörður KR, hetja síns liðs. Varði fjórar vitaspyrnur Fylkismanna, m.a. frá Ögmundi Fylkismarkverði. Fimmta vítaspyrnan hjá Fylki misheppnaðist einnig. Hins vegar voru KR-ingar á skotskónum i vitakeppninni. Skoruðu úr fjórum og voru þeir Örn Guðmundsson, Sæbjörn Guðmundsson, Guðjón Hilmarsson og Elías Guðmundsson þar að verki. Ekki er okkur hér á DB kunnugt um hvort þeir í KRR hafa sama hátl á hvað víta- spyrnunum viðkemur og er í Banda- rikjunum. Þar telja þeir eitt mark hvað svo sem skorað er af mörkum i vita- keppninni og virðist það miklu eðli- legra heldur en til dæmis að gefa KR- ingum fjögur mörk fyrir vítin í gær. Þá má einnig minnast á i sambandi við vitin í bráðabananum að leikmenn gera alltof mikið að þvi að reyna að leika á markverði í stað þess að skjóta af lengra færi. -hsím. SKULIREYNDIVIÐ NÝTT EVRÓPUMET —á kraftlyftingamóti í Lundúnum —Var óheppinn og varð að láta sér nægjaannað sæti I.yftingamaðurinn kunni, Skúli Öskarsson, UÍA, tók þátt i miklu kraft- lyftingamóti í Lundúnum á þriöjudag og var heldur óheppinn að sigra ekki i sinum flokki — 75 kg flokknum. Sigur- vegari þar varð I.ars Backlund, Sví- þjóð, með samtals 732.5 kg. Lyfti 272.5 kg i hnébeygjulyftu, 180 kg í bekkpressu og 280 kg i réttstöðulyftu. Skúli lyfti léttilega 285 kg í hné- beygjulyftu i fyrstu tilraun — eða 12.5 kg meira en Sviinn. Einnig gekk honum mjög vel með 295 kg. Reyndi siðan við nýtt Evrópumet 305 kg en tókst ekki. Hann hafði þó 22.5 kg forustu á Sviann eftir þessa grein. I bekkpressu lyfti Skúli 125 kg en tognaði og lét sér þá þyngd nægja — en á sama tima lyfli Svíinn þar 180 kg. í réttstöðulyftunni fór Skúli létt með 290 kg og 300 kg í tveimur fyrstu lyftunum. Hann lét þá þyngja i 312.5 kg en hann þurfti að lyfta þeirra þyngd lil að sigra Sviann eftir áfallið i bekk- pressunni. Litlu munaði að Skúli lyfti þessari ógnarþyngd — en tókst ekki. Samtals var hann því með 720 kg. í þriðja sæti varð Thompson frá Ástralíu með 702.5 kg (260—172.5 og 270). Keppendur á mótinu voru frá sjö löndum — allir beztu menn þessara landa. Sigurvegarar i einstökum flokkum. 52 kg flokkur. Bhairou, Brctlandi, 522.5 kg. 56 kg flokkur. Niemi, Finnlandi, 540 kg. 60 kg flokkur Lampela, Finnlandi, 572 kg. 67.5 kg flokkur. Salih, Bretlandi, 672.5 kg. 82.5 kg flokkur. Collins, Bretlandi, 807.5 kg. 90 kg flokkur. Mattsson, Svíþjóð, 845 kg. 100 kg flokkur. Nodeli, Bretlandi, 882.5 kg sem er nýtt Evrópumet 110 kg flokkur. Patlerson, USA, 897.5 kg. 110 kgogyfir. Zeblowski, Bretlandi, 947,5 kg.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.