Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Page 47

Frjáls verslun - 01.10.1999, Page 47
Eins og skínandi jólastjarna Marel er sigurvegari ársins á Verð- bréfaþingi! Er eins og skínandi jóla- stjarna efst á tránu. Gengi hlutabréfa í því hafa hækkað hreint lygilega frá ára- mótum, eða um 188%, sem er nánast þreflöldun á ellefu mánuðum. Það er núna um 40,00 en var 13,95 í byrjun ársins. Sagt og staðið! á skattaafsláttinn svonefnda. Einstaklingur sem kaupir bréf fyrir um 133 þúsund krónur fær 80 þúsund hámarks frádrátt á tekjum sem aftur lækkar skatta hans um 31 þúsund krón- ur. Hjá hjónum er þetta tvöfalt meira. Kaup á bréfum fyrir 266 þúsund krónur skila sér í rúmlega 61 þúsund króna lækkun skatta. Skattaafslátturinn verður veittur í síðasta sinn árið 2002 þannig að fjögur skipti eru eftir - því er um að gera fyrir alla að nýta sér hann á meðan færi gefst. Marel er sigurvegari ársins Hlutabréfaviðskiptí á Verðbréfa- þingi hafa verið lífleg á þessu ári, eins og á undanförnum árum. Marel er sigurvegari ársins á Verðbréíaþingi! Er eins og skínandi jólastjarna efst á trénu. Gengi hlutabréfa í því hafa hækkað hreint lygilega frá áramótum, eða um 188%, sem er nánast þreföldun á ellefu mánuðum. Það er núna um 40,00 en var 13,95 í byrjun ársins. Sagt og staðið! Þetta verð- ur tæplega leikið eftir á næstunni. Þess má geta að gengi bréfa í Marel hefur sveiflast mjög á undanförnum árum, til dæmis fór það upp í um 27,0 í maí árið 1997, fyrir tveimur og hálfu ári, þegar tilkynnt var um kaupin á danska fyrirtækinu Carnitech. Stóra málið hjá Marel er sá viðsnúningur sem þar hefur orðið í rekstri á þessu ári. Markaðurinn tiúir því að sá bati sé varanlegur. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins nam um 225 milljónum borið saman við 77 milljóna króna tap sömu mánuði árið áður. Verðbréfaþingið gerir marga ríha Úrvalsvísitala Verðbréfa- þings hefur hækkað um 34% frá áramótum og stendur núna í um 1.490 stígum. Allir hlutabréfaeigendur spyrja sig núna að þvi hvort vísitalan sé komin yfir hæðina og hvort dalur sé framundan, eða hvort hún muni halda áfram að hækka. Flestir telja að úrvalsvísitalan hækki á næsta ári - en mun minna en hún hefur gert á þessu ári. Að hækkun hennar verði kannski á bilinu um 20 til 25%. Verðmætustu fyrirtækin á Verðbréfaþingi, bankarnir og Eimskip, vega býsna þungt í úrvalsvísitölunni og leiða hana að vissu leyti. Verði áfram miklar hækkanir á bréfum í bönkunum munu þær koma fram í úrvalsvísitölunni. Kjarasamningar eru á næsta ári og þeir gætu sett strik í reikninginn. Stórfelldar launahækkanir munu minnka hagnað fyrirtækja og kynda auk þess undir verðbólguna verði kostnaðarhækkunum dengt út í verðlagið. Almennt ríkir þó mikil bjartsýni á næsta ár og að góðærið haldi áfram. Þeir sem trúðu á bjarta tima í efnahagslífinu í árslok 1992, þegar þjóðin var í öldudal hagvaxtar, og ljárfestu í bréfum traustra fyrirtækja geta unað hag sínum vel. Úrvals- vísitalan hefur nær fimmfaldast á síðustu sjö árum. Hún var um 323 stig í árslok ‘92 en er núna um 1.490 stig. Verðbréfa- þingið hefur gert marga rika á síðustu árum!! t£j lHUl Hagn. f. 6 mán. Ávöxtun hlutabréfa Gengi Hagn.f. 6 mán. Hagn. f. 9 mán. Félög frá áram. 29/11/99 1999 1998 1999 Marel 188% 40,00 225 -77 islenski hugbunaöarsj. 118% 3,48 -11 - Skýrr 101% 11,00 31 35 57 Sæplast 89% 9,40 21 7 26 Skeljungur 86% 7,35 211 102 Nýherji 81% 13,70 131 41 Olis 74% 8,50 163 124 Landsbanki íslands 70% 3,90 722 489 Skagstrendingur 70% 10,25 130 73 FBA 69% 3,10 734 349 908 Búnaöarbankinn 65% 4,55 590 242 851 Frumherji* 61% 2,50 17 3 Oliufélagiö 58% 10,60 234 161 Þróunarfélagiö 56% 2,80 349 133 Þormóður-rammi Sæberg 54% 5,90 183 127 Samvinnusjóður íslands 52% 2,30 76 56 132 ÚA 50% 7,60 180 192 Eimskip 46% 11,33 635 1.142 Þorbjörn hf. 46% 7,20 188 111 Guömundur Runólfsson* 41% 6,75 103 12 íslandsbanki 37% 5,15 693 597 1.173 Opin kerfi 35% 104,00 40 66 100 íslenskir aöalverktakar* 35% 2,40 41 60 Össur hf. 29% 30,90 77 - 111 Tæknival 25% 9,06 -144 -37 Flugleiöir 24% 4,25 595 -1.578 2.057 SH 23% 4,75 -154 57 Hraðfrystihúsiö-Gunnvör 20% 6,50 44 50 Tryggingamiöstööin hf. 19% 40,70 162 183 Eignarhaldsf. Alþýöub. 17% 2,10 133 66 Jarðboranir 17% 6,05 48 34 Grandi 17% 5,72 361 324 Básafell 14% 1,60 -229 -30 Fiskmarkaöur Breiöafj.* 11% 2,10 11 - Lyfjaverslun Islands 10% 3,30 37 22 Hampiöjan 10% 4,20 87 102 íslenska járnblendifél. 10% 2,80 -169 424 Samherji 9% 9,30 200 506 Þlastprent* 7% 2,90 -53 -39 Vinnslustööin 7% 2,15 -605 - Vaki DNG* 7% 4,80 1 4 Pharmaco 6% 13,20 201 57 241 Sildarvinnslan 5% 5,00 83 209 Hans Petersen* 4% 5,25 15 28 SÍF 2% 5,92 51 441 KEA* -1% 2,25 48 -142 Héöinn* -2% 5,45 33 36 íslenskar sjávarafuröir -2% 2,30 39 -138 Samvinnuferöir Landsýn* -2% 2,05 -34 -26 Fóöurblandan* -4% 2,00 47 49 Baugur -4% 9,55 206 102 Fiskiðjusamlag Húsav. -6% 1,70 -81 - Haraldur Böövarsson -7% 5,10 361 253 Jökull* -11% 2,05 -122 -69 Tangi -11% 1,70 83 85 Hraöfrystihús Eskifj. -13% 8,02 143 275 Hraðfrystistöö Þórsh. hf. -16% 2,40 -13 - Loðnuvinnslan* -23% 1,50 -54 66 SR mjöl -23% 3,30 -60 155 Delta -25% 13,20 -25 - SS* -29% 1,85 36 38 Skinnaiönaöur* -32% 2,65 -86 - Krossanes* -52% 3,35 -45 45 Stálsmiöjan* -67% 1,30 -22 30 B—M—I 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.