Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.03.2005, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 41 DAGBÓK Framtíðarútlit höfuðborgarinnar ALLTAF þegar umræðan um byggð blossar upp, er einhverjir full- hugar koma fram með hugmyndir og áætlanir um nýjar byggingar og skipulag til hagræðingar og fegrunar borgarinnar, sem er að stórum hluta ömurleg á að líta með öllum þessum lágreistu kofum, rísa upp sjálfskip- aðir spekingar með lofsöng um feg- urð og glæsileika kofanna, sem marg- ir hverjir voru reistir af miklum vanefnum. Þá dettur mér í hug vísan „Seltjarnarnesið er lítið og lágt, búa þar fáir og hugsa smátt,“ o.s.frv. Umræðan um flugvöllinn í Vatns- mýrinni er einnig með eindæmum. Hvað er höfuðborg án flugvallar og hafnar? Í London rýmdu þeir fyrir flugvelli í miðri borginni fyrir um 10 árum. Í Berlín má nefna frægan flug- völl í miðri borginni, sem er Temp- elhof-flugvöllur. Flestar stórar borgir hafa flugvelli sem eru innan borg- armarkanna, enda krefst byggð flug- valla. Ný byggð í Vatnsmýrinni er al- gjör óþarfi og sóun og yrði einungis til óþurftar fyrir gamla miðbæinn, með umferðaröngþveiti og útskúfun. Gamli miðbærinn mætti verða reisu- legri og fullnægja þannig íbúða- og verslunarrýmisþörf án frekari dreif- ingu byggðar. Að mínu áliti og margra annarra er flugvöllurinn perla og lífæð höf- uðborgarinnar. G.D.L. Finnska konu vantar leiðsögn ÉG heiti Néa-Christine Lemström og er frá Finnlandi. Ég kem til landsins í fyrsta skipti 17. apríl nk. og mun dvelja í Reykjavík. Ég hef áhuga á að komast í samband við einhvern, mann eða konu, vegna heimsóknarinnar, sem gæti veitt mér leiðsögn. Ég er á miðjum aldri og hef áhuga á Íslandi og langar að fræðast um landið. Ég tala sænsku og gæti á móti veitt leið- sögn í Helsinki seinna meir. Ég er já- kvæð og lífsglöð og hlakka til að heimsækja land íss og elds, „Carpe Diem“. Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband: Néa-Christine Lemström, Ingå Kustvägen 1199, 10210 Ingå, Finnland. Netfang: christine lemstrom@hotmail.com Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Bæjarbíó | The last wave eftir Peter Weir kl. 20. Fréttir Al-Anon | Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon er opin þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13–16. Blóðbankinn | Blóðbankinn verður með blóðsöfnun við Hyrnuna á morgun kl. 10– 17. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra- styrksnefnd Kópavogs er opin alla þriðju- daga kl. 16–18. Fatamóttaka og úthlutun á sama tíma. Fundir Eineltissamtökin | Fundir eru alla þriðju- daga kl. 20 í húsi Geðhjálpar, Túngötu 7. Gigtarfélag Íslands | Gigtarfélag Íslands stofnar áhugahóp fólks með langvinna verki á morgun, kl. 19.30 á Grand Hóteli, Reykjavík við Sigtún. Áhugahópur GÍ um slitgigt verður með fræðslu- og umræðufund 17. mars kl. 19.30 í húsnæði Gigtarfélagsins, Ármúla 5, ann- arri hæð. Háskólinn í Reykjavík | Málfundafélag Lögréttu stendur fyrir málfundi á morgun kl. 11.45, í stofu 201 í HR. Til umræðu er frumvarp til laga um reykingabann. Barnaspítali Hringsins | Samtök um sára- meðferð á Íslandi, SUMS, halda sinn fyrsta aðalfund, 15. mars, kl. 15.30–19 í Hringssal. Krabbameinsfélagið | Aðalfundur Krabba- meinsfélags Reykjavíkur verður á morgun kl. 20, í húsakynnum félagsins, Skógarhlíð 8. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi | Kynn- ingarfundur verður á Digranesvegi 12 (hús framsóknarfélaganna) í dag, kl. 20. Kynnt dvöl á Hótel Örk í Hveragerði í maí, ferð á Vestfirði í júní og ferð um Eyjafjörð í sept- ember. Fyrirlestrar Háskólinn á Akureyri | Í erindi sínu á Fé- lagsvísindatorgi kl. 12, talar Elísabet Sig- urðardóttir um meginreglur laga um sam- skipti leigusala og leigutaka, ófrávíkjanleg eða ekki og hvað beri að hafa í huga við beitingu þeirra. Einnig reifar hún dóma og úrskurði kærunefndar húsaleigumála. ITC-Fífa | Fundur á morgun kl. 20.15, í sal safnaðarheimilis Hjallakirkju í Álfaheiði 17, Kópavogi. Meðal gesta verður Arnar Tóm- asson sem mun fjalla um klæðaburð kvenna og tískuna í sumar. Skógræktarfélag Íslands | Í dag kl. 20 flyt- ur Jón Geir Pétursson skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Íslands erindið „Austur- Afríka, skógar, náttúra og nýting,“ í Mörk- inni 6. Jón sýnir myndir er hann tók á síð- asta ári frá Úganda, Kenýa, Tansaníu og Kongó. Ókeypis og öllum opið. www.skog.is Námskeið Kópavogsdeild RKÍ | Námskeið um slys á börnum verður hjá Kópavogsdeild RKÍ í dag og 17. mars kl. 19–22. Þátttakendur fræðast um varnir gegn slysum á börnum, orsakir slysa almennt og þroska barna o.fl. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum o.fl. Skráning fyrir 15. mars í síma Myndlist Café Kulture | Mila Pelaez sýnir olíumyndir á Cafe Cultura til 20. mars. FUGL, Félag um gagnrýna myndlist | Eygló Harðardóttir – Innlit – Útlit. Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Odd- geirsdóttir – Mæramerking II. Gallerí Sævars Karls | Magnea Ásmunds- dóttir – „Augnablikið mitt! Innsetning unn- inn með blandaðri tækni. Gallerí Tukt | Ljós- og stuttmyndir nem- enda í fornámsdeild Myndlistarskólans í Reykjavík. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól- stafir. Hrafnista, Hafnarfirði | Steinlaug Sig- urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í Menningarsal, 1.h. Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir – form, ljós og skuggar. Listasafn ASÍ | Kristín Sigfríður Garð- arsdóttir – Handleikur. Sigrid Valtingojer – Hörund Jarðar. Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930– 1945 og Rúrí – Archive – endangered waters. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða- ljósmyndarafélag Íslands – Mynd ársins 2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram- andi heimur á neðri hæð. Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jónsson og samtímamenn. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían – Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir – Myndheimur/Visual World. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest- ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI. Samvinnu- verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum Kjarvals í austursal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Norræna húsið | Maya Petersen Overgärd – Hinsti staðurinn. Thorvaldsen Bar | Ásta Ólafsdóttir – Hug- arheimur Ástu. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Handritin, Þjóð- minjasafnið – Svona var það, Heimastjórn- in 1904. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–1964) er skáld mánaðarins en í ár eru 110 ár liðin frá fæðingu hans. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn- ing og samfélag í 1.200 ár. Ómur – Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós- myndasýningarnar Í Vesturheimi 1955 ljós- myndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Riccione – ljósmyndir úr fórum Manfroni- bræðra. Opið kl. 11–17. Kvikmyndir Goethe-Zentrum | Fickende Fische. Leik- stjóri Almut Getto. Þýsk verðlaunamynd frá 2002, á þýsku með enskum texta kl. 20.Nærfærnisleg ástarsaga með drjúgum húmor og sannfærandi aðalleikurum. Að- gangur ókeypis. 5546626 eða á kopavogur@redcross.is. Staðlaráð Íslands | Námskeið um örugga meðferð upplýsinga, stjórnun upplýsinga- öryggis samkvæmt ISO 17799. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir áherslum og uppbyggingu staðl- anna ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST BS 7799–2 og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun upplýsingaöryggis og mótun örygg- isstefnu. Útivist Ferðafélagið Útivist | Fyrirlestur um of- kælingu fimmtud. 17. mars kl. 20, á skrif- stofu Útivistar, Laugavegi 178. Fyrirlesari er Anna Sigríður Vernharðsdóttir félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi og alvön til fjalla. Verð 500 kr. Deildarfundur jeppadeildar verður 17. mars kl. 20 hjá Arctic Trucks, Nýbýlavegi 2, Kópavogi. Kynning á næstu ferðum Útivist- ar. Freyr Jónsson hjá Arctic Trucks gefur ráð um hvernig útbúa skuli bílinn til vetr- arferða, hvað skuli taka með af búnaði o.fl. Ferð til Ólafsfjarðar 24.–28. mars. Farið verður á Reykjaheiði, Burstarbrekkudal, upp á Lágheiði og Skeggjabrekkudal. Brottför ákveðin síðar, farið á einkabílum. Verð 16.200/18.500 kr. Fararstjóri Reynir Þór Sigurðsson. Farið verður á Esjufjöll í Vatnajökli 24.–28. mars. Brottför á eigin bílum frá skrifstofu Útivistar kl. 18. Verð 13.500/15.800 kr. Far- arstjóri Sylvía Hrönn Kristjánsdóttir. Laugardalurinn | Stafgöngunámskeið í Laugardal kl. 17.30. Skráning og nánari upplýsingar er á www.stafganga.is og gsm: 6168595 og 6943471. 80 ÁRA afmæli. Í dag, þriðjudaginn 15. mars, eru áttræðar tvíburasysturnarMargrét og Guðbjörg Ámundadætur, Minna-Núpi, Gnúpverjahreppi. Þær verða að heiman. Árnaðheilla dagbók@mbl.is                       Íslandsmótið. Norður ♠D5 ♥Á10982 S/NS ♦G83 ♣ÁG4 Vestur Austur ♠876 ♠G4 ♥6543 ♥G7 ♦642 ♦D1075 ♣963 ♣KD752 Suður ♠ÁK10932 ♥KD ♦ÁK9 ♣108 Undanúrslit Íslandsmótsins í sveita- keppni fóru fram um helgina í húsa- kynnum BSÍ við Síðumúla, en fjörutíu sveitir kepptu þar um réttinn til að spila til úrslita á Hótel Loftleiðum um páskana. Spilað var í fjórum riðlum og komust þrjár efstu sveitirnar úr hverj- um riðli áfram í úrslitakeppnina, eða tólf sveitir í allt. Slemmuspilin eru dýrmæt í sveita- keppni og þau voru mörg athyglisverð um helgina. Dæmið að ofan er frá fyrstu umferð. Sex spaðar var algeng- asti samningurinn, en allmörg pör reyndu alslemmu, sjö spaða eða sjö grönd. Sjö spaðar er hræðilegur samningur með laufi út vegna stíflunnar í hjarta- litnum. Fyrst verður sagnhafi að taka trompin og yfirdrepa svo annað hjarta- mannspilið í þeirri von að gosinn falli annar. Hvað hann gerir. Sjö grönd er betra spil, því þá má hjartagosinn koma þriðji. Jafnvel hálfslemma í spaða er óþægileg ef vestur hittir á laufið út. Sagnhafi gerir sennilega best í því að dúkka slaginn til austurs til að halda sambandinu við blindan opnu, en á þá á hættu að fara niður ef gosinn er fjórði í trompi. En í þetta sinn lá allt til sókn- arinnar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.