Alþýðublaðið - 22.06.1976, Side 7
blartð* Þriðjudagur 22. júní 1976
afl
REKSTURSKOSTNAÐUR BIFREIÐA
VILLANDI I)T-
REIKNINGAR FÍB
Fyrir nokkru birtist
hér i blaðinu frétt um
að FIB hefði reiknað út
að það kostaði tæpar 40
kr- að aka hvern km á
einkabil. í sömu frétt
sagði að opinberir
starfsmenn fái 31 kr.
fyrir hvern km sem
þeir aka eigin bil i þágu
vinnuveitanda sins.
Niðurstöðutölur þessar
voru birtar án þess að
þær væru kannaðar að
nokkru leyti og er
kunnugt um að þær
hafa valdið nokkrum
kurr i röðum opinberra
starfsmanna sem telja
sig samkvæmt þessu
vera hlunnfarna, og
rikið hafi af þeim
ómældar fjárhæðir
með þvi að greiða allt
of litið fyrir akstur
þeirra á eigin bilum i
þess þágu.
Útreikningar FÍB.
Útreikningar FÍB bera yfir-
skriftina: „Aætlun um rekstur-
kostnaö Volksvagen 1300—1301.
Meöalkostnaður 7 ára miöaö viö
verðlag á þeim tima sem til-
greindur er.
1 þessari áætlun eru teknir
meö I reikninginn alls 11 liöir.
Þeir eru: Afskriftir, benzin,
smurning, hjólbarðar, vara-
hlutir, viögeröir, ábyrgöar-
trygging, kaskótrygging, bif-
reiöaskattur og ýmislegt, auk
vaxta af samanlagöri upphæö
ofantaldra 10 liöa.
1 dæminu er gengið út frá
veröi á nýjum bil af ofannefndri
tegund. Afskriftir eru
reiknaðar 13,5% á ári, að eknir
séu 16 þús. km á ári, benzin-
eyösla sé 11 litrar á 100 km,
skipt sé um oliu og bíllinn
smurður eftir hverja 2 þús. km-
aö biilinn sé 60 klstá ári á verk-
stæði. Varahlutakaup séu miðuö
viö rekstur bifreiöar i 7,5 ár.
Tryggingariðgjald miöast viö
30% afslátt, en ekki tekiö tillit til
sjálfsábyrgöar, kaskótrygging
er reiknuöö með 12 þús. kr.
sjálfsábyrgð.
Vextir af samanlögöum þess-
um liöum eru reiknaðir 16,55%
Aö gefnum þessum forsend-
um reiknar FIB aö þaö kosti
634.691,- krónur aö reka Volks-
wagen 1300 bifreið á ári.
Miðað viö 16 þús.km. akstur
þýöir þetta að hver km kosti kr.
39,67. Sé vöxtum hinsvegar
sleppt þá verður kostnaöurinn
samtals kr. 544.542,- sem gefúr
34,03 kr. á hvern km.
Allar þessar tölur eru
miöaöar viö verðlagiö eins og
það var þann 6. mai sl.
Ýmislegt athugavert
Viö skulum nú iita á einstaka
þætti I útreikningum FIB. Af-
skriftirnar 13,5% eru eins og
áður sagði reiknaðaraf 1.250.000
krónum og gefur það 168.750 kr.
Benzineyðslan er alls 1760
litrar á veröinu 70 kr, pr. litri.
Fyrir þessa tilteknu bifreiöa-
tegund er þetta trúlega rétt, en
fjöldi einkabifreiða eyöir minnu
en þessu.
Þennan bil þarf að smyrja á
2000 km fresti og er það gefið
upp af verksmiöjunni. Margar
aörar bifreiöategundir þarf aö
smyrja mun sjaldnar. Þennan
liö mætti þvi lækka nokkuö.
Hjólbaröanotkun er sögð vera
2,5 stk. á ári. Mörgum þætti
þetta nokkuö riflega reiknað,
einkum þeim sem eingöngu aka
á malbikinu I Reykjavik. FIB
gerir ráö fyrir þvi i sinum
reikningum sem geröir voru i
fyrstu viku i mai að hjólbarði
undir þessa biltegund kosti 9.500
kr. stykkið. Undirritaður gerði
könnum hjá lOaðilum sem selja
dekk og varö meöalverðiö sem
fékkst úr þeirri könnun, en hún
var gerö 16. júni, kr. 8569.
Varahlutir og við-
gerðir.
Varahlutakostnaöur við þessa
bifreiö er samkvæmt út-
reikningum FIB kr. 60 þúsund.
Hérerþörf aö minna á aö þegar
afskriftir eru reiknaöar er gert
ráö fyrir þvi aö bifreiöin sé ný.
Aö minu mati fer þaö ekki
saman að gera I ööru oröinu ráö
fyrir þvi aö billinn sé nýr, en i
hinu orðinu er gengið út frá 7
ára gömlum bil.
Það sama veröur að segja um
liðinn „Viögeröir”. Þar er gert
ráö fyrir þvi aö nýr bfllinn þurfi
að vera 60 klukkustundir á verk-
stæði á ári.
Undirrituðum þætti litiö til
bifreiðar af þessu tagi koma.
Væri hinsvegar um aö ræöa 7
ára gamla bifreið, þá gegndi
öðru máli.
Samkvæmt upplýsingum frá
FIB er ekki stuðst viö neinar
ákveðnar viömiðanir, heldur
eru þessar tölur búnar til sam-
kvæmt tilfinningu þess sem
reiknaði.
Réttreiknað og of-
reiknað.
Viö liöinn „ábyrgðartrygg-
ing”er ekkert aðathuga. Þö má
geta þess aö unnt heföi verið að
hafa þessa upphæö hærri heföi
iögjald af framrúöutryggingu
og farþegatryggingu veriö
reiknaö meö. Það er hins vegar
ekki gert, enda þótt þorri öku-
manna kaupi þá tryggingu
einnig.
Kaskótryggingin er of-
reiknuð. Nettóiögjaldiö af VW
1300 árgerö 1976 er krónur
51.300. Þá er miðað við 17 þús-
und króna sjálfsábyrgö. Þess
ber aö geta aö þessi sjálfs-
ábyrgð þýöir aö billinn sé
tryggður i 1. áhættuflokki og er
iðgjaldiö þá hæst.
Það er hinsvegar hægt að
kaupa kaskótryggingu með
sjálfsábyrgö allt aö 200 þús. kr.
og er þá iögjaldiö orðiö um
helmingi lægra en aö ofan getur.
Hér er semsagt reiknað með
minnstri sjálfsábyrgö og þvi
hæstu iðgjaldi.
Reikningsaðferðin
Hvernig er svo reiknaö út hjá
FIB mönnum. Gert er ráö fyrir
þvi að bónusinn sé hinn sami og
i ábyrgðartryggingunni, en
einnig er gert ráö fyrir þvi aö
tryggingartakinn noti sjálfs-
ábyrgöina sem var i 1. áhættu-
flokki i fyrra þ.e. 12 þúsund
krónur. Sú upphæð er lögð viö
nettó-iðgjaldiö 51.300 kr. síöan
er 30% bónus dreginn frá og 20%
söluskattur auk stimpilgjalds
lagður við. Þannig tekst FIB aö
reikna út að kaskótryggingariö-
gjaldiö sé krónur 53.928 á ári.
Þessar reikningsaöferðir fá
ekki staöist, en væri rétt reiknaö
yröi iögjaldið tæpar 44 þúsund
krónur.
Að tvennu er þó að gæta i
þessu sambandi: Ekki bjóöa öll
tryggingafélög uppá 30% bónus
af þessum tryggingum, og hitt
er aö stimpilgjald aö upphæö 800
krónur þarf aðeins aö greiöa
einu sinni.
Liðurinn „Ýmjslegt-- er
áætlaður kr. 12 þús. og er hann
liklega varlega áætlaður.
Vextir eða ekki?
Þegar hér er komiö sögu er
summan af 10 liöum orðin
544.542,00 kr. i útreikningum
FIB.
Sé þessari upphæð deilt með
km fjöldanum þá fæst út veröiö
34 kr. fyrir hvern ekinn km.
Næsta skref FIB er aö reikna
vexti af upphæöinni og leggja þá
viö hana til þess aö fá út
„endanlegt” verö.
Við þann vaxtareikning er
notuð 16,5%. Þessi upphæð er
sögð vera meðalvextir, en
meðal vextir af hverju.
Meðalvixilvextir, miöaö við
aö 3/4% hækkunin hafi komið á
frá og meö 1. april gefur 16,5%
vexti á ári.
Þess ber þó að gæta aö ekki
stendur pétur og páll i þvi aö
lána fólki úti i bæ hálft sjötta
hundrað þúsunda og taka af þvi
láni venjulega vlxilvexti.
Það er heldur ekki gert ráð
fyrir þvi aö vaxtatekjur sem
þessar eru skattskyldar. Þá
upphæð yrði þvi að draga frá
vaxtatekjunum til þess að út-
reikningarnir yröu réttir.
Sama gilti ef viðkomandi
legði peningana inn á bók, i
banka og fengi af þeim vexti, þá
er mjög liklegt að hann yröi aö
greiða skatt af vöxtunum.
Það sem hinsvegar réttlætir
að vextir séu reiknaöir er, að
eigi viökomandi fjárhæöina i
banka og skuldarstaða hans sé
slik að hann þyrfti ekki að
greiöa skatt af upphæöinni þá
væri hér um aö ræöa hreinar
tekjur.
Ef sá hinn sami keypti bil
fyrir þetta fé þá yröi hann
auðvitað af þessum vaxta-
tekjum.
Viö vaxtareikninginn er sem
sagt þaö aö athuga að þaö oikar
tvimælis hvort nokkur hagur sé
i þvi að reikna þessa vexti og
hitter að hlutfalliö sem notaöer
til aö reikna þessa vexti kemur
kynlega fyrir sjónir.
Ósamræmið er viðar
Það hefur þegar veriö minnzt
á að afskriftir eru reiknað
ar af nýjum bil, og einnig að
varahlutir og viögerðir eru
miðaðar við sjö ára gamlan bil.
Þvi er ekki úr vegi að spyrja
hvort afskriftirnar séu ekki of-
reiknaðar? Væri þeirri reglu
fylgt að miða við sjö ára gamlan
bil og þær afskriftir sem FÍB
reiknar með þá er ljóst að ekki
væri unnt aö afskrifa nema um
82 þúsund krónur af bilnum. Til
viðbótar þvi má nefna að kaskó-
tryggingin af bilnum væri um 20
þús. kr. lægri en FIB gerir ráð
fyrir I sinu dæmi. 1A móti kæmi
aö viðgerðarkostnaður og vara-
hlutakostnaðurinn sem FIB
gerir ráð fyrir væri þá orðinn
nokkuð sennilegur.
Væri dæmiö reiknað út frá
sömu forsendum til enda verður
útkoman sú að hver km kostaði
27,25 kr. án vaxta, en ef venju-
legir vixilvextir væru teknir
með I dæmið þá yrði útkoman
30,79 kr. fyrir hvern ekinn km.
Væri dæmið reiknað þannig
aö tekiö væri mið af nýjum bil
og þannig reiknað til enda kem-
ur i ljós að km-gjald án vaxta
væri 27.70 kr. og meö venjuleg-
um bankavöxtum yrði þaö 31,30
kr.
Að endingu skal rifjaö upp aö
FIB tókst að reikna út að
kostnaðurinn viðekinn km. væri
34 kr. án vaxta, en 39,67 meö
þeim, en opinberir starfsmenn
fá 31 kr. fyrir hvern ekinn km
miðað við að þeir aki 10 þús.km
i þágu rikisins.
Eirikur Baldursson