Morgunblaðið - 25.04.2005, Blaðsíða 30
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÉG SEM HÉLT
AÐ MINN TÍMI
VÆRI KOMINN...
EN ÉG HAFÐI
RANGT FYRIR MÉR,
EINS OG VENJULEGA
Ó,
JÓN...
LÍFIÐ ER EINS OG DYR MEÐ
GLERHURÐ OG JÓN GLEYMIR
ALLTAF AÐ OPNA ÁÐUR EN HANN
REYNIR AÐ LABBA Í GEGN
Æ, NEI! ÞAÐ
ER BÚIÐ AÐ
TJÓÐRA MIG
KANNSKI ER ÞESSI STAÐUR,
SEM ÉG ER Á, MEÐ SVONA
STRÖNG LÖG UM AÐ HUNDAR
ÞURFI ALLTAF AÐ VERA Í ÓL...
HVERNIG KEMST ÉG HEIM?
ÞAÐ ERU SVO MARGIR SEM
MUNU SAKNA MÍN...
ER ENGINN SEM GETUR
BJARGAÐ MÉR?
KALVIN, KOMDU. VIÐ ERUM
AÐ FARA ÚT Í BÚÐ MÁ
HOBBES
KOMA
MEÐ?
NEI, HANN
VERÐUR HEIM EN ÉG VIL
AÐ HANN
KOMI MEÐ!!
EF MAÐUR FINNUR
ENGIN RÖK ÞÁ TALAR
MAÐUR BARA HÆRRA
Svínið mitt
© DARGAUD
ERTU AÐ SEGJA MÉR
AÐ STÆRÐFRÆÐI-
KENNARINN HAFI
REFSAÐI YKKUR
AFTUR
JÁ, ÞAÐ VAR VEGNA
ÞESS AÐ ÉG VISSI EKKI
SVARIÐ OG KÍKTI HJÁ
GULLA
ÞETTA ER
EKKI SANN-
GJARNT
SVONA ER ÞAÐ ÞEGAR MAÐUR
SVINDLAR Í PRÓFI
ÞAÐ ER RÉTTLÁTT AÐ
HONUM SKULI LÍKA
HAFA VERIÐ REFSAÐ
ÓSANNGJARNT
RÉTTLÆTI
MÁ ÉG SJÁ PRÓFIN YKKAR?
ELSKAN, ÞAÐ
ER BÚIÐ AÐ
REFSA ÞEIM
ÉG SKIL
EKKI
ALVEG...
HVAÐ VAR
MÁLIÐ?
ÞAU ÁTTU AÐ REIKNA ÚT HVAÐ ÞAÐ
TÆKI LANGAN TÍMA AÐ FYLLA BAÐKAR
EF ÞAÐ LEKUR ÚR ÞVÍ EINN LÍTRI Á KOR-
TERI EN 1 OG 1/2 LÍTER RENNUR ÚR
KRANANUM Á KORTERI
OG HVAÐ?
ÞETTA
ER
FÁRÁNLEGT!
ÞAU SKRIFUÐU BÆÐI
SÖMU TÖLUNA
5555223!
HVAÐA NÚMER
ER ÞETTA
EIGINLEGA?
ÉG VEIT EKKI
HVAÐAN ÞAU
FENGU ÞAÐ?
ÞETTA ER
NÚMERIÐ HJÁ
FRÆNDA HANS
GULLA
HANN ER MJÖG
GÓÐUR PÍPARI!
Dagbók
Í dag er mánudagur 25. apríl, 115. dagur ársins 2005
UndirbúningurListahátíðar er
nú í fullum gangi og
Víkverji dagsins bíður
spenntur eftir því að
njóta þess sem boðið
verður upp á. Hann er
að vísu ekki sérlega
áhugasamur um
myndlist, sem honum
skilst að verði í há-
sætinu að þessu sinni.
En margt fleira verð-
ur á dagskránni.
Allt gott um það en
nú vill Víkverji koma
að umkvörtun. Hann
fór ásamt vini sínum í
Hallgrímskirkju í fyrra til að hlusta
á rússnesku munkana við Kirkju
heilags Basils. Ekki sviku þeir,
þetta var heillandi upplifun og
áreiðanlega ógleymanleg öllum í
salnum. En reyndir tónleikagestir
vita að ætli þeir sér að ná í gott sæti
í kirkjunni þegar svo þekktir lista-
menn eru á ferð er nauðsynlegt að
koma vel fyrir tímann. Ekki spillir
að geta séð listamennina auk þess
að heyra vel í þeim. Þess vegna fóru
Víkverji og félagi hans á staðinn
rösklega fjögur en tónleikarnir hóf-
ust klukkan fimm.
Ekki dugði þessi forsjálni. Fjöl-
mörg sæti á besta stað voru nefni-
lega frátekin handa boðsgestum.
Kannski er ekkert við
því að segja þótt
stjórn Listahátíðar
ákveði að heiðra ein-
hverja með boðs-
miðum en fyrr má nú
rota en dauðrota!
Fyrr á öldum voru
alltaf frátekin sæti í
kirkjum handa yfir-
stéttinni en vonandi er
sá siður nú aflagður
þótt ef til vill sé gerð
undantekning með
þjóðhöfðingja.
Fólk sem fær
ókeypis miða hlýtur
að geta komið
snemma eins og aðrir til að klófesta
góð sæti. Ef ekki er einfaldast að
efna til sérstakra tónleika fyrir alla
heiðursgestina.
x x x
Ferðaþjónusta er löngu orðin einaf mikilvægustu atvinnugrein-
um landsins. Nú segir fólk í ferða-
þjónustu Víkverja að hátt gengi
krónunnar ógni greininni enda þótt
erlendir ferðamenn hafi aldrei verið
fleiri. Meira að segja olíulandið
Noregur er að verða ódýrari
áfangastaður en Ísland. Er ekki
ljóst að stofna þarf sérstakt ferða-
málaráðuneyti til að tryggja þessari
grein eins góða umgjörð og unnt er?
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
New Orleans | Djasshátíðin í vöggu djassins, New Orleans, er í algleymingi
þessa dagana. Meðal flytjenda sem komu fram á Acura-sviðinu um helgina
var gamla kempan James Taylor sem hafði gítarinn meðferðis. Hátíðinni lýk-
ur 1. maí næstkomandi.
Reuters
Djassað í New Orleans
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn. Drottinn, bjarg mitt og vígi og
frelsari minn. (Sálm. 18, 1.–2.)