Morgunblaðið - 25.09.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Vátryggingafélags Íslands,
VÍS, tilkynnti formlega í gær að Finn-
ur Ingólfsson seðlabankastjóri hefði
verið ráðinn forstjóri VÍS í stað Axels
Gíslasonar. Gengið var í gær frá ráðn-
ingarsamningi við Finn, sem átti jafn-
framt fund með starfsmönnum fé-
lagsins í höfuðstöðvum þess við
Ármúla í Reykjavík. Finnur sagði við
Morgunblaðið að ráðningin legðist vel
í sig, hann væri fullur tilhlökkunar og
eftirvæntingar, en hann tekur til
starfa hjá VÍS 1. nóvember nk. Hann
hefur komist að samkomulagi við
stjórn félagsins um að fá að gegna
áfram formennsku í viðræðunefnd
stjórnvalda í stóriðjumálum en hann
segir sig nú þegar úr stjórn Fjár-
málaeftirlitsins.
Í tilkynningu sem stjórnarformað-
ur VÍS, Þórólfur Gíslason, sendi frá
sér í gær kemur m.a. fram að full
samstaða hafi verið innan stjórnar-
innar um ráðningu Finns. Í tilkynn-
ingunni segir ennfremur:
„Finnur Ingólfsson hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfun undan-
farin ár. Hann var m.a. iðnaðar- og
viðskiptaráðherra um árabil og hefur
nú síðast verið bankastjóri Seðla-
banka Íslands í tæplega 3 ár. Stjórn
VÍS væntir mikils af Finni og býður
hann velkominn til starfa á nýjum
vettvangi. Jafnframt eru Axel Gísla-
syni færðar þakkir fyrir mikið og far-
sælt starf í þágu félagsins.
Finnur Ingólfsson er fæddur 1954.
Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá
Háskóla Íslands 1984 og hóf starfs-
feril sinn sem framkvæmdastjóri iðn-
fyrirtækja 1975–1978. Hann var að-
stoðarmaður sjávarútvegsráðherra
og síðar aðstoðarmaður heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra 1983–
1991. Hann var alþingismaður Reyk-
víkinga 1991–1999. Auk þessa hefur
hann setið í stjórnum margra fyrir-
tækja og stofnana á undanförnum ár-
um. Finnur var iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra frá 1995 til loka árs 1999. Þá
sagði hann skilið við stjórnmálin og
var skipaður bankastjóri Seðlabanka
Íslands frá 1. janúar 2000.“
Áfram formaður álviðræðu-
nefndar
Finnur Ingólfsson sagði við Morg-
unblaðið að nýja starfið legðist vel í
sig.
„Það er bæði tilhlökkun og ákveðin
eftirvænting að takast á við nýtt starf.
Hér er um að ræða mjög traust og öfl-
ugt fyrirtæki á okkar tryggingamark-
aði. Ég hef átt fund með starfsfólkinu
og líst ljómandi vel á það. Ég tek ekki
við starfinu með formlegum hætti
fyrr en 1. nóvember en hætti í Seðla-
bankanum um næstu mánaðamót. Ég
tel ekki eðlilegt að ég verði þar lengur
starfandi vegna þess að VÍS er á fjár-
málamarkaðnum. Ég mun ekki koma
að neinum ákvörðunum í bankanum
frá og með deginum í dag en mun
nýta tímann í mánuðinum til að taka
saman mitt dót og ganga frá mínum
málum,“ sagði Finnur.
Hann hefur síðustu mánuði farið
fyrir nefnd sem iðnaðarráðherra
skipaði vegna viðræðna við Alcoa um
byggingu álvers í Reyðarfirði. Hann
sagðist aðspurður hafa gengið frá því
við stjórn VÍS að fá að halda áfram
því starfi. Það væri m.a. ástæðan fyrir
því að hann hæfi ekki störf hjá félag-
inu fyrr en 1. nóvember. „Ég vil koma
því máli vel áleiðis á næstu dögum og
vikum og ætla að nota tímann til þess.
Ég mun svo sinna því nefndarstarfi
eins lengi og þarf,“ sagði Finnur.
Hann sagði að á fundi með stjórn-
arformanni og öðrum stjórnarmönn-
um VÍS í gær hefði komið skýrt fram
að ekki væru uppi áform um að breyta
þeirri meginstefnu félagsins að efla
það og treysta á hlutabréfamarkaðn-
um.
Finnur hefur átt sæti í stjórn Fjár-
málaeftirlitsins en hann sagðist hætta
þar nú þegar eðli málsins samkvæmt.
Það samrýmdist ekki nýju starfi hjá
VÍS. Finnur sagðist reyndar ekki
hafa átt tök á því að sitja stjórnar-
fundi hjá stofnuninni síðustu mánuði.
Aðspurður hvernig forstjórastarfið
hjá VÍS hefði komið til sagði Finnur
að það hefði verið leitað til sín þegar
það lá fyrir að Axel Gíslason myndi
hætta.
„Fyrst var minnst á þetta við mig
en síðan var leitað til mín með form-
legum hætti eftir að ný stjórn hafði
verið kjörin hjá fyrirtækinu síðastlið-
inn föstudag. Ég tók mér skamman
tíma til umhugsunar og gaf ákveðið
svar um helgina. Ég þurfti í sjálfu sér
ekki langan tíma. Mér fannst bæði
ögrandi og skemmtilegt að takast á
við nýtt verkefni.“
Þórólfur Gíslason, stjórnarformað-
ur VÍS, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki hafa átt frumkvæði að
því að ráða Finn. Nafn hans hefði ein-
faldlega komið fljótt upp í umræðum
milli eigenda og stjórnar VÍS þegar
hugað var að eftirmanni Axels Gísla-
sonar. Aðspurður hvað hefði ráðið
mestu um það að Finnur var ráðinn
sagðist Þórólfur aðeins geta svarað
því fyrir sig persónulega.
„Ég lagði það til grundvallar að
þarna værum við að fá kraftmikinn
einstakling með víðtæka reynslu á
sviði íslensks viðskipta- og þjóðlífs.
Það réð úrslitum í mínum huga. Finn-
ur hefur marga kosti til að bera. Hann
er kraftmikill og duglegur, áræðinn
en athugull. Ég hef trú á að Finnur
geti orðið sterkur leiðtogi fyrir þessu
öfluga fyrirtæki og gert það enn öfl-
ugra í framtíðinni í góðu samstarfi við
starfsfólk fyrirtækisins, sem er mjög
hæft og gott. Við bindum miklar vonir
við störf Finns,“ sagði Þórólfur.
Finnur Ingólfsson tekur við starfi forstjóra VÍS 1. nóvember nk.
„Tilhlökkun og eftirvænting
að takast á við nýtt starf“
Morgunblaðið/Þorkell
Finnur Ingólfsson átti fund með starfsmönnum VÍS í gær og hitti þá m.a. að máli Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra Lífís, og Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
BOGI Pálsson, forstjóri P. Samúelssonar, sagði
sig í gær úr stjórn Vátryggingafélags Íslands,
VÍS, eftir að búið var að ganga frá ráðningu
Finns Ingólfssonar seðlabankastjóra í starf for-
stjóra félagsins. Þórólfur Gíslason, stjórnarfor-
maður VÍS, staðfesti þetta í samtali við Morg-
unblaðið en Bogi var kjörinn nýr í stjórnina á
hluthafafundi VÍS sl. föstudag ásamt Þórólfi,
Ólafi Ólafssyni, forstjóra Samskipa, Guðsteini
Einarssyni, kaupfélagsstjóra í Borgarnesi, og Ei-
ríki Tómassyni, forstjóra Þorbjarnar Fiskaness.
Var Bogi því í stjórninni í tæpa fjóra daga.
Aðspurður hvaða ástæður fyrir afsögninni Bogi
hefði gefið upp vildi Þórólfur ekki greina frá því.
Hann hefði tekið við bréfi frá Boga skömmu eftir
hádegi í gær og gert stjórnarmönnum grein fyrir
efni þess. Ítrekaði Þórólfur að stjórnin hefði ein-
róma samþykkt ráðningu Finns kvöldið áður og
Bogi verið þar á meðal.
,,Á skjön við það sem ég
tel vera verkefni stjórna“
Bogi Pálsson sagði við Morgunblaðið að að-
ferðafræðin við ráðningu nýs forstjóra hefði ráðið
mestu um þá ákvörðun sína að segja sig úr stjórn-
inni. Bogi sagðist engra hagsmuna hafa að gæta,
hvorki hann né P. Samúelsson eða aðrir sér
tengdir ættu hlut í VÍS, en til sín hefði verið leitað
,,til að taka þátt í ákveðnum breytingum hjá fé-
laginu“.
Hann lagði áherslu á að afsögn sinni væri ekki
beint persónulega að einum né neinum og í henni
fælist ekki vantraust á nýjan forstjóra, Finn Ing-
ólfsson.
,,Þegar ég tek að mér stjórnarsetu í félögum
legg ég ríka áherslu á að raunverulega sé verið að
leita eftir reynslu og þekkingu við ákvarðanatöku
sem eðlilegt er að stjórnin taki. Mér þótti ljóst að
ráðning nýs forstjóra hefði verið undirbúin með
þeim hætti að verkefni stjórnarinnar var ekki það
sem ég átti von á. Vel getur verið að þeir hafi ver-
ið búnir að undirbúa þetta sem voru áður í stjórn-
inni, ég þekki það ekki, en þetta fór að minnsta
kosti á skjön við það sem ég tel vera í verkahring
stjórna svona félaga. Ég taldi því rétt að leiðir
skildu,“ sagði Bogi.
– Líturðu þá svo á að ráðning Finns Ingólfs-
sonar hafi þegar verið ákveðin þegar þú tókst
sæti í stjórninni á föstudag?
,,Ég vil ekki segja að hún hafi verið frágengin
en hún var mjög vel undirbúin án þess að mér hafi
verið gert það ljóst þegar ég gekk í stjórnina.“
– Nú talar stjórnarformaðurinn um að einhug-
ur hafi ríkt í stjórn félagsins um ráðninguna og þú
hafir þannig staðið að henni.
,,Það má ljóst vera, eins og fjölmiðlar áttuðu sig
á sem biðu eftir niðurstöðu stjórnarfundar í gær
[á mánudag] að fundurinn var lengri en til stóð.
Fram kemur í fundargerð að um annað hafi ekki
verið rætt. Hafi verið einhugur um málið þá hefur
varla þurft að ræða það í tvo og hálfan tíma.“
– Greiddirðu atkvæði með ráðningunni?
,,Þó að ég hafi ritað undir fundargerðina gerði
ég það til að staðfesta setu mína á fundinum. Ég
greindi meirihluta stjórnar frá þeirri ákvörðun að
ég ætlaði ekki að standa á móti þessu. Ef menn
teldu að þetta væri rétt aðferðafræði þá yrði það
bara svo að vera. Ég hef engra hagsmuna að
gæta, hvorki viðskiptalegra eða fjárhagslegra, og
taldi það ekki mitt að standa gegn ráðningunni.
Ég taldi hins vegar rétt að víkja úr stjórninni.“
– Valda þessi málalok þér vonbrigðum?
,,Já, miklum vonbrigðum, enda hefði ég ekki
sagt mig frá stjórninni ef ég hefði verið ánægður
með gang mála. Ég er fyrst og fremst að benda á
að skilningur minn á verkefni og hlutverki stjórna
er greinilega annars eðlis en þeirra sem sitja í
stjórn VÍS.“
Bogi Pálsson sagði sig úr stjórn VÍS í gær
Gagnrýnir aðferðafræði við
ráðningu nýs forstjóra
JOHN Sergeant, pólitískur rit-
stjóri ITV sjónvarpsstöðvarinn-
ar á Bretlandi, er á meðal frum-
mælenda á ráðstefnu um
fjölmiðla og fjölmiðlun sem Fjöl-
miðlasambandið stendur fyrir
en ráðstefnan verður haldin í
Salnum í Kópavogi á laugardag-
inn.
Georg Páll Skúlason, formað-
ur Fjölmiðlasambandsins, segir
að Sergeant muni fjalla um sam-
bandið á milli fjölmiðla og
stjórnmálamanna, en titill er-
indis Sergeant er: Hver er að
nota hvern?
„Hvatinn að því að við
ákváðum að taka þetta efni fyrir
er sá að menn hafa tekið eftir því
hversu klókir sumir stjórn-
málmenn eru í því að nýta sér
fjölmiðla og virðast gera það
þannig að þeir stjórni því hve-
nær þeir komi fram og hvenær
ekki og jafnvel með hvaða hætti
þeir koma fram. Við leituðum út
fyrir landsteinana vegna þess að
við töldum markaðinn hér vera
svo lítinn að það væri vart hægt
að finna mann sem myndi þora
að tjá sig um málefnið að gagni.“
Auk Sergeants mun Páll Þór-
hallsson fjalla um hvort blaða-
menn sjálfir séu orðnir frétta-
matur, m.a. vegna þess að þeir
komi inn á viðkvæm málefni
sem beini kastljósinu að þeim
sjálfum. Rene Van Tilburg,
varaforseti Network Internatio-
nal, mun ræða um stéttlaust
fjölmiðlasamfélag. Kristinn
Hrafnsson, fréttamaður, mun
fjalla um hvernig fréttir hafa
breyst á undanförnum áratug-
um. Þá mun Árni Matthíasson á
Morgunblaðinu velta því upp
hvað hafi tekist og hvað ekki
varðandi netið.
Ráðstefna
um fjöl-
miðlun og
fjölmiðla
SAMÞYKKT var samhljóða í
bæjarráði Hafnarfjarðar í gær
að vísa samningi við Íslensku
menntasamtökin um rekstur
Áslandsskóla til afgreiðslu á
fundi bæjarstjórnar næstkom-
andi þriðjudag. Að sögn Lúð-
víks Geirssonar, bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, óskuðu bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
jafnframt eftir því að málið yrði
sent til kynningar í fræðsluráði
og sagði hann að það yrði vænt-
anlega gert fyrir fund fræðslu-
ráðs næstkomandi mánudag.
Að sögn Lúðvíks voru engar
bókanir lagðar fram á fundi
bæjarráðs vegna málsins og
lýstu sjálfstæðismenn því yfir
að afstaða þeirra til samnings-
ins og málsins kæmi fram á
fundinum eftir viku.
,,Þetta er allt í góðum farvegi
og góðum anda,“ sagði Lúðvík.
Samkomulagi
um Áslands-
skóla vísað til
bæjarstjórnar
FORSETI utanríkismálastofn-
unar Kína, Mei Zhaorong, verð-
ur á Íslandi 25.–28. september á
vegum utanríkisráðuneytisins.
Hann mun m.a. hitta forseta Ís-
lands, formann utanríkismála-
nefndar Alþingis og fulltrúa ut-
anríkisráðuneytisins. Þá mun
forsetinn taka þátt í hringborðs-
umræðum í Háskóla Íslands.
Forseti utan-
ríkismála-
stofnunar
Kína á Íslandi