Alþýðublaðið - 22.06.1976, Side 4
4 iÞRðTTIR
Þriðjudagur 22. júní 1976 bia&fð1
Leikur helgarinnar er að þessu sinni Jeikleysa" helgarinnar
Sem leik helgarinnar völdum
viö leik KR og IBK.
Betra nafn á þennan leik væri
leikleysa helgarinnar.
Langtlmur saman og reyndar
mestan hluta leiktimans gekk
boltinn mótherja á milli i leiö-
indaþófi á miöju valiarins. Þaö
samspil, sem i leiknum sást,
áttu KR-ingar þó mestan heiö-
urinn af. Þeir geröu itrekaöar
tilraunir til þess aö ná upp ein-
hverju spili og þó þaö tækist
sjaidan, er þetta meira en hægt
var aö segja um þá Suöurnesja-
menn, þvi fengi sóknarmaöur
þeirra knöttinn virtist hann ekki
hafa hug á þvi aöafhenda hann
aftur meö góöu og enduöu næst-
um allar sóknir þeirra meö þvi
varnarmaöur KR-inga
hirti boltann af fótum þeirra.
Aöeins einn sóknarmaöur
Keflvikinga var undanþeginn
þessari ádrepu og var þaö
Ólafur Júliusson. Sendingar
hans voru nákvæmar og yfir-
vegaöar og var vinnsla hans og
yfirferö i leiknummjög mikil.
Lofaði góðu.
Upphaf leiksins gaf tilefni til
bjartsýni þvi strax á annarri
minútu kom fyrsta markiö.
Gefin var sending fram til Árna
Guömundssonar, sem hljóp af
sér varnarmenn Keflvikinga og
skoraöi framhjá Þorsteini
Ólafssyni, sem var illa staö-
settur i markinu.
Þær vonir, sem áhorfendur
höföu gert sér um leikinn
dofnuöu fljótt er á leikinn leiö.
KR-ingar voru mun sprækari og
meira meö boltann án þess aö
skapa sér teljandi færi. Beztu
marktækifæri KR-inga áttu
Hálfdán örlygsson, er hann átti
skot i stöng af stuttu færi, slik
þruma aö markiö skalf viö, og
minútu síöar skaut Jóhann
Torfason framhjá, er hann stóö
fyrir opnu marki.
V ar narleikmennirnir
skæðastir.
Sóknarleikmenn Suöurnesja-
manna voru ekki iönir viö aö
skapa sér færi i fyrri hálf-
leiknum. Tvö beztu færin áttu
þeir Guöni Kjartansson og Einar
Gunnarsson, en þeir komusl'
báöir innfyrir vörn KR-inga en
skotbeggjamistókust illa. Báöir
eru þeir varnarleikmenn.
Þruma úr heiðskiru
lofti.
Dómarinn bætti nokkrum
minútum viö fyrri háfleikinn
vegna tafa og meöan leikmenn
biöu eftir flautu dómarans,
voru Keflvikingar eitthvaö aö
dútla meö boltann fyrir utan
vitateig Vesturbæjarliösins,
þegar Guöjón Guöjónsson fékk
boltann og skaut þrumufleyg i
mark KR-inga, algerlega óverj-
andi fyrir Magnús Guömunds-
son.
Seinni hálfleikur.
Keflvlkingar mættu ákveönir
til leiks i síöari hálfleik og voru
öllu meira meö boltann, en
leikurinn fór sem fyrr næstum
allur fram á miðjunni. Hvorugu
liöinu tókst að skapa sér færi
svo nokkru næmi og leyföu
margir áhorfendur sér aö segja
aö leikurinn væri' nánast hund-
leiöinlegur. Réttara væri e.t.v.
aö tala um áheyrendur þvi það
athyglisveröasta, sem geröist á
vellinum I lengri tima, var
öskurkeppni sem þar fór fram.
Ekki er gott að gera sér grein
fyrir þvi, hvort liöið sigraöi i
þeirri keppni, en þaö var ekki
fyrr en á 35. minútu, sem menn
þurftu aö nota augu sin aftur, en
þá átti Ottó Guömundsson
hörkuskot af 35-40 m færi og
þurfti Þorsteinn að taka á öllu
sinu til aö verja þaö.
NU voru KR-ingar búnir aö ná
góöum tökum á leiknum aftur
og rétt á eftir skoti Ottós átti
Arni Guömundsson gott skot
framhjá eftir fallega fyrirgjöf
Hálfdáns örlygssonar. Attu
KR-ingar nú nokkur færi, þó
ekki væru þau mjög upplögö.
önnur þruma úr heið-
skiru lofti.
Rétt fyrir leikslokin var
Guöjóni Guöjónssyni fariö aö
leiðast þófiö. Svo virtist, sem
KR-ingar væru lika orönir leiöir
á jafnteflum, svo þeir buöu
Guöjón velkominn og opnuöu
vörn sina i fulla gátt og hörku-
skot Guöjóns réöi Magnús ekki
viö. Laglega gert hjá Guöjóni.
Þófiö, þ.e.leikurinn,hélt áfram i
nokkrar minútur, en iauk siðan
meö flautu dómarans, áhorf-
endum, þ.e.a.s. þeim, sem ekki
voru löngu farnir, til mikils
léttis.
Liðin.
Hjá KR-ingum var Halldór
Björnsson beztur en einnig voru
Arni Guömundsson og Hálfdán
örlygsson friskir. Aö ööru leytí
skar enginn sig úr en liöiö vann
vel. KR-liöiö er þannig, aö erfitt
er aö vinna þaö vegna bar-
Sttugleöi leikmanna, en liöiö á
ekki gott meö aö skora mörk og
þaö eru þau sem gilda.
Hjá IBK voru aöeins tveir
menn, sem sýndu einhverja
kanttspyrnu. Þaö voru þeir
Einar Gunnarsson og Ölafur
Júliusson. Aörir sýndu ekki
mikinn lit, að visu skoraði
Guöjón Guöjónsson tvö glæsileg
mörk en sást lltiö þess utan.
Fjarvera Glsla Torfasonar
vakti athygli, þar sem hann
hefur veriö bezti maður liösins i
sumar.
Dómari leiksins var Bjarni
Pálmason og dæmdi hann ágæt-
lega.
Aö lokum má benda vallar-
starfsmönnum á, að þó aö gott
sé aö nýta allt túniö, sem ræktaö
hefur veriö á vallarsvæðinu,
ættu þeir aö benda áhorfendum
á aö mæta meö sjónauka á
ýollinn, ef ætlunin er aö láta
leikinn fara fram svona langt
frá áhorfendasvæöinu. aTA.
1. Guðjón skorar sigur-
markið.
2. Keflvikingar fagna
jöfnunarmarkinu.
3. Það leiddist flestum
á leiknum, sem ekki
gátu skemmt sér sjálf-
ir.
Vaiur vann
Þrótt í gær
Leikur Vals og Þróttar I 1.
deildar keppni i knattspyrnu i
gær fór þannig, aö Valur vann
Þrótt meö sex mörkum gegn
einu.