Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 31 MINNINGAR ✝ Steinar Péturs-son fæddist í Stavanger í Noregi 5. janúar 1921. Foreldr- ar hans voru Kristján Narfi Pétursson, að- alumboðsmaður hjá Líftryggingafélag- inu Andvöku, f. 10. jan. 1891, d. 18. júní 1973, og Gurine Pét- ursson, f. Johansen, húsfreyja, f. 20. febr. 1896, d. 11. sept. 1945. Systkini Stein- ars eru: 1) Ingjaldur Narfi, f. 17. júlí 1922. 2) Jón, f. 21. jan. 1926. 3) Gully Evelyn, f. 10. ág. 1930. Steinar kvæntist 6. júlí 1957 Guðlaugu Pálsdóttur húsfreyju, f. 27. apr. 1932. Foreldrar hennar voru Páll Metúsalemsson, bóndi á Refstað í Vopnafirði, f. 24. ág. stofustjóri, f. 2. sept. 1968, maki hennar er Ragnar Friðrik Ólafs- son, sálfræðingur. Dóttir Svanhild- ar eru Guðlaug Hrefna Jónasdótt- ir, f. 7. feb. 1993 Sonur Svanhildar og Ragnars er Ólafur Steinar, f. 18. ágúst 2004. 4) Svava Svanborg, vatnalíffræðingur, f. 24. jan. 1972, dóttir hennar er Hilda Margrét Ragnarsdóttir, f. 16. feb. 1993. Þegar Steinar var fimm ára fluttist fjölskyldan til Íslands og bjó fyrst á Ingjaldshóli á Sandi, en fluttist síðan á Vesturgötu 67 í Reykjavík. Nam hann bifvélavirkj- un og járnsmíði við Iðnskólann í Reykjavík og starfaði á yngri árum við bílaviðgerðir, í vélsmiðjum og við sjómennsku. Á árinu 1957 lauk Steinar prófi frá Vélskóla Íslands og vann sem vélstjóri á farskipum, fiskiskipum og togurum. Síðar rak hann reiðhjólaviðgerðaverkstæði um 14 ára skeið. Síðustu sjö ár starfsævinnar var Steinar hús- vörður við Kennaraháskóla Ís- lands. Útför Steinars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1899, d. 11. júní 1975, og Svava Víglunds- dóttir, húsfreyja, f. 25. sept. 1906, d. 10. jan. 1935. Dætur Steinars og Guðlaugar eru: 1) Margrét, lögfræðing- ur, f. 26. okt. 1957, gift Sigurði Sigurðssyni rafvirkja og eiga þau tvö börn, Steinar Örn, f. 10. júlí 1976, sonur hans er Aron Örn, f. 15. feb. 1997 og Helen Laufeyju, f. 2. maí 1984. 2) Steingerður, blaðamaður, f. 1. okt. 1959, gift Guðmundi Bárðarsyni stýrimanni. Börn þeirra eru: Andri, f. 4. okt. 1980, og Eva Hall- dóra, f. 12. jan. 1988. 3) Helen Sjöfn, kennari, f. 28. mars 1962, sonur hennar er Atli Þorsteinsson, f. 4. maí 1983. 4) Svanhildur, skrif- Í dag verður kvaddur hinstu kveðju frá Fossvogskirkju tengdafað- ir minn Steinar Pétursson vélstjóri sem lengst af bjó í Bólstaðarhlíð 66 í Reykjavík. Ég var rétt að verða 20 ára gamall er ég kynntist tengdaföður mínum. Fyrir þann fund kveið ég því nokkuð að hitta pabba Margrétar konu minn- ar og reyndar Guðlaugu tengda- mömmu, en þær áhyggjur voru al- deilis óþarfar því mér var tekið opnum örmum. Maður skynjaði strax að þar fór skarpgreindur maður með sterka en hlýja framkomu. Steinari var margt til lista lagt, hann hafði t.d. ættfræðina alveg á hreinu og var það næstum undantekning ef hann vissi ekki einhver deili á mönnum er bar upp í umræðum um fólk. Ég man eftir því að þegar hann spurði hverra manna ég væri, þá vissi hann allt um móðurætt mína sem var úr Vestur- bænum eins og hann. Steinar hafði einstaklega gaman af börnum og voru barnabörnin í miklu uppáhaldi hjá honum. Hafði hann sérstakt dálæti á að ráða krossgátur og myndagátur og undraðist ég hversu fljótt hann réð þær. Steinar lærði bifvélavirkjun og járnsmíði og lauk vélstjóraprófi frá Vélskóla Íslands. Stundaði hann sjó- inn í mörg ár bæði á togurum og far- skipum. Það var lítið mál fyrir hann að taka í sundur og setja saman aftur vélar af öllu tagi. Fékk ég að aðstoða hann eitt skiptið við að gera upp bílvél og það fór ekki á milli mála að þar fór maður sem kunni sitt fag. Hann rækti störf sín af samviskusemi og ósér- hlífni, var heiðarlegur maður og hreinskiptinn. Hann fylgdist vel með þjóðmálum og hafði ætíð sitt til mál- anna að leggja. Maður er ríkur af góðum minning- um um Steinar og það voru forrétt- indi að fá að kynnast honum. Minn- ingar um hann munum við alltaf geyma í hjarta okkar. Sigurður. Ég kynntist Steinari Péturssyni þegar ég tvítugur að aldri fór að draga mig eftir Steingerði, dóttur hans. Mér var boðið í sunnudagskaffi til að hitta fjölskylduna og eftir að hafa heilsað Laugu í dyrunum gekk ég inn í stofu og heilsaði Steinari. Hann vissi að ég var í Stýrimanna- skólanum og spurði mig strax tíðinda af sjómennskuferli mínum. Við spjöll- uðum lengi um togara Útgerðar- félags Akureyrar, sem ég hafði starf- að á, Stýrimannaskólann og Vélskólann. Þegar ég kom inn í her- bergi til þeirra systra spurðu þær mig stóreygar hvort ég hefði ekkert verið hræddur við pabba þeirra. Ég neitaði því alveg undrandi en þær sögðu mér þá að allmargir vinir sem inn á heimilið kæmu væru svo hrædd- ir við pabba þeirra að sumir þyrðu ekki einu sinni að heilsa án fulltingis einhverrar dætranna. Ég fann hins vegar ekki betur á þessum fyrsta fundi en að pabbi þeirra væri vinalegasti maður og það fór ætíð vel á með okkur. Í mínum huga var hann aldrei óttalegur heldur fastur fyrir. Hann heilsaði mér æv- inlega eins: „Sæll, gamli. Hvað er að frétta? Fiskast sæmilega á þessum dalli sem þú ert á?“ Enginn skortur var á umræðuefnum eftir þetta ávarp. Ég hef nú verið Steinari samferða í rúman aldarfjórðung og virðing mín fyrir honum hefur vaxið með ári hverju. Hann var stálminnugur og ótrúlega fróður. Í hvert skipti sem ég flutti mig milli skipa brást ekki að hann gat rakið fyrir mér sögu skips- ins, eigenda þess og stundum ein- hverra skipsfélaga minna. Hann mundi nöfn, ártöl og kunni sögur af aflabrögðum langt aftur í tímann. Tengdafaðir minn var því líkt og al- fræðiorðabók um atvinnusögu Ís- lands. Ég mat hreinskiptni hans mikils og það hversu heiðarlegur hann var. Ég vissi að hverju hans orði mátti treysta og þótt það væri aldrei orðað beinlínis á milli okkar var ég aldrei í vafa um að hann myndi reynast okkur Steingerði traustur bakhjarl ef á þyrfti að halda. Nú er kominn tími til að kveðja tengdaföður minn og vin. Hann trúði á framhaldslíf og ég veit að hvar sem hann er nú hefur verið vel tekið á móti honum. Í fjölskyldu okkar er hins vegar komið skarð sem ekki er hægt að fylla. Og nú er kominn tími til að kveðja. Vertu sæll, gamli, og þakka þér fyrir allt. Guðmundur. STEINAR PÉTURSSON ✝ Ragna R. Sig-urðsson fæddist í Reykjavík 6. maí 1912. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ragnar Leví Pálsson tóbakskaup- maður í Reykjavík, frá Heggstöðum í Miðfirði f. 13. jan. 1882, d. 14. nóv. 1955 og kona hans, Mar- grét Stefánsdóttir hattagerðarmeistari og kaupmaður frá Stóra-Knarrar- nesi á Vatnsleysuströnd, f. 26. júní 1891, d. 4. júní 1984, Þau skildu. Bræður hennar voru Páll aðstoð- arsiglingamálastjóri (1915–1998), og Einar Sigurður (1917–1949). Séra Friðrik Friðriksson gaf Rögnu og dr. Jón Sigurðsson, síð- ar borgarlækni, f. 2. júní 1906, d. 28. des.1986, saman í Vatnaskógi 16. júní 1936. Hófu þau búskap í Danmörku sem stóð fram til árs- ins 1946. Einkasonur þeirra er Örn, tæknifræðing hjá RARIK, f. 14.1. 1944. Kona hans er Júl- íana Signý Gunnars- dóttir, f. 23 8. 1947, og eiga þau þrjú börn, þau eru: a) Margrét, f. 22.1. 1975, sonur hennar er Máni Örn Arnars- son, f. 17.7. 1999; b) Jón Ragnar, f. 27.1. 1979, sambýliskona er Nanda María Maack, f. 28.9. 1979; og Gunnar Örn, f. 24.9. 1984, sambýlis- kona Þórða Berg Óskarsdóttir, f. 8.9. 1982. Ragna ólst upp í vesturbænum og gekk í Landakotsskóla. Eftir gagnfræðaskólanám starfaði hún í Landsbankanum. Ragna sótti mála- og ritaranám samhliða bankastörfum í London, Hamborg og Kaupmannahöfn. Hún tók þátt í sjálfboðastarfi Rauða krossins í þrjá áratugi. Útför Rögnu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku amma mín. Minninguna um þig og þær góðu stundir sem við átt- um saman, mun ég geyma í hjarta mínu að eilífu. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Guð blessi minningu Rögnu R. Sigurðsson. Þín Jón Ragnar og Nanda María. RAGNA R. SIGURÐSSON Hvort sem við tök- um eftir því eða ekki þá komum við mis- munandi fram við fólk eftir því hvernig sam- band okkar er við það. Þannig var það líka um Lóló og mömmu mína. Þið megið kalla þetta njósnir ef ykkur sýnist en það var leikur okk- ar bræðra að geta uppá því við hvern foreldrar okkar voru að tala í símann ef við vissum ekki hver hafði hringt. Þetta kostar dálitla þjálfun í byrjun, – þá kemur leikn- in. Okkur skeikaði sjaldan. Það var enginn vandi að þekkja Lóló þegar hún hringdi. Hreimur- inn í rödd mömmu bar vott trún- aðar og trausts og svo voru þær báðar dálítið gefnar fyrir dramatík. Þannig byrjuðu venjuleg samtöl þeirra á milli oftast á lágu nótunum svo sem ,,hvað segirðu gott“ o.s.frv. ÁSTHILDUR GYÐA EGILSON ✝ Ásthildur GyðaEgilson fæddist 2. september 1911. Hún lést 4. mars síð- astliðinn. Útför hennar var gerð mánudaginn 14. mars. Þá hófst ákveðinn millikafli sem venju- lega hófst á „a propos“ og á eftir kom kynning eða það sem á sænsku er kall- að „exposition“. Sam- talið fékk síðan ris í síðasta kafla með til- heyrandi almáttugur, – Jesús og Gvuuuuð – hvað segirðu mann- eskja? Stundum varð mér þó órótt og þá gat verið gott að fylgjast með pabba. Hann var óvenju næmur á þessi samtöl. Ef hann, til dæmis, hætti að borða súpuna þá hætti mér að lítast á blikuna. Ásthildur Egilson móðursystir mín var kölluð Lóló. Hún hafði þannig skapferli að ekkert sem hún kom nálægt var hálfkák. Hún var meira en bara systir hennar mömmu og vinur. Hún var líka tákn og miðja þeirrar samheldni sem ríkti í móðurfjölskyldunni. Það var í Urðartúni sem öllum var stefnt saman, fjölskyldu, vinum og vanda- mönnum. Í miðjunni sat Lóló og var límið sem hélt öllu saman. Hún var allt í senn, ráðgjafi, sálusorgari og dómari ef því var að skipta. Hún var kennari og þýðandi, vinur og huggari. Hún var sumsé húsmóðir þeirra tíma en rækti sitt hlutverk af meiri dýpt en víðast tíðkaðist. Hún Lóló hafði ákveðnar skoð- anir á flestum þeim hlutum sem hún tók afstöðu til á annað borð. Eitt af því voru minningargreinar. Ég ætla því ekki að þreyta hana með of löngu hjali. Forvitni var einn af eðliskostum hennar Lóló. Þess vegna hlakkaði hún til að vita hvað tæki við fyrir handan. Það hvarflar ekki að mér eina sekúndu annað en að hún frænka mín sé alveg tromphissa þessa stundina. Ég votta aðstand- endum öllum samúð okkar bræðra og fjölskyldna okkar. Að missa Lóló er að missa mikið. Geir Rögnvaldsson. Kæra Ásthildur. Ég skrifa þér fáeinar línur og sendi þér í hug- anum, gegn um ljósleiðara frá hjarta mínu. Við sitjum hér yfir kaffibollum og skálum fyrir þér og bjóðum þig vel- komna „heim“ – í heim ljósanna þar sem þú ert nú umvafin ljósi og kær- leika. Ég þakka fyrir að hafa fengið að vera þér samferða í gegn um jarð- lífið og þakka fyrir þær allt of fáu samverustundir sem við áttum sam- an. Góða sál. Vertu Guði falin. Þess óskar af einlægni þín mágkona. Ása. ✝ GuðmundurÁrni Jónsson fæddist í Reykjavík 14. júlí 1958. Hann lést 3. mars sl. á gjörgæsludeild Landspítalans. For- eldrar hans eru Jón Gunnarsson og Nína Soffía Hannesdóttir. Eldri bróðir Guð- mundar er Gunnar, f. 1953, og yngri systir hans Nína Karen, f. 1961. Guðmundur lauk verslunarprófi og tengdist því fagi í flestu sinn starfsaldur og lengst af sem verslunarstjóri í fyrirtæki fjölskyld- unnar, Stálhús- gögnum á Skúla- götu 61 í Reykjavík. Eiginkona Guð- mundar er Sigríður B. Árnadóttir og dóttir þeirra Stef- anía Ösp, f. 9. nóv- ember 1988. For- eldrar Sigríðar eru Árni Kristmunds- son og Geirlaug Eg- ilsdóttir. Útför Guðmund- ar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Við kveðjum þig, Guðmundur minn, með söknuði. Þegar fréttir bárust um andlát þitt fylltist maður einhvers konar tómleika. Maður vildi ekki trúa þessu. Enn eitt áfall- ið. Maður spyr sig hver tilgangurinn sé. Það er eins og þú sagðir við Sig- rúnu við fráfall Karls Hannesar „hvað það hlyti að vera erfitt að horfa á eftir barninu sínu“. Þarna sá maður hvað þú varst að hugsa þegar þú sagðir þessi orð eins náinn og þú varst Stefaníu. Nú horfum við á eft- ir þér, manni á besta aldri tekinn frá fjölskyldu sinni í blóma lífsins. Ég sé þig svo sterkt fyrir mér í þessum rituðu orðum að maður er ekki tilbúinn að trúa að þú sért far- inn. Elsku Sigga og Stefanía, nú er gott að eiga sterka og góða fjöl- skyldu því ekki veitir af í framtíð- inni. Megi guð vera með ykkur, for- eldrum, systkinum og öðrum að- standendum á þessum erfiðu tím- um. Ólafur og Sigrún. GUÐMUNDUR ÁRNI JÓNSSON Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSTHILDUR GYÐA EGILSON, lést föstudaginn 4. mars sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda hlýju og samúð. Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Droplaugarstaða fyrir frábæra umönnun síðustu árin. Gunnar Már Hauksson, Þorleifur Hauksson, Halla Hauksdóttir, Nanna Þórunn Hauksdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.