Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1964, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1964, Blaðsíða 13
svo mikil þörf var á. Og í framkvæmd- inni urðu kommúnurnar misheppnað tiltæki. Aðeins 11% af kínversku landi hefur nokkurntíma verið til rs&ktunar fallið. Það sem Kína þarfnaðist, var ekki endurskipulagning vinnukraftsins í sveitunum, heldur geysimikill fjár- styrkur til að endurnýja landbúnaðinn og færa hann í nýtizku horf. En þetta lagði Mao ekki í. Þrátt fyrir uppörvanir, skæðadi'ífu af fölsuðum töl- um og hagskýrslum, gat hinn rótslitni og ringlaði bændalýður ekki séð sér fai'borða. Kjötskammturinn lækkaði alla leið niður í fjórðung únzu á mán- uði, á hvern verkamann. Hungursneyð geisaði í Kansu-héraðinu. Framfarir í iðnaði stöðnuðu fyrir fullt og allt. — Kommúnista-Kína varð, á árinu 1960, að kaupa erlent koi'n fyrir 1 milljarð dollara, til þess að geta rétt haldið líf- ir.u í fólkinu. Peking hefur nú aldrei viljað viðurkenna það opinberlega, en „stóra stökkið fram“ hefur að mestu leyti verið gefið upp á bátinn. Og enn er ki-eppa í Kína. Hopað frá dýrðardraumunum B óndinn, sem veður leðjuna á eftir uxanum sínum í hrísakrinum, er enriþá táknmynd hins þrautseiga Kína,- sem hefur lifað af aldalanga kr-eppu. En í dag neyðist kommúnistastjórnin í landinu til að sinna hversdagsþörfum landsins dálítið meira og dýrðardraum- unum dálítið minna. Til þess að ýta undir matarframleiðslu hefur verið slakað nokkuð á kommúnukerfinu — nýlega hafa bændur fengið til eigin um- ráða smáspildur, sem þeir mega rækta sjálfir og jafnvel selja afurðirnar á opnum markaði. Linað hefur verið á iðnaðaraukningunni, þangað til aftur verður hægt að mergsjúga landbúnað- inn. Það gæti tekið 25 ár. En það er hins vegar nauðsynlegt þrautpíndu landi, sem hefur þegar meira en 700 milljónir íbúa og minnst 15 milljón nýja munna á ári til að fæða. Og meðan þessu fer fram, þyrstir ráðamennina enn í kjarnorkuvopn. — Þeir halda áfram að æsa upp ókyrrð erlendis, og það því meir, sem allt geng- ui meir á tréfótum heima fyrir. Og sýnilega eru þeir elcki ánægðir með æsingar sínar í Asíulöndum, þar sem þeir eru nú að færa þær út til Mið- Austurlanda og Afríku. Nýtt kínverskt skotmark: Afríka Hétt eins og kommúnista-Kína væri erm á stóra stökkinu fram á leið, hefur forsætisráðherrann Chou En-lai verið að peðra út Feking-gleðiboðskapn um á langri ferð sinni um Afríku, Mið- Austurlönd og Albaniu. Þetta hefur ekki verið auðvelt ferðalag fyrir hinn 67 ára gamla forsætisráðherra, sem hefur ekki full not af hægra handlegg sín- um, og hættir auk þess við svimaköst- um og blóðnösum, ef hann verður þreyttur. Þegar honum var þröngvað til að fara að skoða Sfinxinn mikla á harðneskjulegri skemmtihringferð, spurði hann vesældarlega: „Þarf ég að fara? Ég er búinn að sjá hann tilsýnd- ar“. Hulinn fyrir ljósmyndurum af heil- um hóp lífvarða og aðstoðarmamja, þar með töldum 18 lögreglumönnum á vél- hjólum og fjórum jeppahlössum af her- mönnnrn með vélbyssur, þaut hann áfram í Cadillac-skrautbíl, framhjá ýmsu, sem vert hefði verið að skoða, ár. þess að stanza. Að vísu ,,stóð hann fyrir“, við hliðina á (en ekki á baki) ulfalda, að nafni Canada Dry, og hann heimsótti aðal-merkisstað Egyptalands (í smíðum), þ.e. hina miklu Ashúan- stíflu. En gestgjaíi hans, Nasser forseti, tók á sig krók til að koma því að, að „við þessa háu stíflu vinna nú tugþús- undir manna — með þakkarverðri að- stoð Sovétríkjanna .... Kæri vinur, okkur er það mikil ánægja að geta sýnt þér þetta allt saman“. Tilkynning- in, sem Chou og Nasser gáfu út við lok heimsóknarinnar til Egyptalands, sýndi, að Chou hafði ekki nema hálf- volgan stuðning frá Nasser til að koma á toppfundi Asíu og Afríku sameigin- lega þar sem Chou hefði viljað hafa bæði töglin og hagldirnar. J[ afnvel Sen Bella í Alsír brást honum — en stjórn hans varð Kína fyrst kommúnistalanda til að viður- kenna — sem hefur árásarkenndar hug- myndir um nýlendustjórn, eins og Chou. Hann tók á móti Chou í Alsír — ekki með sinni venjulegu óundirbúnu flóðmælsku heldur með stranglega undirbúinni og formfastri kveðju, þar sem hann lagði aðaláherzluna á frið- samlega sambúð. Og ekki bætti það úr skák, að þarna var almennur aðhlétur. Fáir Alsíbúar vissu, að von væri á Chou og í fámennum móttökuhópunum heyrð ust einstöku dreifð hróp: „Chou“, og þá fóru hinir að hlæja, af því að franska orðið „chou“ þýðir kálhaus. En það sem Chou var að slægjast eftir, var smásigrar í Afríku, til þess að láta Moskvu og Washington heyra, og ef til vill geta áunnið sér fylgi hjá einhverj- um Sameinuðu þjóðanna og þannig íengið upptöku í þann . félagsskap. — Þegar svo ferðinni var haldið áfram um Marokkó og Albaníu, komst sá orð- xómur á kreik í París, að stjórn de Gaulles væri farin að endurskoða af- stöðu sína gagnvart Kauða-Kína, og svo þegar Bourgiba forseti gerði honum Ú r a n n á I u m m i ð a l d a Guðmundur Guðni Guðmundsson iók saman 1133 ísland Jón Ögmundsson Hólabiskup stofnar Þingeyraklaustur, íyrsta klaustur á íslandi, það var Bene- diktsregla. 22-5. d. Sæmundur fróði Sig- fússon í Odda. F. Þorlákur biskup Þórhallsson hinn helgi í Skálholti. D. Þorlákur biskup Runólfsson i Skálholti. 1134 Níels Danakonungur bíður ósigur við Fótvík á Skáni er hann gekk þar á land til að bæla niður uppreisn Eiriks Eiríkssonar bróð- ursonar sins. Magnús sterki sönur Níelsar konungs flýði til Slésvík- ur en var drepinn þar af múgn- um. Með dauða Níelsar lauk valdatíma fimm frillusona Sveins Úlfssonar en það hófst 1074. Eiríkur II einmuni verður kon- ungur Dana. ísland Magnús Einarsson verður biskup í Skálholti. Hann var afkomandi hvíti maðurinn fæddur í þeirri heimsálfu. 1135 Magnús Sigurðsson Noregskon- ungur handtekinn úti á götu í Björgvin og blindaður af Haraldi Gilla. F. heimspekingurinn Maimon- ides, áhrif hans urðu varanleg- ust hjá Gyðingum og kristnum mönnum. Eiríkur eimuni Danakonungur lætur drepa Harald bróður sinn og tvo syni hans. Stefán af Blois verður konungur Englendinga. Síðasti konungur- inn af ætt Vilhjálms I Normanna- konungs frá Normandí. ísland Hrafn Úlfhéðinsson verður lög- sögumaður. 1136 Sigurður Slembidjákn lætur drepa 'Harald Gilla Noregskon- Ung. D. Loðvík digri Frakkakonung- ur. Rögnvaldur jarl vinnur Orkn- eyjar. 1137 Eiríkur einmuni herjar á Noreg og eyðir Osló. Loðvík VII verður k. Frakka. Hafin bygging St. Magnúsar-kap- ellunnar í Kirkvool, er það feg- ursta byggingiri í Orkneyjum. F. Saladin soldán Egyptalands. Eiríkur einmuni Danakonugur veginn á þingi á Jótlandi. Eiríkur lamb verður konungur Dana. D. Össur erkibiskup í Lundi í Svíþjóð. Hann varð 1104 fyrstur danskra manna erkibiskup. Var frá Jótlandi. 1138 Ætt Hohenstaufa tekur völd f Þýzkalandi er Konráð III kemur þar til valda. ísland Drepinn Benteinn Kolbeinsson. 1139 Synir Haraldar Gilla réðu Noregi til 1161. Sigurður Slembidjákn handtek- inn í orustu við syni Haralds Gilla í hólminum Grá í (Dynó- kild) Svíþjóð og drepinn ásamt Magnúsi konungi syni sinum. Sigurður taldi sig vera son Magn- úsar berfætts. Portúgal verður konungsríki undir stjórn Alíons I. Þar var áð- ui' hertogadæmi. ísland Finnur Hallsson prestur í Hof- teigi verður lögsögumaður. 12. tölublað 1964 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.