Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 27
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 27 LÍKLEGT er að Hitaveita Egils- staða og Fella (HEF) taki bæði vatnsveitu og fráveitu Austur-Hér- aðs og Fellahrepps inn í rekstur sinn. Mjög hagkvæmt er talið að samreka vatnsveitu og hitaveitu fyr- ir svæðið og eru sveitarstjórnirnar nú með málið í frekari vinnslu. Hugs- anlega mun HEF yfirtaka vatnsveit- una þegar um næstu áramót. Vatns- sala HEF það sem af er þessu ári er 9% minni en árið áður, vegna hlýs veðurfars, en notendum hefur hins- vegar fjölgað. Hagnaður af rekstri HEF á síð- astliðnu ári varð 2,5 milljónir króna, en fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam hagnaðurinn 35,7 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins námu 72,6 milljónum, sem er um 5,3 millj- ónum króna hærri gjöld en árið áður. Tekjur veitunnar jukust um rúmar 5 milljónir árið 2002 vegna aukinnar heitavatnssölu. Guðmundur Davíðsson, fram- kvæmdastjóri HEF, segir rekstur hitaveitunnar ganga vel. „Við ætlum að ljúka við að virkja nýjustu holuna okkar í sumar og setja hana inn í kerfið“ segir Guðmundur. „Það verð- ur með þeim hætti að aðalaflið á þá dælu verður frá díselstöð en varaafl frá RARIK til að spara peninga. Það er leiðinlegt að segja frá því að það skuli vera ódýrara að keyra með dísel heldur að kaupa RARIK toppa, en það er veruleikinn.“ Sameiginlegt útboð með RARIK og Landssímanum Guðmundur segir að hitastiguls- rannsóknum við Urriðavatn og Breiðavað verði haldið áfram, en við Breiðavað gæti verið framtíðar- vinnslusvæði HEF. „Við þurfum þó ekki meira eins og er, holan sem við boruðum 2001 er fullnýtt miðað við þúsund manna byggð í viðbót, sem gæti orðið innan tíðar. Nú er verið að leggja í Dalbrún, nýrri götu í Fella- bæ og við erum að fara í sameig- inlegt útboð með Landssímanum og RARIK, en það höfum við gert einu sinni áður og gekk vel.“ Þá stendur til að koma snjóbræðslukerfi Vil- hjálmsvallar í gang með haustinu. Guðmundur segir að samkvæmt skýrslu Neytendasamtakanna frá 4. desember sl. sé ódýrast á öllu land- inu að kynda hús í Fellabæ og á Eg- ilsstöðum. „Þetta er mjög ánægju- legt fyrir HEF og við reynum að gera allt til þess að þurfa ekki að hækka.“ Tíðarfarið dreg- ur úr sölu vatns Hitaveita Egilsstaða stendur vel Egilsstaðir SKRIFAÐ hefur verið undir samn- ing á milli Ungmennafélags Ís- lands og fimm héraðssambanda um áframhaldandi rekstur þjónustu- miðstöðva UMFÍ á landsbyggðinni. Þjónustumiðstöðvar UMFÍ hafa nú verið reknar í eitt ár í tilrauna- skyni og eru á vegum Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, Héraðssambandsins Skarphéðins, Ungmennasambands Eyjafjarðar, Ungmennasambands Borgarfjarð- ar og Héraðssambands Vestfirð- inga. Hlutverk miðstöðvanna er einkum að þjónusta félagsmenn og stýra verkefnum UMFÍ á svæðum héraðssambandanna, auk þess að miðla upplýsingum til félaga og deilda og sjá um kynningar til fjöl- miðla. Hvert héraðssamband fær eina milljón króna til rekstrar þjónustu- miðstöðvar frá UMFÍ. Samningur- inn er talinn munu styrkja héraðs- samböndin og stuðla að því að þau geti haldið úti starfsmanni og skrifstofu á heilsársgrundvelli. Þá tengja þjónustumiðstöðvarnar starfsemi héraðssambandanna enn frekar um land allt. Þjónustumið- stöðvar UMFÍ og viðkomandi hér- aðssambanda eru á Egilsstöðum, Ísafirði, Akureyri, Selfossi og í Borgarnesi. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Gerður hefur verið samningur milli UMFÍ og fimm héraðssambanda um rekstur miðstöðva á landsbyggðinni. Frá vinstri: Guðmundur Sigurðsson, UMSB, Árni Arnsteinsson, UMSE, Sæmundur Runólfsson, UMFÍ, Arngrímur Við- ar Ásgeirsson, ÚÍA, Karl Jónsson, HSV, Hildur Aðalsteinsdóttir, UMSE, og Engilbert Olgeirsson, HSK. Héraðssamböndin reka þjón- ustumiðstöðvar fyrir UMFÍ Egilsstaðir KARLAKÓRINN Hreimur verður með vorfagnað í Ýdöl- um annað kvöld. Þar verða meðal annarra gesta: Elma Atladóttir og Katrín Sigurðardóttir sópransöngkonur, einnig Ásgeir Hermann Steingrímsson trompetleikari. Fjölbreyttur undirleikur en veislustjóri verður Hjálmar Freysteinsson hagyrðingur frá Vagnbrekku. Að venju á vorfagnaði Hreims þá er boðið upp á kaffihlaðborð. Kvöldinu líkur síðan á dansleik með Strákabandinu. Hreimur fagnar vori í Ýdölum Suður-Þingeyjarsýsla FYRIR skömmu afhenti starfs- hópur, undir stjórn Guðlaugs Bergmann, verkefnisstjóra Stað- ardagskrár 21 í Snæfellsbæ, Kristni Jónassyni bæjarstjóra skýrslu með úttekt á merkingum í bæjarfélaginu. Forsögu þessa máls má rekja til fundar með forsvarsmönnum Vegagerðarinnar á Vesturlandi í Snæfellsbæ sl. ár og tillögu frá Ásbirni Óttarssyni, forseta bæj- arstjórnar, í október sl. ár um að skipa starfshóp til að gera úttekt á merkingum í Snæfellsbæ. Starfshópinn skipuðu auk Guð- laugs, þau Björn Jónsson, rekstr- arstjóri Vegagerðarinnar á Snæ- fellsnesi, Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður og Ragnhildur Siguðardóttir umhverfisstjórnun- arfræðingur. Vegna forfalla Ragnhildar þegar kom að verk- efninu tók Guðrún G. Bergmann ferðamálafræðingur sæti hennar í hópnum. Úttektin fólst í því að kanna allar merkingar í bæjar- félaginu, skrá núverandi merk- ingar og þær sem vantar, skrá niður tillögur að merkingum á áfangastöðum ferðamanna og þeim þjónustumerkingum sem þarf að koma fyrir í bæjarfélag- inu svo öll þjónusta þar sé að- gengileg fyrir innlenda sem er- lenda ferðamenn, jafnt og heimamenn. Starfshópurinn leitaði liðsinnis ýmissa innan bæjarfélagsins og kom m.a. með tillögur um að sett yrðu upp söguskilti við merka sögustaði í bæjarfélaginu og að útskotum og aðstöðu fyrir ferða- menn til að stoppa og njóta út- sýnis eða hins mikla fuglalífs í bæjarfélaginu yrði fjölgað. Gert er ráð fyrir því að úrvinnsla þessa verkefnis verði samstarfs- verkefni milli bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, Framfarafélaga bæjarfélagsins og Vegagerðar- innar. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Frá afhendingu skýrslunnar. F.v. Ásbjörn Óttarsson, forseti bæjar- stjórnar Snæfellsbæjar, Guðlaugur Bergmann, verkefnisstjóri Stað- ardagskrár 21, Kristinn Jónasson bæjarstjóri og Björn Jónsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Snæfellsnesi. Úttekt á merkingum í Snæfellsbæ Hellnar KAUPFÉLAG Borgfirðinga var valið fyrirtæki ársins 2002 í Borg- arbyggð auk þess sem Þór Odds- son apótekari og Katrín Magn- úsdóttir, frumkvöðull í ferðaþjónustu, fengu viðurkenn- ingar fyrir að hafa lagt drjúgan skerf að uppbyggingu og velmeg- un atvinnulífs í sveitarfélaginu. Óskað var eftir tilnefningum frá bæjarbúum og enn fremur voru Atvinnuráðgjöf Vesturlands og Verkalýðsfélag Borgarness bæj- arráði innan handar við valið. Veðlaunaafhendingin fór fram í liðinni viku á Búðarkletti. Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri ávarpaði viðstadda og veitti viðurkenning- arnar fyrir hönd bæjarstjórnar Borgarbyggðar. Páll sagði meðal annars í ávarpi sínu að hverju sveitarfélagi væri nauðsynlegt að innan þess störfuðu öflug fyr- irtæki sem væru leiðandi í at- vinnulífi. Vöxtur og viðgangur sveitarfélaga skýrðist að stórum hluta af því hvernig atvinnulífið væri uppbyggt og hvernig áraði hjá fyrirtækjunum. Hann sagði að Kaupfélag Borgfirðinga hefði lengi verið burðarás í atvinnu- og menningarlífi í héraðinu og af- koma fyrirtækisins á síðustu árum sýndi að félaginu hefði tekist að snúa vörn í sókn. Með byggingu verslunarmiðstöðvarinnar Hyrnu- torgs á árinu 2000 og með bygg- ingu á nýrri byggingarvöruversl- un sem á að taka í notkun í vor er félagið orðið samkeppnisfærara í verslun. Það ýtir undir að heima- menn versli í heimabyggð og aðrir íbúar á Vesturlandi leiti í auknum mæli til verslunar í Borgarnesi. Fyrir hönd Kaupfélagsins tók Guðsteinn Einarsson kaupfélags- stjóri við verðlaunagripnum. Fyrirtæki ársins í Borgar- byggð Morgunblaðið/Guðrún Vala Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri, Guðsteinn Einarsson kaupfélagsstjóri, Haraldur Jóhannsson og Þór Oddsson apótekari. Borgarnes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.