Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1999, Side 57

Frjáls verslun - 01.10.1999, Side 57
Netínu og stendur ung kona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, að henni. Þar verður á boðstólum dömu- og herrafatnaður frá breskum, dönskum og ítölskum tísku- vöruverslunum, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins hefur langa reynslu af inn- kaupum í þeim geira. Erlendis hefur slík netverslun þróast nokkuð og hefð er að komast á hana. Þó má gera ráð fyrir því að fólk kaupi helst grunnfatnað, þ.e. nærföt, sokka og annað sem lítið þarf að máta þangað til þróuð hafa verið forrit þar sem hægt er að slá inn mál af viðkomandi og kannski setja inn andlit hans á sýningar- aðilann og með því finna betur hvaða fatn- aður passar hverjum. Toppurinn á isjakanum Tískan lætur ekki að sér hæða og þótt hefðbundinn fatnaður viðskiptajöfra hafi verið jakka- föt, skyrta og bindi svo lengi sem elstu menn muna, þá er hreint ekki sama hvaðan fatnaðurinn kemur eða hver framleiðir hann. Vandaður herrafatnaður verður alltaf í tísku og þótt hann sé dýr í innkaupum til að byrja með má gera því skóna að hann endist mun betur en óvandaður og því stundum betra að eyða meira en minna. Þeir sem til þekkja sjá samstundis hvort fötin eru keypt í stór- markaði eða sérverslun með vandaðan fatnað. Efstar á lista á hvað vandaðan karlmannafatnað varðar hafa einkum ver- ið tvær verslanir hér á landi, Herragarð- urinn og Sævar Karl, sem byggði upp og kynnti Boss vörumerkið hér á landi. Ungir athafnamenn HÁESS; fyrirtæki þeirra Hákonar Magnússonar, Hákonar Hákonarsonar og Siguijóns Þórssonar, á og rekur nokkrar verslanir: Herragarð- inn, sem er á tveimur stöðum, í miðbæn- um og í Kringlunni, Hanz í Kringlunni, en þar miðast úrvalið fremur við yngri karlmenn, og Blues sem er verslun fyrir bæði kynin. Það er ekki langt síðan þeir keyptu stærstu skóverslun landsins, Steinar Waage, en aðaláherslan er lögð á herrafatnaðinn enn sem komið er. Einnig hefur verið opnuð sérstök Boss verslun í Kringlunni sem rekin er af fýr- irtæki sem heitir H.G.S., en það er að 60% í eigu HÁESS en 40% í eigu Guð- mundar Olafssonar sem átti og rak Hanz í Kringlunni. Gæðavara og góð pjónusta „Við leggj- um áherslu á að vera með gæðavöru fyrst og fremst," segir Siguijón Þórsson einn eigenda Herragarðsins. „Sum merkjanna eru vel þekkt hér á landi og nægir að nefna Eterna skyrturnar, sem eru úr straufrírri bómull og mjög vandaðar, enda má leiða að því líkum að annar hver mað- ur í viðskiptalífinu noti þær. Annað þekkt merki er Nino Danieli, sem er ítalskt að uppruna, og Strellson sem er svissneskt merki. í búðinni í Kringlunni höfum við það sem kallað er búð í búð, 40 fermetra undir Strellson merkið þar sem hægt er að fá allar vörur sem því tilheyra, allt frá sokkum upp í frakka. Með þvi að skapa slíkt heildarumhverfi er auðveldara að koma á framfæri ímyndinni sem merkið krefst og fólk á auðveldara með að versla. Við höfum lítið farið inn á fermingarmark- aðinn, rétt aðeins í Hanz, en erum nú að fóta okkur á skómarkaðnum eftir kaupin á Steinari Waage. Við erum litlir miðað við er verðmætur! • Er öflugt tæki til verkskráningar og útreiknings á áætluðum launakostnaði. • Tengist flestum launakerfum, hefur öfluga vaktaskráningu og fjölbreyttar skýrslur. Hlíðasmára 12 • 200 Kópavogur • sími 540 3000 • fax 540 3001 • www.hugur.is PN HIIC.UR FORRITAÞRÓUN 57

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.