Vísir - 02.03.1972, Side 16
VÍSIR
Fimmtudagur 2. marz 1972.
w
Islenzkum treystondi
— ekki síður en
útlendingum segja
byggingafrœðingar
„Stjórn byggingafræóingafélags ,
ins er þeirrar skoðunar að efna
eigi til samkeppni um þetta verk-
efni, og verður þvf ekki trúað að
óreyndu, að islenzkir hönnuðir
geti ekki leyst þetta verkefni
jafnvel og erlendir starfsbræöur
þeirra.”
Svo segir i frétt frá stjórn
Byggingafræðingafélags Islands
um fyrirhugaða byggingu Þjóö-
arbókhlöðu. Slik bygging er hugs-
aöur einn þáttur i þvi að minnast
1100 ára byggðar á Islandi, og
hafa að undanförnu farið fram
miklar umræður um, hvort eigi
að efna til samkeppni um þessa
bókhlöðu. Arkitektafélagiö efndi
nýveriö til fundar um þessi mál,
en á þann fund var aðeins á-
kveðnum aöilum boðið.
Stjórn Byggingafræðingafélags-
ins er þeirrar skoðunar, aö bygg-
ing Þjóðarbókhlööu sé mál sem
engum sé óviökomandi, enda hús-
iö hugsaö sem sameign lands-
Kaupmenn
króaðir af
við gjóna
i Kópavogi:
„Líf og limir borgara
settir ofar ðllu"
— segir umferðornefndin og vill í engu koma til móts við sextíu óónœgða fyrirtœkjaeigendur
„Einmitt vegna
þjónustu við samfélagið
hlýtur umferðaröryggið,
líf og limir borgaranna,
að vera sett ofar öðru og
hiýtur þvi að ganga fyrir
hagsmunum þeirra að-
ila, sem hafa undirritað
bréf það, sem háttvirt
bæjarráð sendi um-
ferðarnefnd Ijósrit af 19.
þ. m.", segir í svari
bæjarstjórnar Kópavogs
og umferðarnefndar
kaupstaðarins til ó-
ánægðra kaupsýslu-
nanna i Kópavogi.
Aður héfur verið
skýrt frá gremju um 60
eigenda fyrirtækja i kaup-
staðnum, sem stafar af
breytingum á umferð gegnum
Kópavog með tilkomu
gjáarinnar miklu. Hafa sumir
þeirra hótað að flytjast
á brott með starfsemi sina,
eigi þannig að ganga áfram.
Mörg fyrirtækjanna, einkum
við Auðbrekku og Alfhólsveg
og eins Byggingavöruverzlun
Kópavogs við Kárnesbraut,
voru áður i þjóðbraut hvað
viðskipti varðaði en með
breytingum verður leiðin að
fyrirtækjunum bæöi torsótt og
grýtt, og viöskiptavinir skila
sér ekki I sama mæli og fyrr
að sögn forráömanna fyrir-
tækjanna.
Umferöarnefndin undir-
strikar i umsögn sinni um bréf
kaupsýslumannanna, aö til-
gangurinn meö hinum dýru
vegaframkvæmdum sé sá að
losa bæjarbúa við hættuna og
óþægindin af umferðinni
gegnum Kópavog. Kveðst
nefndin „vara alvarlega við
þvi, að nokkur áhætta sé tekin
með öryggi bæjarbúa til að
þjóna hagsmunum eða sjónar-
miðum, sem eru auk þess að
mestu eða öllu leyti imynd-
uð”, segir i bréfi til fyrir-
tækjann., sem hér eiga i hlut.
„Viö erum hreint og beint
undrandi á þessari afgreiöslu
á málaleitan okkar”, sagði
Guðmundur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Byggingavöru-
verzlunar Kópavogs, sem mun
vera eitt stærsta ef ekki
stærsta fyrirtæki i þessari
grein á landinu. Kvað hann
greinilegt, að mörg fyrirtæki
sköðuðust stórlega á um-
feröarbrey tingunum og
mundu kaupmenn þvi af
skiljanlegum ástæðum reyna
allt hvað þeir gætu til að kom-
ast i sem bezt samband við
umheiminn á ný.
Varðandi öryggi bæjarbúa i
Kópavogi hefur af mörgum
verið bent á, að umferðinni
hafi nú verið beint á götur, þar
sem mun fleiri börn haldi sig,
t.d. i nánd viö félagsheimiliö
og Kópavogsbió að ekki sé tal-
að um barnaleikvelli, gæzlu-
velli og dagheimili við Há-
braut, skammt frá kirkjunni.
—JBP-
manna alira.
Ennfremur er það álit félags-
ins, að efna eigi til samkeppni um
sem flestar opinberar byggingar
og mannvirki. „Séu þær sam-
keppnir opnar öllum þeim er á
huga hafa hverjusinni, en séu
ekki aðeins ætlaöar ákveðnum
hópi manna eins og verið hefur”
segir i frétt félagsins. Einungis
með opnum samkeppnum fáist
trygging fyrir þvi, að beztu og
hagkvæmustu lausnirnar fáist
hverju sinni. —SG.
Meiri hraði á
útborgunar-
dögum?
Snemma i morgun uröu menn
varir við ljósastaur i einkenni-
legum stellingum á Tryggvagötu.
t stað þess að standa uppréttur og
bera „höfuðið” hátt lá þessi flatur
i götunni. Kom i Ijós að ekið hafði
verið á staurinn og hannkubbaður
i sundur niður við jörð.
Okumaðurinn mun hafa laumazt
á brott og er enn ófundinn.
Margir þurftu mjög að flýta sér
i gær, enda útborgunardagur
viða. Urðu einir 10 árekstrar i
borginni i gær þrátt fyrir bezta
veður. Meiðsli urðu ekki á fólki.
Hins vegar fór hjól á lyftara yfir
fótlegg á manni i Skeifunni i gær
og einnig slóst vörubretti i bak á
verkamanni við Austurbakka.
Báðir sluppu þeir við stórvægileg
meiðsl. — SG
Það var unnið af kappi I rigningunni i morgun aö smlöi steypumótanna að Hraunbæ 102. Einmuna tlð I
vctur verður þess llklega valdandi aö Arbæingar fá hcilsustöð sina fyrr en ella.
VERÐUR LÆKNASTÖÐIN
í HRAUNBÆ 102?
„Nœg loðna,
vont veður"
Nú er farið að svipast um eftir
húsnæði fyrir læknastöð þá, sem á
að koma i Árbæjarhverfi.
Heilbrigöisráö hefur nú
samþykkt, að borgarráð hafi
frumkvæði að samningum við
húseiganda að llraunbæ 102 um
húsrými fyrir læknastöð.
Visir talaði við ritara heil-
brigðismálaráðs Guðmund
Skúlason, sem sagði, að verið
væri að byrja byggingu þessa
húss, sem verði bæði verzlunar-
miðstöð og ibúöarhúsnæði svo að
húsið væri ákaflega vel staðsett
fyrir læknastöð i hverfinu.
Læknastöðin mun verða eins-
konar útibú frá Heilsuverndar-
stöðinni og sömuleiðis læknastöð i
Breiðholti, sem borgarstjórn
hefur fallizt á að verði komið upp.
—SB—
— rœtt við Hjólmar Vilhjólmsson staddan við
Ingólfshöfða. Brœla á miðum en mikið af loðnu
„Við erum hér suöaustur af
Ingólfshöfðanum, og hér er næg
loðna, ekkert dreifð, en hún er
óstöðug og gefur varla færi á
sér”, sagði Hjálmar Vilhjálms-
son i morgun, er Visir ræddi viö
hann um borð i Arna
Friðrikssyni.
„Það eru svona 8—10 bátar hér
kringum okkur, og þeir eru litið
að vinna núna, loðnan er svo
dreifð.
Ég á nú von á að þetta breytist
hér fljótlega, það hlýtur að verða.
Annars hefur verið hér kapp-
veiði, hér og i Meðallandsbugt-
inni”.
— Hvað heldurðu með gönguna
sem þú hefur verið að spá, er hún
að koma suður með?
„Já, þetta er sú ganga sem við
erum i hér, það er bara ekki gott
að segja hvernig þetta verður
hér, fer svo mikið eftir veðri. Og
þáð er bræla hér núna”.
— Koma ekki fleiri bátar til
ykkar þarna viö Ingólfshöfðann
fljótlega?
„Ég skil ekki i öðru — það
fjölgar eflaust mikið hér þegar
liða tekur á dag, verst með
bræluna og þeir spá þessu áfram i
dag og svo er lika stórstreymt,
það hefur áin áhrif.
Á Höfn i Hornafirði hafa þeir
sagt að þeir taki við loðnu úr
einum eöa tveimur bátum i dag,
en þá er bara illmögulegt fyrir þá
aö sigla þar inn vegna brimsins”.
Og frá Ingólfshöfða er 10 — 12
tima stim austur fyrir land með
loðnuna — „og hún fer örugglega
að gefa sig hérna”, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson. —GG
Nóg er af loönunni um allar hafnir, — og sjórinn iöar af þessum
smáfiski, aðeins veðrið hamlar veiði þessa dagana.
„Kalt að
busla í
sjónum"
„ég veit ekki hve
lengi ég var í sjónum
— fór að skjólfa þegar
upp ó bryggju kom"
„Það var fjári kalt aö busla
þetta I sjónum — fann reyndar
ekki mikið til þess meðan við
vorum ofan i, en ég fór að skjálfa
þegar upp á bryggjuna kom og
raunar var mér anzi kalt allan
daginn I gær”, sagöi Guðmundur
Loftsson, bifvélavirki I Vest-
mannaeyjum, sem i fyrrakvöld
fleygði sér I sjóinn á eftir þeim
fræga Binna I Gröf, Benóný
Friðrikssyni, sem féll I höfnina I
Vestmannaeyjum.
„Ég var búinn að sjá Binna
þarna frammi á bryggju, svo
næst þegar ég leit upp, var hann
horfinn. Ætli hann hafi ekki ætlað
að stökkva út á hvalbakinn á hon-
um Isleifi sem lá i höfninni, en
orðið fótaskortur, annað hvort á
bryggjunni eða bátnum, og dottið
siðan — samt hefur ekki liðið löng
stund frá þvi hann datt og þar til
ég náði honum. Hann var svo til
meðvitundarlaus þegar ég náði
taki á honum”.
— Var þér ekki illa við aö fara
á kaf i iskaldan sjó?
„Ekki svo mjög — verst eftir
á”.
— Hve lengi varstu i sjónum,
heldurðu?
„Það hef ég ekki hugmynd um.
Það kom þarna að okkur strax
maður, og hann ætlaöi að stökkva
ofan i og hjálpa mér, þaö var svo
svakalega erfitt að halda Binna,
en þegar hann stökk yfir á hann
ísleif rak hann höndina einhvers
staðar i og skar sig. Ég galaöi þá
til hans að fara til lögreglunnar
eða eitthvað og sækja hjálp.
Meðan hann hljóð uppeftir hélt ég
manninum og lika meöan þeir
voru að koma stiga niður til okkar
og koma sér niður að sækja
okkur”.
— Og svo hefur skjálftinn
komið, þegar upp úr var komið —
hvað helduröu að blóöhitinn hafi
farið langt niður?
„Það veit ég ekki. Læknarnir
hér á spitalanum vildu nú fá að
athuga mig, frétti ég, en ég nennti
ekki að standa i svoleiðis og fór
bara heim i rúm”.
Binni i Gröf liggur nú á sjúkra-
húsinu i Eyjum, og eftir þvi sem
Guðmundur, björgunarmaöur
hans, sagði okkur i morgun, mun
hann vera að hressast.
Binni er 68 ára, en Guömundur
Loftsson 29 ára. —GG