Morgunblaðið - 25.09.2002, Blaðsíða 36
HESTAR
36 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMMISTAÐA stóðhestanna er
metin á ýmsa vegu. Þeir fara í ein-
staklingsdóm og fá sinn afkvæma-
dóm. En það sem skiptir ekki
minnstu máli er hvernig þeim geng-
ur að búa til afkvæmin. Og nú er sú
stund komin að fyrir liggi niðurstöð-
ur um hvernig þeim hefur tekist til
við tímgunina.
Orri með
flestar fyljaðar
Fer þar best á að byrja á kóng-
inum Orra frá Þúfu en hann hafði í
gær afgreitt um 63 hryssur með fyli.
Í gær reyndust 14 hryssur fyllausar
að lokinni ómskoðun. Það virðist því
allt stefna í að hann nái að skila eitt-
hvað í kringum 70 fyljuðum hryss-
um. Nú eru 10 hryssur án folalda
hjá Orra og þykir það nokkrum tíð-
indum sæta því svo virðist sem hann
hafi sniðgengið þessar folaldslausu
þetta árið meira en hinar. Almennt
hefur verið talið að folaldslausar
hryssur eigi betra aðgengi að stóð-
hestunum en Brynjar Vilmundarson
á Feti sagði skýringuna þá að þess-
ar hryssur hefðu hangið utan í
klárnum og hann væri orðinn leiður
á þeim og sinnti þeim ekki fyrir
bragðið. Taldi Brynjar ekki ástæðu
til að hafa áhyggjur með útkomuna
hjá klárnum, þetta yrði í góðu lagi.
„Ég hafði áhyggjur í sumar en nú sé
ég að þetta verður í góðu lagi eins
og venjulega,“ bætti hann við glaður
í bragði.
Töfri með tuttugu
og þrjár fyljaðar
Þeir eru sjálfsagt margir sem
bíða spenntir eftir að sjá hvernig ár-
ið verður hjá Töfra frá Kjartans-
stöðum en það hefur gengið á ýmsu
hjá honum gegnum tíðina. Síðasta
ár var með því besta hjá klárnum
hvað fyljun viðkemur og vel leit út
framan af sumri í ár en eftir lands-
mót brá til hins verra og hefur hald-
ið mun lakar við honum. Taldi Þor-
valdur Sveinsson á Kjartansstöðum,
einn eigenda hestsins, að sér virtist
hann þó heldur vera að rétta úr
kútnum síðustu vikurnar. „Annars
get ég ekki kvartað því allar hryss-
urnar sem ég fór með til hans
reyndust fyljaðar,“ sagði Þorvaldur.
Ellert Þór Benediktsson dýra-
læknir sagði að svo virtist sem hann
hefði fyljað aðeins fyrstu dagana
eftir landsmót en síðan hefði hann
alveg dottið út fram yfir miðjan
ágúst en þá byrjað aftur að fylja.
Alls hefur hann fyljað 23 hryssur í
ár.
Athyglisvert hjá ungu
LM hestunum
Ýmsir ungir hestar hafa verið að
standa sig vel ekki bara í dómi held-
ur og einnig í sínu aðalstarfi. Þar
má nefna tvo fjögra vetra Orrasyni.
Annar er Gári frá Auðsholtshjáleigu
sem var með 27 hryssur að loknu
landsmóti en tvær þeirra reyndust
fyllausar. Hinn hesturinn, Þristur
frá Feti, hefur fyljað 56 hryssur en
alls hafa 60 hryssur verið leiddar
undir hann. Að sögn eigandans
Brynjars á Feti voru 20 hryssur hjá
honum fyrir landsmót í 15 daga og
reyndust 17 af þeim vera fyljaðar.
Af þessum fjórum hryssum sem
ekki hafa fengið fyl hjá Þristi eru
tvær þeirra búnar að vera hjá hon-
um í allt sumar og taldi Brynjar víst
að eitthvað bjátaði á hjá þeim. Þessi
frammistaða Þrists þykir með ólík-
indum, að skila 93,3% fyljun af þess-
um fjölda aðeins fjögra vetra gamall
og skila jafnframt erfiðu verkefni á
landsmóti þar sem hann kom fram í
einstaklingsdóm auk ræktunarhóps-
sýningu. Ef slíkur hestur reynist
sterkur í erfðum er hér á ferðinni
afar athyglisverður kynbótahestur.
Annar Orrasonur frá Feti, Lúðvik,
sem einnig er fjögra vetra, skilaði
33 fyljuðum hryssum af 36.
Landsmótsstjarnan Aron frá
Strandarhöfða hefur komið þokka-
lega út, er með 60 til 70% fyljun og
sigurvegari fjögra vetra hestanna
Illingur frá Tóftum með afbragðsút-
komu eða yfir 90% af 39 hryssum.
Töfri frá Selfossi skilaði einnig
góðu, er með í kringum 90% fyljað
en alls komu til hans 38 hryssur.
Logi frá Skarði var með átján
hryssur í sumar og reyndust allar
með fyli utan ein. Þá er að nefna
sambandshestana Núma og And-
vara en sá fyrrnefndi skilaði að sögn
Páls Stefánssonar góðu fyrra gang-
máli á Suðurlandi en sá síðarnefndi
var mun lakari eða rétt yfir 50%.
Landsmótssigurvegarinn Keilir
frá Miðsitju skilar ekki eins góðu og
í fyrra, er nú í kringum 50 til 60%
og ekki útséð hver lokaniðurstaðan
verður hjá honum því ennþá eru
hryssur hjá honum. Og að síðustu
má geta þess að Piltur frá Sperðli
var með 45 hryssur og reyndust 33
vera með fyli sem gefur 73%.
Hryssur eru víða hjá hestum
ennþá eins og hér kemur fram og
því ljóst að sumir hestanna eiga
hugsanlega eftir að bæta stöðu sína
eitthvað.
Ekki eru fyrirliggjandi neinar
heildarupplýsingar eða samantekt
um útkomu stóðhesta yfir árið en
vissulega væri áhugavert að fá ein-
hverja slíka úttekt sem væri fróðleg
til samanburðar ár frá ári. Er það
athugandi fyrir hagsmunaaðila að
gangast fyrir því að gerð verði slík
samantekt. Allar upplýsingar er
varða frjósemi hrossa eru mikil-
vægar því ljóst er að afar margir
þættir virðast geta haft áhrif á frjó-
semina.
Frjósemin í góðu lagi hjá
mörgum betri hestanna
Morgunblaðið/Vakri
Frammistaða Þrists frá Feti á landsmótinu þótti góð en enn meiri athygli vekur frammistaða hans við hryss-
urnar í sumar þar sem hann skilar tæpum sex tugum hryssna fyljuðum. Knapi er Erlingur Erlingsson.
ÞRÍR stjórnarmenn Landsambands
hestamannafélaga hyggjast ekki gefa
kost á sér til endurkjörs á ársþingi
samtakanna sem haldið verður í Fé-
lagsheimili Fáks 8. og 9. nóvember
nk. Formaður LH, Jón Albert Sig-
urbjörnsson, hyggst hinsvegar gefa
kost á sér til áframhaldandi setu í
sæti formanns en hann hugleiddi al-
varlega fyrir ári að hætta en snerist
hugur þegar leið að þingi.
Þeir sem hyggjast hætta eru
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Gusti,
Páll Dagbjartsson, Stíganda, og Sig-
urður Ragnarsson, Faxa. Sigfús Ó.
Helgason, Létti, hugleiddi einnig að
gefa ekki kost á sér en hefur nú tekið
ákvörðun um að halda áfram. Sagði
hann ótækt að of mikil endurnýjun
yrði í stjórn samtakanna í einum
kosningum og því væri hann tilbúinn
að taka slaginn í tvö ár í viðbót fái
hann brautargengi til þess.
Jón Albert formaður sagðist ekki
enn vera orðinn úrbræddur og því
sjálfsagt að takast á við þau skemmti-
legu verkefni sem framundan væru á
vettvangi LH, það er að segja ef þing-
heimur kysi svo. Jón Albert sagði að
nú yrði kosið um allar stöður stjórnar
vegna fækkunar þinga. Eins og kunn-
ugt er verða þingin framvegis haldin
annað hvert ár og því kosið um allar
stöður stjórnar til tveggja ára á
hverju þingi. Með þessu fyrirkomu-
lagi verður því mögulegt að sú staða
gæti komið upp að skipt yrði um alla
stjórnarmenn en slíkt var útilokað
með gamla fyrirkomulaginu.
Þingfundir verða haldnir í félags-
heimili Fáks en nefndarstörf verða í
Reiðhöllinni í Víðidal að sögn Snorra
B. Ingasonar, formanns Fáks, og
verður matar- og kaffisala einnig þar
til húsa. Mun þetta að líkindum í
fyrsta skipti í sögu LH sem aðildar-
félag þess heldur ársþing alfarið í eig-
in húsnæði. Fjörutíu og sex aðildar-
félög samtakanna hafa rétt á að
senda 129 fulltrúa á þingið að þessu
sinni. Lokafrestur til að skila inn til-
lögum fyrir þingið er 11. október og
skal skila þeim til skrifstofu LH að
venju.
Eins áður hefur fram komið er
Hestamannafélagið Fákur 80 ára á
þessu ári og hefur verið ákveðið að slá
saman afmælisfagnaði félagsins og
uppskeruhátíð hestamanna sem hef-
ur verið haldin um miðjan nóvember
ár hvert. Verður hún haldin á Broad-
way laugardagskvöldið 9. nóvember.
Þrír hætta
í stjórn LH
ALLAR hryssur þær er Hólaskóli
bauð til kaups nýverið, fjórar að
tölu, eru seldar en ekki barst til-
boð við hæfi í stóðhestinn Þorvar
frá Hólum.
Hryssurnar sem hér um ræðir
eru Þota frá Hólum sem er undan
Þrá frá Hólum og Kolfinni frá
Kjarnholtum. Söluverð hennar var
2,6 milljónir króna. Þota hefur
hlotið 8,15 í aðaleinkunn.
Frægð frá Hólum sem er undan
Jó frá Kjartansstöðum og Þilju frá
Hólum seldist á 1250 þúsund krón-
ur fyrir utan vask. Hún hefur hlot-
ið í einkunn 8,19. Leiftra frá Hól-
um sem er undan Kveik frá
Miðsitju og Lýsu frá Kolkuósi
seldist á 900 þúsund krónur en
hún hefur hlotið einkunn um 8,00.
Að síðustu er að nefna Þokkadís
frá Hólum sem er ósýnd undan
Þrá frá Hólum og Fána frá Haf-
steinsstöðum. Hún fór á 400 þús-
und krónur.
Víkingur Gunnarsson, deildar-
stjóri hrossabrautar, sagði að
Þorvar væri áfram til sölu og sagði
þreifingar enn í gangi svo ekki
væri útséð um það hvort tækist að
selja hann. Þorvar er undan Þrá
frá Hólum og Orra frá Þúfu.
Söluverð hrossanna verður látið
renna til fjármögnunar reiðhallar-
innar sem verið er að byggja á
Hólum og sagði Víkingur að hún
yrði tekin í notkun í fyrri hluta
október. Það er byggingarfélag í
eigu Kaupfélags Skagfirðinga sem
stendur að byggingu hallarinnar
en Hólaskóli mun leigja hana með
kauprétti.
Þá upplýsti Víkingur að góð að-
sókn væri að skólanum og hefði
orðið að vísa umsækjendum frá.
Alls eru 46 nemendur í hrossanámi
sem skiptist þannig að 17 eru á
fyrsta og öðru ári en 12 nemendur
á þriðja ári. Þá eru 16 nemendur á
fiskeldisbraut og 8 nemendur á
ferðamálabraut á Hólum en 20 í
fjarnámi.
Hólaskóli í hrossasölu og framkvæmdum
Fjórar hryssur
seldar til fjármögn-
unar á reiðhöll
FRÉTTIR
FIMMTUDAGINN 26. september
gengst Alþýðusamband Íslands fyrir
ráðstefnu undir yfirskriftinni Evr-
ópusamvinnan og hagsmunir launa-
fólks á Grand Hóteli. Ráðstefnan
stendur frá kl. 13 til 16.30.
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð-
herra, fjallar um Ísland og Evrópu-
samvinnuna. Dr. Gerhard Sabathil,
sendiherra ESB fyrir Ísland og Nor-
eg, ræðir um framtíð Evrópusam-
vinnunnar og Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, fjallar um
Evrópusamvinnuna og atvinnumálin.
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður
greiningardeildar Búnaðarbankans,
ræðir um Evruna og íslenskt atvinnu-
líf og Halldór Grönvold, aðstoðar-
framkvæmdastjóri ASÍ, fjallar um fé-
lagsmálin og íslenskt launafólk.
Martin Eyjólfsson, sendiráðunautur í
utanríkisráðuneytinu, og Árni Páll
Árnason ræða stöðu og framtíð EES-
samningsins.
Í lok ráðstefnunnar er samantekt í
umsjá Gylfa Arnbjörnssonar, fram-
kvæmdastjóra ASÍ. Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, setur ráðstefn-
una. Ráðstefnustjóri er Elín Hirst.
Ráðstefnan, sem er öllum opin, er
liður í undirbúningi Alþýðusam-
bandsins fyrir ársfund sinn, sem hald-
inn verður um mánaðamótin október/
nóvember.
Ráðstefna um
Evrópusam-
vinnu og hags-
muni launafólks
JAPÖNSK stjórnvöld hafa boðið
rektor Háskóla Íslands í ferð til Jap-
ans frá 30. september til 10. október.
Markmiðið er að gefa fulltrúa úr ís-
lensku menntalífi kost á að kynnast
japanskri menningu, hefðum og
þjóðfélagi af eigin raun.
Á ferð sinni mun Páll Skúlason
rektor heimsækja japanska háskóla
og staði sem búa yfir menningar- og
sögulegu gildi og um leið hitta að
máli fjölda fólks sem þessu tengist.
Hann mun heimsækja höfuðborgina
Tókýó en auk þess ferðast til hinnar
fornu borgar Nara og hinnar sögu-
frægu borgar Kyotó.
Rektor Háskóla
Íslands boðið
til Japans
Í VIKUNNI kemur til landsins dr.
Joseph Gleeson aðstoðarprófessor við
heila- og taugadeild University of Ca-
lifornia í San Diego í Bandaríkjunum.
Hann vinnur með teymi sérfræðinga
um allan heim, sem sérhæfa sig í
rannsóknum á sjaldgæfum heilagöll-
um.
Fyrir rúmu ári fór einstæð móðir
tveggja drengja á fjölskylduráðstefnu
í Bandaríkjunum hjá erlendu félagi
foreldra barna með sjaldgæfa heil-
agalla. Yngri sonur hennar er með
sjaldgæfan heilagalla sem veldur al-
varlegri fötlun og veikindum. Á fjöl-
skylduráðstefnunni fékk hún viðtal
við þrjá sérfræðinga í heila- og tauga-
sjúkdómum. Þeir sýndu allir mikinn
áhuga á að koma til Íslands og skoða
ógreind börn sem talið er að séu með
sjaldgæfa heila- og/eða taugasjúk-
dóma. Einn þeirra var dr. Joseph
Gleeson sem kemur til landsins í
næstu viku einmitt í þessum tilgangi.
Þeir sem standa að komu hans eru ís-
lenskir sérfræðingar í heila- og tauga-
sjúkdómum barna, Íslensk erfða-
greining og Einstök börn, félag til
stuðnings börnum með sjaldgæfa al-
varlega sjúkdóma.
Dr. Gleeson mun halda fyrirlestur
fimmtudagskvöldið 26. september
fyrir foreldra barna með heila- og/eða
taugasjúkdóma. Efni fyrirlestrarins
er heila- og taugasjúkdómar almennt
en svo svarar hann fyrirspurnum for-
eldra eftir fyrirlesturinn. Fyrirlestur-
inn er haldinn kl. 20 í Háskólanum í
Reykjavík, í stofu 101 á fyrstu hæð.
Fyrirlestur
um tauga-
sjúkdóma