Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Qupperneq 24

Frjáls verslun - 01.10.1999, Qupperneq 24
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, er aðeins 34 ára. Hann er sá yngsti sem gegnt hefur stjórnarformennsku hjá ensku deildarliði. Gunnar Þór stóð sigfrábærlega á blaðamannafundinum í Stoke, var látlaus og traustur. Og hlegið var dátt þegar hann sagði: „ Við Elfar erum vissulega ungir. En ekki hafa áhyggjur afþví. Gefið okkur tíma, við munum eldast. “ þrýstir það líka á Lilleström að selja hann ætli það að fá eitt- hvað fyrir hann. Telja verður það visst styrkleikamerki hjá nýju fjárfestunum í Stoke að hækka sig ekki gagnvart Lil- leström og Rúnari. Með því gefa þeir út skýr skilaboð til mark- aðarins: Það verður ekkert bruðl í leikmannamálum!!! Enda er aðalatriðið að laun og leikmannakaup fari ekki úr böndun- um. Hins vegar má félagið heldur ekki halda að það geti feng- ið lykilmenn fyrir ekki neitt því peningar virka á þá sem gul- rót eins og aðra. Stoke hefur þegar gert leigusamning við KR um að fá Sigurstein Gíslason og Einar Þór Daníelsson til liðs við sig og eru þeir komnir út til félagsins. Báðir eru þeir leik- menn sem Guðjón gjörþekkir. Þá getur Stoke horft til annarra Norðurlanda og hugsanlega krækt í góða leikmenn á hóflegu verði. Stóra spurningin sem íslenskir knattspyrnumenn verða að spyrja sig núna að er hvort þeir séu tilþúnir til að fara til Stoke og leika fyrir Guðjón á „norskum launum" til að fá tæki- færi í breska boltanum og auka verðgildi sitt. Almennt eru bresk lið ekki á höttunum eftir íslenskum leikmönnum - ekki heldur þeim sem leika í Noregi eða Svíþjóð. Það er hinn kaldi veruleiki sem blasir við. Viðhorf leikmanna til Guðjóns og launamála mun því skera úr um það hvort Stoke verður Is- lendingafélag með hugsanlega þrjá til fimm íslenska leik- menn að jafnaði innanborðs. 1. deildin er forsendan Fjárfestarnir telja fremur líklegt að Stoke fari upp í 1. deild næsta vor, eða komist að minnsta kosti í sex liða umspil um 1. deildar sætið. Það þarf samt ekki að gerast á þessari leiktið til að áform fjárfestanna gangi eft- ir. Komist liðið hins vegar ekki í 1. deild á næstu leiktíð og haldi sér þar til langframa er afar ólíklegt að þeir hagnist á fjárfestingunni. Og enginn þeirra tók þátt í kaupunum án þess gera sér grein fyrir að það gæti orðið tap á ævintýrinu, t.d. ef liðið yrði aðeins miðlungs 2. deildar lið næstu árin og hvað þá ef það félli í 3. deild og yrði þar um hríð; þá gæti sú staða raunar hæglega komið upp að öll íjárafestingin tapaðist þótt kaupendur yrðu að félaginu vegna leikvallarins og traustra áhorfenda. Þetta er áhættufjárfesting eins og öll hlutabréfaviðskipti! Þegar þetta er skrifað er liðið í 7. sæti af 24 liðum í 2. deildinni og fimm stigum á eftir toppliðinu. Frh. á næstu opnu. ■ ■■■■■ Þeir keyptu Stoke Díu hópar fjárfesta eru kaupendur að breska knatt- spyrnufélaginu Stoke City F.C. Samtals voru lagð- ar fram yfir 900 milljónir króna, um 8 milljónir sterlingspunda, í dæmið. Um helmingur fjárhæðarinnar, 450 milljónir eru til hlutabréfakaupa, en hinn helmingurinn er lán til Stoke svo hægt verði að byggja félagið upp, kaupa leikmenn og bæta æfingaaðstöðuna. Láninu verður síðar breytt í hlutafé gangi félagið vel og ef fjárfestingin heppn- ast. Miðað við markaðsverð þekktra félaga í ensku 1. deild- inni er tvöföldun markaðsverðs Stoke á um þremur árum ekki óraunhæfur möguleiki komist liðið í 1. deild en áætl- anir Ijárfestanna ganga út á að Stoke komist upp í 1. deild og standi sig þokkalega vel þar. Stefnan hefur verið sett á úrvalsdeildina á næstu fimm árum en litið er frekar á það sem happdrættisvinning en raunhæfan kost - slíkur væri hinn fját'hagslegi ávinningur. Fjárfestarnir stofnuðu eignar- haldsfélagið Stoke Holding S.A. í Lúxemborg utan um ijár- festingu sína, kaupin á 66% hlutfjár í Stoke City F.C. Af skattalegum ástæðum er félagið skráð í Lúxemborg og hef- ur Kaupthing Luxembourg umsjón með félaginu: Flestir eiga hóparnir svipaðan hlut í eignarhaldsfélag- Hinir tiu hópar fjárfesta eru bessir: 1. Þorsteinn Vilhelmsson, einn aðaleigandi Samheija á Akureyri. 2. Lyngháls. Það er félag í eigu Sparisjóðabankans. 3. Kaupþing hf. 4. Kaupthing Luxembourg SA Félagið á hlutínn fyrir hönd nokkurra Qárfesta og er um stærsta hlutinn að ræða í hópi íjár- festanna. 5. Elfar Aðalsteinsson, frkvstj. Fiskimiða, og Þorvaldur Jónsson skipamiðlari. 6. Sundagarðar ehf. Félag Gísla V. Einarssonar og Eddu Ingi- bjargar Eggertsdóttur og tjölskyldu í Mata. Börn Gísla og Eddu eru Guðný Edda, Eggert Arni, Halldór Páll og Gunn- ar Þór. Sá síðastnefndi er núverandi stjórnarformaður Stoke City EC. 7. Júlíus Bjarnason í fyrirtækinu Stillingu. 8. Spectra AB. Þessi hópur er minnsti íjárfestirinn, með aðeins um 30 milljónir, en nokkuð Qölmennur. I honum eru menn eins og Pálmi Sigmarsson tjárfestir, Hörður Jónsson verktaki, As- geir Sigurvinsson, Þorvaldur Sigurðsson, Axel Gunnlaugs- son og fleiri. 9. Isóport Félag í eigu Hafliða Þórssonar, útgerðarmanns í Kópavogi. Hafliði býr í Kópavogi en er með útgerð sína, Njörð, í Sandgerði. 10. Magnús Kristinsson, útgerðarðarmaður Bergs-Hugins í Vest- mannaeyjum, fýrir hönd nokkurra ijárfesta. Magnús er stærstí eigandinn í þessum hópi en á meðal ijárfesta með honum er Þorsteinn Viktorsson, útgerðarmaður í Eyjum, sonurViktors Helgasonar athafnamanns í Eyjum. Þetta er einn stærsti hópur- inn. 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.