Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 8

Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 8
í FPlÉTTUIMUM Nýr hagfræðingur hjá Útflutnings- miðstöðinni Um miðjan febrúar tók Edda Sigurðardóttir við starfi hjá Útflutningsmið- stöð iðnaðarins og mun hún ásamt Jens Pétri Hjalte- sted vinna að svonefndu ullarverkefni, sem Guð- mundur Svavarsson hefur haft á hendi, en hann hverf- ur úr starfi hjá Útflutn- ingsrniðstöðinni 1. marz. „Fyrsta verkefni mitt er að vinna að áætlun um kynn- ingu á íslenzkum ullar- og skinnavörum í sambandi við sýninguna „Scandi- navia To-day“, sem haldin verður í Bandaríkjunum í haust", sagði Edda í stuttu samtali við FV. Hún er fædd í Reykjavík 1957 en fluttist með foreldrum sínum til New York 1962 og bjó þar til ársins 1974 er hún kom heim og settist í Mennta- skólann við Hamrahlíð. Þar tók hún stúdentspróf 1976 en fór síðan til náms í Barnard College við Col- umbia University í New York, þar sem hún stók BA- próf í hagfræði í janúar 1980. Þá réðist hún til starfa í hagdeild Eimskipafélags íslands en hélt utan á nýjan leik og lauk masters-gráðu í Business Administration nú í janúarmánuði. Ingólfur Guðnason í Flugferðum «2 Jón Guönason og Rannveig Óiafsdóttir í Ferðaskrifstofunni Sögu. Bræður opna ferðaskrifstofur „Það má líkja þessu við fjöl- skylduiðnað', sagði Jón Guðnason framkvæmda- stjóri og eigandi Ferða- skrifstofunnar Sögu, sem nýlega tók til starfa að Laugavegi 66 í Reykjavík. Fyrir nokkur hóf bróðir hans, Ingólfur, rekstur annarrar ferðaskrifstofu, Flugferða, í Miðbæjarmark- aðinum, Aðalstræti 9 en hann á það fyrirtæki ásamt Eyþóri Heiðberg. Þeir bræðurnir Jón og Ingólfur eru synirGuðna Þórðarson- ar í Sunnu. Ferðaskrifstofan Saga, sem hóf starfsemi í janúar hefur alhliða söluumboð fyrir Flugleiðir og getur því selt flugfarseðla hvert á land sem er. í sumar mun skrifstofan skipuleggja eigin ferðir til sólarlanda, m. a. Rohdos, Korsíku og Mallorka. Gerðir hafa verið samningar um að- stöðu fyrir farþega Sögu í Puerto Andtraix, sem er fiskimannabær skammt fyr- ir vestan Magaluf. Þar verður m. a. hægt að fá gistingu i smáhýsum, tveggja hæða með stofu og eldhúsi á neðri hæð en allt að þremur svefnherberjum á þeirri efri, en svalir eru á báðum hæðum. Einnig er mögulegt að fá íbúðir og hótelherbergi. Islenzkur fararstjóri verður á staðn- um, þaulkunnur Majorka- ferðum. Flugferðir opnaði um mánaðamótin júlí - ágúst í fyrra og var byrjað með Amsterdamferðum viku- lega. Jólaferð var farin með 120 manns til Tenerife á Kanaríeyjum og verður framhald á ferðum þangað núna í vetur. Nú á næstunni er ferð til Rio de Janerio, 26 daga ferð með þátttöku í hinni heimsfrægu kjöt- kveðjuhátíð í borginni. Flugferðir selur í allar ferðir Flugleiða. 8

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.