Morgunblaðið - 29.07.2001, Blaðsíða 6
6 C SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Veitingahús í Hafnarfirði auglýsir eftir
matráði
sem vinnur aðra vikuna frá kl. 10 til 14 en hina
frá kl. 18 til 22 og aðra hvora helgi.
Ennfremur vantar tvo starfskrafta
til aðstoðar í eldhúsi og afgreiðslu í sal.
Upplýsingar í síma 691 7854.
Hjúkrunarfræðingar
óskast á barnadeild Fossvogi. Á deildinni fer
fram fjölbreytt hjúkrun barna og unglinga og
er sérsvið m.a. hjúkrun barna með sykursýki,
eftir bæklunaraðgerðir, slys, heila- og tauga-
áverka, háls-, nef- og eyrnaaðgerðir o.fl.
Boðið er upp á skipulagða fræðslu fyrir
nýja hjúkrunarfræðinga. Unnið er á átta
tíma vöktum þriðju hverja helgi. Möguleiki
á tvískiptum vöktum. Tveggja launaflokka
hækkun er fyrir 50% NV.
Upplýsingar veita Auður Ragnarsdóttir
deildarstjóri í síma 525 1566, netfang
audurr@landspitali.is og Helga Bragadóttir
sviðsstjóri í síma 560 1033, netfang
helgabra@landspitali.is
Lagermaður
óskast frá 1. sept. n.k. í eldhús Fossvogi.
Reynsla af lagerstörfum og birgðavörslu
æskileg, auk snyrtimennsku og stundvísi.
Starfshlutfall 100%.
Upplýsingar veitir María Sigurðardóttir
framleiðslustjóri í síma 525 1130, netfang
masig@landspitali.is
Umsóknarfrestur ofangreindra starfa
er til 13. ágúst n.k.
Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Reykjanesi
Nýjar áskoranir í starfi!
Eitthvað fyrir þig?
Fólk með fötlun vantar starfsfólk sér til aðstoðar
í athöfnum daglegs lífs og til þátttöku í sam-
félaginu. Um er að ræða 50-100% stöður fyrir
þroskaþjálfa og almennt starfsfólk af báðum
kynjum.
Störf í Garðabæ:
Á sambýli við Markarflöt.
Störf í Grindavík:
Á nýju sambýli við Túngötu.
Staðfesta þarf fyrri umsóknir.
Störf í Hafnarfirði:
Á skammtímavistheimili við Hnotuberg.
Störf í Kópavogi:
Á sambýlum við Borgarholtsbraut, Hrauntungu
og heimili fyrir einhverfa við Dimmuhvarf.
Störf í Mosfellsbæ:
Á heimili fyrir börn og vistheimili í Tjaldanesi.
Boðið er upp á öflugan, faglegan stuðning,
þjálfun og námskeið fyrir nýtt starfsfólk.
Nýtt starfsfólk tekur þátt í framsæknu þróunar-
starfi við mótun þjónustunnar.
Við bjóðum laun samkvæmt gildandi kjara-
samningum Þ.Í. og S.F.R., sem meðal annars
tryggja rétt til sumarorlofs og veikinda.
Athugið launahækkun í nýjum samning-
um. Kaffitímar eru greiddir í yfirvinnu, frítt
fæði og fleira. Reyklausir vinnustaðir.
Upplýsingar um ofangreind störf eru veittar
í síma 564 1822 á skrifstofutíma. Umsóknar-
frestur er til og með 13. ágúst nk. Umsóknar-
eyðublöð má nálgast á skrifstofunni á Digra-
nesvegi 5 í Kópavogi, útibúi Svæðisskrifstofu,
Hafnargötu 90, Keflavík, og á vef Svæðisskrif-
stofu á netinu http://www.smfr .
Mötuneyti —
veitingastofa
Starfsmann vantar í mötuneyti, 100% starf.
Einnig vantar starfsmann í veitingastofu, hluta-
starf. Upplýsingar um aldur og fyrri störf send-
ist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 15. ágúst
merktar: „Möt — veit“.