Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ STARFSHÓPUR Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í húsnæðismálum telur að staða hinna tekjulægri á húsnæð- ismarkaði, hvort heldur um er að ræða ungt fólk eða gamalt, fatlaða eða ófatlaða, sé með þeim hætti að hún krefjist brýnna aðgerða. „Núver- andi kerfi í húsnæðismálum hentar ekki ákveðnum hópum, þ.e. þeim tekjulægstu,“ segir Þorbjörn Guð- mundsson, formaður velferðarnefnd- ar ASÍ. „Það er því ljóst að það þarf að finna aðrar lausnir handa þeim.“ Umfjöllun starfshópsins um hús- næðismál og tillögur til úrbóta í þeim málaflokki koma fram skýrslu ASÍ um velferðarmál. Í skýrslunni eru einnig kynntar tillögur starfshópa um fátækt, tryggingamál og heilbrigðis- mál. Ein helsta niðurstaða starfshóps- ins um húsnæðismál er að þær breyt- ingar sem gerðar voru á húsnæðis- lögum árið 1998 hafi ekki nýst tekjulægstu hópunum. Af þeim sök- um miðast tillögur starfshópsins að því að bæta stöðu þeirra hópa, m.a. með því að lækka húsaleigu á fé- lagslega leigumarkaðnum, fjölga íbúðum á þeim markaði og auka rétt- aröryggi leigjenda. Þar þurfi hið op- inbera að koma til sögunnar. „Til að tryggja nýsköpun og endurnýjun húsnæðiskerfisins, sérstaklega hvað varðar hinn félagslega húsaleigu- markað, þarf að treysta hlutverk og ábyrgð hins opinbera á húsnæðismál- um þeirra sem þurfa aðstoð til þess að njóta þess félagslega öryggis sem örugg og mannsæmandi búsetuúr- ræði eru,“ segir hópurinn m.a. í skýrslu ASÍ. Tillögurnar miðast m.ö.o. að því að gera tekjulægsta hópnum kleift að komast í ódýrara leiguhúsnæði en gengur og gerist á hinum almenna markaði. Gallar á húsnæðiskerfinu Samþykkt núgildandi laga um hús- næðismál árið 1998 fól m.a. í sér að hið félagslega eignaríbúðakerfi, í þeirri mynd sem það var, var lagt nið- ur. Með lögunum var til að mynda tekin sú ákvörðun að hætta niður- greiðslu vaxta til kaupa og byggingar á félagslegu eignar- og leiguhúsnæði til tekjulágra og sérhópa. „Á móti þessum breytingum skyldi unnið með veitingu viðbótarlána til kaupa á eign- aríbúðum og eflingu vaxtabóta- og húsaleigubótakerfisins,“ segir í vel- ferðarskýrslu ASÍ, þar sem farið er yfir nýju lögin og afleiðingar þeirra. Í sömu skýrslu kemur fram að ýmsir gallar hafi verið á hinu fé- lagslega eignaríbúðarkerfi en á það bent að ASÍ hafi þó lagst gegn því að kerfið yrði lagt niður vegna þess að ný og nægjanleg úrræði hafi ekki komið í staðinn. Um afleiðingar þess að kerfið var lagt niður segir starfs- hópurinn: „Hundruðum fjölskyldna sem áður fengu úrlausn í félagslega eignaríbúðakerfinu […] var vísað á almennan og vanþroskaðan leigu- markað eða á almennan húsnæðis- markað með fyrirheitum um fyrir- greiðslu í húsbréfa- og vaxtabótakerfinu.“ Fasteignaverð hækkaði Starfshópurinn ítrekar að engin til- raun hafi verið gerð til þess að meta eða milda áhrif lagabreytinganna. Hann tekur þó fram að hann telji að ekki sé ástæða til þess að taka kerfið óbreytt upp að nýju. Starfshópurinn bendir á að fyrir setningu umræddra húsnæðislaga hafi ríkisstjórnin og Alþingi m.a. stór- lega dregið úr framlögum til bygg- ingar á nýju félagslegu-, eignar- og leiguhúsnæði. Af þeim ástæðum sem og þeim að tekin voru upp viðbótarlán í í kjölfar laganna, þ.e. 90% húsnæð- islán, hafi kaupendum fjölgað á al- mennum húsnæðismarkaði. Það hafi „sprengt upp bæði fasteignaverð og húsbréfavexti“. Er á það bent að fast- eignaverð hafi hækkað þrefalt á síð- ustu sex árum miðað við almennt verðlag, eða um 63% á móti 21% hækkun almenns verðlags. „Á síðustu 12 mánuðum hefur húsnæðisliður vísitölu neysluverðs hækkað um 7,1% á sama tíma og annað verðlag hefur hækkað um 0,3%,“ segir í skýrslu ASÍ. Þá segir að biðlistar eftir leiguhús- næði hafi vaxið á sama tíma og að hækkun vaxta af lánum til byggingar félagslegra leiguíbúða hafi orsakað stórfellda hækkun á húsaleigu. Því hafi á hinn bóginn ekki verið mætt með fullnægjandi hækkun húsaleigu- bóta. Ekki forgangsverkefni Til að meta heildarþörf fyrir fé- lagslegt húsnæði hér á landi taldi starfshópurinn nauðsynlegt að afla upplýsinga um fjölda umsækjenda á biðlistum eftir slíku húsnæði hjá nokkrum samtökum, s.s. Öryrkja- bandalagi Íslands, sem og hjá stærstu sveitarfélögunum, þ.e. hjá Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Ísafjarðarbæ, Akureyri, Austur-Hér- aði og Vestmannaeyjum. Athugunin leiddi í ljós að a.m.k. 2.761 var á bið- lista eftir einhvers konar félagslegu húsnæði í lok síðasta árs. Þar af voru 1.681 á biðlista eftir félagslegu hús- næði og 1.064 á biðlista eftir að kom- ast í sambýli, þjónustuíbúðir eða hjúkrunarrými. Starfshópurinn fór í vinnu sinni einnig yfir almenna húsnæðislána- kerfið, þ.e. húsbréfakerfið, sem og al- menna leiguíbúðakerfið. „Staðan á hinum almenna eignar- og leigu- markaði er ekki forgangsverkefni í húsnæðismálum,“ segir starfshópur- inn. „Þær lausnir sem þar hafa verið fundnar þjóna allflestum og krefjast ekki brýnna og tafarlaustra úrbóta.“ Hópurinn bendir hins vegar á, eins og áður sagði, að staða hinna tekjulægri á húsnæðismarkaði geri kröfu til þess að gripið verði til aðgerða. „Til þess að leysa úr þeim bráða vanda sem við er að glíma er ljóst að bæta verður úr á skömmum tíma.“ Hópurinn tekur þó fram að staða „hinna tekjulægri“ sé mismunandi. Þar séu til að mynda sjúkir og aldr- aðir sem þarfnist mikillar umönnun- ar. Húsnæðisúrræði fyrir þá hvíli hins vegar á herðum heilbrigðisyfir- valda. Þeim sem eftir standi megi síð- an skipta gróflega í tvo hópa. Í öðrum hópnum séu einna helst þeir sem eru fatlaðir, þ.e. þeir sem hafa ekki verið og verði líklega ekki á vinnumarkaði. Og í hinum hópnum séu þeir sem eru á vinnumarkaði. Báðir þessir hópar séu efnalitlir en seinni hópurinn hafi það þó fram yfir hinn fyrri að aðstæð- ur hans geta verið breytilegar, þ.e. aðstæður hans gætu versnað en þær gætu líka breyst til hins betra. Tekur starfshópurinn fram að þessir tveir hópar þurfi því ólík úrræði. Starfshópurinn leggur fram nokkr- ar tillögur til að koma til móts við þarfir tekjulægstu hópanna. Það verði gert með auknum framlögum ríkisins, annaðhvort í formi niður- greiðslna á vöxtum eða í formi stofn- styrkja. Hefur ASÍ reiknað það út að alls myndu úrbæturnar, sem starfs- hópurinn leggur til, kosta ríkissjóð um 1,6 milljarða kr. Biðlistum verði eytt Hópurinn leggur áherslu á, áður en hann fer yfir tillögur sínar, að engin einföld lausn sé til. En þau úrræði sem skapa þurfi þurfi þó fyrst og fremst að skapa íbúum félagslegt ör- yggi, vera sniðin að ólíkri framfærslu- getu, vera sveigjanleg, loka ekki íbúa í gildru fátæktar og síðast en ekki síst vera skipulagslega og félagslega samþætt hinum almenna húsnæðis- markaði. Í tillögum sínum fer hópurinn fyrst yfir aðgerðir til að lækka húsaleigu í félagslega leiguhúsnæðiskerfinu. Þar leggur starfshópurinn m.a. til að sam- hliða auknum framlögum ríkisins í formi vaxtaniðurgreiðslna og/eða stofnstyrkja, til byggingar á sér- hæfðu húsnæði, auki sveitarfélögin niðurgreiðslur sínar með því m.a. að nýta ekki til fulls hámarksgreiðslur um útreikning leigu. Starfshópurinn leggur því næst til aðgerðir til að fjölga íbúðum í fé- lagslega leiguíbúðakerfinu. Þar legg- ur hann fyrst og fremst áherslu á að sett verði það markmið að eyða bið- listum eftir félagslegu leiguhúsnæði á þremur árum. Ennfremur leggur hópurinn til að „óafturkræfir stofn- styrkir“, þ.e. föst og óafturkræf fram- lög, sem greiddir verði út í einu lagi, verði veittir til byggingar á fé- lagslegu leiguhúsnæði fyrir fatlaða og aðra þá sérstöku hópa sem lítt eða ekki eru virkir á vinnumarkaði. Þá leggur hópurinn til að opinber- um framkvæmdaaðilum eða einkaað- ilum verði veitt „skilyrt lán“ úr rík- issjóði á niðurgreiddum lágum og föstum vöxtum og/eða stofnstyrkir til byggingar á félagslegu leiguhúsnæði fyrir aðra tekjulága hópa. Og að lokum leggur hópurinn til, svo fjölga megi íbúðum, að rekstrar- umhverfi fyrirtækja, sem hyggjast eiga og reka almennt leiguhúsnæði, verði bætt, m.a. með breyttum fyrn- ingarreglum. Að lokum leggur starfshópurinn til úrræði til að auka réttaröryggi leigj- enda. Þar leggur hann m.a. til að regl- ur um útreikninga hámarksleigu verði gagnsæjar og einfaldar. Einnig leggur hópurinn til að endurskoðun leigu til hækkunar, vegna breyttrar fjárhagslegrar og/eða félagslegrar stöðu leigjenda, fari ekki oftar fram en á þriggja til fimm ára fresti. Með þessu yrði leigjandanum tryggt hús- næðisöryggi til langs tíma en jafn- framt yrði komið í veg fyrir að við- komandi byggi í niðurgreiddu leiguhúsnæði til lengri tíma ef að- stæður hans hefðu breyst til batnað- ar. Tillögur starfshóps Alþýðusambands Íslands um úrbætur í húsnæðismálum Núverandi kerfi hentar illa þeim sem eru tekjulægstir Alþýðusamband Íslands hefur kynnt nýjar tillögur í velferð- armálum. Hér rýnir Arna Schram í tillögur ASÍ um húsnæðismál. STARFSHÓPUR Alþýðu- sambands Íslands (ASÍ) um hús- næðismál telur nauðsynlegt að farið verði í eftirfarandi aðgerð- ir til að bæta stöðuna í húsnæð- ismálum.  Til lækkunar húsaleigu: Sam- hliða auknum framlögum rík- isins í formi vaxtaniðurgreiðslu og/eða stofnstyrkja, auki sveit- arfélögin niðurgreiðslur sínar með því m.a. að nýta ekki til fulls hámarksreglur um út- reikning leigu t.d. hvað varðar umsýslukostnað, vexti af eigin stofnframlögum og við- haldsprósentu.  Til fjölgunar íbúða: Biðlistum eftir félagslegu leiguhúsnæði verði eytt á þremur árum.  Til fjölgunar íbúða: Óaft- urkræfir stofnstyrkir verði veittir til byggingar á fé- lagslegu leiguhúsnæði fyrir fatl- aða og aðra þá sérstöku hópa sem lítt eða ekki eru virkir á vinnumarkaði.  Til fjölgunar íbúða: Opinber- um framkvæmdaaðilum og einkaaðilum verði veitt skilyrt lán úr ríkissjóði á niðugreiddum lánum og föstum vöxtum og/eða stofnstyrkir til byggingar á fé- lagslegu leiguhúsnæði fyrir aðra tekjulága hópa.  Til fjölgunar íbúða: Til þess að stækka hinn almenna leigu- markað verði rekstrarumhverfi fyrirtækja sem hyggjast eiga og reka almennt leiguhúsnæði bætt, m.a. með breyttum fyrn- ingarreglum.  Til að auka réttaröryggi leigjenda: Bættu rekstr- arumhverfi vegna útleigu íbúð- arhúsnæðis í atvinnuskyni og niðurgreiðslu lána eða kostn- aðar fylgi gagnsæjar og einfald- ar reglur um útreikning há- marksleigu, öflugt verðlagseftirlit og bætt rétt- arstaða leigjenda.  Til að auka réttaröryggi leigjenda: Endurskoðun leigu til hækkunar, vegna breyttrar fjár- hagslegrar og/eða félagslegrar stöðu leigjenda, fari ekki oftar fram en á 3 til 5 ára fresti. Tillögur ASÍ Morgunblaðið/Ásdís Þær breytingar sem gerðar voru á húsnæðislögum árið 1998 hafa ekki nýst tekjulægstu hópunum. arna@mbl.is HÆSTIRÉTTUR staðfesti í dag 15 mánaða fangelsisdóm yfir manni sem braust inn á heimili konu og hafði samræði við hana en hún gat ekki spornað við verknaðinum sök- um svefndrunga. Dómurinn lækkaði á hinn bóginn skaðabætur úr 700.000 í 500.000 krónur. Maðurinn og konan bjuggu saman um þriggja ára skeið en þeirri sam- búð lauk árið 1987. Maðurinn var ákærður fyrir kynferðisbrot og hús- brot með því að hafa ruðst heimild- arlaust inn í íbúð konunnar og lagst ofan á hana og haft við hana samræði sem hún gat ekki spornað við sökum svefndrunga. Í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra segir að ekkert hafi komið fram sem bendi til þess að maðurinn hafi mátt búast við að vera velkominn á heimili konunnar enda hafi konan aldrei gefið í skyn að hún bæri nokkrar slíkar tilfinningar í hans garð. Var maðurinn því sak- felldur fyrir að brjóta gegn friðhelgi heimilis konunnar og kynfrelsi henn- ar. Þóttu brot hans gróf. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pétur Kr. Haf- stein. Ragnheiður Harðardóttir sak- sóknari flutti málið f.h. ákæruvalds- ins en Kristján Stefánsson hrl. var til varnar. 15 mánaða fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot SÝSLUMAÐURINN á Keflavíkur- flugvelli hefur krafist þess að gæslu- varðhald yfir bandarískum ríkis- borgara sem grunaður er um mansal verði framlengt en það átti að renna út í gær. Héraðsdómur Reykjaness mun væntanlega kveða upp úrskurð sinn í dag. Jóhann R. Benediktsson sýslu- maður segir rannsókn málsins í full- um gangi. Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manninum er m.a. fjallað um tíð ferðalög hans þrátt fyrir að hann sé skráður atvinnulaus auk þess sem hann hafði 600.000 krónur í fórum sínum þegar hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli. Í gögnum máls- ins kemur fram að Kínverjarnir fjór- ir sem hann er talinn hafa komið ólöglega til landsins, eða fjölskyldur þeirra, hafi ætlað að greiða jafnvirði 4,7 milljóna króna fyrir flutning til Bandaríkjanna. Einn þeirra hefur borið að hann hafi átt að vinna á veit- ingastað í Bandaríkjunum fyrir far- gjaldinu. Innflytjendayfirvöld í Bandaríkjunum, þýska lögreglan og Interpol hafa aðstoðað við rannsókn- ina. Krefjast lengra gæslu- varðhalds ÍSLENSKIR aðalverktakar munu sjá um smíði á nýrri herbergjaálmu með 28 rúmum fyrir Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði samkvæmt samningi sem undirritaður var í gær. Verkinu á að ljúka 31. nóvember nk. Jafn- framt fá ÍAV byggingarétt vegna fyrirhugaðrar smíði á allt að 100 þjónustuíbúðum í litlum sérbýlum við Heilsustofnunina. Í fréttatilkynningu frá ÍAV kemur fram að íbúar húsanna eigi kost á margvíslegri þjónustu frá Heilsu- stofnuninni, þ.á m. heilsu- og örygg- isþjónustu. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir hefjist næsta haust. ÍAV munu sjá um sölu á húsunum. ÍAV fá bygg- ingarrétt fyrir 100 húsum ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.