Vísir - 11.03.1972, Qupperneq 9
9
Visir. Laugardagur 11. marz 1972.
Það voru þessir piltar, sem tryggðu Fram íslandsmeistaratitilinn i hand-
knattleik og er það i niunda skipti, sem Fram verður íslandsmeistari. Á
myndinni eru i efri röð frá vinstri Stefán Þórðarson, Sigurbergur Sigsteins-
son, Gylfi Jóhannesson, Páll Jónsson liðsstjóri, Ingólfur óskarsson fyrir-
liði, Karl Benediktsson þjálfari, Axel Axelsson, Pétur Jóhannesson, Pálmi
Pálmason og Andrés Bridde. Fremri röð: Sigurður Einarsson, Björgvin
Björgvinsson, Guðjón Erlendsson, Þorsteinn Björnsson, Jón Sigurðsson,
Arnar Guðlaugsson og Árni Sverrisson. Ljósmynd Bjarnleifur Bjarnleifs-
son.
MEISTARAR
FRAM í HAND-
KNATTLEIK
Kolbeinn Kristinsson i Kostakjor ásamt sigurvegurunum. Ljósm. Rafn Viggósson.
Sonur eigandans vann
Tólf ára sonur Kolbeins
Kristinssonar, Sigurður,
varð sigurvegari í firma-
keppni TBR ásamt Haraldi
Korneliussyni og auðvitað
kepptu þeir fyrir Kosta-
kjör, verzlun Kolbeins, en
eigandinn var eitt sinn í
hópi beztu frjálsíþrótta-
manna okkar.
t undanúrslitum kepptu Kosta-
kjör og Húsgagnaverzlun
Ragnars Haraldssonar og fyrir
hana kepptu eigandinn og Hilmar
Karlsson og höfðu átta i forgjöf,
en Haraldur og Sigurður voru
með -=-l. Kostakjör sigraði, 15:14,
15:9. 1 hinum leiknum i undan-
úrslitum áttust við Egill Vil-
hjálmsson og c/o annars vegar,
keppendur Hanna Lára
Pálsdóttir og Sveinn Kjartansson,
og Endurskoðunarskrifstofa
Sigurðar Guðmundssonar hins
vegar, keppendur Sigfús Árnason
og Hannés Rikarðsson sem höfðu
sjö i forgjöf. Egill Vilhjálmsson
sigraði, 15:9 og 15:13, og lék þvi
við Kostakjör. Það var skemmti-
legur leikur, og enn voru þeir
Haraldur og Sigurður meö einn i
minus, en Hanna Lára og Sveinn
höfðu 4 i forgjöf. Kostakjör
sigraði meö 15:14, 7:15 og 15:12 og
eru forgjöfin og minusinn sett inn
i þessar tölur, þannig að Haraldur
og Sigurður þurftu alltaf að leika i
16.
1 dag verður Reykjavikurmót
unglinga i badminton háð i
iþróttahúsi Vals. bað hefst kl. 13.
Keppendur eru 38,23 frá TBR, 3
frá KR og 12 frá Val. Keppt
verður i þremur aldursflokkum i
öllum greinum. Þátttakan er all-
góð, en fleiri stúlkur mættu
stunda þessa hollu iþrótt. -hsim.
r
Skjaldarglíma Armanns:
Fimm hafa góða
sigurmðguleika
Stórviöburöur í glímu-
málum verðurá sunnudag,
12. marz, þegar 60.
skjaldarglima Ármanns fer
fram í íþróttahúsi Voga-
skóla viö Gnoöarvog og
hefst kl. 14.30.
Fyrsta skjaldarglima Armanns
var háö árið 1908 og hefur veriö
aáð árlega siðan utan fjögur ár á
;Imum heimsstyrjaldarinnar
fyrri. Skjaldargliman er þvi elzta
Sigtryggur Sigurðsson
iþróttamót, sem haldið er reglu-
lega i Reykjavik.
1 60. skjaldarglimunni taka þátt
14 glimumenn frá 3 glimufélög-
um, 5 frá Ármanni, 5 frá KR og 4
fra Lmf. Vikverja. Meðal þeirra
eru tveir fyrrverandi skjaldar-
hafar, þeir Sigtryggur Sigurðs-
son, sem vann til eignar Ár-
mannsskjöld á siðasta ári, og
Ömar Úlfarsson. Þeir eru báðir
úr KR. Aðrir þátttakendur eru:
Sveinn Guðmundsson, Kristján
Tryggvason, Guömundur Freyr
Halldórsson, Björn Hafsteinsson
og Guðmundur Ólafsson, allir úr
Ármanni: Jón Unndórsson, og
Rögnvaldur Ólafsson ög Matthias
Guðmundsson úr KR: Gunnar R.
Ingvarsson, Hjálmur Sigurðsson,
Sigurður Jónsson og Pétur Ingva-
son, allir úr Umf. Vikverja.
Sérstakir heiöursgestir verða á
mótinu, þeir glimumenn, sem
unnið hafa skjaldarglimuna á sið-
ustu 10árum,en þeireru: Hilmar
Bjarnason, Ómar Úlfarsson og
SiPtrveeur Sieurðsson. Þeir hafa
allir unnið ármannsskjöldinn
fyrsta sinni á timabilinu.
Skjaldargliman er háð nokkuð
siöar nú en oftast áður, þar sem
ekki hefur fengizt viðunandi
glimusalur til að keppa i fyrr.
Eins og fyrr segir hefst
skjaldargliman kl. 14.30 i iþrótta-
húsi Vogaskóla við Gnoðarvog á
sunnudag 12. marz og mun forseti
ISI Gisli Halldórsson, setja mótið.