Morgunblaðið - 25.09.2002, Síða 32
MINNINGAR
32 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Hrólfur Sigurðs-son fæddist í
Reykjavík 10. des-
ember árið 1922.
Hann lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 17. september
síðastliðinn. For-
eldrar Hrólfs voru
Sigurður Sigurðs-
son, sýslumaður
Skagfirðinga, f. 19.9.
1887 í Vigur í Ísa-
fjarðardjúpi, d. 20.6.
1963 á Sólvangi í
Hafnarfirði, og kona
hans Guðríður Stef-
anía Arnórsdóttir, f. 15.4. 1889 á
Felli í Kollafirði í Strandasýslu, d.
14.6. 1948 í Kaupmannahöfn.
Systkini Hrólfs eru: 1) Margrét
Þórunn, hjúkrunarkona og borg-
arfulltrúi í Helsingborg í Svíþjóð,
f. 4.5. 1915, d. 23.5. 1994. Maður
hennar var Olle Hermannsson lög-
fræðingur, f. 21.12. 1911. 2) Sig-
urður Sigurðsson, listmálari, f.
29.10. 1916. Kona hans var Anna
Kristín Jónsdóttir, saumakona, f.
6.2. 1916. 3) Stefanía Guðríður,
skrifstofumaður, f. 5.1. 1918, d.
12.7. 1993. Ógift. 4) Arnór, verð-
lagseftirlitsmaður á Sauðárkróki,
f. 1.3. 1919, d. 14.11. 1998. Kona
hans var Guðrún Sveinsdóttir, af-
greiðslukona, f. 30.3. 1922, d. 24.7.
1981. 5) Stefán, héraðsdómslög-
maður á Akranesi, f. 5.10. 1920, d.
8.2. 1993. Eiginkona hans var Erla
Elísabet Gísladóttir, f. 12.6. 1933.
6) Guðrún Ragnheiður, listmálari í
bjó þar fram undir tvítugt. Hann
stundaði nám við Menntaskólann á
Akureyri en fluttist síðan til
Reykjavíkur og sótti námskeið í
Handíða- og myndlistarskólanum.
Árið 1946 fluttist hann til Kaup-
mannahafnar þar sem hann nam
fyrst við teikniskóla Eriks Clem-
mensens og síðan við Konunglegu
listaakademíuna þaðan sem hann
lauk námi árið 1950. Á þessum ár-
um sínum ytra sótti hann einnig
námskeið í Hollandi, Frakklandi,
Ítalíu og á Grikklandi. Hann kom
heim til Íslands að námi loknu og
hóf strax vinnu við list sína en
kenndi jafnframt í nokkur ár við
Handíða- og myndlistarskólann í
Reykjavík og Iðnskólann í Hafn-
arfirði og í Reykjavík. Þá vann
hann einnig, samhliða listsköpun,
við garðhönnun eða landslagsarki-
tektúr fram til ársins 1980. Eftir
það sneri hann sér heilshugar að
málverkinu. Hrólfur var einn
þeirra listamanna sem héldu
tryggð við landslagsmálverkið á
sjötta og sjöunda áratug síðustu
aldar þegar flestir sneru sér að af-
straktmálverkinu. Hrólfur var í
sýningarnefnd Félags íslenskra
myndlistarmanna í nokkur ár og í
safnráði Listasafns Íslands 1973–
1980.
Hrólfur hélt þrjár einkasýning-
ar á verkum sínum. Þá fyrstu í
Bogasal Þjóðminjasafnsins árið
1962, aðra á Kjarvalsstöðum 1992
í boði Menningarmálanefndar
Reykjavíkur og þá síðustu í Gerð-
arsafni í Kópavogi 1996 í boði
Listasafns Kópavogs. Þá tók hann
þátt í fjölda samsýninga hér á
landi og erlendis.
Útför Hrólfs fer fram frá Kópa-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Danmörku, f. 25.7.
1925. Maður hennar
er Jens Christian
Urup, listmálari, f.
25.9. 1920. 7) Árni,
sóknarprestur á
Blönduósi, f. 13.11.
1927. Kona hans var
Eyrún Gísladóttir,
hjúkrunarkona, f.
17.1. 1931, d. 2.12.
1997. 8) Snorri, skóg-
fræðingur, f. 15.4.
1929. Eiginkona hans
er Sigurlaug Sveins-
dóttir Bjarman, leið-
beinandi, f. 27.12.
1929.
Árið 1948 kvæntist Hrólfur Mar-
gréti Árnadóttur, deildarstjóra og
myndlistarmanni, en hún er fædd
12.12. 1926. Foreldrar hennar
voru Árni Pétursson, skipasmiður,
f. 30.6. 1894, d. 9.9. 1972, og Jónína
Guðmundsdóttir, f. 3.4. 1895, d.
16.7. 1973. Hrólfur og Margrét
eignuðust tvær dætur. Þær eru: 1)
Nína, hjúkrunarfræðingur, f. 19.3.
1951, gift Stígi Steingrímssyni,
starfsmanni Brimborgar, f. 19.4.
1953. Fyrri maður hennar var Ira
Martin Cela, trésmiður, f. 21.12.
1948, d. 13.12. 1988. Börn þeirra
eru: Margrét, f. 30.9. 1973, og
Hrólfur Karl, f. 28.6. 1979. 2) Stef-
anía, kennari, f. 10.2. 1955, gift Ív-
ari Gissurarsyni, bókaútgefanda,
f. 23.4. 1953. Þau eiga eina dóttur,
Eddu, f. 24.11. 1979.
Hrólfur fluttist barnungur frá
höfuðborginni til Sauðárkróks og
Í lífi hvers manns er það mikil
gæfa að eiga sér góða vini. Nú er
fallinn í valinn einn minna allra
bestu vina, tengdafaðir minn Hrólf-
ur Sigurðsson. Fundum okkar bar
fyrst saman fyrir um fjórðungi ald-
ar er Stebba dóttir hans bauð mér
heim með sér í Fögrubrekkuna
skömmu eftir að við fórum að draga
okkur saman. Eins og gjarnan er
með unga menn þá var ekki laust
við lítilsháttar kvíða er ég sté inn í
hús tengdaforeldra minna fyrsta
sinni en það verður að segjast eins
og er að innan fárra mínútna leið
mér nánast eins og blómi í eggi.
Tengdamóðir mín reiddi fram dýr-
indis máltíð eins og henni er einni
lagið og samræður hófust um allt á
milli himins og jarðar. Eftir ör-
stutta yfirferð um ætt mína og upp-
runa var snúið sér að því sem máli
skipti, menningunni sjálfri, pólitík,
listum, bókmenntum, sagnfræði og
íslenskri náttúru. Og í slíkri um-
ræðu var tengdapabbi í essinu sínu,
fjölfróður með ákveðnar og róttæk-
ar skoðanir á öllu en umfram allt al-
veg stórskemmtilegur. Hann hafði
einstakt skopskyn sem bæði þrosk-
aði og kætti. Þrátt fyrir að sjaldan
liði langur tími á milli heimsókna í
Fögrubrekkuna var hver einasta
samverustund lærdómur út af fyrir
sig. Umræðuefni skorti okkur aldr-
ei og tengdafaðir minn var sífrjór
til hinstu stundar. Við sem eftir lif-
um þökkum heilshugar fyrir að hafa
fengið að njóta visku hans og
ógleymanlegra sögu- og gleði-
stunda.
Hrólfur fæddist í Reykjavík en
flutti barnungur til Sauðárkróks
með foreldrum sínum er faðir hans
varð sýslumaður Skagfirðinga. Þar
ólst hann upp fram um tvítugt í
stórum og fjörmiklum systkinahópi.
Og snemma beygðist krókurinn á
Króknum því þegar á unga aldri
vaknaði áhugi hans fyrir að draga
upp mynd og í gömlu blaðaviðtali er
haft eftir honum að faðir hans hafi
líklega verið fyrstur til að kenna
honum að teikna. Þar segir hann
alla krakkana á heimilinu hafa verið
haldna þessari ástríðu og pabbi
hans hafi verið potturinn og pannan
í öllu. Segist í sama viðtali best geta
trúað því að pabbi hans hafi verið
fyrsti abstraktmálari á Íslandi en
hafi þó bara málað fyrir sjálfan sig
og börnin. Að loknu hefðbundnu
skyldunámi á Króknum stundaði
Hrólfur nám við Menntaskólann á
Akureyri og fór síðan til Reykjavík-
ur þar sem hann nam við Mynd-
lista- og handíðaskólann. Þaðan lá
svo leiðin til Kaupmannahafnar og
þar lauk hann námi í málaralist frá
Konunglegu listaakademíunni árið
1950.
En Hrólfur sótti ekki aðeins
þekkingu á málaralist til listaaka-
demíunnar í Höfn því þar kynntist
hann einnig eiginkonu sinni, Mar-
gréti Árnadóttur, sem þar var þá
einnig við nám. Þau afréðu að flytja
heim til Íslands árið 1950 og við tók
dæmigert brauðstrit ungra lista-
manna. Í fyrstu bjuggu þau á Urð-
um í Laugardal í Reykjavík en
leigðu svo í Vonarstræti. Magga hóf
fljótlega að vinna hjá Landsíma Ís-
lands og var þar síðan allan sinn
starfsaldur, í fyrstu á langlínudeild-
inni en færði sig fljótlega yfir á
teiknistofuna. Hrólfur fékkst við
málverkið en hafði framfæri sitt að
mestu af kennslu við Handíða- og
myndlistarskólann í Reykjavík og
við Iðnskólann í Hafnarfirði í nokk-
ur ár eftir 1950. Þá vann hann einn-
ig, samhliða listsköpun, sem lands-
lagsarkitekt árin 1950 til 1980.
Húsið í Vonarstræti varð fljótlega
of lítið því það fjölgaði í fjölskyld-
unni. Ári eftir heimkomuna fæddist
eldri dóttir þeirra, Nína, og árið
1955 leit svo yngri dóttirin, Stef-
anía, dagsins ljós. Þar sem leigu-
húsnæði var af skornum skammti
og enga lóð var að fá í Reykjavík á
þeim tíma þá afréðu þau að byggja
yfir fjölskylduna á lóð sem þau
fengu úthlutað við Fögrubrekku, í
landi Digraness í Kópavogi. Árið
1960 fluttu þau svo inn í hálfkarað
húsið sem síðan var fullklárað á
næstu árum. Garðinn gerðu þau svo
smám saman að sannkölluðum un-
aðsreit.
Í Fögrubrekku fékk Hrólfur loks
vinnuaðstöðu við hæfi og verkin
létu ekki á sér standa. Árið 1962
hélt hann einkasýningu í Bogasal
Þjóðminjasafnsins og þrátt fyrir að
þrjátíu ár hafi liðið þar til hann hélt
sína næstu einkasýningu þá tók
hann þátt í fjölda samsýninga með
góðum árangri. Hann hélt alla tíð
tryggð við landslagsmálverkið en til
þess þurfti sterk bein uppúr 1950
þegar ungir málarar sneru sér
flestir að afstraktmálverkinu. Hann
mótaði sinn eigin stíl og var eins og
hann orðaði það sjálfur, ófeiminn
við að breyta fjalli eða hreinlega
sleppa því. Myndir hans, auðugar
að litum, eru eru jafnan marg-
slungnar og vitna um djúpa tilfinn-
ingu til íslenskrar náttúru. Enda
þótt hann kysi að fara hljótt og
hugnaðist ekki framapot þá kynntu
málverk hans sig með tímanum
sjálf og fyrir þolinmæði sína átti
hann síðar eftir að uppskera ríku-
lega. Sífellt fleiri fóru að veita verk-
um hins hægláta listamanns at-
hygli. Nú er verk hans víða að
finna, bæði í einkaeign og á op-
inberum stöðum.
Tengdafaðir minn verður seint
talinn til afkastamestu listmálara.
Kemur þar tvennt til. Hann var af-
ar vandfýsinn og ekkert verk lét
hann frá sér nema að vera viss um
að allt væri í fullkomnu lagi. Einnig
drógu veikindi sem hrjáðu hann frá
unga aldri mjög úr afköstum, eink-
um þó er þau tóku að ágerast með
aldrinum. Hin síðari ár var svo
komið að hann hélt að mestu til
heima í Fögrubrekku, las mikið eins
og jafnan áður og naut tíðra heim-
sókna sinna nánustu og fjölmargra
vina.
Minningin lifir um sögufróðan
skagfirskan listamann. Ég kveð þig
með söknuði, minn kæri.
Ívar Gissurarson.
Það var í kringum 1950, trúlega
um vor, að við vorum þrír upprenn-
andi málarar og ungir menn, ný-
komnir úr námi frá Kaupmanna-
höfn staddir á Þingvöllum með tvö
tjöld, þ.e.a.s. ég var kominn á und-
an þeim og hafði tjaldað norður á
völlunum. Þeir læddust aftan að
mér þar sem ég stóð við trönurnar
og öskruðu „Málari, ertu að mála?“
Ég hrökk auðvitað í kút og það var
hlegið mikið.
Blessaður taktu niður tjaldið og
komdu til okkar upp í Hestagjá.
Jón Brúsi, (þ.e.a.s. Jón frá Brúsa-
stöðum) hótelstjóri á Valhöll, hefur
fylgst með þér og bað okkur að
sækja þig. Hann segist allt vilja
gera fyrir málara og að þeir megi
tjalda hvar sem er á Þingvöllum og
gætu komið í Valhöll og keypt
mjólk og brauð og annað sem kynni
að vanta. Hestagjá var afgirt flöt
milli tveggja kletta út frá Al-
mannagjá, grasi gróin og hlaðið fyr-
ir með grjóti og hlið á. Eflaust verið
notuð fyrir hross frá í fornöld. Stað-
sett í gjábakkanum suðvestur af
Valhöll. Þeir höfðu fimm manna
tjald með himni sem Pétur átti,
Pétur Friðrik, sem var einn af okk-
ur, ég með 2–3 manna tjald, sem
var notað sem skemma undir blaut
málverk.
Það kom fljótt í ljós að ólíkur var
afrakstur daganna hjá okkur. Pétur
kom heim með eina til tvær full-
unnar myndir allstórar á hverju
kvöldi, ég með einhverja vitleysu á
lérefti en Hrólfur með nokkuð stóra
mynd sem hann fór með út oftar og
vann við, mest klettaveggi. Hún var
öll í brúnum tón, miðað við að við
Pétur máluðum þá liti sem allir sjá í
íslensku landslagi. Hrólfur gaf þá
skýringu að þetta væri allt í þessum
lit sem hann kallaði „sepía“ og væri
HRÓLFUR
SIGURÐSSON
✝ Guðbjörg Jóns-dóttir fæddist í
Hólkoti í Unadal í
Skagafirði 25. nóv.
1922. Hún lést á
Sjúkrahúsinu á Húsa-
vík 12. september
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Jón
Tómasson, f. 25. okt.
1895, d. 19. okt. 1960,
og Guðfinna Stein-
unn Guðmundsdóttir,
f. 29. sept. 1891, d. 13.
júlí 1973. Þau eignuð-
ust fimm börn og var
Guðbjörg elst þeirra
þriggja systkina sem komust á full-
orðinsár. Bræður hennar eru Tóm-
as, f. 5. febr. 1925, d. 10. mars 1988,
ókvæntur og barnlaus, og Guð-
mundur Þorsteinn, f. 13. júlí 1930,
kvæntur Aðalbjörgu Rósu Jóns-
dóttur, f. 25. jan. 1940. Þau eiga
þrjú börn, Kristínu Jónu, f. 24. nóv.
1960, gift Gunnari Ævari Jónssyni,
f. 7. sept. 1960, og eiga þau fjögur
börn, Guðmund Þorstein, f. 1980,
Júlíu Guðrúnu, f. 1985, Kristján
Ævar, f. 1989, og Jóhann Steinar, f.
1989. Sigrún María, f. 10. júlí 1962,
gift Kristjáni Tryggvasyni, f. 14.
Kristján Jón, f. 14. apr. 1971, og
Magnús Tómas, f. 4. júlí 1976, í
sambúð með Margréti Berglindi
Einarsdóttur, f. 18. feb. 1976. El-
ínborg, f. 3. júlí 1948, gift Páli Jón-
assyni, f. 21. nóv. 1947, og eiga þau
einn son, Jónas Helga, f. 28. ágúst
1973, í sambúð í Noregi með Janne
Strommen og eiga þau tvö börn,
Karinu Elínborgu, f. 10. júní 1998,
og Pal Andre, f. 16. ágúst 2002. Áð-
ur átti hún Þórhall Kristjánsson, f.
20. sept. 1967, kvæntur Zeynep
Özcan, f. 1. jan. 1968, og eiga þau
tvær dætur, Selmu Nihal, f. 19.
mars 1997, og Telmu Dilay, f. 17.
janúar 2001.
Síðan var Guðbjörg í sambúð
með Svani Guðmundssyni frá
Bílduhóli, Breiðabólstaðarsókn,
Snæfellsnesi, f. 14. júlí 1927, d. 24.
júní 1982. Leiðir þeirra skildu. Syn-
ir þeirra eru: Hermundur Svans-
son, f. 24. okt. 1952, kvæntur Sig-
urborgu Rúnarsdóttur, f. 7. sept.
1967, og eiga þau þrjú börn, Her-
dísi Evu, f. 9. des. 1988, Sævar Falk,
f. 7. sept. 1990, og Elísu Rún, f. 24.
ágúst 1994. Jón Tómas Svansson, f.
13. okt. 1958, í sambúð með Öllu
Sigurbjörgu Guðnadóttur, f. 18.
sept. 1960, og eiga þau fjögur börn,
Guðbjörgu Lilju, f. 7. mars. 1986,
Guðna Þór, f. 8. jan. 1988, Sindri, f.
18. jan. 1995, og Mikael, f. 29. des.
2001.
Útför Guðbjargar var gerð frá
Húsavíkurkirkju 21. september.
sept. 1954, og eiga þau
eitt barn saman, Krist-
ján Rúnar, f. 2000, en
fyrir á Sigrún dæturn-
ar Aðalbjörgu Rósu, f.
1983, og Sunnu Krist-
ínu, f. 1985. Aðalbjörg
Rósa á dótturina Sig-
rúnu Maríu, f. 2001,
með sambýlismanni
sínum Engilbert Ingv-
arssyni, f. 1981. Tómas
Finnur, f. 30. maí 1966,
í sambúð með Bjarn-
heiði Hallsdóttur, f. 11.
maí 1967, og á hún
synina Jökul Bjarna-
son, f. 1991, og Hall Bjarnason, f.
1999. Guðbjörg eignaðist fimm
börn. Hún giftist Yngva í Brekku,
Aðaldal, f. 16. mars 1920, d. 2. maí.
1998. Þau skildu. Hún eignaðist
með honum þrjár dætur, Margréti
Ingu, f. 16. apríl 1944, d. 11. des.
1944, Steinunni, f. 1. nóv. 1945, gift
Kristjáni Gísla Kristjánssyni, f. 13.
júní 1941, og eiga þau þrjú börn,
Kristbjörgu Steinunni, f. 11. okt.
1963, gift Bjarna Ragnarssyni, f.
11. jan. 1954, og eiga þau tvo syni,
Gísla Ragnar, f. 23. feb. 1987, og
Sverri Tómas, f. 16. sept. 1991.
Ég kynntist Guðbjörgu, tengda-
móður minni, árið 1986, eða fyrir
tæpum 16 árum þegar ég og Her-
mundur eiginmaður minn vorum hjá
henni um jólin. Ég sá strax að hún
var stórfengleg kona. Hún vann all-
an daginn, hugsaði um blómin og
rósirnar í garðinum eldsnemma á
hverjum degi, eldaði góðan mat og
bakaði kökur eða var með handa-
vinnu eða tók bók í hönd. Árið 1988
fluttum við norður á Húsavík og bjó
hún hjá okkur í nokkur ár, áður en
hún flutti í Hvamm í febrúar 1994.
Hún kenndi mér margt, t.d. að búa
til sultu og kæfu, búa til slátur, gera
hamsa og tólg, að baka kleinur og
laufabrauð og nöfn á blómum og
jurtum. Guðbjörg var mjög ánægð
að hafa okkur á Húsavík, hin börnin
hennar bjuggu öll annars staðar á
landinu. Ekki minnkaði gleðin þegar
börnin okkar Hemma komu í heim-
inn, Herdís Eva er elst, síðan Sævar
Falk og síðan Elísa Rún en þá var
Guðbjörg nýflutt í Hvamm. Alla tíð
voru þau mjög hænd að ömmu sinni,
hún hafði alltaf tíma fyrir þau, hún
las fyrir þau, hlustaði á þau, söng
með þeim, kenndi þeim að prjóna og
sauma út. Alltaf hafði hún tíma og
gaman af að passa ömmubörnin sín,
þau færðu henni mikla gleði. Eftir að
hún flutti í Hvamm heimsóttu þau
hana mikið og var hún líka dugleg að
koma í heimsókn. Guðbjörg missti
mikið þegar við fluttum suður í Hafn-
arfjörð 1999, þá jókst samband henn-
ar við Stínu frænku hennar á Akur-
eyri og var Guðbjörg dugleg að koma
með henni suður að heimsækja okk-
ur. Við reyndum líka að heimsækja
hana eins oft og við gátum á Húsavík.
Í mars 2002 greindist Guðbjörg
með krabbamein og fór strax í mikla
aðgerð. Mánuði seinna kom hún svo
suður með Stínu frænku sinni til að
vera við fermingu Herdísar Evu.
Hún ætlaði ekki að missa af því. Hún
var mikil kraftakona, hún Guðbjörg.
Í júlí fór hún í þriggja daga rútuferð
um landið. Um miðjan ágúst veiktist
hún svo og hlaut hún líknarumönnun
þar til yfir lauk. Og vil ég færa starfs-
fólkinu í Hvammi og sjúkrahúsinu
sem annaðist hana kærar þakkir fyr-
ir góða umönnun. Fyrir hönd okkar
hjóna vil ég færa þakkir til Stínu,
bróðurdóttur Guðbjargar á Akur-
eyri, fyrir sérstaka umhyggju hennar
og góðan vinskap þeirra frænkna.
Elsku Guðbjörg mín, þín verður
sárt saknað, en ég veit að nú líður þér
vel.
Blessuð sé minning þín.
Sigurborg.
Elsku amma. Þú varst okkur svo
kær, þú kenndir okkur svo mikið. Það
var gaman að hlusta á þig tala um
gamla daga þegar þú varst barn að
vinna sveitaverkin með pabba þínum.
Þú hafðir svo gaman af að syngja með
okkur, þú varst svo mikill vinur okk-
ar. Við elskum þig svo mikið.
Það verður erfitt að venjast því að
eiga nú enga ömmu á Húsavík. Við
söknum þín svo mikið, elsku amma,
en við vitum að nú líður þér vel. Guð
blessi þig, elsku amma.
Herdís Eva, Sævar Falk
og Elísa Rún.
GUÐBJÖRG
JÓNSDÓTTIR