Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 34
days and geiitk1 nigtil
«i dty it fracldes. To l
gol(. Swimming ond t
Ot doiriy nliviiíitely n
itian !k
Frorn snui'il lo yrand
From reasonable to luxurious^H
Gw yoursoll up lo eleyant ’
iitghlli(t!. stxjpping and dining. or
<> speclat ular tnp t« tlie t«|) «1 Mt
San Jacinto on tne Aertal Trainway
Treal yourwll to a swrrkl you^
dí’seae. Palm írprings
RalmSprinqs
■f Al IFORNIA J
Say
farewell
tothecold,
cruelworld.
Erlend áhrif á Islandi? Oft má sjá
svipaða hugsun að baka íslenzkrar
auglýsingar og erlendrar, þótt út-
færsla þeirra sé ólík.
í rSÆSIU VIKU GÆTIRÞO
VERIÐÁMLVni!
I*ii kcittur Itdm i sóWsiitvskapil
T/ícarttL
abeútá 7.49%lí’i.
lýsingum, sagði Þórir að stefnan gæti
verið breytileg milli ára, en eins og
hann hefði sagt áður, væri það reynzla
þeirra Bílaborgarmanna, að efnismikl-
arauglýsingar, þ. e., með miklu lesmáli
væru þæráhrifaríkustu. Sem dæmi um
breytingar á stefnu, sagði Þórir það
hafa verið stefnu fyrirtækisins, að aug-
lýsa aldrei verð á Mazda-bílum, en nú
hefði komið í Ijós hin síðari misseri, að
slíkt kæmi mun betur út og því væru
verð í öllum bílaauglýsingum fyrir-
tækisins.
Þegar auglýsingar fyrirtækisins eru
skoðaðar kemur í Ijós, að mikið lesmál
er á þeim, en auk þess vekur athygli, að
þær eru yfirleitt frekar einfaldar, sér-
staklega þær alíslenzku, en þær eru
hins vegar nær undantekningalaust
mjög stílhreinar. Annars kemur það í
Ijós við athugun, að bílaauglýsingar al-
mennt eru að mörgu leyti keimlíkar.
34
Oftast er stór mynd af viðkomandi bíl
og innan á auglýsinguna koma nokkur
velvalin slagorð um ágæti bílsins og
loks smáletrið, sem gerir nánari grein
fyrir hinum ýmsu hlutum bílsins.
Samkeppni
flugfélaga
Á síðustu mánuðum hefur það vakið
athygli, að mikil samkeppni hefur verið
með flugfélögunum tveimur, Flugleið-
um og Arnarflugi, í sambandi við aug-
lýsingar, en það kemur í kjölfar þess,
að Flugleiðir selja meirihluta sinn í
Arnarflugi og Ijóst varð, að Arnarflug
myndi sækjast eftir áætlunarflugi milli
íslands og annarra landa.
- Framan af á tæplega sex ára
starfsferli Arnarflugs má segja, að við
höfum ekkert auglýst, það var hrein-
lega ekkert að auglýsa. Við seldum
okkar þjónustu beint til „heildsala", þ.
e. ferðaskrifstofur hér heima leigðu af
okkur vélar og ferðir. Það var því ekki
fyrr enn við fengum leyfi til innan-
landsflugs fyrir tæplega þremur árum,
að við fórum að auglýsa að einhverju
marki, sagði HalldórSigurðsson, sölu-
stjóri Arnarflugs, í samtali við FV.
- Þrátt fyrir, að við fljúgum á 11
staði víðs vegar um landið gerði það
ekki kröfu um nema ákveðna auglýs-
ingu. Þetta eru það litlir staðir, að
það er lítið gagn af að auglýsa þar
mjög mikið. Þeir Iiðlega20þúsund far-
þegar, sem við flytjum árlega innan-
lands verða ekkert fleiri þótt við aug-
lýstum meira, en í dag. Þessar auglýs-
ingar vegna innanlandsflugsins voru
því og eru frekar einfaldar í sniðum.
Við auglýsum einfaldlega staðinn sem
við fljúgum á, hvenær það er gert og
með hvaða vél, sagði Halldórennfrem-
ur.
Þrjú meginatriði í aug-
lýsingum flugfélaga
Annars kom það fram hjá Halldóri, að
það væru einkum þrjú atriði, sem nán-
ast öll flugfélög heimsins legðu höfuð
áherzlu á í sínum auglýsingum, þ. e.
reynzlu, öryggi og ábyggilegheit,-
- Við eins og önnurflugfélög verð-
um að geta sannað fyrir okkar við-
skiptavinum, að þessi þrjú lykilorð
eigi við okkar flugfélag, sagði Halldór
Sigurðsson ennfremur.
- Okkar auglýsingaherferð hefst
svo að einhverju marki á síðasta ári,
þegar Ijóst verður, að breytingar verða
á starfsemi félagsins, þ. e. félagið sæk-
ir um leyfi til áætlunarflugs milli is-
lands og annarra landa. Við þurftum
fyrir það fyrsta að sannfæra viðkom-
andi yfirvöld um, að við værum þess
megnugir að taka að okkur áætlunarflug
og loks þurfum við að koma því á fram-
færi við almenning að Arnarflug sé til
og hafi einhverja vikt. Ég held hrein-
lega, að fólk hafi ekki vitað af tilveru
okkar fyrir en innanlandsflugið kom til
sögunnar og auglýsingar því samfara,
og loks fyrir alvöru á síðasta ári, þegar
bæði auglýsingar fóru vaxandi og fé-
lagið fór að verða meira í fjölmiðlum
almennt, sagði Halldór Sigurðsson að
síðustu.
Þegar auglýsingar Arnarflugs eru
skoðaðar síðustu mánuði kemur ein-
mitt í Ijós, að í þeim er lögð höfuð-
áherzlan á þá starfsemi, sem félagið
hefur rekið, þ. e. hvaða flugi félagið
hefur staðið fyrir og hversu marga far-
þega það hefur flutt í hvaða vélum.
Meginuppistaðan í aulýsingu þeirri,
sem félagið hefur verið með nokkuð
víða undanfarið, eru upplýsingar um,
að félagið hafi flutt tæplega 150 þús-
und farþega á síðasta ári, bæði í innan-
landsflugi og leiguflugi.
Flugleiðir auglýsa ísland
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í samtali við FV, að
auglýsingar Flugleiða væru gífurlega
mismunandi, þarsem um margamjög
ólíka markaði væri að ræða. - Það
er til að mynda mjög ólíkt, að auglýsa í
Bandaríkjunum, eða í Skandinavíu. Það
NUTRIBEL
lifgjafi húdarbmur
LANCðME
Erlend auglýsing á íslandi: Snyrtivöruauglýsingar hér á landi birtast nær ein-
vörðungu í Tízkublaðinu Líf. Sama auglýsing birtist á sama tíma í hliðstæðum
erlendum blöðum. Umboðsmaður Lancome er Rolf Johansen.