Tíminn - 09.03.1974, Síða 3
Laugardagur 9. marz 1974.
TÍMINN
3
EKKI DAGBLÖÐ
í HÁLFAN MÁNUÐ
B.G.—Neskaupstað — Oddsskarð
hefur vcrið lokað frá áramótum,
en mjög mikil samgöngubót hefur
verið af snjóbflnum, sem hefur
fastar áætlunarferðir þrisvar i
viku. Þörfin fyrir flutninga hefur
hins vegar verið svo mikil, að
bfllinn hefur verið i ferðum yfir
skarðið nánast hvern dag, siðan
hann kom.Póstur berst þvi reglu-
lega, og eru jafnvel dæmi þess, að
bréf berast daginn eftir að þau
eru póstlögð i Reykjavik.
Enga borgun
fyrir
nefndarstörfin!
BH—Reykjavik — Neytenda-
málanefnd hefur aftur skotið upp
kollinum hjá borgaryfirvöldum,
að þessu sinni i borgarráði sl.
þriðjudag. Nú gerðist það, að
borgarráð samþykkti að setja
nefndina á stofn, og var borgar-
lögmanni falið að gera tillögu að
reglum fyrir ■ nefndina. Albert
Guðmundsson hafði þann fyrir-
vara á atkvæði sinu, að nefndin
skyldi vera ólaunuð.
Það vekur hins vegar gremju
manna hér á staðnum að hingað
hafa dagblöðin ekki borizt í
hálfan mánuð, þrátt fyrir þessar
stöðugu samgöngur. Vita menn
ekki hvað veldur og óánægjan vex
dag frá degi, eins og gefur að
skilja, og hafa menn haft orð á
þvi, að til einskis sé að vera
áskrifendur að blöðunum.
Bræðslu er að mestu lokið á
loðnunni, sem hingað hefur
borizt, sem er um 30 þús. tonn,
eða 10 þús. tonnum minna en á
allri vertiðinni i fyrra. Skut-
togarinn Barði landaði 75 tonnum
á fimmtudag.
Veðrið hefur verið mjög rysjótt
hér undanfarinn hálfan mánuð,
með stormi og regni, enda er
snjórinn að mestu horfinn úr
byggð.
Heiðursfélagar Krabbameinsfélags fslands. Frá vinstri: Alfreð
Gíslason, Gisli Sigurbjörnsson og Bjarni Bjarnason.
Krabbameinsfélag
Reykjavíkur 25 óra
806
innstæðulausar:
27,2 milljón-
ir á 1 degi
—hs—Rvik. — Enn aukast inni-
stæðulausar ávisanir, ekki aðeins
að fjölda, heldur einnig að
upphæð. Seðlabankinn gerði i gær
skyndikönnun á þvi hve margar
innistæðulausar ávisanir hefðu
borizt á fimmtudag, og unnu fjöl-
margir að þeirri könnun, sem tók
langan tima.
Að sögn Bjarna Kjartanssonar,
deildarstjóra i ávisanaskipta-
deild bankans, bárust hvorki
meira né minna en 806 innistæðu-
lausar ávisanir á fimmtudag, að
upphæð 27.2 milljónir. Nemur sú
upphæð 2,87% af heildarveltu
dagsins.
Sams konar könnun var gerð i
október á siðasta ári, og voru
ávisanirnar þá 615 að upphæð 10.1
milljón. Sagði Bjarni að lokum,
að allt of mikil brögð væru að
þessu.
Gsal—Reykjavik — i gær, 8-marz
varð Krabbameinsfélag
Reykjavikur 25 ára. Stjórn
félagsins tók þá ákvörðun að
minnast þessa merka afmælis
með þvi að boða til fundar i Nor-
ræna-húsinu i gær og kynna þar
hin ýmsu störf félagsins i
myndum og máli.
A fundinum fluttu eftirtaldir
menn ávörp: Ólafur Ólafsson,
landlæknir, Magnús Kjartansson,
heildbrigðis- og iðnaðarráðherra,
Jón Sigurðsson, borgarlæknir,
Gunnlaugur Snædal, formaður
Krabbameinsfélags Reykjavikur
og Ólafur Bjarnason formaður
Krabbameinsfélags Islands.
Krabbameinsfélag
Reykjavikur var stofnað . 8. marz
1949. Hugmyndina að félagsstofn-
uninni átti Gisli Sigurbjörnsson
forstjóri Elliheimilisins Grundar,
en Alfreð Gislason læknir beitti
sér fyrir þvi að Læknafélag
Reykjavikur boðaði til fundar til
að stofna sérstakt félag, er hefði
baráttuna gegn krabbameini að
markmiði. í fyrstu stjórn félags-
ins, sem hlaut nafnið Krabba-
meinsfélag Reykjavikur, voru
kosnir: Niels Dungal, formaður,
Alfreð Gislason varaformaður,
RÍKIÐ TAPAR ENGU
— því að það hlýtur allan hagnað
af fríhöfninni
— HAGNAÐUR af frihöfninni á
Keflavikurflugvelli rennur i rikis-
sjóð, sagði Sigurjón Guðbjörns-
son við Timann i gær, og þess
vegna er ekki rétt, að rfkissjóður
skaðist á sölu úra og skartgripa
þar. Tollur á úrum er 35% og
söluskattur 13%, en álagningin i
frihöfninni er meiri en þessu
nemur.
Af nefna 15-20 milljónir króna i
þessu sambandi kvað Sigurjón
mjög fjarri lagi, eins og raunar
var tekið fram i fréttagrein Tim-
ans i gær. En þvi mætti bæta við,
að þótt tslendingar keyptu um
40% úra, sem seljast i frihöfninni,
myndu þau ekki vera nema 25%
að verðmæti til, þvi að
Islendingar keyptu yfirleitt ódýr-
ari úr en útlendingar. Hann
kvaðst vilja leiðrétta það, sem
hann hefði sagt i ógáti i gær, að
Islendingar væru ekki 25%,
heldur 15% þeirra, sem um
frihöfnina fara.
— Ég hygg, sagði Sigurjón að
úrakaup tslendinga erlendis séu
miklu meiri heldur en hér i
frihöfninni, enda er þar viðast 5%
tollur á úrum og verð þar af
' leiðandi lægra.
Gisli Fr. Petersen ritari og Gisli
Sigurbjörnsson gjaldkeri.
Á aöalfundi félagsins 1952 var
Alfreð Gislason kosinn formaður,
en Niels P. Dungal gerðist for-
maður Krabbameinsfélags
tslands, sem þá var nýstofnað,
eftir tillögu Alfreðs Gislasonar. t
stjórnartið Alfreðs var komið á
leitarstöð fyrir krabbamein.
Árið 1960 urðu formannaskipti
hjá félaginu er Alfreð Gislason lét
af þvi starfi eftir eigin ósk. Við
formennsku i félaginu tók þá
Bjarni Bjarnason læknir og
gegndi þvi starfi til ársins 1966 er
hann var kosinn formaður
Krabbameinsfélags Islands.
Hann beitti sér mjög fyrir aukinni
fræðslu fyrir almenning, enda var
Krabbameinsfélagi Reykjavikur
falið það verkefni i stjórnartið
Bjarna að sjá um fræðsluútgáfu
og fræðslufundi um land allt, auk
fjáröflunar.
Á afmælisfundinum i gær, voru
þrir menn gerðir að heiðurs-
félögum, fyrir starf i þágu félags-
ins. Það voru þeir Gisli Sigur-
björnsson, forstjóri, Alfreð Gisla-
son, læknir og Bjarni Bjarnason
læknir. Eiga þeir það allir sam-
eiginlegt, að hafa starfað mikið
og vel hjá félaginu.
Núverandi stjórn félagsins
skipa þau dr. Gunnlaugur
Snædal, sem er formaður, Alda
Halldórsdóttir hjúkrunarkona
ritari, Tómas Árni Jónasson
læknir er gjaldkeri og fram-
kvæmdastjóri er Jón Oddgeir
Jónsson.
Almennur fundur um
herstöðvarmálið
— á vegum stúdentaráðs
SUNNUDAGINN 10. marz 1974
gengst stúdentaráð Háskóla ts-
lands fyrir almennum fundi i
súlnasal Hótel Sögu um her-
stöðvar- og varnarmál islands.
Frummælendur verða þeir
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra, Geir Hallgrimsson.
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Magnús Kjartansson iðnaðar-
ráðherra. Þá verður og boðið sér-
staklega ýmsum félagasamtök-
um og einstaklingum, en að öðru
leyti er fundurinn öllum opinn og
öllum heimil þátttaka i um-
ræðum.
Frétt úr Stykkishólmi leiðrétt
FRÉTT min af námskeiði og
spilakvöldi hefur orðið illilega
fyrir vélarbilun og þarfnast leið-
réttingar.
I eftirfarandi setningu vantaði
„Ekki”:
Einhver sagði meira að segja,
að það hefði ekki verið gert ,,i tið
elztu manna”, en á Hólminum
verður fólk hundrað ára og
jafnvel eldra.
Þá er rangt, að Kristinn B. j
Gislason sé form. Framsóknar-
félags Reykjavikur, hann er
formaöur Framsóknarfélags
Stykkishólms.
Ennfremur var i handriti talað
um Hótelen ekki „gistihús”, eins
og gert er i þessari brengluðu
frétt. Gistihús er venjulega
þannig, að lita má á það sem
næsta stig fyrir ofan sæluhús, en
Hótelið þeirra i Stykkishólmi —
fullgert — eitt glæsilegasta hús
sinnar tegundar á landinu. —
K.Sn.
HLJÓAASVEIT TÓNLISTARSKÓLANS
Hljómsveit tónlistarskólans efnir til hljómleika f háskóiabiói I dag, og
hefjast þeir klukkan hálf-þrjú. Myndin er af stjórnenduin og ein-
leikurum: Birni Ólafssyni, Hllf Sigurjónsdóttur, Þorsteini Haukssyni
og Gunnari Egilson.
Kvöld-vaka
— Norræna félagsins í Kópavogi
NORRÆNA félagið i Kópavogi
efnir til kvöldvöku sunnudaginn
10. marz n.k. kl. 20.30 i Félags-
heimili Kópavogs 2. hæð.
Þar leika tveir nemendur úr
Tónlistarskóla Kópavogs menú-
etta eftir Telemann, þeir
Sigurður Ármannsson og Garðar
Rögnvaldsson. Minnzt verður 11
hundruð ára afmælis tslands-
byggðar meö samfelldri dagskrá
um fiskveiðar og sjós’ókn hér-
lendis. Þátturinn nefnist: Frá
Eyrarbakka og út i Vog er svo
mældur vegur, sem Bjarni Ólafs-
son, menntaskólakennari hefur
tekið saman. Tveir norrænir
visnasöngvarar, Daninn Sören
Ejerskov og Sture Ekholm, sem
er finnskur, leika fyrir fjöldasöng
og kynna auk þess norræna
söngvaa sina. Að lokum verður
sýnd kvikmynd um sjósókn
tslendinga.
Furðuleg afstaða
Stjórnarfrum varpið og
samkomulagið við verkalýðs-
hreyfinguna um skattkerfis-
breytinguna var til umræðu á
Alþingi i gær.
Stjórnarandstaðan segist
ætla að fella frumvarpið, og
um leið ógilda þá heildar-
kjarasamninga, sem gerðir
hafa verið um vinnufrið i land-
inu i tvö ár. Forystumenn
stjórnarandstöðunnar hika
ekki við að bera brigður á út-
reikninga, sem Jón Sigurðsson
hagrannsóknastjóri hefur gert
um áhrif 5 prósentustiga i
söluskatti á tekjur rikissjóðs á
þessu ári, en þau eiga að koma
i staðinn fyrir tekjuskatts-
lækkunina. Þessir útreikning-
ar eru yfirfarnir af fulltrúum
verka lýðsh rey finga rin na r og
staðfestir af þeim. Þessir út-
reikningar voru miðaðir við að
söluskattshækkunin tæki gildi
1. marz, og kom þá i Ijós, að af
söluskattshækkuninni myndi
ekki koma inn i rikissjóð nema
2.900 milljónir, en tekjutap
rikissjóðs óg útgjöld hans
vegna greiðslna til hinna
lægsta launuðu munu ncma á
þessu ári samtals 3.250 mill-
jónum króna. Hallar þvi á
rikissjóð i þessum skiptum.
Við það er svo að bæta, að
staða rikissjóös i þessu máli
liefur versnað miðað við þessa
útreikninga, þvi nú er kominn
9. marz, og söluskattshækkun-
in getur ekki tekið gildi fyrr en
i fyrsta lagi 15. marz. Hefur
rikissjóður þvi þegar tapað
tugmilljóna fúlgum miðað við
útreikningana. Mikið kaupæði
hefur rikl síðan samkomulag-
iö um tekjuskattslækkun og
söluskattshækkun var undir-
ritað af verkalýðshreyfingu
og rikisstjórn. Það þýöir, að
minna verður um vörukaup
cftir söluskattshækkunina en
ella hefði verið, ef hún hefði
getað tekið gildi með stuttum
fyrirvara. Mun það þvi enn
draga úr tekjuvonum rikis-
sjóðs af söluskattshækkuninni,
og með öðrum orðum sagt
verða launþegum hagstæðari
en þeir útreikningar, sem fvr-
ir liggja miðað við I. rnarz
Ótvíræðir
hagsmunir
launþega
Samkvæmt þeim útreikn-
ingum batnar staða launþega
varöandi heildarskattheimtu
sem svarar 2—4%., Ástæða til
þess cr sú, að hluti af sölu-
skattshækkuninni lendir ekki
á útgjöldum heimilanna held-
ur á atvinnurekstrinum i land-
inu, og kemur þessi skatt-
breyting í rauninni fram sem
viðbót við þær kjarabætur,
sem launþegar sömdu um við
atvinnurckendur i kjarasamn-
ingunum.
1 Furðurlegast af öllu er þó
það, aö þeir flokkar, sem bar-
izt hafa fyrir þvi i orði siðan
þeir komust i stjórnarand-
stöðu, að teknir verði upp ó-
beinir skattar og beinir skatt-
ar lækkaðir, skuli ætla aö
koma i veg fyrir slikar breyt-
ingar á borði, þegar um slikt
hefur veriö samið milli verka
lýðshreyfingar og rikisstjórn-
ar sem lið i heildarkjara-
samningum.
Fjögur dæmi
i Þjóðviljanum i gær eru
birt 4 dæmi um áhrif tekju-
skattslækkunarinnar. Dæmin
eru þessi:
1. Iljón með 3 börn og kr.
800.000,- i bróttótekjur.
Núverandi kerfi: kr. 80.300,-
i tekjuskatt.
Stjórnarfrum vaVpið: kr.
20.100,- i tekjuskatt
Lækkun kr. 60.200,-
Frh. á bls. 15