Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 6

Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Framtíð Ríkisútvarpsins Opinn fundur á vegum Varðar - Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 16. mars kl. 12.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1 Frummælandi: Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Í pallborði: Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdasjóri Ólafur Hauksson, blaðamaður Óli Björn Kárason, útgáfustjóri Stjórnandi umræðu: Gísli Marteinn Baldursson Stjórnin FINNLAND varð í 1. sæti af 41 landi þegar ár- angur 15 ára grunnskólanema var rannsakaður á vegum OECD árið 2003, en niðurstöður þessarar svonefndu PISA-rannsóknar voru birtar í desem- ber sl. Ísland varð í 12. sæti í þessari sömu rann- sókn en sérstök áhersla var lögð á stærðfræði í þetta skiptið. Á ráðstefnunni í gær kom fram að ekki væri hægt að útskýra árangur Finna á ein- faldan hátt, þar kæmu til margar orsakir. Andreas Schleicher, yfirmaður greining- ardeildar OECD sem hefur umsjón með PISA- rannsókninni, hélt upphafserindi ráðstefnunnar og gerði þar grein fyrir framkvæmd rannsókn- arinnar og niðurstöðum. Í þetta skipti mældi PISA-rannsóknin hvernig nemendur gátu beitt stærðfræðinni á hagnýtan hátt. Í næstu rannsókn verður áhersla lögð á vísindalæsi að sögn Schleichers, þ.e. að nota vísindaþekkingu til að draga ályktanir. Norðurlöndin eru lík að mörgu leyti þegar kem- ur að niðurstöðum PISA-rannsóknarinnar. T.d. var lítill munur á frammistöðu nemenda mismun- andi skóla, minnstur í Finnlandi og á Íslandi en einnig afar lítill í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Þetta kemur ekki til af miðstýringu í finnska skólakerfinu, að því er kom fram í máli margra fyrirlesara, því kennarar bera sjálfir mikla ábyrgð á að gera skólanámskrár og námsáætlanir og koma námsefni til nemendanna. Í máli Schleich- ers kom fram að sjálfstæði skóla mældist einnig mikið á Íslandi og héldist í hendur við góða frammistöðu nemenda og jafnrétti til náms. Sjálfstæði skóla mikilvægt Jouni Välijärvi, forstöðumaður rannsóknar- stofnunar menntamála við Háskólann í Jyväskylä, lagði áherslu á ábyrgð finnskra kennara og það traust og virðingu sem þeim er sýnt. Að sögn hans bera finnskir kennarar meiri ábyrgð en kennarar á hinum Norðurlöndunum, t.d. á kennsluaðferðum og námsmati. Engin samræmd próf eru haldin í Finnlandi og hefur m.a. verið giskað á að það sé ein af ástæð- unum fyrir góðu gengi Finna í PISA-rannsókn- inni. Þessi staðreynd helst í hendur við ábyrgð finnskra kennara og sjálfstæði finnskra skóla. Lögð er áhersla á sjálfsmat skóla en opinbert eft- irlit eða mat er í lágmarki. Hver og einn skóli fer eftir námskrá sem gildir í landinu, en hver skóli setur sér einnig skólanámskrá, og þar er þáttur kennara stór. Í máli Arvo Jäppinen, skrifstofustjóra í finnska menntamálaráðuneytinu, kom fram að stefnan væri í skýr í þessum efnum. Niðurstöður mats á finnskum grunnskólum, sem fram fer á vegum fræðsluráðs, eru ekki notaðar til að merkja skóla eða hegna þeim, heldur til þess að bæta starfið og þróa stefnu. Kennaramenntun á meistarastigi Að sögn Jäppinen er einn af lyklunum að vel- gengni Finna í menntamálum kennaramenntunin í landinu. Grunnskóla- og framhaldsskólakenn- arar þurfa að ljúka meistaranámi til að fá kennslu- réttindi og til þeirra eru gerðar miklar kröfur. Mikil og stöðug aðsókn er í kennaranám í Finn- landi en það eru ekki launin sem heilla því finnskir kennarar hafa ekki hærri laun en meðallaun kenn- ara í OECD-löndunum. Fram kom á blaðamanna- fundi að eitthvað annað hlyti að heilla Finna við kennarastarfið, t.d. sú virðing sem borin er fyrir því í Finnlandi. A.m.k. sjö háskólar útskrifa kennara með rétt- indi til að kenna í grunnskóla og framhaldsskóla í Finnlandi. Allir ljúka þeir meistaranámi en sér- hæfa sig annaðhvort í kennslu 1.–6. bekkjar (7–12 ára) eða 7.–12. skólaárs (13–19 ára). Hinir síð- arnefndu eru svokallaðir námsgreinakennarar og einbeita sér yfirleitt að tveimur námsgreinum auk kennslufræði í kennaranáminu og fá réttindi til að kenna í efri bekkjum grunnskólans og í fram- haldsskóla. Grunnskólakennararnir sem taka kennsluréttindi fyrir 1.–6. bekk leggja aðal- áherslu á uppeldis- og kennslufræði en öðlast einnig góða þekkingu á öllum námsgreinum sem kenndar eru á þessu skólastigi. Leena Krokfors er prófessor í menntunar- fræðum við Háskólann í Helsinki og í erindi henn- ar kemur fram að kennarastarfið hafi breyst og margir finnskir kennarar lýsi áhyggjum af því. Þeim finnst þeir þurfa að sinna bæði uppeldi barnanna og fræðsluhlutverkinu, því sé hætta á að kjarni kennarastarfsins týnist. Í máli Leo Pahkin, ráðgjafa hjá finnska fræðsluráðinu, kom fram að kostnaður við hvern grunnskólanema í Finnlandi er um 5.100 evrur á ári sem samsvarar um 400 þúsund ísl. krónum. Góðan árangur Finna í PISA-rannsókninni má m.a. útskýra með trausti á milli nemenda, kenn- ara og foreldra og góðri kennaramenntun á meistarastigi. Þetta kom m.a. fram á fyrsta degi ráð- stefnu í Helsinki undir yfirskriftinni „Finnland í PISA-rannsókninni – Ástæður fyrir árangr- inum“. Steingerður Ólafsdóttir situr ráðstefnuna en hana sækja um 300 manns frá 34 löndum. Traust í skólastarfi og virðing fyrir kennurum Frá vinstri: Gunnar J. Gunnarsson, Guðmundur Birgisson og Sigurður Konráðsson frá KHÍ, Bryndís Schram, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Sólrún Jensdóttir frá menntamálaráðuneytinu. Aftast eru Jóhanna Thorsteinsson frá Kópavogsbæ og Elín Helga Þráinsdóttir, grunnskólakennari í Helsinki. HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær farbannsúrskurð Héraðsdóms Austurlands yfir Litháa sem hand- tekinn var á Seyðisfirði fyrir viku vegna framsalsbeiðni þýsku lög- reglunnar sem hefur manninn grunaðan um smygl á fjórum kg af amfetamíni til Þýskalands. Sýslu- maðurinn á Seyðisfirði krafðist gæsluvarðhalds en héraðsdómur taldi farbann nægilegt. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að í málinu liggi ekki fyrir upplýs- ingar um að maðurinn hafi reynt að koma sér undan rannsókn á málinu. Féllst Hæstiréttur á það með hér- aðsdómi að nokkur hætta kynni að vera á að maðurinn myndi reyna að koma sér undan áður en meðferð á framsalsbeiðni þýskra yfirvalda lyki. Héraðsdómur taldi nægilegt að úrskurða manninn í farbann til að tryggja nærveru hans. Farbann- ið gildir lengst til 30. mars. Á efra dómsstigi dæmdu málið hæstaréttardómararnir Árni Kol- beinsson, Ingibjörg Benedikts- dóttir, og Jón Steinar Gunn- laugsson. Verjandi var Hilmar Gunnlaugsson hdl. og sækjandi Helgi Jensson sýslufulltrúi. Nægilegt að hafa Litháa í farbanni SAMTÖK iðnaðarins lýsa von- brigðum yfir að enn skuli gengið fram hjá íslenskum skipa- smíðastöðvum og samið við pólska skipasmíðastöð þótt færa megi haldbær rök fyrir að íslenskt tilboð hafi verið fullt eins hagstætt. Segja samtökin að gera verði þá kröfu til viðkomandi ráðherra að láta ekki verkefni fara úr landi að nauð- synjalausu. Í tilkynningu SI segir m.a.: „Rík- iskaup hafa samið við pólska skipa- smíðastöð um endurbætur á varð- skipunum Ægi og Tý þó að mjög gott tilboð hafi komið frá Íslandi. Með þessu er endurtekin sama sag- an og fyrir þremur árum þegar sömu skip voru send í endurnýjun til Póllands. Þá varð viðgerðin á Tý tæplega 60% dýrari en samið var um og á Ægi tæplega 90%. Ekki er að sjá að sú reynsla hafi kennt mönnum nokkuð.“ Verk ekki úr landi að nauð- synjalausu BOBBY Fischer hefur aftur verið settur í einangrun í útlendingabúð- unum í Japan eftir að hafa lent í ryskingum við fangavörð að morgni sunnudags. Sæmundur Pálsson heldur áleiðis heim til Íslands í dag en hann hafði ráðgert að fara áður í kveðjuheimsókn til Fischers. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað gerðist en mér skilst að hann hafi þrifið gleraugu af fangaverði og trampað ofan á þeim og brotið þau. Síðan hafi hann neitað að borga þau,“ sagði Sæmundur í viðtali við Morgunblaðið. Hann segir að Fischer hafi verið að tala við sig í síma þegar atvikið átti sér stað. „Við vorum búnir að tala saman í um 20 mínútur þegar ég heyrði að fangavörður bað hann að koma með sér en hann neitaði, þetta gerðist þrisvar fjórum sinnum þar til ég heyrði hann hrópa að þeir væru að taka sig og svo slitnaði samtalið.“ Hann segir að búast megi við að hann þurfi að vera í einangrun í fimm daga. Þetta sé í þriðja skipti sem svona atvik komi upp. Sæmundur segir að öldungadeild- arþingmenn í japanska þinginu hafi ætlað að leggja fram fyrirspurn um mál Bobby Fischers. „Þetta eru stjórnarandstöðuþingmenn sem ætl- uðu að spyrja Koizumi forsætisráð- herra hvers vegna væri farið svona með Fischer.“ Fischer settur í einangrun að nýju Þegar Sæmundur Pálsson ræddi við Fischer í gærmorgun var hann hnepptur í einangrun á ný. Sæmundur snýr áleiðis til Íslands í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.