Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Qupperneq 23

Frjáls verslun - 01.10.1999, Qupperneq 23
völlinn myndi kosta um 22 milljónir sterlingspunda á núver- andi verðlagi, eða um 2,5 milljarða ísl. króna!!! Bygging vall- arins kostaði hins vegar um 15 milljónir sterlingspunda og var hann tekinn í notkun fyrir tveimur árum. Stoke City Football Club á 49% í Brittania leikvanginum á móti 51% Stoke-borgarinnar. Félagið er með völlinn á leigu til ársins 2032 og þá verður leigan endurnýjanleg til 90 ára. Völlurinn er því félagsins!! Raunar væri möguleiki á að selja 49% hlut- inn í vellinum og ná þannig í ráðstöfunarfé en hæpið er að kaupendur að þeim minnihluta fmnist þar sem bæjarfélagið hefur litlar tekjur af ijárfestingu sinni í leikvanginum. „Hægri fóturinn 3 Hemma“ Það sýnist skynsamlegt af hálfu fjárfestanna að taka þann pólinn í hæðina að láta helming pakkans, um 450 milljónir króna, vera í formi lána tíl félagsins og sem breytt verður í hlutafé ef áætlanir ganga eftír. Með því hefur félagið fengið aukið ráðstöfunarfé tíl að greiða niður óhagstæð lán, tíl að kaupa leikmenn og til að bæta æfingað- stöðu félagsins sem þykir frekar bágborin. Eftír því sem næst verður komist mun félagið verja um 250 milljónum tíl að greiða niður yfirdrátt og óhagstæð lán, um 150 milljónum króna tíl leikmannakaupa og um 50 milljónum tíl endurbóta á æfingaað- stöðunni. Með þessu styrkir félagið t.d. stöðu sína mjög gagn- vart lánastofnunum ytra - sem sjá að nýtt blóð er komið í félag- ið, að nýir eigendur komi með handbært fé inn tíl framfara og uppbyggingar. Það verður samt að líta gagnrýnum augum á fjárhæðina sem á að verja tíl leikmannakaupa, en hún er aðeins um 150 milljónir króna. Til að setja þessa upphæð í samhengi má benda á að Wimbledon, sem er í úrvalsdeildinni, greiddi um 300 milljónir króna nýlega fýrir Hermann Hreiðarsson!! Það er að vísu metupphæð íyrir íslenskan leikmann í Englandi. Af þessu sést hins vegar hve þær 150 milljónir sem Stoke ætl- ar að veija tíl leikmannakaupa er lág upphæð, hún er eins og „hægri fóturinn á Hemma“. Færa má rök fýrir því að þetta sé of lág upphæð og að hún dugi vart tíl stórræða Guðjóns með liðið. Þessi fjárhæð er örugglega það sem helst er hægt að gagnrýna við kaupin á Stoke. Rökin á móti eru þau að hægt sé að auka þetta ráðstöfunarfé með því selja einhveija af leik- mönnum Stoke núna og skipta inn á ódýrari leikmönnum sem ná sama ef ekki betri árangri. Hvað kostar KR-Iiðið? Sé horft til ís- lenskra leikmanna þá væri hægt að kaupa stóran hluta af leikmönnum KR fyrir 150 milljónir - ef ekki allt liðið. Sumir telja raunar að allt KR-liðið feng- ist á vel innan við 100 milljónir. Þess má geta að Rúnar Kristínsson, leikmaður Lilleström í Noregi, er verðlagður á um 50 milljónir. Stoke hefur þegar boðið 40 milljónir í hann en því var hafnað af Lil- leström og raunar Rúnari líka sem vildi fá talsvert hærri laun hjá Stoke en hann er núna með hjá Lilleström. Rúnar á eitt ár eftír af samningi sínum hjá félaginu og getur því farið þaðan frítt eftir eitt ár. Það gefur honum aukið svigrúm tíl að semja aftur við Lilleström í Noregi eða við mörg önnur lið. A hinn bóginn Rekstur breskra knattspyrnufélaga Bresk knattspyrna er ekki aðeins skemmtun, hún er stór atvinnugrein! resk knattspyrna er ekki aðeins skemmtun, hún er stór atvinnugrein. Heildartekjur hinna 92 bresku liða sem spila í deildunum fjórum hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum. Leiktiðina ‘97 til ‘98 jukust tekjurnar um 23% og námu 823 milljónum sterl- ingspunda sem samsvarar um 95 milljörðum íslenskra króna. Mikill munur er á milli 5 stærstu félaganna og hinna 87. A síðustu fimm árum hafa tekjur meðalfélags aukist að jafnaði um 21% á ári og fjöldi áhorfenda hefur einnig farið vaxandi og jókst um 8% leiktíðina ‘97-’98. Bilið milli deilda eykst jafnt og þétt. 20 úrvalsdeildarlið högnuðust samtals um 100 milljónir punda ‘97-’98 sem er mesti hagnaður frá upphafi. Hins vegar töpuðu 72 lið í 1. til 3. deildar um 52 milljónum sterlingspunda umrædda leiktíð. Laun leikmanna í 1. og 2. deild hafa aukist verulega umfram tekjur á undanförnum árum. Um 80% úrvalds- deildarliða skiluðu hagnaði leiktíðina ‘97 til ‘98 - en 80% neðri deildarliða skiluðu tapi. Þeirra á meðal er Stoke. Á brattann hefur verið að sækja í rekstri hjá félaginu, ekki síst vegna þátttöku þess í uppbyggingu leikvangsins, Britt- ania vallarins. Félagið á 49% í leikvellinum en Stoke-borg- in 51%. Breska úrvalsdeildin er sú stærsta í Evrópu. í henni spila 20 lið en í 24 lið í 1., 2. og 3. deild. Tekjur úrvalsdeild- arinnar námu 569 milljónum sterlingspunda leiktíðina ‘97 tíl ‘98. Á sama tíma voru tekjur ítölsku deildarinnar 400 milljónir punda og spænsku deildarinnar 345 milljónir punda. Meðalúrvalsdeildarlið í Bretlandi var með 28,5 milljónir punda í tekjur en samsvarandi tölur eru um 22,2 milljónir punda á Ítalíu, 19,2 millj- ónir punda í Þýskalandi og um 17,1 milljón punda á Spáni. Stoke er næst elsta knatt- spyrnufélag Englands. Það var stofnað 1863. Það var síðast í úrvalsdeildinni árið 1984. Nokkrar stórstjörnur hafa leikið með félag- inu. Þeirra á meðal eru Sir Stanely Matthews, Gordon Banks, Peter Shilton og Neil Frank- lin, fyrsti Bretinn sem spilaði knattspyrnu utan Bretlands. S5 Einn kunnasti leikmaður Stoke fyrr og síðar, mark- vörðurinn Gordon Banks. Hann varð heimsmeistari í knattspyrnu með Englendingum árið 1966, fyrir rúmum 33 árum. Sir Stanely Matthews var önnur stórstjarna sem spilaði með Stoke. Banks var á blaðamannafúndi fjárfestanna og var umsetinn af fjölmiðlamönnum. 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.