Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 25 UMRÆÐAN Hlíðasmára 11, Kópavogi sími 517 6460 www.belladonna.is Réttu stærðirnar Verið velkomin á fyrirlestur um „Sæfiefni – hluti af okkar daglega lífi“ hjá Umhverfisstofnun í dag, þriðjudaginn 15. mars, kl. 15-16 Aðgangur ókeypis Fyrirlesari: Elín G. Guðmundsdóttir fagstjóri á Stjórnsýslusviði Umhverfisstofnunar Fyrirlesturinn verður haldinn í matsal Umhverfisstofnunar á Suðurlandsbraut 24, 5. hæð. Upplýsingar á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is Upplýsingar á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is FORVARNARNEFND Reykja- víkurborgar vinnur um þessar mundir að heildarstefnumótun í forvarnarmálum en eins og fram hefur komið hefur dregið verulega úr vímuefnanotkun unglinga. Sá árangur náðist með samstilltu átaki margra aðila sem eiga þakkir skild- ar. Forvarnir eru eins og nafnið gefur til kynna aðgerðir sem koma eiga í veg fyrir að eitthvað gerist. Við búum í allt öðru sam- félagi nú en fyrir ekki svo mörgum árum sem sýndi sig t.d. í verkfallinu sl. haust. Forvarnarnefndin kallaði eftir upplýs- ingum um óæskilegar hópamyndanir í hverf- um en staðreyndin var sú að margir krakkar fóru varla út úr húsi þá tvo mánuði sem verkfallið stóð heldur sátu sem fast- ast yfir Netinu og sjónvarpi. Við höfum heldur ekki alltaf möguleika á að sjá fyrir tískusveiflur bæði í notkun vímu- efna og einnig í óæskilegri, nei- kvæðri og sjálfseyðandi hegðun, t.d. á sviði kynlífs. Sífellt fleiri verða spilafíkninni að bráð. Óæskileg sjálfseyðandi hegðun birtist líka í svelti, anorexíu, ofáti eða búlimíu. Þá eru ofbeldi og af- brot einnig dæmi um óæskilega frávikshegðun sem forvarnir eiga að beinast gegn. Foreldrar, skólafólk og allir þeir sem starfa með börnum og ung- lingum þurfa að finna til sam- ábyrgðar og láta sig málið varða. 90% grunnskólanna í Reykjavík eru með forvarnaráætlanir sem margar tengjast lífsleikninni. Ým- is fleiri verkefni eru í gangi eins og eineltisverkefni Olweusar. Æskilegast er að nemendur og foreldrar komi með beinum hætti að stefnumótun skólanna. Slík stefnumótun á ekki aðeins að fara fram á unglingastigi heldur þegar við upphaf skólagöngu í leikskóla. Við þurfum að byggja upp sterka einstaklinga með góða sjálfsmynd sem eru tilbúnir að taka afstöðu gegn óæskilegri og sjálfseyðandi hegðun. Forvarnarstefna á að innihalda skýr skila- boð. Skólar og for- eldrar þurfa að taka höndum saman um skýrar reglur og tak- markað umburð- arlyndi, t.d. algjört skilyrði um vímuefna- lausan grunnskóla og að aldrei skuli leyfð eftirlitslaus partí. Við eigum undir engum kringumstæðum að samþykkja að börn og unglingar undir lögaldri drekki áfenga drykki. Markmiðið er að byggja upp sterka einstaklinga með góða og heilbrigða sjálfsmynd. En við verðum einnig að beina sjónum okkar að þeim sem eru í áhættu. Margir leik- skólakennarar segjast strax geta sagt fyrir um hverjir muni leiðast í fíknir af einhverjum toga. Sama segir starfsfólk Félagsþjónust- unnar. Þá þarf að vera ljóst hvernig kerfið bregst við til að halda utan um barnið og styðja fjölskylduna. Sumrin eru einnig áhættutími fyrir börn og unglinga og ekki síður sá tími þegar grunn- skóla lýkur og framhaldsskólinn tekur við, en þá þykir sjálfsagt að allir mæti í „fyrirpartí“ þar sem áfengið flýtur. Best er auðvitað ef unglingarnir sjálfir breyta þessu og það gerist ef við foreldrar og skólasamfélagið allt leggjumst á eitt um að ala upp sterka ein- staklinga sem þora að standa með sjálfum sér. Við þurfum öll sem eitt að láta okkur málið varða því okkur á ekki að standa á sama. Það er kannski það mikilvægasta, að okk- ur standi ekki á sama, að við sýn- um samábyrgð og berum kærleika til náungans. Láttu þig málið varða Guðrún Ebba Ólafsdóttir fjallar um forvarnir ’Markmiðið erað byggja upp sterka ein- staklinga með góða og heil- brigða sjálfs- mynd.‘ Guðrún Ebba Ólafsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í forvarnarnefnd. ÞAÐ ER undarlegt að sjá þá sem áttu ríkan þátt í að hrekja verslun úr Kvosinni þeysa fram nú þegar borgaryfirvöld hafa mannað sig upp í að taka ákvarðanir um endurlífgun Lauga- vegarins og heimta að þær áætlanir gangi ekki eftir. Hafa þeir ekkert lært? Á þá Laugavegurinn, sem verið hefur versl- unargata í 100 ár, engan tilveru- og þegnrétt? Ekki er svo að sjá á skrifum hús- friðarsinna. Kofa- skrifli og hús sem ekki henta versl- unarstarfsemi skulu alfriðuð og verslun hrakin úr þessari mestu versl- unargötu landsins. Hrakin segi ég því margir verslunareigendur hafa undanfarin ár greitt atkvæði með fótunum um ástandið á Laugavegi og flutt sig úr götunni með starf- semi sína. Um tíma leit út fyrir al- gjört hrun Laugavegar sem versl- unargötu og stór verslunarfyrir- tæki voru að undirbúa flutning þaðan. Sem betur fór ákváðu borgaryfirvöld þá að Laugavegur skyldi vera verslunargata áfram og að heimilt yrði að fjarlægja ákveðin hús og byggja í staðinn húsnæði sem hentaði versl- unarstarfsemi eins og hún er nú rekin. Þetta mátti ekki tæpara standa því veruleg göt voru komin í rað- ir atvinnuhúsnæðis í götunni. Nú ríkir sem betur fer vax- andi bjartsýni rekstr- araðila á Laugaveg- inum og verslunum er að fjölga aftur. Þó að slíkar ákvarðanir séu hlutverk borg- aryfirvalda og hefðu að ósekju mátt koma fyrr, þá er ástæða til að þakka fyrir um- rædda ákvörðun og skipulag jafnframt því að hvetja alla borgarfulltrúa til að standa saman og hopa hvergi með þær áætlanir. Það sjá það allir sem skoða Laugaveginn að þar er fjöldi óhentugra húsa sem hýsa ein- hverja atvinnustarfsemi, oftast þó verslanir. Menn hafa verið að reyna að bæta úr aðstöðuleysinu með ýmsum ráðum og klastri. Þar sem lengst hefur verið gengið hafa menn hreinlega skorið heilu hliðarnar úr húsunum og sett þar verslunarglugga og innganga. Þetta er ekkert til að halda í og væri mikil hreinsun að niðurrifi og brottflutningi slíkra bygginga. Þau hús sem ákveðið hefur ver- ið að friða eru eflaust ágætir fulltrúar síns tíma og hafa auk þess einhverja sögu að segja okk- ur og komandi kynslóðum. Menn verða að vera raunsæir og átta sig á því að fólki er ekki skipað eitt eða annað heldur tek- ur það sínar ákvarðanir miðað við hagsmuni sína og afkomu. Þannig verður fólki ekki skipað að aka með strætisvögnum, að búa eða versla í gömlu og óhent- ugu húsnæði eða eitthvað álíka. Það tekur sínar ákvarðanir og eins og í versluninni þá greiðir það atkvæði með innkaupum sín- um. Mér er minnisstætt þegar þekktur fyrirlesari og virtur pró- fessor í verslunarfræðum við Ed- inborgarháskóla kom hingað í annað skipti fyrir hálfu öðru ári til að halda erindi hjá SVÞ. Eftir að hafa skoðað miðborgina nefndi hann að Laugavegurinn myndi á næstu misserum breytast í sund- urlausan samtíning smábúða og götusala ef ekki yrði gripið til sér- stakra skipulagsaðgerða til að gera hann að heilstæðri versl- unargötu. Laugavegurinn þarf að fá að þróast í takt við þjóðlífið og þarfir fólksins, sem nú er sem betur fer að fjölga í miðborginni og með því að kalla á aukna verslunarþjón- ustu. Byggjum upp fallega og hentuga verslunargötu, Laugaveg- inn, þar sem rekstraraðilar og neytendur geta átt ánægjuleg samskipti eins og fyrrum. Laugavegurinn verði áfram helsta verslunargata landsins Sigurður Jónsson fjallar um Laugaveginn ’… hafa menn hrein-lega skorið heilu hlið- arnar úr húsunum og sett þar verslunar- glugga og innganga. Þetta er ekkert til að halda í og væri mikil hreinsun að niðurrifi og brottflutningi slíkra bygginga.‘ Sigurður Jónsson Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.