Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Side 33

Frjáls verslun - 01.10.1999, Side 33
viðtal anlega athygli að konur skyldu loks taka þar sæti. „Við trúum því að kynferði okkar hafi ekki haft úrslitavald um það að við vorum ráðnar í þessi störf þótt vissu- lega hafi ráðningin vakið athygli," segja þær stöllur. Ragnheiður bætir við að þær hafi orðið varar við þessa athygli á margvíslegan hátt og nefnir sem dæmi að eitt sinn þegar hún var að versla og í tal barst að hún ynni hjá KEA þá sagði afgreiðslumaðurinn: ,Já, svo þú ert önn- ur kvennana hjá KEA“. Þær hlæja að þessu og benda á að það vinni auðvitað fjöldi góðra kvenna hjá KEA og margar þeirra í ábyrgðarstöðum. Konurnar hjá KEfl Ragnheiður Björk er 41 árs og ólst upp á Suðureyri við Súgandaijörð. Eins og margir sem al- ast upp í litlum bæjarfélögum fór hún ung í skóla til Reykjavíkur en fríunum eyddi hún heima við vinnu í verslun föður síns. Ragnheiður Björk tók stúd- entspróf frá Verslunarskóla Islands árið 1978 og vann að því loknu að mestu leyti við bókhald og endurskoð- un. Tíu árum síðar tók hún sig upp og fór í rekstrarfræðinám við Samvinnu- háskólann að Bifröst. „Eg var í miklu talnaflóði áður fyrr,“ segir Ragnheiður, „og sá grunnur hefur reynst mér mjög vel í starfi mínu sem markaðsstjóri. Það er nefnilega gjarnan sagt um markaðsfólk að það hafi ekki tilfinn- ingu fyrir því að standast áætlanir en ég tel mjög mikilvægt að vinna mitt starf í samvinnu við fjármálaöflin í fyr- irtækinu." Heiðrún, sem er þrítug, kemur frá Húsavík, en 16 ára fór hún í Samvinnu- skólann að Bifröst þaðan sem hún lauk verslunarprófi. Að loknu stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands hélt Heiðrún til vetrardvalar í Þýskalandi en þá hafði hún gert upp hug sinn um að fara í lagadeild Háskóla Islands. Heiðrún er héraðsdómslögmaður og starfaði sem slíkur í þrjú ár hjá Lög- mannsstofu Akureyrar áður en hún tók við starfi starfsmannastjóra KEA. „Framundan voru spennandi tímar og miklar breytingar hjá KEA og þess vegna var ég áhugasöm um að hefja hér störf," eru orð Heiðrúnar þegar þær stöllur eru spurðar að því hvers vegna KEA hafi orðið fyrir valinu sem vinnustaður. „Þetta er gamalt fyrir- tæki. Innan þess hefur orðið mikil stefnubreyting og uppstokkun á síð- asta ári. Meiri breytingar hafa átt sér stað nú en ansi mörg ár þar á undan. Eg hafði trú á því sem stóð til og sé ekki eftir því að hafa gripið tækifærið enda hefur verið mjög gaman að taka þátt í þessu verkefni sem þó er alls ekki lokið.“ Það hafði ekki hvarflað að Ragnheiði Björk á sínum tíma að hún ætti eftir að flytja til Akureyrar og því síður að fara að vinna hjá KEA. „Þegar ég lauk námi að Bifröst bauðst mér starf hjá Olís en ég hafði skrifað lokaritgerð um fyrir- tækið ásamt félögum mínum í Sam- VIÐTAL: Halla Bára Gestsdóttir MYNDIR: Gunnar Sverrisson vinnuháskólanum. Hjá Olís var ég í átta ár og stjórnaði rekstri þjón- ustustöðva en áhuginn beindist í aukn- um mæli að markaðsmálum. Þegar mér bauðst svo staða markaðsstjóra hjá KEA þurfti því ekki miklar fortölur til að sýna mér fram á að þetta starf væri mjög áhugavert auk þess sem það var spennandi að fá að taka þátt í þeim miklu breytingum sem framundan voru,“ segir Ragnheiður Björk. Deildir verða að hlutafélögum „Félag- ið mun halda ótrautt áfram inn í nýja öld,“ voru orð Eiríks S. Jóhannssonar kaupfélagsstjóra í KEA-fregnum fyrir skömmu en þar ræddi hann þær breyt- ingar sem KEA er að ganga í gegnum til að standast þær skyldur sem aukin samkeppni og auknar arðsemiskröfur leggja á herðar íslenskra fyrirtækja. Ragnheiður Björk og Heiðrún segja að breytingarnar felist í því að verið sé að breyta helstu deildum félagsins í hluta- KEA konurnar Ragnheiður segir að þær hafi orðið varar við þessa athygli á margvíslegan hátt og nefnir sem dæmi að eitt sinn þegar hún var að versla og í tal barst að hún ynni hjá KEA þá sagði afgreiðslumaðurinn: „Já, svo þú ert önnur kvennana hjá KEA“. Þær hlæja að þessu og benda á að það vinni auðvitað fjöldi góðra kvenna hjá KEA og margar þeirra í ábyrgðarstöðum. 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.