Vísir - 05.09.1969, Page 4
I
Kossaflens
Brúðurin og brúðguminn kysst-
ust, um leið og presturinn lýsti
því hátíðlega yfir, að þau væru
orðin hjón. Síðan kysstu þauhvort
un sig einn brúðkaupsgestanna.
Þeir gengu svo aftur á móti fram
kirkjugólfið og kysstu hvor um
sig þær mannr'-kjur, sem sátu á
bekkjunum næst ganginum. Þær
sneru sér aftur að sessunautum
sínum og kysstu þá, og svo koll
af kolli.
Þetta var koss friðarins og
þannig lauk brúðkaupi þeirra
Jane Cameron Hart — tvítugrar
dóttur Philip A. Hart, öldunga-
deildarþi.igmanns — og Peter
Sebastian Conserva.
Petta var svo sem ekki það
eina einkennilega við brúðkaup-
ið. Flestir gestanna mættu t. d.
í alls konar þjóðbúningum og
sungin voru Pete Seegers-lög.
Kossarnir voru það, sem gest-
irnir munu áreiðanlega minnast
lengst — minnsta kosti þeir karl-
amir, sem kysstir voru af skeggj-
uðum kynbræðrum sínum!
Dóttir Bob Hope gift
Svo .,aldið sé áfram við sama
efnið, þá átti annað brúðkaup
sér stað, sem minna fór fyrir,
enda ætlazt til þess, að það yrði í
kyrrþey. Brúðurin heitir Nora
Hope, en brúðguminn Samuei
Boyd McCullagh jr. Hún er dóttir
gamanleikarans fræga.
Stal brúöarklæðnaði
Það hefur verið væntanleg brúð
ur, sem stal kvenfatnaöi úr
búningaleigu í London hér eina
nótti i. í því tilliti er lögreglan
handviss í sinni sök, þótt henni
hafi ekki tekizt að hafa uppi á
þjófnum :nn þá. Það sem iögregl
an telur sig hafa fyrir þessu, er
sú staðreynd, að þjófurinn mátaði
eina fjörutíu brúðarkjóla, áður en
hann stal einum og svo einu pari
af skóm. Annað sem lögreglan
veit um þjófinn er það, að konan
hefur málin 36-25-35 og notar skó
nr. 9.
Bardot skemmt
Brigitte Bardot og fylgisveinn
hénnar, Patrick Gill, luku ferð
sinni um grísku smáeyjamar með
þvf að Gill og óþekktur ljósmynd-
ari duttu í sjóinn með skvampi
miklu. Ljósmyndarinn hafði ver-
ið n- göngull og Gill rann í skap.
Hann kom á ljósmyndarann
nokkrum höggum tii að byrja
með, en i-egar þeir skriðu hund-
votir upp úr sjónum, jafnaði ljós-
myndarinn, sem upplýstist síðar
að er júdósérfræðingur, metin
Nærstaddir segja, að Bardot hafi
hlegið hjartanlega að öllu saman
Við verðum að vona, að Gill hafi
getað tekið undir hláturinn.
>f
Popphátíðin
haldin
r
a
eyjunni
Wight
Kluti hins mikla mannfjölda, er sótti pop-hátíð ina á Wight-eyju, sést hér bíða í ofvæn: eftir að
Bob Dylan komi fram.
130.000 hlustuðu á BOB DYLAN
Tveggja daga popphátíð, sem
haldin var undir berum himni á
unni Wight, náði h ’ - kisínu,
ameríski þjóðlagasöngvarinn,
Bob Dylan, birtist á sviðinu.
Vegna þessa atburðar höfðu um
130.000 táninga; lagt leið sína til
þessa litla eylands, sem liggur við
suðurströnd Englands, og hefur
um 98.000 íbúa. Var þetta kær-
komin nýbreytni fyrir íbúana,
sem hingað til hafa aöallega feng
ið heimsóknir miðaldra ferða-
manna frá Bretlandi.
Hdiin getuí túlkað
mál okkar
Nokkru fyrir hátíðina streymdu
unglingarnir til eyjarinnar með
svefnpoka og tjöld til að tryggja
sér miða, sem veittu aðgang að
25 klst., æsilegri músík.
Flestir unglinganna virtust
komnir til að sjá og heyra, Bob
Dyian, ,,því að hann getur túlkað
það, sem við vildum sagt hafa,
sn getum ekki komið orðum að.“
Fööurlegir !ögregluþjónar
Lítill hópur stórra, en góðhjart
aðra lögregluþjóna, varð brátt
Átrúnaðargoðið, Bob Dylan, skemmtir.
ímynd föðurlegrar umhyggju í
augum táninganna. Öryggisverðir
með lsatin hunda höfðu aðallega
verkefni við að svara spurningum
unglinganna um hundana. Engar
skýrslur voru teknar um eitur-
lyfjr' ‘ .r. Engin vandræði né
ár ;strar urðu, þrátt fyrir skort
nr ðsynjum og matvælum i
þessari litskrúðugu 70 ekru borg.
Virtuut unglingamir meira að
segja sætta sig við hin þæginda-
iausu salerni sem komið hafði ver
ið upp til bráðabirgða.
Gistu í kirkjugai ðlnum
Þrát fyrir tjaldborgina var
mörgum vant svefnstaðar, er á
nóttina leið, enda þótt eitt
röndctt og ægifagurt risatjald
hefði 1500 næturgesti. Leituðu þá
margir til næsta bæjar c0 gistu
þar í kirkjugarðinum. Einn gest-
anna greip. til þess ráðs að byggja
scr í snarheitum dvalarstað, og
r ekki um annað að ræða en að
grípa til nærtækasta byggingar-
efnisins: trjágreina, pappakassa
og dagblaða.
mrnm
Spáin gildir fyrir laugardaginn
6. september.
Hrúturinn, 21. marz.— 20. apríl.
Þetta getur orðið erfiður dagur,
en þó notadrjúgur, ef þú leggur
þig allan fram. Þér verður mjög
nauðsynlegt að viðhafa fyllstu
aögæzlu í peningamálum.
Nautið, 21. apríl — 21. mai.
Farðu gætilega í öllum áætlun-
um í dag, og miðaðu við að
eyðsla fari ekki fram úr tekjum.
Kvöldið getur orðiö ánægjulegt
og munu gamlir kunningjar sjá
fyrir. þvi.
Tvíburarnir, 22. maí — 21. júní.
Gamlir vinir og kunningjar
munu ynast þér betri en nýir
' dag. Það er ekki ólíklegt að
eitthvert samkvæmi eða mann
fagnaður, sem þú hlakkar til,
sé skammt undan.
Krabbinn, 22. júní — 23. júlí.
Það lítur út fyrir að þér muni
veitast örðugt að einbeita þér að
starfi i dag, án þess þó að ytri
aðstæður verði til títfar. Hvíldu
þig vel og snemma I kvöld.
Ljónf” 24. júli — 23. ágúst.
Að mörgu leyti „þinn“ dagur.
Annríki mikið, ef til vill nokkrir
örðugleikar, sem þó má yfir-
stíga . ð atorku og einbeitni
og mun þig hvorugt skorta.
Meyjan, 24. ágúst — 23. sept.
Sá eiginleiki þinn aö afneita
1 staðreyndum og fara þinu- fram,
getur-orðið þér talsverður ávinn
ingur ’ dag, enda þótt þaö
kunni að bitna óþægilega á öðr-
Vogin, 24. sept. — 23. okt.
Gagnstæða kynið kemur þér
þægilega á óvart að því er virð-
'ist, sennilega einhver gamall
kunningi, fremur en að þú stofn
ir'til nýrru vináttu, sem þó er
ekki útilokað.
>rekinn, 24. okt. — 22. nóv.
Þet .. 0etur orðið skemmtilegur
dagur, einkum er á líður, og
m gagnstæða kynið iga sinn
þátt í því. Þátttaka í mannfagn-
aði nokkrum virðist skammt
undan.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.
Eitthvað óþægilegt virðist yfir
vofandi, farðu því mjög gæti-
lega f öllum samskiptum við
-iðra og varastu að segja eða
gera nokkuð það, sem vakið get
ur afbrýði eða öfund.
Steingeitin, 22. des. — 20. jan.
Það er ekki ólíklegt að þú eigir
all annríkt, en helzt verður það
þá í sambandi við venjuleg
störf. Að öllum líkindum verður
eitthvað óvænt til að setja svip
á kvöldið.
Vatnsberinn, 21. jan. — 19. febr.
ölokin verk eða vanskil munu
mjög setja svip sinn á daginn.
Þú verður að taka á því, sem
þú átt til, ef þú ætlar að hafa
í fullu tré við aðsteðjandi vanda.
Fiskarnir, 20. febr. — 20. marz.
Annríkisdagur, en nokkurt vafst
ur og ef til vi-11 örðugleikar á
framkvæmdum, einkum þá í
sambandi við peningamál, en
mun þö yfirleitt rætast úr að
mestu.