Morgunblaðið - 25.09.2002, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
REKSTUR sumra sjóða sem nú eru
á hendi ríkisins gæti verið betur
kominn innan bankakerfisins, að
mati Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra. Þetta kom fram í erindi hans á
þriðju ráðstefnu Landsbanka Ís-
lands fyrir erlenda bankamenn. Á
ráðstefnunni var fjallað um efna-
hagsþróun á Íslandi, framtíðarhorf-
ur í fjárfestingum og tækifæri á ís-
lenskum fjármálamörkuðum.
Einnig héldu erindi á ráðstefnunni
Lorenzo Codogno, framkvæmda-
stjóri Bank of America NA í London,
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, Stefán Pétursson,
fjármálastjóri Landsvirkjunar, Ró-
bert Wessman, forstjóri Delta, Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Kauphallar
Íslands, og Unnar Hermannsson frá
KPMG Ráðgjöf ehf.
Má ekki láta staðar
numið í einkavæðingunni
Davíð sagði að þegar sölu ríkis-
bankanna og Landssímans lýkur,
verði tímamótaáfanga náð í einka-
væðingu hér á landi. „En ekki má
láta staðar numið. Rekstur ýmissar
þjónustu sem ríkið veitir, m.a. í
formi niðurgreiðslu eða styrkja gæti
verið betur kominn í höndum einka-
aðila heldur en í höndum ríkisins.
Það má til dæmis velta upp þeirri
spurningu hvort ekki megi færa
rekstur sumra þeirra sjóða sem nú
eru á hendi ríkisins inn í bankakerf-
ið. Hví skyldi ekki til dæmis mega
fela bankakerfinu rekstur slíkra
sjóða en ríkið héldi áfram að tryggja
með niðurgreiðslum eða beinum
styrkjum þau félagslegu markmið
sem sjóðunum er ætlað að ná. Þar
með sparar ríkið rekstrarkostnað
sinn, bankarnir styrkja rekstur sinn
og þjónustan við almenning batnar. Í
mínum huga er engin ástæða til að
ætla að ríkisvaldið sé eitt fært um að
veita þá félagslegu þjónustu sem
pólitísk samstaða er um að greidd sé
úr ríkissjóði. Það eru því fjölmörg
tækifæri til að auka enn hagræðið í
ríkisrekstri og á sama tíma auka
gæði þeirrar þjónustu sem nú er
boðin. Einkavæðing og samhjálp eru
ekki andstæður, þvert á móti getur
einkavæðingin, sé rétt á málum
haldið, bætt samhjálpina og aukið,“
sagði Davíð Oddsson.
Hann fjallaði jafnframt um útrás
íslenskra bankastofnana og að Ís-
land væri aðlaðandi fyrir erlenda
bankastarfsemi. „En þó Ísland vilji
laða að erlenda fjármálastarfsemi þá
liggur það skýrt fyrir að Ísland mun
ekki keppa við skattaparadísir eða
þá staði sem láta sér í léttu rúmi
liggja uppruna þess fjármagns sem
streymir í gegnum bankastofnanir.
Reglur þurfa að vera einfaldar og
skýrar og tryggt að þeim sé fram-
fylgt. Íslenskur fjármálamarkaður
er ungur og enn í mótun. Við höfum
því gott tækifæri til að skapa mark-
aðinum þá umgjörð sem best dugar
til að hingað leiti erlendar fjármála-
stofnanir þegar fram líða stundir.“
Stöðug mynt nauðsynleg
Davíð gerði grein fyrir afstöðu
sinni til aðildar Íslands að Evrópu-
sambandinu og sagði engan vafa
leika á því að íslenska þjóðin myndi
aldrei samþykkja að framselja yfir-
ráð yfir íslensku fiskimiðunum til
Brussel. Hann vék einnig að evr-
unni. „Það þarf ekki að taka fram í
þennan ágæta hóp sem hér situr að
það fylgja því ýmsir erfiðleikar að
hafa sjálfstæða mynt og lítið hag-
kerfi. Stöðugleiki er lykilorð í öllum
fyrirtækjarekstri og stöðug mynt er
nauðsynleg. Sjálfstæð mynt gerir
kröfu á íslensk stjórnvöld að þau
hagi stjórn efnahagsmála þannig að
þeir sem kaupa og selja krónur hafi
traust og trú á efnahagslífi þjóðar-
innar. Hallalaus fjárlög og sterkur
Seðlabanki og viðskiptafrelsi, allt
styrkir þetta íslensku myntina og
veitir henni stöðugleika. Verðgildi
íslensku krónunnar endurspeglar ís-
lenska hagkerfið, hún lagar sig að ís-
lenskum raunveruleika og aðstæð-
um. Þannig fæst sveigjanleiki í
hagkerfið sem er svo mikilvægur
fyrir okkur Íslendinga. Innganga í
Evrópusambandið leiðir til upptöku
evru. Það liggur í hlutarins eðli að
gengi evrunnar og þeir vextir sem
evrópski seðlabankinn setur hljóta
að endurspegla aðstæður í hagkerf-
um stórþjóða Evrópu en taka lítið
sem ekkert mið af því hvernig mál-
um er háttað hér uppi á Íslandi. Það
er langur vegur frá því að íslenskt
efnahagslíf hreyfist með sama hætti
og efnahagslíf meginlandsþjóða
Evrópu og því mjög varhugavert
fyrir Ísland að taka upp hina sameig-
inlegu mynt. Í þessu sambandi er
reynsla Þjóðverja nú síðustu misseri
allrar athygli verð fyrir okkur Ís-
lendinga. Þýska hagkerfið er óum-
deilanlega miklu líkara hagkerfum
annarra stjórþjóða Evrópu en það
íslenska. Samt er það nú svo að vext-
ir evrópska seðlabankans eru nú
hærri en þeir vextir sem aðstæður í
þýsku efnahagslífi kalla á. Þetta
veldur Þjóðverjum miklum vanda
því á sama tíma nemur hallinn á
þýsku fjárlögunum allt að 3% af
landsframleiðslu og því lítið sem
ekkert svigrúm til að beita ríkisfjár-
málum til að leiðrétta þann vanda
sem hlýst af röngu vaxtastigi. Það er
víst að þessi vandi Þjóðverja yrði
miklu magnaðri og þrálátari hér á
landi, vextirnir yrðu ýmist of eða
van, með tilheyrandi samdrætti eða
verðbólgu.“
Samruni fjármálastofnana
nauðsynlegur
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka Íslands, fagnaði
orðum forsætisráðherra um sjóðina
og bankakerfið. Að mati Halldórs á
að einkavæða Íbúðalánasjóð og það
yrði til mikillar hagræðingar að sam-
eina Íbúðalánasjóð og banka.
Halldór fjallaði um íslenska
bankamarkaðinn í erindi sínu og
nauðsyn þess að bankastofnanir og
fjármálafyrirtæki sameinist til að
mynda stærri heildir.
Halldór sagði að samrunaferlið á
íslenskum fjármálamarkaði væri
rétt svo hafið en það hófst með sam-
einingu Íslandsbanka og FBA árið
1999. Á þessu ári hefðu verið til-
kynntir samrunar eignarhaldsfélaga
og nú síðast samruni Auðlindar og
Kaupþings banka. Halldór sagði
þetta mikilvægt ferli og jafnframt
það að allir íslensku bankarnir hefðu
nú starfsemi erlendis.
Að mati Halldórs er frekari hag-
ræðing í bankakerfinu nauðsynleg
og að einkavæðing fjármálageirans
verði lokið á næsta ári. Hann telur
frekari sameiningar banka nauðsyn-
legar til að hagræðing náist fram.
Einnig eru sameiningar nauðsynleg-
ar til að stækka íslensku bankana
svo þeir verði eftirtektarverðir, t.d. á
Norðurlöndunum.
Ráðstefna Landsbankans fyrir erlenda bankamenn um efnahagshorfur og íslenskan fjármálamarkað
Sjóðir frá ríkinu
til bankakerfisins
Morgunblaðið/Þorkell
Davíð Oddsson forsætisráðherra telur að Íslendingar hafi gott tækifæri til
að skapa fjármálamarkaði þá umgjörð sem best dugar til að hingað leiti er-
lendar fjármálastofnanir þegar fram líða stundir.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRAR
Íslands og Rússlands, þeir Árni M.
Mathiesen og Evgeniy I. Nazdrat-
enko, undirrituðu í gær bókun um
samstarfs landanna á sviði sjávar-
útvegs. Bókunin var undirrituð í
kjölfar funda Nazdratenkos með ís-
lenzkum ráðamönnum hér á landi og
lýstu ráðherrarnir mikilli ánægju
með bókunina og töldu mikla mögu-
leika felast í samvinnu landanna.
Aukin samvinna
Helztu atriði bókunarinnar eru að
áfram verði haldið sameiginlegri
vinnu að undirbúningi rússnesk-ís-
lenzk samkomulags um gæði fiskaf-
urða, en haldin verður sýning og
samkeppni um gæði fiskafurða í
Moskvu á næstunni. Jafnframt felst
í bókuninni að hafnar verði viðræður
um gagnkvæman stuðning á sviði
fjareftirlits með skipum beggja
landanna, sem stunda veiðar í lög-
sögu Rússlands eða Íslands á grund-
velli landsmiðstöðva gervihnattaeft-
irlits með það að markmiði að fækka
eftirlitsmönnum um borð í skipum.
Sérfræðingar landanna um fjareft-
irlit munu hittast í Moskvu í byrjun
október til að ræða þessi mál.
Þá munu verða viðræður milli
landanna í Sankti Pétursborg 12. til
18. október til að ná samkomulag um
veiðar á síld. Jafnframt verður unnið
að mótun sameiginlegrar stefnu
varðandi veiðar á NAFO-svæðinu,
þar á meðal um eftirlit með veiðum.
Skipulagðar verða rússnesk-íslenzk-
ar viðræður með þátttöku vísinda-
manna um rannsóknir á vegum
NEAFC á úthafskarfa í Irminger-
hafinu til þess að ná fullu samkomu-
lagi í tengslum við þennan stofn og
stjórnun veiða úr honum.
Skuld við Marel
Haldið verður áfram samstarfi
um sjálfbæra nýtingu sjávarspen-
dýra, þar á meðal innan Alþjóða-
hvalveiðiráðsins, þar sem verður
stefnt að afléttingu á banni við veið-
um úr þeim hvalastofnum, sem þola
sjálfbæra nýtingu. Einnig verður
stuðlað að þróun rússnesk-íslenzkra
fyrirtækja á sviði fisk- og sjávaraf-
urða.
Í bókuninni er einnig talað um að
kanna möguleika á að jafna deilu
varðandi skuld Karelrybflots við
Marel Trading á grundvelli sam-
komulags, sem náðist í heimsókn
forseta Íslands til Moskvu í því
skyni að leysa úr því máli sem fyrst.
Nazdratenko sagði aðspurður að
þetta væri hið versta mál, í raun sví-
virðilegur þjófnaður, en nú væri
ákveðið að skipa nefnd í málið til að
leysa það enda hefði það verið rætt
af helztu ráða- og embættismönum
beggja þjóðanna. Skuldin sagði
hann að næmi um 5 milljónum doll-
ara eða um 435 milljónum króna.
Á þessum fundum var ekki rætt
um frekari gagnkvæmar veiðiheim-
ildir milli landanna en nú eru í gildi.
Nazdratenko sagði að nú væri verið
að íhuga hvort ekki væri rétt að
skipaður yrði sérstakur sjávarút-
vegfulltrúi við rússneska sendiráðið
í Reykjavík því þjóðirnar ætti svo
marga sameiginlega hagsmuni að
verja á sviði sjávarútvegsins. Nefndi
hann Evrópusambandið sem dæmi
og sagði afstöðu Rússa hina sömu og
Íslendinga, að inngöngu væri ekki
óskað. Loks gat hann þess að hann
hefði boðið hinum íslenzka starfs-
bróður sínum í heimsókn til Rúss-
lands.
Greitt fyrir aflaheimildir
Fiskveiðum Rússa er nú stjórnað
með þeim hætti, að ríkisstjórnin
ákveður heildarafla að fengnum til-
lögum frá fiskifræðingum. Heildar-
afli á þessu ári er tæplega 5 milljónir
tonna. Stjórnvöld skipta afla heim-
ildum síðan niður. Þannig fara 4% til
rannsókna, 38% fara á uppboð og
58% er dreift um landið þar sem
sveitarstjórnir sjá síðan um að út-
hluta þeim til útgerða. Útgerðir við
sjávarsíðuna þurfa ekki að greiða
fyrir aflaheimildirnar. Nú er rúss-
neska þingið, Dúman, að vinna að
breytingum á fiskveiðistjórnuninni
og skattalöggjöfinni, sem fela í sér
að greiða verður fyrir allar veiði-
heimildir, en gjaldið verður fremur
lágt. Nazdratenko sagði að hann
vildi ekki að sjávarþorpin legðust í
eyði vegna samkeppni um veiði-
heimildir og því yrði þeim úthlutað
aflaheimildum án endurgjalds.
Morgunblaðið/Þorkell
Sjávarútvegsráðherrarnir Evgenyi I. Nazdratenko og Árni M. Mathiesen undirrita bókun um samstarf þjóð-
anna í sjávarútvegi. Aleksandr A. Rannikh, sendiherra Rússlands á Íslandi, er lengst til vinstri á myndinni.
Aukið sam-
starf Íslands
og Rússlands
Sjávarútvegsráðherrar landanna und-
irrita bókun um veigamikla samvinnu