Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Næring ekki refsing ANNAÐ kvöld frumsýnir hinn kunni dansflokkur Jochens Ulrichs, Tanz Forum, nýtt verk eftir Katrínu Hall, listdansstjóra Íslenska dans- flokksins, í Inns- bruck í Austurríki. „Þetta er ný út- færsla á Stingrey, verki eftir mig sem var frumsýnt heima í febrúar,“ segir Katrín. „Ég vildi gera nýja útfærslu fyrir þennan flokk, þar sem ég laga það að dönsurunum sem hér eru. Hugmyndin er sú sama, en verkið hef- ur tekið breytingum að ýmsu öðru leyti.“ Katrín segir að dansflokkurinn sé mikill úrvalshópur, en meðal dans- ara í honum er Hlín Diego Hjálm- arsdóttir sem starfaði áður með Ís- lenska dansflokknum. Katrín segir að dansararnir hafi alltaf mikið vægi í allri sköpun og að þeir ráði miklu um útkomuna. „Það eru sextán dansarar í hópnum, og ég fékk að velja þá sjö sem mér fannst hæfa verkinu best og mínum vinnuaðferðum.“ Mikil um- fjöllun hefur verið í fjölmiðlum ytra um sýninguna, bæði í blöðum og í sjónvarpi. „Það hefur verið gert mjög mikið úr þessu, og mikið stílað inn á yngra fólk, enda er laugardagskvöld kannski einmitt þeirra kvöld. Ég er mjög ánægð með það.“ Verk eftir Katrínu Hall frumsýnt í Innsbruck „Mikið gert úr þessu í fjölmiðlum“ Katrín Hall FYRSTU vorboðar þessa árs hafa litið dagsins ljós í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, en þar fæddust tveir kiðlingar í fyrradag. Hestarnir voru afar forvitnir að kíkja á þessa nýju íbúa garðsins sem kúrðu djúpt í fangi Berglindar Ágústsdóttir dýrahirðis. Huðnan Gríma bar kiðlingunum sem eru báðir gráflekkóttir og er annar þeirra hafur en hinn huðna. Samkvæmt frétt frá Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum var huðnan mjög slöpp er dýra- hirðar komu að henni. Mikið slím í önd- unarvegi hennar orsakaði það að hún andaði ekki en með snarræði var slímið fjarlægt með því að sjúga úr vitum hennar og svo var blásið í hana og hnoðað. Huðnan var þó full lífsvilja og eftir að hafa fengið mjólkursopa úr pela hresstist hún örlítið og er vonast til að hún nái sér að fullu. Faðir kiðlinganna er hafurinn Kappi en hann er líkt og vorboðarnir grá- flekkóttur en móðirin Gríma er svartflekkótt. Morgunblaðið/RAX Vorboðar í Húsdýragarðinum STEFNUSKRÁ Framsóknar- flokksins vegna komandi kosninga var kynnt í gær og í henni eru skattamál eitt af forgangsmálunum. Vill flokkurinn að tekjuskattur ein- staklinga lækki úr 38,55% í 35,20%. Þá vill flokkurinn að frítekjumark barnabóta hækki, greiddar verði ótekjutengdar barnabætur með öll- um börnum til 16 ára aldurs að upp- hæð 36.500 krónur en 73.000 krónur fyrir börn undir 7 ára aldri. Þá vill flokkurinn að persónuafsláttur hækki og kannaðir verði kostir þess að fella niður virðisaukaskatt af barnafötum. Þessi skattbreyting mun kosta ríkissjóð um 16 milljarða króna. Halldór Ásgrímsson segir að markmið Framsóknarflokksins sé að skattalækkanirnar komi til fram- kvæmda á næsta kjörtímabili í tengslum við gerð næstu kjarasamn- inga. Hann segir að framsóknar- menn vilji vinna að sínum markmið- um smátt og smátt í samræmi við efni og aðstæður. „Við þurfum að taka þar mið af efnahagsástandinu og við munum ekki setja stöðugleik- ann í nokkra hættu og viljum þess vegna varðveita vel stöðu ríkis- sjóðs.“ Stefnuskrá Fram- sóknarflokksins Tekjuskatt- ur einstak- linga lækki í 35,20%  Áhersla lögð/6 REYKJAVÍKURBORG stefnir að því að veita þremur fyrirtækj- um, BYKO, Rúmfatalagernum og Mötu, vilyrði fyrir 10 hektara lóð í Úlfarsárdal, rétt neðan Vestur- landsvegar. Fyrirtækin hyggjast reisa þar 40–50 þúsund fermetra stórvöruverslunarmiðstöð sem yrði stærsta bygging í Reykjavík og litlu minni en Smáralind í Kópavogi. Til samanburðar má nefna að Kringlan er 36 þúsund fermetrar og hið nýja vöruhótel Eimskips er 23.500 fermetrar að stærð eða nær helmingi minna en fyrirhuguð bygging. Málið verður tekið fyrir á borgarráðsfundi eftir helgina. „Mikil og jákvæð tíðindi fyrir Reykjavík“ Þórólfur Árnason borgarstjóri greindi frá þessu á borgarstjórn- arfundi í gær og kom m.a. fram í máli hans að ætla mætti að borgin fengi á bilinu 400–500 milljónir króna fyrir byggingarréttinn auk tekna í framtíðinni af þeirri starf- semi sem þarna yrði. Borgarstjóri sagði að fyrirtæk- in þrjú hefðu hvert í sínu lagi verið að þreifa fyrir sér með lóðir og embættismenn borgarinnar hefðu leitt þau saman, en fyrirtækin hefðu ekki unnið saman áður. þeir geti unnið nánar með okkur að skipulagsmálum og útfærslu hugmyndarinnar. Það er tak- markað sem við getum farið fram á að þeir leggi fram af fé og tíma ef þeir svo missa réttinn.“ Þórólfur segir að ekki sé horft langt fram í tímann, rætt sé um að undirbúningur og framkvæmdir gætu hafist eftir tvö til þrjú ár. „Mér finnst þetta afskaplega góð- ar fréttir fyrir Reykjavík og um leið atvinnulífið í borginni.“ Í samtali við Morgunblaðið sagði borgarstjóri þetta vera mikil og ákaflega jákvæð tíðindi fyrir Reykjavík. „Við sjáum fyrir okkur að fólk geri þarna innkaup á stórvöru og því þarf aðkoman að vera góð. Við munum leggja mikla áherslu á að þarna verði fagurt umhverfi og vel gengið frá þessu því miðstöðin mun blasa við frá Vesturlands- vegi. Það liggur auðvitað á fyrir þessa aðila að fá vilyrði til þess að Þrjú fyrirtæki áforma að reisa 40–50 þúsund fermetra stórvöruverslunarmiðstöð neðan Vesturlandsvegar Yrði stærsta bygg- ing í Reykjavík ()*+%(","- +(#$./0 $%+1/")&,*+(.*$)        # $ % & # ' ( &         &* ), 7 (1 89 )& * 7  ( )$*   +,* KARLAR virðast vera nýjustu sóknarfæri auglýsenda og ímyndarhönnuða á Vestur- löndum. Ásýnd ungra íslenskra karla er líka að breytast og þeir eru vaxandi viðskiptavinahópur snyrtivöruverslana. Þeir kaupa raka- krem, hreinsivörur, ilmvötn og krem og dæmi eru um að þeir kaupi bauga- hyljara og sólar- púður. Margir fara reglulega í húðmeð- ferð, ljós og handsnyrtingu og heimsækja heilsulindir. Þá eru þeir æ minni eftir- bátar kvenna í hárlitun og klippingu sam- kvæmt nýjustu tískustraumum. „Fyrir nokkrum árum hefðu strákar verið litnir hornauga fyrir að fara í húð- hreinsun á snyrtistofu. En það þykir alveg sjálfsagt núna, eins að strákar láti plokka á sér augabrúnirnar. […] Þeir eru farnir að raka sig víða um líkamann, til dæmis undir höndunum og á fótleggjum og hand- leggjum,“ segir Böðvar Sigurbjörnsson, tvítugur nemi og starfsmaður í tískuversl- un. Hann er þeirrar skoðunar að karlar og konur séu í raun jafnpjöttuð en karlarnir bara orðnir ófeimnari. Hins vegar vilji sumir ekki viðurkenna að fótboltakappinn David Beckham og kvikmyndaleikarinn Brad Pitt séu fyrirmyndir þeirra þótt sú sé oft raunin. „Það er í tísku hjá strákum að snyrta sig og það er í tísku að vera eins og David Beckham,“ segir Böðvar. Ásýnd ungra karla að breytast  Daglegt líf/B2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.