Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MIKILL sinueldur var kveiktur á opnu svæði við Sjávargrund í Garðabæ í gærkvöldi. Slökkviliði tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Ekki vitað hver eða hverjir kveiktu eldinn en samkvæmt upplýsingum lögreglu sást til unglingspilta á bíl á þessum slóðum skömmu ar kveiki í sinu þessa dagana. Var slökkviliðið kallað út alls 13 sinnum frá miðnætti í fyrra- kvöld og þar til í gærkvöldi vegna sinuelda. Höfðu lögregla og slökkvilið í nógu að snúast vegna þessa. Beinir lögregla því til fólks að vera vakandi fyrir því að börn séu ekki með eldspýtur eða kveikjara á sér. áður en eldurinn kviknaði og er málið í rann- sókn. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan átta í gær- kvöldi og voru þrír dælubílar sendir á vett- vang. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði er mikið um að börn eða ungling- Morgunblaðið/Þorkell Slökkviliðsmenn berjast við sinueld á stóru opnu svæði skammt frá Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gærkvöldi. Mikill sinueldur við Sjávargrund Þrettán útköll á höfuðborgarsvæðinu í gær eftir að kveikt var í sinu H-LISTI vinstri manna og óháðra hefur slitið meirihlutasamstarfi við Bæjarmála- félagið Hnjúka í bæjarstjórn Blönduósbæj- ar en ástæðan er trúnaðarbrestur vegna framgöngu formanns bæjarráðs, Valdimars Guðmannssonar, fulltrúa Á-listans. For- ystumenn H-listans hittu fulltrúa D-listans í gærkvöldi og ræddu óformlega við þá um meirihlutasamstarf. Valgarður Hilmarsson, oddviti H-listans, segir að stefnt hafi verið að því að byggja þjónustuhús við tjaldsvæðið á Blönduósi. „Við vorum ekki alveg búin að koma okkur niður á, að því er við töldum, hvernig við ætluðum að gera það en þá setti hann [Valdimar] í gang vinnu og gekk fram hjá bæði okkur og bæjarstjóranum en það fannst okkur vera alger trúnaðarbrestur.“ Valgarður segir að þetta hafi verið kornið sem fyllti mælinn og því hafi samstarfi listanna verið slitið. Meirihlutinn á Blönduósi sprunginn FORSVARSMENN lágvöruverðs- verslana sem haft var samband við í gær segja að enn sé tekist á af hörku í verðsamkeppninni en staðfestu að verð hefði hækkað síðan í síðustu viku. Ekki væri verið að gefa vörur eða selja þær á eina krónu eins og eitthvað var um í síðustu viku. Vildu þeir lítið gefa upp um hvort framhald yrði á slíkum tilboðum í þessari viku, og sögðu tímann leiða það í ljós. Mjólkurlítrinn ekki undir 75 krónum Samkvæmt upplýsingum frá Mjólkursamsölunni fá stórmarkaðir mjólkurlítrann ekki undir 75 krón- um, miðað við hámarksafslætti og að viðbættum 14% virðisaukaskatti, svo ljóst er að tapið af því að gefa mikið magn af mjólk er verulegt. Mjólk- urbirgðir Mjólkursamsölunnar klár- uðust í síðustu viku, og í gærmorgun voru enn margar tegundir af skyri, jógúrt og öðrum mjólkurvörum upp- seldar, segir Baldur Örn Baldurs- son, sölustjóri Mjólkursamsölunnar. Hann segir söluna í síðustu viku hafa verið um 10% meiri í heild en í venju- legri viku, og suma daga hafi verið 50% meiri sala á ákveðnum vörum. Stefán Guðjónsson, rekstrarstjóri Kaskó, segir eitthvað af tilboðum enn í gangi, en hann segir að kenn- ingar um að verðstríð sem ganga svona langt endist stutt hafi sannast og minnsti aðilinn á markaðinum hefði ekki jafndjúpa vasa og hinir. „Verðin hafa verið eitthvað að leið- réttast, en það eru ennþá mjög lág verð í gangi,“ segir Sigurður Arnar Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, sem rekur m.a. Krónuna. „Samkeppnin varð bara svona, og við fylgjum því.“ Sigurður vildi ekki gefa upp hversu mikið Krónu-verslanirnar hefðu borgað með tilboðum í síðustu viku. Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, sagði ekki gefið upp hver kostnaðurinn við verðstríð síðustu viku var, en segir ljóst að hann hafi verið verulegur. Á móti komi aukinn fjöldi viðskipta- vina, en þó sé aldrei góð afkoma af því að gefa vörur. Veitti ekki af hvíldinni Bónus-verslanirnar voru lokaðar á sunnudag, og segir Guðmundur að starfsfólkinu hafi einfaldlega ekki veitt af hvíldinni eftir annasama viku þar sem allt að tvöfalt fleiri við- skiptavinir komu á degi hverjum en í venjulegri viku. Ekki var lokað í verslunum keppi- nauta sem venjulega hafa opið á sunnudögum. „Við skipulögðum vaktirnar þannig að við þyrftum ekki að gefa frí,“ segir Sigurður Arnar. „Það er búið að vera gríðarlega mik- ið álag á fólki en það er búið að standa sig alveg frábærlega vel.“ sagði að ekki hefði verið reiknaður út kostnaðurinn við þær vörur sem seldar voru undir kostnaðarverði í síðustu viku. Þó væri ljóst að þar væri um að ræða stórar upphæðir, í síðustu viku. Hann segist ánægður með að geta aftur boðið eðlilegra verð, enda hafi margir viðskiptavinir verið með það á hreinu að á endanum borgaði einhver brúsann. Hann Samkeppni lágvöruverðsverslana heldur áfram en gjafatilboðum hætt Tvöfalt meiri sala á mjólk suma daga MIKIÐ álag er á starfsfólk þegar um verðstríð af þessu tagi er að ræða, en mörg ákvæði eru í kjarasamningum um hvíldartíma og vinnu- vernd, segir Gunnar Páll Pálsson, formað- ur VR. „Það er ljóst að í þessum versl- unum sem voru í hvað mesta verðstríðinu hefur verið verslað meira, enda verðstríðið gert í því augnamiði að draga að sér viðskiptavini. Flestar af þessum verslunum eru með eins lítinn mannskap og þær komast upp með, og á sama tíma er mikill veltuhraði. Það er erfitt að bregðast við svona ástandi með því að kalla út auka mannskap, enda þjálfaður mannskapur ekki til. Svo við fögnum því að Bónus skuli hafa lokað á sunnudaginn.“ Gunnar segir erfitt að koma upp hefðbundnu vaktafyrirkomulagi í stórverslunum, og raunin hafi verið sú að ástandið sé að færast í átt- ina að sex daga vinnuviku hjá starfsfólki í sumum þessara verslana, auk þess sem opið sé á flestum hefðbundnum frídögum. Hann segir hugmyndir uppi um að starfsfólk í verslunum fái frídaga á móti, vinni það á þessum dögum, þó slíkt sé enn í vinnslu. Erfitt að bregðast við FRÉTTAMENN Ríkisútvarpsins lýsa því yfir í ályktun sem samþykkt var á fundi þeirra í gærkvöldi að þeir muni ekki vinna með nýráðnum fréttastjóra stofnunarinnar. Þeir ítreka jafnframt vantraust á útvarpsstjóra og mótmæla eindregið orðum hans í Kastljósi í gærkvöldi, „þar sem hann fjallaði af fádæma vanvirðingu um störf fréttamanna“, eins og segir orðrétt. Ítreka mótmæli Í ályktuninni sem samþykkt var einróma á félagsfundinum segir m.a.: „Fréttamenn ítreka mótmæli við ófaglegri ráðningu nýs frétta- stjóra Útvarps. Hún skaðar og gref- ur undan trúverðugleika fréttastof- anna. Fréttamenn lýsa því yfir að þeir munu ekki starfa með nýráðn- um fréttastjóra.“ Vinna ekki með nýjum fréttastjóra  Ráðning fréttastjóra/2 og 10 MAÐUR hlaut höfuðáverka er hann datt af hestbaki í Vík í Mýrdal um klukkan 18 í gær, samkvæmt upplýs- ingum lögreglunnar í Vík. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl áleiðis til Reykjavíkur, en þyrla gæslunnar, TF-SIF, var kölluð út og sótti mann- inn á Hvolsvöll. Lenti hún í Reykja- vík kl. 19.45 og var maðurinn fluttur á Landspítala – háskólasjúkrahús. Hlaut höfuð- áverka við fall af hestbaki ♦♦♦ BJÖRGUNARSVEIT í Borgarnesi var kölluð út á áttunda tímanum í gærkvöldi til að bjarga tveimur tíu ára drengjum sem höfðu farið á ís út í eyju sem er skammt frá landi út af Borgarnesi. Komust þeir ekki til baka til lands þegar ísinn gaf sig. Björg- unarsveitarmenn fóru í flotgalla og óðu út í eyjuna með gúmmíbát og drógu drengina til baka. Voru þeir bæði kaldir og hræddir en sakaði þó ekki. Björguðu 10 ára drengjum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.