Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 21
STRÍÐ Í ÍRAK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 21 Laugavegi 87 Sími 511 2004 www.dunogfidur.is ALÞJÓÐA kjarnorkumálastofnun- in IAEA sendi frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem yfirmaður hennar, Mohamed ElBaradei, áréttaði að það væri hennar hlutverk að ganga úr skugga um hvort kjarn- orkuvopn væri að finna í Írak, ekki Bandaríkjamanna. Yfirlýsingin var gefin út í kjölfar fregna þess efnis, að bandarísk stjórnvöld hefðu í hyggju að setja á fót eigið vopna- eftirlit. „Heimurinn hefur lært á síðustu áratugum að aðeins óhlutdrægt, alþjóðlegt eftirlit er fært um að vinna það traust sem nauðsynlegt er. Írak er engin undantekning frá þessu,“ segir í yfirlýsingunni. Áréttar eftirlits- hlutverk Vínarborg. AFP. JAMES Woolsey, fyrrverandi yfir- maður bandarísku leyniþjónustunn- ar, CIA, sagði í fyrradag, að Banda- ríkjamenn ættu nú í fjórðu heimsstyrjöldinni, sem staðið gæti í langan tíma. Á fundi með um 300 námsmönnum við Kaliforníuháskóla í Los Angeles sagði Woolsey, að kalda stríðið hefði í raun verið þriðja heimsstyrjöldin: „Ég tel, að þessi fjórða heimsstyrj- öld muni standa miklu lengur en þær fyrstu tvær en vonandi ekki í fjóra áratugi eins og kalda stríðið,“ sagði Woolsey að því er fram kemur hjá sjónvarpsstöðinni CNN. Fjölmiðlar hafa orðað Woolsey við mikilvægt embætti í Írak að stríði loknu. Woolsey sagði, að stríðið stæði í raun gegn þremur óvinum, klerka- stjórninni í Íran, „fasistunum“ í Írak og Sýrlandi og íslömskum öfgahópum eins og al-Qaeda. Hefðu þessir hópar barist við Bandaríkin árum saman en nú loks væru þau að taka við sér. „Þegar hin nýju Miðausturlönd fara að taka á sig mynd, á næstu árum og áratugum, munum við valda ótta meðal margra manna,“ sagði Woolsey og bætti við, að það væri lýðræðið, sem þeir óttuðust. Í máli sínu tók Woolsey sérstak- lega fyrir Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, og konungsfjölskyld- una í Sádi-Arabíu: „Við viljum gera ykkur tauga- óstyrka. Við viljum, að þið gerið ykk- ur grein fyrir því, að í fjórða sinn á einni öld eru Bandaríkin og banda- lagsríki þeirra lögð af stað í herför og við styðjum þá, sem þið óttist, ykkar eigin þegna,“ sagði Woolsey. Woolsey segir að „fjórða heimsstyrjöldin“ sé hafin ÞÚSUNDIR bandarískra her- manna, sem nú eru í Persaflóanum, fengu í hendur dreifibréf, sem ber heitið „Skylda hins kristna manns á stríðstímum“ og er þar mælst til þess að þeir biðji fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta. Hægt er að rífa miða af dreifi- bréfinu og senda í Hvíta húsið þar sem sendandi heitir því að biðja fyrir forsetanum, fjölskyldu hans, starfsliði og bandarískum hermönn- um. „Það sem rétt er, hvað sem gagnrýni líður“ Í dreifibréfinu, sem gefið er út af trúfélaginu In Touch Ministries, er einnig að finna tillögu að því hvern- ig eigi að haga daglegum bænum vikunnar. Undir sunnudegi stendur: „Biðjið fyrir því að forsetinn og ráðgjafar hans leiti til Guðs og visku hans daglega og treysti ekki á eigin skilning.“ Bænatillaga mánudags hljóðar svo: „Biðjið fyrir því að forsetinn og ráðgjafar hans hafi styrk og hugrekki til að gera það, sem rétt er, hvað sem gagn- rýni líður.“ Beðnir um að biðja fyrir forsetanum ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.