Morgunblaðið - 25.04.2005, Page 36
Reuters
Emile Griffith, sexfaldur heimsmeistari í boxi, lenti í þeim harmleik að
valda dauða keppinautar síns, Benny „The Kid“ Parel, eftir að Parel egndi
hann með ásökunum um samkynhneigð, sem þá þótti hin versta hneisa.
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – IIFF
Í eldhringnum
(Ring of Fire: The Emile Griffith Story)
Heimildarmynd. Leikstjóri: Ron Berger
og Dan Kloris. Fram koma m.a. Emile
Griffith, Jimmy Breslin, Benny „Kid“
Parel. 87 mín. Bandaríkin. 2005.
HÉR segir frá harmleiknum þegar
fyrsta banahöggið var greitt í beinni
sjónvarpsútsendingu. Það gerðist ár-
ið 1962, í úrslitakeppni um heims-
meistaratitilinn í veltivigt í hnefaleik-
um. Beinar útsendingar á íþróttinni
voru þá orðnar feikivinsælar á ABC
sjónvarpsstöðinni, en atburðurinn
varð til þess að þeim var hætt um ára-
bil.
Keppnin stóð á milli þáverandi
heimsmeistara, Bennys „Kid“ Parel,
og Emiles Griffith, tveggja ólíkra,
þeldökkra boxara. Það hafði kvisast
út að Griffith væri samkynhneigður,
slíkt orðspor eitt saman var yfrið nóg
til að leggja líf manna í rúst í þröng-
sýninni og fordómunum sem ríktu
fyrir fjörutíu árum. Parel baunaði
kynhneigðinni á andstæðing sinn fyr-
ir keppnina og hvort sem því var um
að kenna eður ei, þá gekk prúðmennið
Griffith berserksgang í hringnum og
linnti ekki látum fyrr en hann hafði
gengið frá Parel. Sú hörmulega stað-
reynd kom fljótlega í ljós að það var
til frambúðar, Parel komst aldrei til
meðvitundar og lést 10 dögum síðar.
Vitaskuld var um slys að ræða og
hafði Griffith margoft unnið andstæð-
inga sína áður á rothöggi, en það átti
aldrei eftir að henda að hann beitti
þeim oftar í hringnum og ferill hans
fjaraði smám saman út. Í einstaklega
hlýjum lokakafla Ring of Fire, kemur
í ljós að þetta sterkbyggða ljúfmenni
var ein und og náði aldrei að rétta til-
finningalega úr kútnum eftir slaginn
við Parel.
Berger og Kloris hafa sett saman
áhrifamikla og umhugsunarverða
mynd um atburðinn, aðdraganda
hans og eftirhreytur. Áhorfandinn
hverfur aftur á tíma s/h sjónvarpsins,
sýndar eru gamlar fréttamyndir af
keppninni og atburðum tengdum
henni. Rætt við fjölda manna sem
koma við sögu, m.a. Griffith sjálfan,
eiginkonu Parels og son þeirra hjóna
og fjölda manna tengda íþróttinni.
Það er forvitnilegt og færir mann inn í
afmarkaða veröld þegar slaufum
prýddir lýsendur leikjanna, umboðs-
menn, þjálfarar, fréttamenn ofl., rifja
upp harmleikinn sem stendur þeim
enn fyrir hugskotssjónum. Í hópnum
eru ýmsir málsmetandi menn á borð
við rithöfundana Norman Mailer og
Pete Hamill og blaðamanninn Jimmy
Breslin.
„Göfuga“ sjálfsvarnaríþróttin hef-
ur oft beðið hnekki, jafnvel hér heima
þar sem tókst fyrir örfáum árum að
leyfa hana á nýjan leik, liggja menn
örkumlaðir æfilangt af afleiðingum
hennar. Ring of Fire er ekki einungis
vandvirknislega gerð og áhugaverð
harmsaga af dauða og þjáningum
þeirra sem eftir lifðu, heldur er hún
kraftmikil heimild um hætturnar sem
fylgja hnefaleikum.
Sæbjörn Valdimarsson
Banahögg í beinni
útsendingu
36 MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær ævintýrahasarmynd sem líkt hefur verið við
Indiana Jones og James Bond myndirnar.
Toppmyndin í USA
Toppmyndin á Bretlandi - Toppmyndin á Íslandi
Byggð á metsölubók Clive Cussler
H.L. MBL
Ó.H.T Rás 2
Kvikmyndir.is
Vera Drake kl. 5,30
The Motorcycle Diaries kl. 8 - 10.30
Don´t Move kl. 5,30 b.i. 16 ára
Beautiful Boxer kl. 8
Hole in my Heart kl. 10,30 b.i. 16 ára
Beyond the Sea kl. 5,30
Napoleon Dynamite kl. 8
9 Songs kl. 10 b.i. 16 ára
Maria Full of Grace kl. 6 - 8 b.i. 14 ára
The Mother kl. 10,05
Life and Death of Peter Sellers kl.5.40 - 8
Million Dollar Baby kl. 10,20 b.i. 14 ára
Stórkostleg vegamynd sem hefur
farið sigurför um heiminn, fengið lof
gagnrýnenda og fjölda verðlauna.
3
ÓSKARSTILNEFNINGAR
MBL
Ó.H.T Rás 2
Sennilega ein hispurslausasta kvikmynd
sem gerður hefur verið, eftir snillinginn
Michael Winterbottom, um ást, kynlíf og
tónlist. Stranglega bönnuð innan 16 ára og
alls ekki fyrir viðkvæma.
Að sjá gam-anmynd ígleðiborg-inni París
er á við mikið af
kampavíni, það er
líka ódýrara og veld-
ur ekki timbur-
mönnum, og hlátur
er víst enn betri fyrir hjartað en kampavín.
París er ekki öll þar sem hún er séð, ytri glæsi-
leiki og sjarmi og endalausir menningarviðburðir.
Hún er nefnilega líka menningarsafn þar sem ótal
safngripir eru varðveittir og sérstakur dugnaður
við að draga fram safngripina sem eru bíómyndir.
Grínið um enska butlerinn Ruggles, Ruggles of
Red Gap, frá 1935 (á frönsku L’extravagant Mr
Ruggles) með Charles Laughton í aðalhlutverki
er nú sýnt í nokkrum bíóum í borginni, til dæmis í
Action Christine, á rue Christine, rétt við St
Michel-metróstöðina.
Allir ættu að sjá þetta sígilda meistaraverk með
Charles Laughton í aðalhlutverki, svo vel gerð er
myndin, vel uppbyggð, vel leikin, og spreng-
hlægileg. Það er meiraðsegja innihald í myndinni.
Enskur lord tapar butlernum sínum í póker svo hann
er nauðbeygður til að skipta um eigendur og flytja
með þeim til Ameríku. Þar er viðmót manna við hann
svo ólíkt því sem hann á að venjast að hann skiptir um
sjálfsmynd.
Eitt af því góða við myndina er það að jafntgrín er gert að öllum, grófgerðum og velmeinandi Ameríkönum, yfirfínum Eng-lendingum – og leikur Charles Laughton
er ólýsanlega góður. Hann leikur að vísu mest með
augunum, hvernig sem hann fer að því. Snillingurinn
Charles Laughton er best þekktur fyrir leik sinn í
hryllingsmyndum, en hann leikstýrði aðeins einni bíó-
mynd. Allt bíófólk
þekkir The Night of
the Hunter, með Ro-
bert Mitchum, mynd
sem er alveg sér á báti
og skreppur undan
skilgreiningum. Hún
fjallar um lítil systkin
á flótta undan predik-
ara sem er morðingi,
og hún er allt í senn,
djúp, nöturleg og hlý.
En skemmster frá þvíað segja aðbíókvöldið
með Ruggles er eitt
hið fullkomnasta frá
upphafi, því síðan var
haldið á veitingastað-
inn Les Dessous de la
Robe, rétt við Chatel-
et. Strikið tekið fram
með Signu, í Louvre átt, og upp götu númer tvö til
hægri, rue Bertin Poirée. Ég fann þennan dýrðarstað
sem er í eldgömlu húsi, látlaus og skemmtilegur, fyrir
einu og hálfu ári. Hann var þá tiltölulega óuppgötv-
aður og verðið með því lægsta sem gerist í París. Nú
hefur það hækkað og meira um að vera í húsinu,
komnir þrír þjónar í staðinn fyrir einn, til dæmis. Við-
skiptavinir eru aðallega fólk úr hverfinu, og viðmót
mjög elskulegt. Matseðillinn er krítaður og því sí-
breytilegur. Fiskur dagsins var glænýr upp úr sjón-
um og mjög góður. Þarna er líka hægt að fá hádeg-
ismatseðil milli tólf og þrjú, á átján evrur, þrjá rétti.
Einn af aðalréttunum er hið illræmda kálfshöfuð, la
tete de veau, sem ég held að væri fullkominn fyrir
sviðaætur ofan af Íslandi.
B í ó k v ö l d í P a r í s
Gamanmynd
í gleðiborginni
HVÍT-RÚSSNESKA söngkonan
Anjelica Agurbash er komin hingað
til lands í því skyni að kynna fram-
lag þjóðar sinnar í Evróvisjón-
keppninni. Mun hún í dag hitta ís-
lenska blaða- og fréttamenn og
flytja lagið með aðstoð dansara og
söngvara.
Anjelica er fædd í Minsk árið
1970. Árið 1988 bar hún sigur úr
býtum í fyrstu fegurðarsamkeppni
Hvíta-Rússlands en þá stundaði hún
nám í Listaháskóla Hvíta-Rúss-
lands. Þá hefur hún átt blómlegan
feril undanfarin fimmtán ár, bæði
sem söng- og leikkona. Hún býr nú í
Moskvu ásamt eiginmanni sínum og
þremur börnum, en segist þó alltaf
leita til Hvíta-Rússlands eftir orku
og innblástri.
Agurbash
kynnir fram-
lag Hvíta-
Rússlands