Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Síða 37

Frjáls verslun - 01.10.1999, Síða 37
fasteignaveðlána til allt að 30 ára, jafnt til nýkaupa sem endurfjármögnunar, auk veðlána til eldri borgara. Fyrirtækið ann- astfjárvörslu fyrir einstaklinga og lögað- ila og sér þá alfarið um fjárfestingar og ávöxtun fjármuna og verðbréfasafna þessara aðila. Burnham International veitir sér- hæfða ráðgjöf til fyrirtækja og aðgang að erlendum ráðgjöfum Burnham Securities í New York. Snýr ráðgjöfin meðal annars að stefnumótun, viðskiptaáætlunum, fjárhagslegri endurskipulagningu, fjár- mögnun, áhættustýringu, samruna eða yfirtöku og loks kaupum eða sölu fyrir- tækja, bæði á íslandi og erlendis. Frá vinstri eru Ásta Óskarsdóttir, fjármálastjóri, Sigrún Waage gjaldkeri, Magnea Ragna Ög- mundsdóttir bókari og Sóley Asgeirsdóttir bókari. Gengi sjávarútvegs- og iðnfyrirtækja „Að undangenginni almennri lækkun á gengi sjávarútvegsfyrirtækja hefur gengi þeirra sem hafa sterka stöðu í bolfiski verið að hækka, en staðið í stað eða lækkað ennfremur hjá fyrirtækjum sem hafa sterka stöðu í uppsjávarfiskum. Ástæðu þessa má m.a. rekja til gagnstæðrar þróunar ytri skilyrða hjá fyrirtækjunum, þ.e. á mörk- uðum og veiðum," segir Jóhann Magn- ús Ólafsson sem er verðbréfamiðlari innlendra og erlendra verðbréfa hjá Burnham International með áherslu á fyrirtæki í sjávarútvegi og iðnaði. Sam- hliða þessu sinnir hann rekstrar- og fjár- málaráðgjöf með áherslu á sölu og sam- runa fyrirtækja. „Iðnaðarfyrirtæki sem flokka má sem hátæknifyrirtæki hafa verið að hækka en önnur hefðbundin iðnaðarfyrirtæki staðið í stað, nema þá Plastprent og Sæplast sem hækkuðu nú á haustmánuðum. Verð flestra félaga á þinginu er vissulega nokk- uð hátt um þessar mundir og hugsanlegt að einhver leiðrétting sé framundan eða a.m.k. takmörkuð hækkun. Til skemmri tíma litið ættu áhættufælnir fjárfestar því að horfa til stöðugra félaga sem virk við- skipti eru með á þinginu, en áhættusæknari fjárfestar hins vegar að líta til óskráðra félaga með a.m.k. einhvern hluta af safni sínu," segir Jóhann Magnús. Áhugi eykst á gjaldeyris- og vaxtaskipta- samningum Þorsteinn Ingi Garðarsson er verðbréfamiðlari og sinnir miðlun flestra tegunda verðbréfa með áherslu á gjaldeyris- og vaxtaskiptasamninga. Hann hefur einnig verið með innlend- og erlend samlög og Valréttar- bréf til sölumeðferðar. Þorsteinn Ingi segir: „Áhugi fjárfesta á gjaldeyr- is- og vaxtaskiptasamningum hefur aukist mikið að undanförnu enda eru fjárfestar að átta sig á því að hér er um áhugaverðan fjárfestingar- kost að ræða. Samningar sem þessir geta gefið mjög góða ávöxtun auk þess sem hægt er að stilla áhættunni í hóf með skynsamlegri samsetn- ingu á gjaldeyriskörfunni." Erlend hlutabréfasöfn Ragnar Már Gunnarsson er verðbréfamiðlari og sinnir miðlun flestra tegunda verðbréfa með áherslu á skráð hlutabréf og húsbréf og greiningu þeim tengdri: „Stærri fjárfestar hafa verið að færa hlutabréfasöfn sín meira út í erlend hluta- bréf og/eða að gera samninga sem tengjast er- lendum hlutabréfavísitölum. Ávöxtun banda- rískra hlutabréfa hefur t.a.m. verið mjög góð undanfarin ár og hefur raunávöxtun þar verið á bilinu 20-30%. Mjög skynsamlegt er fyrir fjár- festa að hafa hluta af eignasafni sínu í erlend- um verðbréfum og er í því sambandi oft talað um að menn fái eitthvað fyrir ekkert, þ.e.a.s. minni áhætta og betri ávöxtun. Nauðsynlegt er hins vegar fyrir fjárfesta að kynna sér vel hvað í boði er áður en haldið er af stað." „Sem dæmi um hið gríðarlega framboð erlendra fjárfestingakosta má nefna Riverside Holdings II L.P., sem við höfum haft til sölu- meðferðar sl. mánuð. Riverside er samlag sem fjárfestir eingöngu í Internetfyrirtækjum sem stefna að skráningu á verð- bréfamarkaði innan 8 mánaða. Ávöxtun sjóðsins hefur verið nokkur hundruð prósent á ársgrundvelli frá stofnun hans, en rétt er hins vegar að taka fram í þessu samhengi og almennt að enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér." „Við hjá Burnham International höfum yfir að ráða nokkuð breið- um hópi miðlara," segir Guðmundur Pálmason framkvæmdastjóri, „og bjóðum upp á óháða þjónustu sem þýðir að við rekum ekki sjálf- ir verðbréfa- og hlutabréfasjóði eða tökum stöður í félögum, heldur miðlum eingöngu verðbréfum og tryggjum þannig viðskiptavinum okkar hagkvæmustu kjörin og/eða fjárfestingarkostinn hverju sinni." 33 EE»»la 37

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.