Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 33
ð frekar að þörfum verknámi og fram- brautum aðlögðuðu ari stöðlun fram- egur tæpast úr brott- erður sam- töðu háskóla árum hafa fjölmargir menntaflóru okkar Ís- eir skilað góðu starfi. ólastigi er af hinu ún hleypt kappi í rík- alda enn samkeppn- m að gæta að sam- ólanna. Samkeppnishæf framhaldsmenntun á að standa öllum opin óháð stöðu, efnahag eða búsetu. Ríkisreknir háskólar mega ekki fara halloka í samkeppninni þannig að það komi að því að samkeppnishæfa menntun eigi einungis þeir efnameiri kost á að sækja. Í ljósi slæmrar fjár- hagsstöðu t.d. Háskóla Íslands svo og allnokkurra framhaldsskóla er ljóst að það verður að veita meira fjármagn til menntakerfisins. Á sama tíma verður að gera þá kröfu að menntastofnanir fari vel með fé, tíma nemenda og eignir sín- ar. Menntamál fái þann sess sem þau eiga skilið Við framsóknarmenn leggjum mikla áherslu á gott brautargengi í kosningum 10. maí svo við fáum tækifæri til að beita okkur í menntamálum. Jafnrétti til náms er víða ógnað. Við verðum að veita menntamálum þann sess í þjóðfélaginu sem þau eiga skilið. Framsóknarflokk- urinn er með skýra stefnu í mennta- málum og er tilbúinn til að axla þá ábyrgð sem menntamálunum fylgir. a er stefnt í rófum er verið nir bjóða upp undir fjöl- Höfundur er viðskiptafræðinemi við Há- skóla Íslands og skipar 4. sæti á lista fram- sóknarmanna í Reykjavík norður. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 33 AF ÞEIM málaflokkum sem ég sem land- búnaðarráðherra hef haft með höndum sl. fjögur ár hef ég fáum haft jafn mikla ánægju af að sinna og skógræktarmálum. Koma þar nokkur atriði til sem ég vil nefna. Skógrækt á Íslandi stendur á tímamótum. Liðinn er tími úrtölumanna sem héldu því fram að hér á landi myndi ekki þrífast skóg- ur. Aldarstarf duglegra framsýnna ein- staklinga, félagasamtaka og ekki síst Skóg- ræktar ríkisins sannaði hið gagnstæða. Kominn var tími breytinga með það að markmiði að hefja skipulegt skógrækt- arstarf á öllu landinu með tilheyrandi breyt- ingum; klæða landið skógi að nýju, skapa nýja auðlind. Ég átti því láni að fagna að geta þar lagt hönd á plóg. Bjartsýni ríkjandi Mörgu þurfti að sinna. Eitt var það að samfagna með skógræktarmönnum ald- arafmæli skógræktar í landinu og taka þátt í stórafmælum hjá Skógræktarfélagi Íslands og öðrum skógræktarfélögum. Á fjölmörg- um fundum og samkomum hef ég flutt ávörp og hvatningarræður til skógræktarfólks þar sem merkra tímamóta hefur verið minnst. Mér voru þessar samkomur, ráðstefnur og fundir í senn hvatning og lærdómsríkir. Alls staðar ríkti bjartsýni og horft til framtíðar. Ljóst var að starfsemi Skógræktar rík- isins varð að laga að nýjum og breyttum að- stæðum. Eitt var það að stofnunin hætti framleiðslu trjáplantna sem var í ríkisrek- inni samkeppni við einstaklinga. Nú eru út- boð á þessum markaði og framleiðslan kom- in á hendur einstaklinga og fyrirtækja. Skógræktarinnar biðu auknar rannsóknir, áætlanagerð, tilraunir og leiðbeiningar vegna þeirra mörg hundruð einstaklinga víðs vegar um landið sem biðu þess að hefja nytjaskógrækt á jörðum sínum. Í þessu sambandi er mér ljúft að minnast þess að í einni af fyrstu ræðum mínum til skógrækt- arfólks tók ég það skýrt fram að ég liti á skógrækt sem landbúnað. Áður kunna menn að hafa velkst í vafa og einhverjir haldið að hér væri einungis um eitthvert tóm- stundagaman að ræða. Eftir þessum orðum mínum var tekið. Skógrækt er landbúnaður, nýr atvinnuvegur til sveita, sem án efa mun efla allt mannlíf þar, hleypa nýju blóði í fjöl- margar stéttir atvinnulífsins og skapa, – ekki aðeins skógræktandanum og viðkom- andi héraði tekjur, heldur þjóðinni allri. Fjögur ný verkefni í landshlutum Þá var að huga að landshlutaverkefn- unum. Héraðsskógar voru með öfluga starf- semi og til þeirra var litið. Suðurlands- skógar höfðu nýlega verið stofnaðir og á grundvelli nýrra laga samþykkti ég stofnun fjögurra nýrra landshlutabundinna verk- efna í skógrækt; Norðurlandsskóga, Vest- urlandsskóga, Skjólskóga á Vestfjörðum og Austurlandsskóga. Þá var starfssvæði Suð- urlandsskóga stækkað og ná þeir nú yfir allt Suðurkjördæmið. Þetta eru allt öflug verk- efni sem lúta stjórn heimamanna. Í hverjum landshluta eru skrifstofur verkefnanna, hjá þeim starfar fjöldi háskólamenntaðs fólks sem annars hefði ekki fengið þar vinnu við sitt hæfi. Rétt er að benda á þessa stað- reynd á tímum þegar sífellt er verið að tala um að flytja ríkisstofnanir út á land með rót- um með tilheyrandi erfiðleikum. Þessi verk- efni munu þróast og þeim vaxa fiskur um hrygg í samræmi við aukna starfsemi. Þeim munu fylgja enn fleiri störf sem hvergi eiga betur heima en á landsbyggðinni sjálfri. Allri umræðu um sameiningu þeirra með það að markmiði að fækka starfsmönnum þeirra og draga úr ímyndaðri yfirbyggingu verkefnanna hef ég skilyrðislaust hafnað og tel hana ekki á rökum reista. En það voru fleiri en bændur sem vildu planta trjám í miklum mæli. Skógrækt- arfélögin vildu halda áfram starfsemi Land- græðsluskóga en samningur þar að lútandi við ríkið var að renna út. Það verkefni hófst 1990 og nauðsynlegt var að tryggja því fjár- magn næstu árin ef það átti að halda áfram. Verkefnið hefur margsannað gildi sitt og stuðlað að kröftugu uppgræðslustarfi skóg- ræktarfélaganna í landinu. Gerður var nýr samningur, undirritaður af mér og fjár- málaráðherra, við Skógræktarfélag Íslands um 20 mkr. árlegan styrk næstu fimm ár til landgræðsluskóga. Tímamót í skógræktarsögunni Ánægjulegast þó var að á lokadegi þingsins fékk ég samþykkta skógræktaráætlun, þá fyrstu sem um getur, þar sem kveðið er á um fjárveitingar til skógræktarverkefnanna og Skógræktar ríkisins til næstu fimm ára eða til ársins 2009. Samþykkt Alþingis í þessu máli markar tímamót í skógræktarsögunni. Aldrei hefur Alþingi samþykkt framkvæmdir í skóg- ræktarmálum til jafn langs tíma og aldrei hef- ur verið samþykkt jafn mikið fjármagn til þessa málaflokks. Með samþykkt þessarar til- lögu er staðfestur vilji Alþingis um stórfellda skógrækt á öllu Íslandi og sömuleiðis og ekki síður eru verkefnunum og Skógrækt ríkisins nú skapaðar forsendur til að byggja starf sitt á. Plöntukaup þarf að ákveða fram í tímann, auka þarf rannsóknir og mikil vinna liggur fyrir varðandi áætlanagerð í skógrækt. Skóg- ræktarstarfinu var því nauðsyn að vita með vissu hvaða fjármagni væri úr að spila nokkur ár fram í tímann. Eins og ég gat um í upphafi greinar minn- ar, sem fjalla átti um skógræktarmál, var fátt mér kærara en að sinna þeim. Skógrækt- arfólk er framsýnt og glatt á þeirra fundum. Þannig verða öll störf léttari og skemmtilegri en ella. Ég vona að mér gefist tækifæri á að geta veitt skógræktarfólki og skógrækt í landinu lið í framtíðinni. Forsenda þess er að Fram- sóknarflokkurinn nái góðum árangri í kom- andi kosningum. Ég bið um stuðning les- enda til áframhaldandi starfa. Skógrækt á tímamótum Eftir Guðna Ágústsson „Aldrei hefur Alþingi samþykkt framkvæmdir í skógræktarmálum til jafn langs tíma og aldrei hefur verið samþykkt jafn mikið fjár- magn til þessa málaflokks.“ Höfundur er landbúnaðarráðherra. Á NÆSTU árum þarf að eiga sér stað markviss menntasókn á Íslandi eftir lang- vinna stöðnun í menntunarmálum þjóð- arinnar. Samanborið við nágrannalöndin er menntakerfið fjársvelt og ekki varið til þess þeim fjármunum sem þarf til að leggja grunninn að þekkingarsamfélagi framtíð- arinnar. Margvíslegar umbætur verða að eiga sér stað á skólamálunum til að við náum í fremstu röð. Á Vorþingi Samfylk- ingarinnar um helgina verður lögð fram metnaðarfull tillaga þess efnis. Menntakerfi framtíðarinnar verður að bjóða upp á sífellda menntun, opinn skóla, þar sem einstaklingurinn á kost á að þjálfa upp nýja hæfni til að verða gjaldgengur á vinnumarkaði. Þetta er því brýnna sem haft er í huga að hér á landi ljúka 40% hvers árgangs ekki framhaldsnámi, sam- kvæmt rannsóknum við HÍ. Færri Íslend- ingar stunda því nám á framhaldsskólastigi en á Norðurlöndunum, 81% af hverjum ár- gangi hér en um 89% þar. Einungis 56% Ís- lendinga á aldrinum 25 til 65 ára hafa lokið framhaldsskólaprófi meðan þetta hlutfall er 78% hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Ís- lendingar hafa lengi varið mun minna fé til menntamála sem hlutfall af landsfram- leiðslu en aðrar OECD-þjóðir. Munurinn á okkur og næstu þjóðum hefur verið um 1%- stig. Þegar við vorum með um 5% var 6% algengt í nágrannalöndunum og þegar hlutdeild okkar varð 6% þá voru aðrar þjóðir með 7%. Það er skynsamlegt að setja fram tölulegt markmið í aukningu útgjalda til menntamála á næsta kjörtímabil. T.d. um 1% aukningu á ári næstu fjögur árin. Nýtt tækifæri til náms Sérstaka áherslu þarf að leggja á fjar- nám, endurmenntun og nýtt tækifæri fyrir þá sem hafa horfið frá námi á lífsleiðinni. Samfélagið skuldar þeim sem hafa horfið frá námi eða vilja bæta við menntun sína að dyrnar séu opnaðar fyrir þá til að bæta við menntun sína eða nema eitthvað nýtt til að öðlast fleiri tækifæri á vinnumarkaði. Nýtt tækifæri í menntun á að byggjast á að- gengilegu grunnnámi, framhaldsnámi, starfsnámi eða námstilboðum fyrir þá sem vilja bæta við sína fyrri menntun eða hasla sér völl á nýjum sviðum. Þannig jöfnum við tækifærin og búum til öfluga veitu inn í at- vinnulífið. Lækka útskriftaraldur Brýnt er að auka samstarf á milli leik- og grunnskóla en tengslin á milli skólastig- anna eru of veik. Fyrstu ár grunnskólans þarf að nýta betur með auknum áherslum á upplýsingatækni, raungreinar og tungu- mál. Einnig þarf sérstakt átak til að tryggja eðlilega námsframvindu þeirra barna sem ekki hafa íslensku sem fyrsta mál. Fyrir lok næsta kjörtímabils þarf að vera búið að stytta framhaldsskólann um eitt ár með því að byrja grunnmenntun fyrr. Það myndi leiða til að stúdentar og aðrir sem ljúka framhaldsskóla, útskrifast ári fyrr. Þetta er brýnt mál til að stytta leiðina á vinnumarkaðinn og jafna að- stöðumuninn, sem að því leyti er á íslensk- um nemendum og erlendum. Á meðal brýnustu verkefnanna er að grípa til aðgerða sem sporna við sóuninni á mannauð og fjármagni sem felast í miklu brottfalli á framhaldsskólastiginu. Stór- auka þarf námsráðgjöf og auka breiddina á námsframboði á skólastiginu, efla iðn- og verknám með sérstöku átaki, tækninám og styttri námsbrautir. Sömuleiðis þarf að efla listnám í framhaldsskólanum. Þetta fjölgar valkostum, og dregur úr því að námsmenn finni sér ekki nám við hæfi, sem er meg- inástæða brottfallsins. Iðn- og tækni- menntun á í djúpstæðum vanda sem lýsir sér m.a. í því að aðsókn að náminu hefur minnkað, verknámið að hluta færst af landsbyggðinni og framboð á verkmenntun minnkað í fjölbrautaskólum landsins. Í kjölfarið hafa hinar hefðbundnu iðngreinar verið að gefa eftir og má nefna sem dæmi að sveinsprófum hefur fækkað um 14% á liðnum árum. Þessi fjárhagsvandi verk- námsins á rætur sínar í reiknilíkani sem notað er til dreifingar á fjármagni til fram- haldsskólanna. Líkanið skilar verknámi ekki því sem eðlilegt er til að hægt sé að halda því úti með sómasamlegum hætti. LÍN og rannsóknir Það þarf að móta ítarlega stefnu í mál- efnum Lánasjóðsins. Meginatriðin eru að námslán verði greidd fyrirfram, endur- greiðslur námslána verði frádráttabærar frá skatti, að hluta a.m.k., endurgreiðslu- byrði verði minnkuð, 30% námslána geti orðið styrkur, grunnframfærslan hækkuð og að ábyrgðarmannakvöðinni verði aflétt. Innan við 16% aldurshópsins 25–64 ára hafa lokið háskólaprófi og segir allt um mikilvægi þess að efla nám á háskólastigi. Það þarf að styðja við samkeppni á há- skólastigi og ýta undir bætta kennslu, auk- ið námsframboð og auknar rannsóknir. Enda eiga háskólastofnanir sem skara fram úr að njóta þess í fjárframlögum. Efla þarf rannsóknartengt framhaldsnám við alla háskóla landsins og styrkja með aukn- um fjárframlögum og því að auka tengslin milli rannsóknastofnana ríkisins og viðeig- andi háskóla og háskóladeilda. Tengt þessu á að auka framlög til rannsóknasjóða hins opinbera til að ýta undir möguleika ungra fræðimanna til að hasla sér völl hér heima að framhaldsnámi loknu. Víðtækar og markvissar fjárfestingar í menntakerfinu, til samræmis við það sem framsæknustu þjóðirnar ástunda, er mál málanna í ís- lensku samfélagi á komandi árum. Markvissa menntasókn Eftir Björgvin G. Sigurðsson „Menntakerfi framtíðarinnar verður að bjóða upp á sífellda menntun, opinn skóla, þar sem einstaklingurinn á kost á að þjálfa upp nýja hæfni til að verða gjaldgengur á vinnumarkaði.“ Höfundur er frambjóðandi Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. ekki geta gert áætl- vegna óvissu um afla- rð sem þarf að greiða gir stigvaxandi hækk- n gera nýliðum erfitt an sjávarútvegsgeir- yrirtækja verður ð heimildir verða of og þau munu að lík- líkt og þau sem fyrir nu heimildir. ,,Sigur“ ví verða honum og ðar. eimilda eru nú á yrningarleið mun draga mátt úr mörgum byggðarlögum. Líkt og aðrar atvinnugreinar er sjáv- arútvegurinn nokkuð skuldsettur. Veð- hæfni fyrirtækja í greininni er ekki síst háð kvótaeign þeirra. Fyrningarleið mun skerða veðhæfni þeirra og gera möguleika þeirra til vaxtar og nýsköp- unar að engu. Sanngjarnar leikreglur Það verður að skapast sátt um grund- vallarstarfsskilyrði fyrir sjávarútveginn í heild. Það verður að endurvekja tiltrú fjárfesta á greininni og leggja grunn að nýju vaxtarskeiði. Stjórnendur sjávar- útvegsfyrirtækja hafa í gegnum tíðina sýnt að þeim er ágætlega treystandi til að sinna sínum rekstri. Þannig hafa fyr- irtækin staðið af sér boðaföll og slæma tíð með því að draga saman seglin en sótt fram þegar betur hefur árað með mikilli nýsköpun og fjárfestingum í ýms- um hliðargreinum, svo sem með fiskeldi og fullvinnslu ýmiskonar og þannig skot- ið traustari stoðum undir sína starfsemi og eflt allt umhverfi sitt. Hlutverk stjórnvalda er að skapa sjár- varútveginum góða umgjörð og sann- gjarnar leikreglur svo hægt sé að horfa til framtíðar og gera honum kleift að vera, hér eftir sem hingað til, sá und- irstöðuatvinnuvegur sem ekki síst skap- ar okkar góðu lífskjör. i ða grafið m og þeim uta af ða sífellt Höfundur er alþingismaður og skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðaust- urkjördæmi. ra Halldór Ásgríms- ð rétt mál í grein 26. mars sl. þegar etinn raki til sín fé kefni. Þessi fullyrðing til þess fallin að kasta Þ í Írak fram að þessu, maklegt. Þessi rang- er þó ekki hið alvar- ví eftir að ljóst var að g Bretar myndu ráð- starfsmenn verkefn- olíu“ kallaðir heim og il allrar hamingju er a til að halda verkefn- á vera að stríðið gerir uppi þeirri mann- eitt hefur verið í land- r sem styðja þetta að axla sinn skerf af ingum þess að enn lparstarfi í Írak. byrgð gisráðsins matur fyrir olíu“ hafi örnum frá hung- um mæli verður að ð það hefur einungis náð að slá á sárustu afleiðingar við- skiptabannsins. Stofnanir SÞ, t.d. Mat- vælastofnunin, Barnahjálpin og Heil- brigðisstofnunin, hafa ítrekað bent á hrikalegar afleiðingar bannsins fyrir al- menning í Írak og þótt starfsmenn þess- ara stofnana geti ekki – af skiljanlegum ástæðum – sakað Öryggisráðið op- inberlega um að hafa valdið dauða 500.000 barna í landinu hafa þeir hvað eftir annað beðið Öryggisráðið að aflétta þessum þvingunum. Stofnanirnar hafa bent á nauðsyn þess að hefja markvissar aðgerðir til að endurreisa efnahagslíf landsins til þess að tryggja velferð al- mennings. Þannig hafa starfsmenn þess- ara stofnana undirstrikað ábyrgð Ör- yggisráðsins og aðstandenda þess fyrir því neyðarástandi sem ríkt hefur í Írak. Ábyrgð Íslendinga En nú er allt breytt í Írak. Þetta stríðshrjáða land sætir nú grimmilegum árásum mesta herveldis sögunnar og allt tal um mannúðaraðstoð að stríðinu loknu er hræðilega hjáróma enda gefur það ekki annað til kynna en vonda sam- visku þeirra sem standa að baki árás- arherjunum. Íslensk stjórnvöld studdu á sínum tíma viðskiptabannið á Írak og tóku reyndar beinan þátt í því og nú styðja þau ólögmætt árásarstríð gegn þessari þjökuðu þjóð. Með afstöðu sinni hefur ríkisstjórnin vissulega bakað sér bæði siðferðilega og pólitíska ábyrgð gagnvart fórnarlömbum stríðsins en það er jafnframt nauðsynlegt að landsmenn geri sér grein fyrir því að sú ábyrgð hvíl- ir á herðum okkar allra. ns stjórn- og n- ðin lra.“ Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs og skipar 1. sæti á lista flokksins í Reykjavík norður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.