Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 52
ÍÞRÓTTIR 52 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR Bjarnason verður næsti þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik í stað Sig- urðar Gunnarssonar sem þjálfað hefur Garðabæj- arliðið undanfarin tvö ár. „Það er svo til frá- gengið að Sigurður komi til okkar og verði spil- andi þjálfari liðsins á næsta tímabili. Okkur finnst heppilegt að skipta um þjálfara þó svo að Sigurður Gunnarsson hafi gert mjög góða hluti og við verið ánægðir með störf hans. Við telj- um okkur vera með góðan efnivið og við stefnum á að bæta um- gjörðina í kringum liðið,“ sagði Halldór Ingólfsson, formaður handknattleiksdeildar Stjörnunnar, við Morg- unblaðið. Sigurður er fæddur og uppalinn Stjörnumaður og lék með þeim áður en hann fór í víking. Hann er á heimleið úr atvinnu- mennsku í sumar en undanfarin ár hefur hann leikið í Þýskalandi með Wetzlar síðustu fjögur árin og þar áður með Grosswallstadt, Minden og Bad Schwartau. Sig- urður er meiddur sem stendur og verður frá næsta hálfa árið en hann varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné og gekkst undir aðgerð í Þýskalandi í síðasta mán- uði.  MARCEL Desailly, fyrirliði Chelsea, segist vel geta hugsað sér að spila með Chelsea á næstu leiktíð fyrir lítinn sem engan pen- ing til að hjálpa félaginu í þeim fjárhagsvanda sem það á við að glíma. Desailly þiggur í laun á viku 40.000 pund eða um 5 millj- ónir króna en hann segist alveg geta spilað fyrir 500 pund á á mán- uði þar sem knattspyrnan á hans hug allan.  DESAILLY hefur ekkert getað leikið með Chelsea eða franska landsliðinu vegna meiðsla síðan 12. febrúar en reiknað er með að hann komi inn í Chelsea-liðið um helgina er það mætir Sunderland.  STEFAN Effenberg, þýski vandræðagemlingurinn sem leikið hefur með Wolfsburg í Þýskalandi í vetur, er hættur hjá félaginu. Effenberg lenti upp á kant við Jörg Röber, þjálfara Wolfsburg, í vikunni og hefur ekki látið sjá sig á æfingum liðsins síðan.  MARCUS Allbäck vonast til að frammistaða hans með sænska landsliðinu í leiknum við Ungverja í fyrrakvöld verði til þess að Gra- ham Taylor, knattspyrnustjóri Aston Villa, gefi sér tækifæri með liði Villa en Allbäck hefur fá tæki- færi fengið undir stjórn Taylors. Allbäck, sem var hetja Svíanna og skoraði bæði mörkin í 2:1 sigrinum á Ungverjum, hefur ekkert fengið að spreyta sig með Aston Villa síðan í nóvember.  MICHAEL Owen, framherji Liv- erpool og enska landsliðsins, verð- ur mjög líklega ekki með liði Liv- erpool sem sækir Manchester United heim á Old Trafford í fyrramálið í ensku úrvalsdeildinni. Owen varð fyrir meiðslum í baki í leiknum við Tyrki og þurfti að fara af leikvelli í síðari hálfleik.  SVEN Göran Eriksson lands- liðsþjálfari Englendinga segir Wayne Rooney hafa stimplað sig inn með glæsilegum hætti í enska landsliðið og erfitt verði fyrir sig að taka hann út úr liði sínu. Roon- ey, sem er 17 ára gamall, var í byrjunarliði Englendinga í leikn- um við Tyrki í fyrrakvöld og var besti maður vallarins. „Ef hann heldur áfram að leika með þessum hætti þá get ég ekki tekið hann út úr liðinu. Rooney sýndi mér að hann er tilbúinn að mæta hvaða liði sem er,“ segir Eriksson.  DAVID Beckham, fyrirliði Eng- lendinga, er mjög ósáttur með framkomu tyrknesku leikmann- anna í leiknum við Englendinga og segir Beckham að einn þeirra hafi gengið svo langt að kalla sig homma. FÓLK KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni kvenna EFRI DEILD: KR - Stjarnan ............................................5:2 Ásthildur Helgadóttir 3, Sólveig Þórarins- dóttir 2 - Björk Gunnarsdóttir 2. Staðan: Valur 2 2 0 0 11:4 6 ÍBV 2 1 0 1 6:5 3 Breiðablik 1 1 0 0 3:2 3 KR 2 1 0 1 6:9 3 Stjarnan 3 1 0 2 4:8 3 Þór/KA/KS 2 0 0 2 2:4 0 NEÐRI DEILD: HK/Víkingur - FH.................................... 0:5 Deildabikarkeppni karla Neðri deild, A-riðill: Reynir S. - Fjölnir .................................... 2:3 Staðan: Breiðablik 2 2 0 0 10:0 6 ÍR 2 1 1 0 9:0 4 Fjölnir 3 1 1 1 3:4 4 Reynir S. 3 1 0 2 5:13 3 Víðir 2 0 2 0 0:0 2 Árborg 2 0 0 2 2:12 0 Vináttulandsleikir Venesúela - Jamaíka ................................ 2:0 Perú - Chile ............................................... 3:0 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Boston - Miami ..................................... 90:62 Philadelphia - Chicago ..................... 108:101 Milwaukee - Houston ......................... 106:99 Washington - Sacramento ................. 99:105 New Orleans - New Jersey................ 106:97 Cleveland - Indiana ............................ 82:103 Detroit - Toronto .................................. 78:89 Minnesota - Seattle .............................. 91:86 Memphis - San Antonio ..................... 87:105 Denver - New York .............................. 75:83 BLAK 1. deild kvenna Fylkir - Þróttur R. ................................... 3:0 (25:18, 25:15, 25:22) ÚRSLIT FRANSKI handknattleiksmað- urinn Stephane Stoecklin er um þessar mundir sterklega orðaður sem arftaki Ólafs Stefánssonar hjá Magdeburg þegar Ólafur heldur til liðs við Ciudad Real á Spáni í sumar. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, hefur undanfarna mánuði leitað dyrum og dyngjum að eftirmanni Ólafs en ekki haft erindi sem erfiði. Nú er líkum að því leitt að Stoecklin gæti verið lausn á þeim vanda sem Magde- burg stendur frammi fyrir að fylla vandfyllt skarð sem Ólafur skilur eftir sig. Stoecklin hefur undanfarin fimm ár leikið með Honda Suzuka í Japan en er nú laus mála þar og hyggst ljúka ferlinum í Evrópu, helst í Þýskalandi, eins og fram kom í samtali við hann á netmiðl- inum sport1.de. Hann er 34 ára gamall en telur sig vel geta leikið handknattleik í hæsta gæðaflokki í tvö ár auk þess að vera öllum hnútum kunnugur í þýskum hand- knattleik eftir að hafa leikið árum saman með GWD Minden áður en hann hélt til Japans. Auk þess að komast að í Þýskalandi hyggst Stoecklin endurheimta sæti sitt í franska landsliðinu í handknatt- leik og leika með því á Ólympíu- leikunum í Aþenu á næsta ári. Sto- ecklin hefur ekki leikið með franska landsliðinu í nokkur ár en hann var ein helsta stjarna þess ásamt Frederick Volle og Jackson Richardson þegar Frakkar urðu heimsmeistarar hér á landi fyrir átta árum. Stoecklin í stað Ólafs? liðinu frá falli. Aðeins 1⁄3 af erlendum leikmönn- um deildarinnar lék 22 leiki eða fleiri í deildarkeppninni á sl. keppnistímabili. „Með öðrum orð- um, aðeins 30% af erlendum leik- mönnum í norsku deildinni eru svokallaðir „lykilmenn“ hjá sínum liðum. Þeir sem eftir eru hafa að- eins slæm áhrif á framfarir hjá ungum norskum leikmönnum,“ segir Frode Ohr sem stýrði rann- sókninni. Per Ravn Ohmdal formaður norska knattspyrnusambandsins hefur áhyggjur af þróuninni og segir m.a. að meðalgóður Finni eigi ekki að fá tækifæri á kostnað 19 ára gamals Norðmanns sem telja megi jafngóðan ef ekki betri. Ohr segir að norskir leikmenn verði ekki eins góðir ef erlendir leikmenn í efstu deildunum eru margir og það hafi áhrif á árangur norska landsliðsins til lengri tíma litið. Ohr telur að gríðarlegar tekjur norskra liða af sölu leik- manna á árunum 1990–1998 hafi gert það að verkum að norska deildin hafi dregið til sín erlenda leikmenn. Launin hafi hækkað í kjölfarið og kemst Ohr að þeirri niðurstöðu að „heimamönnum“ í hverju liði fyrir sig fækki þegar laun leikmanna í norsku deildinni hækki! „Norskum leikmönnum á aldr- inum 19–21 árs í efstu deild sl. þrjú ár hefur fækkað til muna. Ég er sannfærður um að dæmið eigi eftir að snúast við á næstu árum þar sem norsk lið hafa átt í fjár- hagsvandræðum og munu draga saman seglin á næstu misserum. Þá munu ungir norskir leikmenn fá tækifæri á ný og það er gott fyrir norska landsliðið,“ segir Ohr og bætir því við að félagsliðin þurfi að taka á sig ábyrgð hvað varðar norska landsliðið í framtíðinni. „Norska landsliðinu verður að ganga vel ætli félagsliðin að selja norska landsliðsmenn til landa á borð við England eða Þýskaland.“ Það er tilgangslaust að fylla uppí götin með „meðalmennsku“ í stað þess að láta yngri leikmenn frá Noregi fá tækifæri. Þessi þró- un á eftir að hafa áhrif á norska landsliðið þegar til lengri tíma er litið,“ segir Semb í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Í rannsókn sem gerð hefur verið á áhrifum erlendra leikmanna á norska knattspyrnu kemur í ljós að 25% af leikmönnum deildarinn- ar í fyrra voru erlendir, alls 76 leikmenn, og nú hálfum mánuði fyrir upphaf keppnistímabilsins er hlutfallið aðeins lægra en í fyrra eða 22%. Það hefur sýnt sig á undanförn- um árum að norsk lið hafa fengið til sín erlenda leikmenn á loka- sprettinum í deildarkeppninni til þess að ná settu marki eða bjarga Ljósmynd/Ingar Storfjell Níu erlendir leikmenn leika með Molde: David Ljung (Svíþjóð) sem er lengst til vinstri í aftari röð, Tobias Carlsson (Svíþjóð), Andri Sigþórsson, Bjarni Þor- steinsson. Fremri röð: Jak- up Mikkelsen (Færeyjum), Magnus Kihlberg (Svíþjóð), Fredrik Gustafsson (Sví- þjóð) og Ólafur Stígsson. Á myndina vantar Svíann Eddie Gustafsson. Landsliðsþjálfari Norðmanna segir erlenda „miðlungsleikmenn“ skaða norska knattspyrnu „Ungir leikmenn í skugga meðalmennskunnar“ FJÓRÐI hver leikmaður í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er út- lendingur og segir landsliðsþjálfari Norðmanna Nils Johan Semb að þessi þróun hafi slæm áhrif á unga og efnilega norska leikmenn. Semb segir að afburðaleikmenn frá öðrum löndum séu góður kost- ur fyrir norska knattspyrnu og slíkir leikmenn séu nauðsynlegir hverju liði sem vill ná árangri en hann er ekki eins hrifinn af þeirri þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum þar sem „miðl- ungsgóðir“ erlendir leikmenn fái tækifæri í stað ungra og efnilegra Norðmanna. Sigurður Bjarnason næsti þjálfari Stjörnunnar BLAK Bikarkeppni kvenna Undanúrslit: Kársnesskóli: HK – ÍK .........................20:15 Í KVÖLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.