Vísir - 05.09.1969, Page 3
VfSIR . Föstudagur 5. september 1969.
Nú borgaði
— Vestmanneyingar sóttu og áttu tækifærin —
• Nú á dögum er alls
kyns kröfugerð í tízku í
heiminum. Krafa dagsins í
gær í Vesímannaeyjum
var „BIKARINN HEIM“.
Eftir jafntefli við KR. 3:3
í gærkvöldi á heímavellin-
um, eiga Eyjamenn enn of-
urlítinn vonarneista um að
geta uppfyllt þessn kröfu,
en sannarlega hefð* sú von
orðið stærri, ef sigur hefði
náðst, en gangur leiksins
var slíkur, að ekki hefði
verið nema sanngjarnt, að
helmaliðið hefði sigrað 5:3.
Mér er sagt að KR hafi sótt linnu
litið gegn Eyjum í Reykjavík í 1.
deildinni i knattspyrnu i síðasta
Sfadon í 1. deild
eftir leikinn í gær í Eyjum:
r
1 Vestmannaeyjar —KR 3:3 (1:2)
Keflav. 10 6 1 3 17:10 13
Akranes 9 4 2 3 18:4 10
Valur 10 3 4 3 15:17 10
Vestm.e. 9 2 5 2 17:17 9
KR 10 3 3 4 22:20 9
j Akure. 10 2 5 3 11:14 9
! Fram 10 2 4 4 8:16 8
i-------------------------------
mánuði. Þannig var það í gær-
kvöldi nema hvað Eyjamenn voru
í sóknaraðstöðunni að þessu sinni.
Hins vegar brutust KR-ingar upp
öðru hverju með miklum hraða og
öryggi, og sýndu framlínumenn og
tengiliðir góðan leik, einkum þeir
Ólafur Lárusson i Baldvin Bald-
vinsson.
Marktækifærin við KR-markið
urðu hins vegar mun fleiri, en þau
sem KR-ingar fengu. En hvað um
það, markasaga leiksins í gærkvöldi
var þessi:
Á 15. mínútu hóf Tómas Pálsson
yinstri útherji I'BV skorunina, átti
fast og gott skot utan úr víta-
teigshorni. Guðmundur Pétursson
fékk ekki við neitt ráðið.
Ólafur Lárusson jafnaði þetta 7
mín. síðar fyrir KR. Hann fékk
boltann fyrir markið frá hægri
kanti og skoraði örugglega af
stuttu færi innan vítateigsins.
Vart leið mínútan, áður en Bald-
vin Baldv.nsson hafi skallað glæsi-
lega í netið hjá Páli Pálmasyni. Enn
kom boltinn fyrir markið frá hægri.
Á 30. mínútu átti Óskar Valtýs-
son gott færi, rétt á eftir var hann
enn í ágætu færi til að jafna, og
Sigmar átti ágæta fyrirgjöf.Ásem
miðjumennirnir hefðu örugglega
átt að skora úr. Þá átti Valur
Andersen gott skot, en allt kom fyr
ir ekki, og KR hélt til leikhlés með
2:1 forystu.
Gullskallinn, Haraldur Júlíusson
sannaði enn einu sinni að hann
stendur undir nafni, hann greip lag
lega inn í hornspyrnu frá Tómasi
Fjögur afboð fyrir
landsleik við Frakka
0 Fjórir leiknienn úr 22 manna
hópi sem Hafsteinn Guðmundsson
valdi í sambandi við leikinn gegn
Frökkum 25. sept. n.k. hafa gefið
ífsvar, telja sig ekki munu geta
verið með. Þeir eru Sigurður Dags
son, Halldór Björnsson, Gunnar
Austfjörð og Páll Pálmason. Óá-
kveðnir eru þeir Ársæll Kjartans-
son og Eyleifur Hafsteinsson.
KR-ingar fara til Hollands tví-
vegis í þessum mánuði, um miðj-
an mánuðinn og í lok hans. Mundi
Frakklandsferðin því falla inn í
það „program" ef ti kæmi • og
spara KR ferðakostnað.
Æfingar landsliðsins hafa að
mestu fr.'Iið niður, enda ieikir mjög
þétt hjá félögunum. í kvöld verð-
ur fundur með landsliðsmönnum
og þrekmæling.'
IslaíataláláöIsEalálaŒiíslatÉiEaíalaláfsla
5!
STÁLHÚSGÖGN g
húðuð með hinu sterka og
áferðarfallega RILSAN
(NYLON 11)
Framleiðandi:
STÁLIÐN HF., Akureyri
B
B
Ei
[HiÁ _____________________________________________....
15] Sölúumboð: ÓÐINSTORG HF. Skólavörðustíg 16, Reykjavfk
EIElElElEllHIEniaUalElEISUalEillJlLjlElIjlSlIalBi
fyrír sig
en jafntefli varð 3:3
og skallaði fram hjá Guðmundi Pét-
urssyni í markinu. Var þetta glæsi
lega gert.
Enn héldu Eyjamenn áfram að
sækja mun þyngra en KR-ingar, og
átti Sævar t.d. dauðafæri, en skaut
yfir.
Vestmannaeyingar náðu samt for
ystunni. Hornspyrna var dæmd á
KR, boltinn virtist ekki ætla að
hitta á neinn einstakan Vestmanna-
eying, — en hvað gerist, — Viktor
Helgason, miðvörður kemur þjót-
andi og „neglir“ boltann með skalla
gjörsamlega óverjandi í markið,
3:2 fyrir ÍBV.
Á 28. mín. varð Páll að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla.
Jöfnunarmark KR skoraði Eyleif
ur Hafsteinsson, brunaði upp og
fékk fyrirgjöf, en varnarmenn sáu
ekki við Eyleifi, sem skoraði með
í föstu og fallegu skoti, 3:3.
j Þannig lauk þessum leik, sem
, var fast leikinn án þess þó að
1 vera grófur, en dómarinn, Þorvarð
ur Björnsson hélt leiknum vel niðri
og dæmdi mjög sæmilega.
! í KR-liðinu fannst mér Baldvin
og Ólafur Lárusson beztir, Eyleifur
átti óvenju slakan leik, og Ellert
var ekki eins og hann hefur verið
beztur í sumar. Af Eyjamönnum
j voru þeir Valur og Óskar beztir,
en Sævar og Tómas ágætir.
I — alexander —
Orðsending til opin-
berra starfsmanna
Fjármálaráðuneytið á þess kost að senda
starfsmann til árs þjálfunar í hagræðingu í
opinberum rekstri, sem árlega er haldin á veg
um norska ríkisins. Námskeiðið hefst 1, októ-
ber næstkomandi, og er miðað við að velja
starfsmann með staðgóða reynslu á einhverj-
um sviði opinberrar stjórnsýsk* tii slíkiar
ferðar. Umsóknir skulu hafa borizt fyn: 15.
september næstkomandi til fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar fjármálaráðuneytisins. og eru
þar gefnar allar nánari upplýsingar
Fjármálaráðuneytið,
fjárlaga- og hagsýslustofnun
Laugavegi 13.
Opið alla daga
Sími 84370
Aögangseyrir. kl. 14—19
kr. 35. kl. 19.30—23.00
kr. 45. Sunnud. kl. 10—19
kr. 35. kl. 19.30—23.00
kr. 45.00
WILTON TEPPIN SEM ÍNDAST OG ENDAST
■ EINSTÆÐ ÞJÓNUSTA! — KEM HEIM TIL YÐAR MEÐ SYNISHORN. - TEK MAl
OG GERI BINDANDI VERÐTILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU!
NÝ MYNSTUR, PANTIÐ TÍMANLEGA.
10 miðar kr. 300.00
20 miðar kr. 500.00
Ath. Afsláttarkortin gilda
alla daga jafnt.
Skautaleiga kr 30.00
Skautaskerping kr 55.00
íþrótt fvrir alla fjölskyld-
una.
Daníel Kjartansson . Sími 31283