Morgunblaðið - 25.09.2002, Qupperneq 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 17
HÁÞRÝSTI
ÞVOTTATÆKI
Verð frá kr.
8.900,-
ÞÓRARINN Viðar Þórarinsson
hdl., fyrrverandi forstjóri Lands-
síma Íslands hf., hefur ákveðið að
snúa sér að lögfræðistörfum frá og
með 1. október nk. en hann hefur
gerst meðeigandi að lögfræðiskrif-
stofunni AM Praxis sf., svo og inn-
heimtu- og kröfukaupafirmanu AM
Kredit ehf. AM Praxis sf. er ein af
stærri lögmannsstofum landsins en
AM Kredit ehf. er eitt öflugasta inn-
heimtufyrirtæki landsins á sviði
frum-, milli- og löginnheimtu.
Eigendur félaganna eru auk Þór-
arins þeir Hróbjartur Jónatansson
hrl., Jónatan Sveinsson hrl., Reynir
Karlsson hrl. og Sveinn Jón-
atansson hdl.
Er að koma heim
Þórarinn segir að í vissum skiln-
ingi sé hann að koma heim.
„Kannski var það hálfgerð til-
viljun að ég fór ekki inn á þessa línu
strax eftir nám. Þetta hefur oft orð-
ið mér til umhugsunar síðan og ætli
megi ekki segja að ég sé í vissum
skilningi að koma heim,“ sagði Þór-
arinn í samtali við Morgunblaðið en
Þórarinn varð héraðsdóms-
lögmaður árið 1986 en hóf það
sama ár störf sem framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands Ís-
lands, VSÍ. Hann starfaði hjá VSÍ til
ársins 1999 þegar hann tók við
starfi forstjóra Símans, en áður
hafði hann verið stjórnarformaður
Símans.
Þórarinn hætti störfum hjá Sím-
anum í desember á síðasta ári.
Sinnti frágangsmálum
Þórarinn segir að sá hamagang-
ur sem varð í kjölfar starfsloka
hans á Símanum hafi orðið til þess
að honum þótti rétt að halda sig til
hlés þangað til nú og leyfa hlut-
unum að róast, eins og hann orðar
það. Hann segir að frá því að hann
hætti hjá Símanum hafi hann sinnt
ýmsum nauðsynlegum frágangs-
málum. „Ég hef aðallega sinnt ýms-
um persónulegum fjárfestingar-
verkefnum. En nú er tími kominn til
að fara út á vinnumarkaðinn aftur
og byrja í nýjum farvegi.“
Þórarinn sagðist aðspurður hafa
velt nokkrum atvinnumöguleikum
fyrir sér áður en hann ákvað að
ganga til liðs við AM Praxis. Hann
segir að þegar upp var staðið hafi
lögmennskan haft vinninginn.
„Þegar upp var staðið þótti mér
skemmtilegast að fara inn á þennan
vettvang því kannski hefur lög-
mennskan blundað í mér alla tíð.
Þetta er áhugavert fyrirtæki og
starfsvettvanginn þekki ég vel þó
að ég hafi ekki starfað sem lögmað-
ur síðan ég varð héraðsdóms-
lögmaður árið 1986. Ég hlakka til
að takast á við þennan nýja vett-
vang,“ sagði Þórarinn.
Þórarinn býst við að helstu verk-
efni sín hjá félaginu verði á sviði
samningagerðar. „Ég hef býsna víð-
tæka reynslu af samningamálum og
samningarétti og það kæmi mér
ekki á óvart að ég myndi starfa á
því sviði meðal annars. Starf lög-
fræðinga felst í sífellt meira mæli í
fyrirbyggjandi ráðstöfunum með
umbjóðendum sínum. Vettvangur
lögmannsins er ekki síst að koma í
veg fyrir vandamál, þó að ímynd
lögmannsins sé kannski frekar að
hann mæti til leiks eftir að mál eru
orðin að vandamálum.“
Hef ekki verið upptekinn
af sjálfum mér
En þykja Þórarni það ekki við-
brigði að koma úr starfi forstjóra
stórfyrirtækis eins og Símans í starf
lögmanns hjá mun minna fyrirtæki?
„Þetta fer allt eftir því hvernig
menn upplifa sjálfa sig. Ég hef aldr-
ei verið svo upptekinn af sjálfum
mér að ég hafi miklast yfir verkefn-
unum sem ég hef verið að fást við á
hverjum tíma. Ég er líka sann-
færður um að það er öllum mönnum
hollt að skipta um vettvang á starfs-
ferlinum.“
Þórarinn segir að reynsla sín frá
VSÍ og Símanum komi til með að
nýtast honum og hans umbjóð-
endum vel. „Ég sat auk þess í Sam-
keppnisráði um tíma, þannig að
reynslan kemur víða að og mun nýt-
ast mér í nýju starfi. Það skiptir
miklu máli að vera með fjölbreytta
reynslu í farteskinu.“
Nýti reynsluna úr
Símanum og VSÍ
Þórarinn V. Þór-
arinsson til lög-
fræðiskrifstofu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þórarinn Viðar Þórarinsson, nýr meðeigandi AM Praxis sf.
SIGURÐUR Einarsson, forstjóri
Kaupþings, er til umfjöllunar í nýj-
asta hefti sænska viðskiptatíma-
ritsins Veckans Affär-
er. Sigurður hefur
verið áberandi í frétt-
um ytra vegna yfir-
tökutilboðs Kaupþings
í JP Nordiska-bank-
ann og kröfu um að
haldinn verði hlut-
hafafundur og skipt
um stjórn í fyrirtæk-
inu.
Atburðarásinni frá
því Kaupþing eignað-
ist Aragon-verðbréfa-
fyrirtækið í byrjun
þessa árs og setti svo
Aragon inn í JP Nord-
iska og eignaðist
þannig 28% í bankan-
um, er lýst í greininni, sem og
manninum Sigurði sem ku hafa við-
urnefnið „Siggy Stardust“ í við-
skiptahverfinu í Stokkhólmi.
Sigurður lýsir í greininni því
sjónarmiði sínu að krafan um að
skipta þurfi um stjórn í JP Nord-
iska hafi ekkert með yfirtökutilboð
Kaupþings að gera. Hann segir að
núverandi stjórn þurfi að taka af-
stöðu til tilboðsins og hann hafi
ekki farið fram á að ný stjórn verði
kosin til þess að fá inn fólk „sem
segir fallega hluti um Kaupþing“.
Kaupþing hefur einnig verið
gagnrýnt fyrir að hafa
ekki boðið litlum hlut-
höfum í JP Nordiska
staðgreiðslu fyrir sína
hluti en Sigurður
svarar þeirri gagnrýni
þannig að hluthafar
sem fá greitt með
hlutabréfum í Kaup-
þingi geti vissulega
selt þau ef vilji er fyr-
ir hendi, þar sem virk-
ur markaður sé með
þau bréf, öfugt við
bréf Nordiska.
Fram kemur að
áformað er að skrá
bréf Kaupþings í
Kauphöllinni í Stokk-
hólmi ef tilboðinu verður tekið. Í
lok október birtist útboðslýsing
hvort sem samþykki stjórnar ligg-
ur fyrir eða ekki. Eftir það hafa
litlir hluthafar í Nordiska nokkrar
vikur til að taka afstöðu til tilboðs-
ins. „Þeir geta valið á milli þess að
verða hluthafar í því sem er fyrir
flesta með öllu óþekktur íslenskur
fjárfestingarbanki eða halda eftir
steindauðum JP Nordiska-bréf-
um,“ segir í grein Veckans Affärer.
Krafan um nýja
stjórn ótengd
yfirtökutilboðinu
Sigurður Einarsson
Í GÆR sögðu Jakob Bjarnason og
Eiríkur S. Jóhannsson af sér sem
varamenn í bankaráði Íslandsbanka.
Þá hafa allir fulltrúar Orca-hópsins
svokallaða sagt af sér sem banka-
ráðsmenn, þ.e. Þorsteinn Már Bald-
vinsson, Gunnar Jónsson og Jón Ás-
geir Jóhannesson sem aðalmenn og
Einar Örn Jónsson sem varamaður
ásamt þeim Jakobi og Eiríki.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðs, að bankaráðsfundur
verði haldinn nk. þriðjudag og þá
verði ákveðið hvaða þrír af fjórum
varamönnum sem eftir eru taki sæti
Gunnars, Jóns Ásgeirs og Þorsteins
Más í bankaráðinu. Kristján segir að
ekki sé á dagskrá að halda hluthafa-
fund vegna þessa máls, stjórnarkjör
fari næst fram á aðalfundi í mars nk.
Bankaráð Íslandsbanka skipa nú
Kristján Ragnarsson formaður, Ein-
ar Sveinsson, Helgi Magnússon og
Víglundur Þorsteinsson af þeim sem
kjörnir voru sem aðalmenn á síðasta
aðalfundi. Fjórir varamenn eru Frið-
rik Jóhannsson, Gunnar Felixson,
Örn Friðriksson og Guðmundur B.
Ólafsson.
Fulltrúar Orca-hóps-
ins úr bankaráði
Kauptu eina flík,
hún endist á við þrjár
Hagkaup