Vísir - 26.02.1977, Page 20
„Hraðsuöubókin"
um einvígi Horts
og Spasskýs:
Verður
ekki til
sölu á ný
,,Úr því sem komiö er
kemur ekki til greina af minni
hálfu aö gefa þessa bók út i
breyttu formi næstu daga”,
sagöi Þorsteinn Thorarensen i
viötali viö Visi í gær.
Eins og skýrt var frá i
blaðinu i gær, var bók Fjölva-
útgáfunnar um skákeinvígi
Horts og Spasskys innkölluö
þá um daginn aö beiðni Skák-
sambands Islands, sem var
andvígt ýmsum ummælum,
sem þar birtust í grein eftir
Þorstein um Spasský og skák-
einvigið við Fisher 1972.
Forseti Skáksambandsins
sagöi þá I viötali við Visi, aö
það væri von þeirra, að
samkomulag gæti náðst um
útgáfu bókarinnar i breyttu
formi, en nú er ljóst, að þessi
bók veröur ekki til sölu á ný.
Eins og fram kom i blaöinu i
gær, var þessi bók unnin á
aöeins þremur vikum, sem
vafalaust er Islandsmet.
ESJ
Áhrif íslenslcrar iðnkynningar:
Markoðshlutdeild íslenskra
iðnaðarvara
er 6% meiri
Starfsemi islenskrar
iönkynningar viröist hafa haft
góö áhrif á almenning, þar sem
markaöshlutdeild islenskra iön-
aöarvara jókst um 6% á fimm
mánuöum eftir aö iönkynningin
tók tii starfa.
Frá þessu var skýrt á fundi
með blaðamönnum, sem Islensk
iðnkynning hélt f tilefni þess, að
iönkynningarárið er nú
hálfnaö.Þar voru forsvarsmenn
iðnkynningarinnar mættir, þeir
Hjalti Geir Kristjánsson,
formaður verkefnisráös, Pétur
Sveinbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Félags isl. iðn-
rekenda, og Þórleifur Jónsson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands iönaðarmanna.
Þeir skýrðu frá þvi, aö frá
upphafi lsl. iðnkynningar
hafi Hagvangur h.f. fylgst með
áhrifUm kynningaraögeröanna,
og hafi veriö geröar þrjár
kannanir, sú fyrsta i mai 1976
áður en iönkynningin hófst til að
hafa samanburðargrundvöll,
önnur mánuði siöar, eftir fyrstu
auglýsingaherferð I sjónvarpi,
og sú þriðja i byrjun febrúar
s.l., þegar iðnkynningin hafði
starfað i fimm mánuöi.
89% töldu áhritin
hafa verið jákvæð
1 síöustu könnuninni var m.a.
spurt, hvaöa áhrif Islensk
iðnkynning hefði haft. 89%
töldu að hún heföi haft góð og
jákvæð áhrif, en aöeins 2% töldu
hana hafa verið áhrifalausa.
Aberandi var, hve mikil
aukning var á þeim svörum,
sem nefna „þjóöhollustu,
atvinnu og gjaldeyrissparnaö”
sem ástæðu fyrir þvi, að fólk
kaupi islenskar iðnaöarvörur. I
fyrstu könnuninni töldu 16% það
ástæöuna fyrir kaupum sinum, I
annarri 27% og i þriöju 41%.
I fyrstu könnuninni sáu 12%
ekkert jákvætt viö islenskar
iðnaðarvörur, en I þeirri siðustu
voru þeir, sem þannig hugsuðu,
með öllu horfnir úr svörunum.
Meirl áhrif en
við var búist
I upphafi var ekki búist við
þvi, að iðnkynningin myndi
auka markaöshlutdeild
Islenskrar iðnvöru fyrsta hálfa
árið, en siðasta könnunin sýnir
annað, þvi þá kom i ljós, að i
þeim vöruflokkum, sem könn-
unin tók til, haföi markaðshlut-
deild islenskra iðnaðarvara
aukist um 6%.
Forráðamenn iðnkynningar-
innar telja, að þetta sýni, að
boöskapur kynningarinnar hafi
að miklu leyti komist til skila.
—ESJ
Magnús Magnússon, skrifstofu-
stjóri Félags isienskra iðnrek-
enda og Pétur Sveinbjarnarson,
framkvæmdastjóri iðnkynn-
ingar skoða „módel” af
sýningarsvæði fatakaupstefnu
Félags islenskra iönrekenda,
sem fram fer 1 marsmánuöi
n.k.. — Ljosm. Jens.
Einvígið
hefst á
moraun
Fyrsta einvigisskák þeirra
Horts og Spasskýs hefst kl. 14 á
morgun á Hótel Loftleiðum, og
geta áhorfendur fylgst þar með
gangi skákar þeirra, og eins
þeim einvigisskákum, sem
fram fara á öðrum stöðum I
heiminum á sama tima.
Eins og kunnugt er, er einvig-
iö hér eitt af fjórum einvigum,
sem fara fram um svipaö leyti. 1
Rotterdam er haldið einvfgi
þeirra Larsens og Portisch, en
Kortsnoj og Petrosjan tefla á
Italiu og Mecking og Pol-
ugajevski I Sviss.
Undirbúningur vegna skák-
einvigisins hér er á lokastigi, en
búist var viö, að nóg væri að
gera viö undirbúningsvinnu
fram á siöustu stundu. — ESJ.
Þeir voru að vinna að breytingum á Hótel Loftleiöum i gær vegna
einvlgisins. F.v. Kristinn Magnússon og Hreinn Jóhannsson. Ljós-
mynd Jens
Jötunn byrjar boranir að nýju um helgina: y
„ENGINN VAFI A AÐ
ÞETTA BORGAÐI SIG"
sagði ísleifur Jónsson í viðtali við Vísi í morgun
„Það fer ekki á milli mála, að
þessi fiskun borgaði sig”, sagði
isleifur Jónsson hjá Jarð-
borunum rikisins i viðtali við
VIsi i morgun.
Taliö er, að það hafi kostað 15-
20 milljónir króna að ná upp
borstöngunum og borkrónunni i
holunni á Laugalandi við Eyja-
fjörð, en þaö verk tókst loks i
fyrradag.
„Það er margt, sem taka
verður með i reikninginn þegar
þetta er metið”, sagöi Isleifur.
„Þarna er t.d. um aö ræða bor-
stengur, sem kosta nokkrar
milljónir, og svo er holan sjálf
ogflutningurá bornum. Þaö eitt
aö flytja borinn og bora niöur á
þá dýpt, sem búið var að bora
þegar borinn festist, kostar
meira en 20 milljónir króna. Það
er þess vegna ekkert vafamál,
að þetta borgaði sig, fyrst okkur
tókst aö bjarga holunni”.
Isleifur sagði, aö bifreiö með
mælitæki væri nú á leiö norður
og væri ætlunin að kanna holuna
vel og gera allt, sem hægt væri,
til að koma i veg fyrir, að þetta
endurtæki sig.
„En við ættum siöan að geta
hafiö boranir að nýju eftir
helgina”, sagði hann.
—ESJ
Strókarnir eru
hvergi smeykir
— íslenska liðið leikur gegn Portúgul
í B-keppni Heimsmeistarakeppninnar í dag
Frá Birni Blöndal,
fréttamanni Vísis á B-
keppni Heimsmeistara-
keppninnar i handknatt-
leik í Austurríki.
— Þaö er alveg á hreinu, aö
portugalir verða engin hindrun
fyrir liö okkar þegar þau mæt-
ast hér I dag. Portugal lék gegn
A-Þýskalandi i gær, og þótt þeir
þýsku léku ekki á nærri fuliri
ferð þá voru þeir ekki I vand-
ræðum með afar slaka portugali
Björn Blöndal
skrifar fró HM í
handknattleik
í Austurríkí
og sigruðu með 36 mörkum gegn
18. — Portugalina ætti þvi að
vera óhætt að afskrifa varðandi
keppni i riðlinum, og ailir hér
biða nú spenntir eftir leik is-
lands og a-þjóðverja á sunnu-
dag.
Sá leikur gæti oröiö erfiöur
fyrir okkar menn, þvi þjóð-
verjarnir eru greinilega með
geysigott sóknarlið, miklar
skyttur, og þar fremstan i flokk
ungan ieikmann Driebrodt að
nafni en hann skoraöi 8 mörk
með langskotum I gær og er
geysilega skotviss. Portúgalir
eiga hinsvegar enga sllka, og
sumir leikmanna þeirra eru i
þungavigtarflokki og mættu al-
veg missa slatta af kllóum.
Strákarnir taugaspenntir
Þvi er ekki að neita, að þótt
strákarnir I islenska liðinu séu
friskir og ákveðnir I að gera sitt
besta I leikjunum hér, þá er
mikil taugaspenna rikjandi
meðal þeirra. Þeir vita að
heima biða allir með eftirvænt-
ingu eftir úrslitunum i leikjum
þeirra, og það setur á þá mikla
pressu.
Siguröur Jónsson formaður
HSI er þó hvergi imeykur, og
hann hefur iofað piltunum þvi
aðbjóða þeim i Vinaróperuna ef
þeir vinna B-keppnina.
ólafur meö tilboð.
Njósnarar frá austurriskum
félagsliðum eru hér mjög fjöl-
mennir, og eitt félag hér hefur
gert Ólafi Einarssyni atvinnu-
tilboð. Það kæmi ekki á óvart
þótt fleiri fengju svipuö tilboð,
þvi þessir njósnarar eru hér á
hverju strái. ólafur Einarsson
er hinsvegar meiddur og verður
ekki með gegn Portúgal I dag,
en Ólafur Jónsson er ákveðinn i
að leika með þótt hann eigi við
meiðsli að striða.
Svíar mættu drukknir
Austurriskur blaðamaður
sem ég ræddi viö sagði að það
væri greinilegt að sviar hefðu
ekki miklar áhyggjur af þvi að
komast ekki áfram I keppninni.
Þeir mættu til Austurrikis vei
undir áhrifum áfengis flestir
hverjir, en sigruðu þó austur-
riska liðið I gær með 28 mörkum
gegn 15.
Norðmenn fengu skell
Það er greinilegt að spán-
verjarnir eru meö mjög gott lið
hérna og þeir verða öruglega
erfiöir fyrir okkur i milliriöiin-
um. Þeir léku við norðmenn I
gær og unnu þá ótrúlega auð-
veldlega, skoruöu 25 mörk gegn
16.