Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 18.04.1980, Blaðsíða 24
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar samþykkt í nótt: „Aldrei verið eins ánægð’ segirAddaBára Sigfúsdóttir verulegaukning áfjárveitingum tildagvistar-og sjukrastofnana „Ég hef aldrei verið við afgreiðslu fjárhagsáætlunar, sem ég hef verið eins ánægð með. Ég er mjög ánægð með hana,” sagði Adda BáraSigfús- dóttir, borgarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins, er DB ræddi við hana í morgun um hina nýju fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar, sem var samþykkt á fundi borgarstjórnar sem lauk kl. 2.30 i nótt. Adda Bára sagði að deilurnar á fundinum hefðu snúizt um það hvort byggja ætti upp svo mikla þjónustu og innheimta til þess svo mikla fjár- muni eða hvort ganga ætti skemmra i þá átt. Meirihlutinn lagði til að út- svarsálagningin yrði 11,9% en sjálf- stæðismenn lögðu til að útsvars- álagningin yrði 11,0%. ,,Mér finnst skipta mestu máli varðandi þessa fjárhagsáætlun, að þar er gert ráð fyrir ýmiss konar uppbyggingu, svo sem í dagvistunar- málum og sjúkraþjónustu,” sagði Adda Bára. Heildarfjárveiting til dagvistunar- stofnana verður nú 714 milljónir og er þar um að ræðá 152% hækkun frá í fyrra. „Við munum ljúka við fjórar dagvistunarstofnanir á þessu ári,” sagði Adda Bára. „Við munum og loksins ljúka við þjónustuálmu Borg- arspitalans og hafnar verða fram- kvæmdir af fullum krafti við lang- leguálmuna.” Adda Bára sagði það nýmæli við þessa fjárhagsáætlun að hún væri raunhæf, þar sem kostnaðar- hækkanir og verðlagsþróun væru að fullu teknar inn í áætlunina. -QAJ. Borgarf jarðarbrúin fær: Halldór £ með fyrstu mönnum yfir Endar nú saman I Borgarfirði Igœr — og skömmu slðar ók Halldór E. Sigurðsson, „guðfaðir” brúarinnar, yfir meðatfyrstu manna. DB-mynd: Gunnar Jónasson. Ekið var yfir Borgarfjarðarbrúna i fyrsta sinn í gær. Halldór E. Sigurðs- son fyrrverandi ráðherra, sem manna mest beitti sér fyrir byggingu brúar- innar, var einn af fyrstu mönnum til virki. Að sögn Emils Ásmundssonar hjá Vegagerðinni i Borgarnesi hefur vinna við brúna gengið betur en áætlað var. Menn áttu sem sé ekki von á þessum þess að aka eftir þessu mikla mann- áfanga fyrr en eftir hálfan mánuð. Brúin verður þó ekki opnuð al- mennri umferð fyrr en í ágúst i sumar. Vegna laxveiðinnar þarf að hætta framkvæmdum við hana þann 15. maí og þær liggja niðri á meðan laxinn gengur. Sá fjöldi manna sem vinnur við brúna missir þó ekki allur vinnuna því þó nokkuð margir vinna á meðan að vegalögnum. Þeir 20 bílstjórar sem ekið hafa uppfyllingarefni í brúna munu hins vegar fá tækifæri til að slappaaðeinsaf, kauplaust. -DS. Samkomulag að nást „Þetta er nú ekki alveg frágengið en ég hef trú á því að samkomulag náist í dag,” sagði Hendrik Tausen formaður verkalýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri í morgun. Sam- komulagið ætti að verða eitthvað hagstæðara en á Bolungarvik, þ.e. betri kjör fyrir línubátana, sem hafa dregizt aftur úr. Skuttogararnir mega frekar bíða haustsins. Útgerðarmenn hafa verið opnari á síðustu fundum. Við erum nokkuð samstiga verka- lýðsfélaginu Súganda á Suðureyri." Sveinbjörn Jónsson, formaður verkalýðsfélagsins Súganda á Suður- eyri, sagði i morgun að hann ætti frekar von á lað samkomulag næðist í dag, en samningafundur hefur verið boðaður í dag kl. 4. ,,Við ræddum saman í fyrrakvöld, þar sem voru opinskáar umræður og síðan aftur í gær. Þá hafði aðeins stífnað af hálfu útgerðarmanna. Það var siðan lagt fram tilboð og þeir tóku þannig undir að við sættumst á að ræða það nánar. Náist ekki samkomulag hér, þá er það ekki vegna ágreinings á staðnum, heldur ytri aðstæðna, þ.e. aðildar að heildarsamtökum.” -JH. 69 á þingmannalaunum 58 kjömir þingmenn og ellefu varamenn Sextíu og níu eru þessa dagana á þingmannalaunum, að sögn Friðjóns Sigurðssonar skrifstofustjóra Al- þingis í gær. Kjörnir alþingismenn eru sem kunnugt er sextíu. Friðjón sagði, að ellefu varamenn hefðu setið á þingi í gær i stað kjör- inna þingmanna. Þær reglur gilda, að þingmenn missa kaup sitt ef þeir eru fjarstaddir vegna anna og gildir það einnig um annir við búskap. Þing- menn halda hins vegar launum ef þeir eru fjarstaddir af heilsufarsastæðum eða í opinberum erindagerðum erlendis. Staðan er nú sú, að aðeins tveir fjarstaddra þingmanna missa laun, þar sem þeir eru fjarstaddir vegna annarra starfa. Á þingmannakaupi eru þvi 58 þingmenn og 11 varamenn. sem hafa tekið sæti á þingi, að sögn Friðjóns. Varamenn, sem sæti taka á þingi, eiga að sitja í að minnsta kosti hálfan mánuð. Tveir varamenn bættust á þing- mannabekki i gær. Guðrún Hallgrímsdóttir (AB) tók sæti i stað Ólafs Ragnars Grimssonar og Sigur- laug Bjarnadóttir (S) i stað Þorvalds Garðars Kristjánssonar. Ólafur og Þorvaldur verða erlendis. Hins vegar tók Ólafur Jóhannes- son utanrikisráðherra sæti á þingi að nýju. Kaup varamanna fer eftir því, hversu marga daga þeir sitja á þingi; en lágmarkstíminn er hálfur mánuður eins og hér segir. -HH. Srjálst, úháð daghlað FÖSTUDAGUR 18, APRÍL 1980. 620 hlut- hafar ífiskeldi — sem stofnað var í gærkvöld Sex hundruð og tuttugu hluthafar stofnuðu Fiskeldi hf. á Hótel Sögu i gærkvöldi. Hlutafé er kr. 104.5 milljónir og samþykkt var heimild til stjórnar félagsins að auka það um helming. Til samanburðar má geta þess, að þegar Dagblaðið hf. var stofnað fyrir Fimm árum var hlutafé þess 75 milljónir kr. Stjórn félagsins var kosin á stofn- fundinum. í henni sitja Jakob V. Hafstein eldri, framkvæmdastjóri, Árni Ólafur Lárusson, deildarstjóri Skeljungi hf., Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri Garðabæ, Hilmar Helga- son stórkaupmaður, Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur, Jón Friðjónsson verkfræðingur S.S., Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri Húsa- vík. Endurskoðendur eru Þorsteinn Haraldsson löggiltur endurskoðandi og Sighvatur Eiriksson tæknifræðingur, Iðntæknistofnun. Kosningar fóru fram samkvæmt heimildum laga um svokallað marg- feldisgildi atkvæða. Urðu þær nokkuð seinunnar. Var frestað að telja atkvæði úr kosningu til varastjórnar. Geysi- legur áhugi kom fram i umræðu manna og stóð stofnfundurinn fram á nótt. Fundarstjóri var Baldur Guðlaugsson lögfræðingur. _bs. Fær forsætisráö- herra ekkiaðtala? Þingmenn virtust i gær ekki sáttir við frestun útvarpsumræðnanna og hófu þvi almennar stjórnmálaumræður utan dagskrár, sem stóðu allan daginn. Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra mun hafa óskað eftir afbrigðum til að taka þátt í útvarpsumræðunum, þegar þær verða eftir helgina. Alþýðu- flokksmenn leggjast gegn því, þar sem Gunnar og hans menn hafa ekki myndaðsérstakan þingflokk. Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur útnefnt „Geirsmenn” sem sína fulltrúa i útvarpsumræðunum, og var þvi ekki mótmælt af hálfu Gunnars. -HH. Fullskipað í karlaklefum lögreglunnar Það er heldur óvenjulegt að fanga- geymslur lögreglunnar séu fullskipaðar nema um um helgar. En í nótt gerðist það að karladeildin fylltist og voru 22 karlmenn inni. Allt var þetta sökum ölvunar. Lögreglan rekur þetta óvenju- lega ástand ekki til neins sérstaks viðburðar. Um var að ræða menn og konur á öllum aldri og fólk tekið um allan bæ, á götum úti eða i leigubílum. Kvennadeildin var ekki alveg full- skipuð. -A.Sl. lukkudagarT 18. APRÍL 12604 Henson æfingargalli.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.