Vísir - 02.03.1972, Page 5
Vísir. Miðvikudagur 1. marz 1972.
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Herferð gegn brezkum
vörum um öll Bandaríkin
— öflug samtök hvetja fólk til að kaupa þœr ekki — neitað að afgreiða brezk skip og flugvélar
Herferð er hafin um
þver Bandaríkin og fólk
ákaft hvatt til að kaupa
ekki brezkar vörur. Til-
gangurinn með þessu
„boykotti" á brezkum
vörum er að mótmæla
stefnu brezku stjórnar-
innar i Norður-irlandi.
Samkvæmt fréttum i morg-
um hafði þessi hreyfing fengið
töluverðan stuðning viða i
Bandarikjunum.
Félagar i ýmsum félögum,
sem að þessu standa, höfðu
tekið sér stöðu við verzlanir i
stærri borgunum. Þeir dreifðu
flugritum og hvöttu fólk, sem
þangað kom, til að hætta að
kaupa vörur, sem væru fram-
leiddar i Bretlandi.
Viða i hafnarborgum
Bandaríkjanna eru aðgerðir
verkamanna gegn brezkum
skipum i gangi. Verkamenn
neita viða að ferma skipin, en
ekki er vitað hversu mörg skip
hafi orðið fyrir barðinu á að-
gerðunum.
Samband bandariskra flutn-
ingaverkamanna, sem meðal
annars hefur i sinum röðum
starfsfólk flughafna, lýsir yfir
stuðningi við þessar aðgerðir.
t yfirlýsingu sambandsins
segir, að brezkar farþegaflug-
vélar muni ekki fá þjónustu
hjá starfsfólki stórra flugvalla
á New-York svæðinu. Hins
vegar segja ráöamenn brezka
flugfélagsins BOAC, að sam-
göngur við New York og aðrar
bandariskar borgir gangi að
óskum.
1 Bandarikjunum býr mik-
ill fjöldi fólks af irskum ætt-
um, sem hafa sterka stöðu i
stjórnmálum. Kaþólskir menn
eru mjög fjölmennir i Banda-
rikjunum og kaþólskan hefur
meira fylgi en nokkur ein trú-
arhreyfing mótmælenda, þótt
mótmælendur séu mun fjöl-
mennari, ef hinar fjölmörgu
hreyfingar þeirra eru teknar
sem heild.
Kdward Kennedy
Edward Kennedy, sem er af
irskum ættum og kaþólskrar
trúar, hefur af stjórnmála-
mönnum, gengið lengst i
gagnrýni á stefnu brezku
stjórnarinnar i Norður ír-
landi.
Kenndy hefur krafizt þess, að
Norður trland verði sameinað
trska lýðveldinu á suðurhluta
eyjunnar og brezki herinn
verði þegar i stað á brott frá
Norður írlandi.
uirnrnrti
•*.■*•**
Þetta eru rústir 100 manna þorps i Logan County, eftir að flóðbylgjan hafði skollið á þvf. Flóöin i Buffalo
Creek dalnum i Bandaríkjunum kostuðu meira en 40 mannslif.
Stjórnarher Líbanon
stingur upp í skœruliða
Herinn í Líbanon hefur
neitaðað leyfa skæruliðum
að snúa aftur til Arkoub-
héraðsins í suðurhluta
landsins, eftir að Israels-
menn gerðu árásir þar um
helgina.
Herinn hefur tekið alla stjórn i
héraðinu, sem áður var jafnan
kallað „Fatahland” eftir sam-
tökum skæruliða A1 Fatah.
Blaðamenn, sem komu þangað
i gær, segja frá þvi, að þá
Palestinuskæruliða, sem þar eru
Utanríkisráðherra
Formósu segir, að heim-
sókn Nixons Bandaríkja-
forseta til Kína sé sams
konarog fundur brezka for-
sætisráðherrans Neville
Chamberlains og Hitlers í
Munchen árið 1938.
Þá kom Chamberlain til Bret-
lands og kvaðst hafa tryggt frið i
heiminum með samningum við
Hitler, sem menn munu nú sam-
enn, skorti bæði matvæli og skot-
færi. Herinn stöðvaði vörubila,
sem voru á leið til þeirra með
skotfæri og var þeim skipað að
snúa aftur.
Skæruliðar eru mjög reiðir
vegna þessara athafna hersins.
Fundur á að verða milli yfir-
manna skæruliða og hersins.
Atök urðu i gær i Beirut milli
stuðningsmanna og andstæðinga
skæruliðahreyfingarinnar. Menn
slógust við bandariska háskólann
i borginni. Fyrr um daginn höfðu
tugþúsundir kröfugöngumanna
farið um götur og hrópað slagorð
til stuðnings skæruliðum.
mála um að hafi ekki tryggt frið-
inn, nema siður væri.
Chow utanrikisráðherra
Formósu sagði þingheimi i gær,
að Munchensamkomulagið hafi
hrundið af stað annarri heims-
styrjöldinni.
„Hversu alvarlegt, sem
ástandið verður i heimsmálun-
um, þá mun Taiwan (Formósa)
ekki aðeins lifa, heldur munum
við einnig vinna eftur völdin á
meginlandinu”, sagði ráðherr-
ann.
Stjórnin á Formósu hefur tekið
illa yfirlýsingu Nixons og kin-
Suleiman forseti Libanon hefur
skorað á almenning að sýna still-
ingu og hegða sér skynsamlega.
Meðal stjórnmálamanna i Beirut
er lögð áherzla á, að rikisstjórnin
stefni að þvi að koma i veg fyrir,
að sama saga gerist og 1969. Þá
skullu á bardagar i höfuðborginni
milli hersins og skæruliða.
Skæruliðar hafa farið sinu fram
i Libanon i trássi við vilja stjórn-
valda. Israelsmenn gerðu i vik-
unni árásir á stöðvar skæruliða i
Libanon, en tsraelsmenn segja,
að skæruliðar geri árásir á þorp i
tsraei þaðan.
verskra kommúnista, þar sem
sagt er, að Bandarikjamenn muni
smám saman kalla lið sitt burt
frá Formósu, eftir þvi sem dregur
úr spennu.
Klandur með
kafbátinn
Talsmaður bandariska her-
málaráðuneytisins segir, að illa
gangi að draga sovézka kjarn-
orkukafbátinn vegna ólgu i sjó.
Hann segir, aö báturinn sé 3700
tonna, búinn endflaugum. Hann
var i nótt um 800 sjómilur
norðaustan Nýfundnalands, og
rússneskur dráttarbátur hafði
hann i togi.
Umsjón: Haukur Helgason
Nixon líkt við
Chamberlain
Skildi líkin eftir
við sjúkrahúsið
Lögreglan í Belfast fann
seint í gær lík tveggja
ungra pilta í vörubifreið við
sjúkrahús. Skömmu áður
höfðu brezkir hermenn
skotið á vörubil, þegar
bílstjórinn ók áfram, er
varðflokkur ætlaði að leita
i bílnum.
Talsmaður brezka hersins
sagði, að svo hefði virzt sem einn
manna i bilnum hefði tekið upp
byssu og þá hefðu hermennirnir
skotið.
Fólk i sjúkrahúsinu varð vart
við, er vörubifreið var ekið að
dyrum hússins. Bilstjórinn
hemlaði snögglega og þaut ut úr
bilnum og inn i annan, sem fylgdi
á eftir og hvarf svo.
Lögreglan, sem kom á vettvang
skömmu siðar, fann lik tveggja
pilta i bilnum, 14 og 16 ára.
Fýrr i gær neyddu fjórir vopn
aðir menn einn félaga i heima
varnarliði Norður-irlands til að
fara út úr bil sinum. Þeir sögðu
eiginkonu mannsins, að honum
mundi ekkert mein gert.
Nokkrum minútum siðar fannst
lik hans. Þremur byssukúlum
hafði verið skotið i höfuð manns-
ins.
Annar félagi i heimavarnar-
liðinu var myrtur á heimili sinu i
fyrrakvöld fyrir augum dóttur
hans. Hún hlaut skotsár á fæti.
43 særðust i Londonderry,
þegar meir en 25 kiló af sprengju-
efni sprungu i stolnum bil i miðri
borginni.
Tjónið af völdum þessarar
sprfengingar er talið vera yfir
fimm milljónir isl. króna.
Seland ritstjóri kikir i mánudagsblaö Föðurlandsvinarins, sem kom
út i offset daginn eftir brunann.
Tveir piltar teknir
vegna skemmdarverksins
Atján ára piltur er I yfirheyrzlu
hjá lögreglunni I Kristjánssandi
vegna skemmdarverksins, sem
var framið á húsákynnum blaðs-
ins Föðurlandsvinurinn.
Lögreglan telur sig hafa klófest
„réttan mann”. Hinn ákærði var
fyrst um sinn dæmdur i átta vikna
fangelsi. Pilturinn neitar að segja
neitt um ákæruna, en hann viður-
kennir að hafa með félaga sinum
brotizt inn og stolið 75 kilóum af
dinamiti, sem eru talin hafa verið
notuð við skemmdarverkið.
Félagi hans hefur einnig náöst.