Morgunblaðið - 25.09.2002, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 9
Meðgöngulínan
slit- og spangarolía
Þumalína, Lyf og Heilsa,
Lyfja, Heilsuhúsið
Viltu léttast
um 1-4 kíló á viku
Símar 557 5446 og 892 1739
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl-
mann í 3 mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
þremur stúlkum árið 2000. Ákærði
var ennfremur dæmdur til að greiða
stúlkunum, sem voru 11 og 12 ára
þegar brotin voru framin, alls 800
þúsund krónur í miskabætur.
Ákærði neitaði sök en framburður
hans var talinn ótrúverðugur. Fram-
burður stúlknanna þótti hins vegar
trúverðugur og þótti með honum,
auk málsatvika í heild, vera komin
fram sönnun þess að ákærði hefði
gerst sekur um kynferðisbrot gegn
þeim.
Fyrir Hæstarétt voru lögð vottorð
sérfræðings frá 29. ágúst sl. um líðan
stúlknanna þriggja. Í vottorðunum
kemur fram að þær eigi enn við erf-
iðleika að etja, sem telja megi tengda
kynferðislegri misnotkun og muni
þær þurfa frekari aðstoðar þegar
fram líða stundir.
Með dómi Hæstaréttar var dómur
Héraðsdóms Suðurlands frá 28.
febrúar sl. staðfestur. Málið dæmdu
hæstaréttardómararnir Guðrún Er-
lendsdóttir, Árni Kolbeinsson, Garð-
ar Gíslason, Haraldur Henrysson og
Pétur Kr. Hafstein. Verjandi
ákærða var Sigurður Sigurjónsson
hrl. Ragnheiður Harðardóttir sak-
sóknari hjá ríkissaksóknara sótti
málið.
Þriggja mán-
aða fangelsi
fyrir kyn-
ferðisbrot
ALLMÖRG dæmi eru um að hús eða
hús úr byggingarefnum frá Banda-
ríkjunum og Kanada hafi verið reist
hér á landi án þess að Brunamála-
stofnun hafi viðurkennt byggingar-
efnin eða húsin og jafnvel hafnað
þeim. Þetta kemur fram í grein Guð-
mundar Gunnarssonar, bygginga-
verkfræðings hjá Brunamálastofn-
un, sem hann ritar í tímaritið Byggð-
ina.
Í henni bendir Gunnar m.a. á
ábyrgð efnissalans og segir að um
byggingarefni gildi ákveðnar kröfur
sem sé ætlað vernda neytandann og
efnissalinn þurfi að vita og geta svar-
að fyrir hvaða notkun varan sé fram-
leidd, eftir hvaða stöðlum hún sé
gerð og hvaða kröfur hún uppfylli.
Þurfa að fullnægja
evrópskum öryggiskröfum
Í lögum um brunavarnir er raunar
skýrt kveðið á um að slíkar vörur
verða að fullnægja öryggiskröfum á
Evrópska efnahagssvæðinu en að
öðrum kosti verður innflytjandinn
eða sá sem selur vöruna að leita við-
urkenningar á henni hjá Brunamála-
stofnun áður en hún er sett á mark-
að.
Guðmundur segir að kröfur í
Norður-Ameríku séu töluvert öðru-
vísi en í Evrópu. „Eftirlitið að þessu
leyti er ekki með innflutningnum á
byggingarefnunum eða húsunum
heldur með hverri einstakri bygg-
ingu. Eftirlitið virðist oft klikka á
mörgum stöðum. Hönnuður hússins
á að fyrirskrifa efni sem eru vottuð
miðað við íslenskar aðstæður, m.a.
vegna brunaþáttarins en þetta virð-
ist oft gleymast. Síðan á byggingar-
fulltrúinn að ganga úr skugga um að
efnið sem hönnuðurinn fyrirskrifar
sé í reynd notað og byggingarstjór-
inn sem er aðalábyrgðarmaður
hennar á líka að leggja fram öll vott-
orð sem sanna að hann hafi notað
réttu efnin. Þannig að það eru þrír
aðilar sem eiga að fylgjast með þessu
og stundum kemur fyrir að þeir sofa
allir á verðinum.“
Gunnar segir að í mjög mörgum
tilvikum sé hægt að lagfæra málin
þótt húsið hafi verið reist en verði
því dýrara eftir því sem það upp-
götvist seinna.
Mjög mismunandi hvað kostar
að koma hlutunum í lag
„Sumt getur verið mjög erfitt að
lagfæra eftir á eins og t.d. þakpappa-
klæðningar og sumt af utanhúss-
klæðningunum sem ekki hafa vott-
un. Það er ekki hægt að lagfæra
öðruvísi en rífa þetta efni af og klæða
með vottuðum efnum. Það eru vissu-
lega kostnaðarsöm og mikil inngrip.“
Gunnar segir að reynt hafi verið
að brýna fyrir byggingarfulltrúum
að muna eftir vottunum, og sérstak-
lega eftir bruna sem varð í Mos-
fellsbæ. „Það hús brann á skömmum
tíma og raunar fyrst og fremst út af
einangruninni, það var einangrað
með sellulósaeinangrun sem við vor-
um búnir að synja um samþykkt.“
Aðspurður segir Gunnar að suður
með sjó sé nánast annað hvert hús
innflutt eða byggingarefnið í það.
Ekki sé mikið af þeim á höfuðborg-
arsvæðinu. „Menn virðast miklu síð-
ur hafa verið á bremsunni gagnvart
þessu suður með sjó en á höfuðborg-
arsvæðinu.“
Innflutt hús frá Norður-Ameríku
Vottorðin ómark-
tæk hér á landi
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.- Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
...framundan
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
Fös. 27. sept. Geir Ólafsson og bigband
Fim 3. okt. Konukvöld, Létt FM 96.7.
Lau. 5. okt. KSÍ lokahóf - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Sun. 6. okt. Jazzhátíð Reykjavíkur.
Fim 10. okt. Októberfest.
Fös. 11. okt. Októberfest.
Lau. 12. okt. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 18. okt. Pacha FUTURA II.
Lau. 19. okt. Viva Latino.
Írska hljómsveitin Trad Lads.
Fös. 25. okt. Viva Latino.
Love Box partý Paradisio.
Fös. 8. nóv. Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 9. nóv. 80 ára afmæli Fáks og
og uppskeruhátíð hestamanna.
Sun. 10. nóv. Íslandsmeistaramótið
í vaxtarækt.
Fös. 15. nóv. Love Box partý Playmate.
Lau. 16. nóv. Viva Latino.
Fim. 21. nóv. Herra Ísland.
Fös. 22. nóv. VESTMANNAEYJAKVÖLD.
Skemmtun og dansleikur.
Lau. 23. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 29. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 30. nóv. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Lau. 7. des. Jólahlaðborð - Viva Latino.
Spútnik leikur fyrir dansi.
Fös. 13. des. Jólahlaðborð -
ELVIS, stórsýning - Sixties.
Lau. 14. des. Jólahlaðborð -
ELVIS, stórsýning- Sixties.
Lau. 21. des. Love Box partý, jólaball
Þri . 31. des. GAMLÁRSKVÖLD
- Sálin, dansleikur
1. jan. 2003 Óperuballið
Frábær sýning,
sem slegið hefur
rækilega í gegn!
Miðaverð:
6,400 kr.
fyrir sýningu
og kvöldverð .
2,500 kr.
fyrir sýningu.
Húsið opnar
klukkan 19:00
fyrir matargesti.
Sýningin hefst
kl. 22:00
Næsti föstudagur 27. september:
Sýningar til jóla:
5. október, 3ja rétta kvöldverður
12. október, 3ja rétta kvöldverður
19. október, 3ja rétta kvöldverður
25. október, 3ja rétta kvöldverður
8. nóvember, 3ja rétta kvöldverður
16. nóvember, 3ja rétta kvöldverður
23. nóvember, jólahlaðborð
29. nóvember, jólahlaðborð
30. nóvember, jólahlaðborð
7. desember, jólahlaðborð
ásamt frábærum
gesta söngvurumog stórhljómsveit
Geir Ólafsson
Stjörnur kvöldsins eru ungir og upprennandi leikarar og söngvarar.
Matseðill:
Saffranbætt sjávarréttasúpa.
Einiberjaleginn lambavöðvi
m/gráðosta-bláberjasósu
Frönsk súkklaðiterta m/vanilluís.
Sýning þar sem að leikarar, listamenn og dansarar skemmta
og þjóna gestum hússins.
Syngjandi þjónar...
...grín, glens og gamanVerð fyrir kvöldverð og sýningu er 6.400,- krónur.Litla sviðið opnar klukkan 19.30 - Sýningin hefst stundvíslega kl. 20.00
Sýningar eru á föstudögum og laugardögum.
St
afr
æn
ah
ug
m
yn
da
sm
ið
jan
/2
28
0
Gestasöngvarar:
Harold Burr,
Inga Bachmann,
Jóhanna Linnet
og Rut Reginalds.
Kvöldverður og tónleikar
kr. 5.900
Tónleikar kr. 2.500
Ný sending
Úlpur - með og án hettu
Gallabuxur og peysur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Höfum opnað eftir
sumarlokun
Full búð af nýjum,
glæsilegum vörum.
Ný sending
Peysur - buxur - bolir