Tíminn - 09.03.1974, Side 8
8
TÍMINN
Laugardagur 9. marz 1974.
Laugardagur 9. marz 1974.
TÍMINN
9
HÉRNA sit ég i hægindastól
heima hjá Alfreð Flóka, læt fara
vel um mig og ætla að taka viðtal
við hann, þennan tiltölulega
bliðlynda rómantiker, sem hálfur
bærinn heldur að sé sadisti, á
meðan hinn helmingurinn er
sannfærður um að hann sé
kynóramaður.
„Sadismi?” spyr Flóki. „Hvað
mér finnst um sadisma?”
„Já”, segi ég og itreka
spurninguna. „bú heldur þó ekki
að hann sé eins djöfullegur og fólk
vill vera láta?
„Þegar þú minnist á sadisma”,
segir Flóki eftir nokkra stund,”
þá dettur mér auðvitað i hug
Donatien-Alponso-Franvois de
Sade, hinn guðdómlegi mark-
greifi eins og súrrealistarnir köll-
uðu hann. Virkilega hugljúfur
barna- og unglingabókahöfundur.
Bækur hans eins og t.d. Justine og
120 dagar i Sódómu ættu að vera
skyldulesning fyrir fólk á
fermingaraldri.
De Sade var maðurinn, sem sá i
gegnum hræsni og yfirdrepskap
samtiðar sinnar. Fyrir þessa
glöggsýni varð þessi frjálsborni
andi að dvelja yfir 30 ár i fangels-
um og á geðveikrahælum.
Aðal forréttindi listamanns eru
þau, að hann getur drýgt glæpi á
pappirnum eða á léreftinu, sem
hann annars yrði tukthúsaður
fyrir. Litum t.d. á áhuga ýmissa
listamanna á mörgum pislarvott-
um kristninnar, samanber á heil-
ugum Sebastian. Það er ekki
dýrlingurinn, sem vakið hefur
áhuga þeirra, heldur kvalirnar,
sárin og blóðið.”
Það er hlaupið tómahljóð i hvit-
vinsflöskuna. En eitthvað verða
menn að drekka. Og þvi þá ekki
kaffi? Það er að visu engin sálar-
vökvi, en gerir sitt gagn.
Það er annars undarlegt, hvað
samtið okkar hefur mikið dálæti á
kaffi. Já vel á minnzt, samtiðin.
„Já, samtiðin” segir meistar-
inn og andlitsdrættirnir sýna rót-
gróinn hrylling og meðfæddan
viðbjóð á þvi fyrirbæri.
„Við lifum á timum eindæma
grimmdar, hrottaskapar,
heimsku og múgmennsku. t dag
getur fólk ekki hugsað, glaðzt og
jafnvel ekki eðlað sig nema i hóp.
Samanber húmbúkk eins og koll-
ektive- og grúbbusex.”
Ætli grimmdin hafi nú ekki
verið allbærileg i fyrri tið, skýt ég
inn i eins og fávis kona.
„Jú, en það er stigsmunur á
grimmd samtiðarinnar og for-
tiðarinnar, nefnilega sá, að i
grimmd samtimans vantar alla
póesiu, alla fegurð, allan indí-
vidúelisma. Það er stigsmunur á
þvi að kasta bombum á varnar-
laust fólk, og að tappa blóði af
feitum og sællegum .bóndastelp-
um I Transilvaniu. og baða sig i
blóði þeirra, til að öðlast fegurð
húðarinnar. Það gerði ein yndis-
fögur og bliðlynd aðalsmær i
gamla daga. Yfir þessu er viss
elegans, sem nútimamenn ekki
skilja, heldur rugla þvi saman við
mannvonzku.”
Einu sinni þegar Flóki var að
opna sýningu i Bogasalnum,
kallar hann til blaðamenn. Nema
hvað einn þeirra hefur annað
hvort ekki verið i nógu góðu
skapi, eða þá að maðurinn hefur
verið fifl, nema hvorutveggja til
komi, sem auðvitað er liklegast.
Aö minnsta kosti birti hann
svohljóðandi frétt I blaði sinu.
„Alfreð Flóki opnar sýningu á
klámmyndum i Bogasalnum”.
„Fyrir mér er klám smáborg-
araleg lygi og fölsun,” segir
Flóki, þegar þetta berst i tal.
„Algjör andstæða-erotikur, sem
er fegurð og sannleikur.”
Svo er það mál útrætt.
A undanförnum árum hefur
Flóki verið með annan fótinn i
kóngsins Kaupmannahöfn. Það er
góður og gáfulegur staður,
kannski dulitið kærulausari en
önnur pláss, en það veitir þeim,
sem þar dveljast, vissa velliðan.
Hins vegar hefur mér alltaf
fundizt Reykjavik — eindæma
Flóki upp við nýjasta og frumlegasta sköpunarverk sitt. Tvær tæringarveikar naktar stúikur á leiö til
spurninga i snjókomu.
HÉR ER HIN
EINA SANNA
USTAHÁTÍÐ
leiðinleg, andlaus og yfirfull af
fólki, sem óttast að nágranninn
laumist inn i eldhús að nóttu til
og steli úr isskápnum. Flóki er
mér að visu ekki alveg sammála
varðandi þetta atriði, en þegar ég
bað hann að gera samanburð á
Kaupmannahöfn og Reykjavik,
varð honum að orði.
„Reykjavik er mótuð af of-
stækisfullum boðum og bönnum.
Sjálfsagðir hlutir eins og bjór,
hundahald og konfak með kaffinu
eru forboðnir ávextir. Halda
mætti að sumir menn hefðu aldrei
komizt I snertingu við
menningarstraum.”
LISTAHÁTtÐIN?
„Ég er hin eina sanna
listahátið.” Svona getur litillæti
hjartans tekið á sig furðulega og
hógværa mynd i meðförum
meistara Flóka.
„Hver sé hans aðalinnblásturs-
gjafi?”
„Þó að hrifning min á Renoir sé
takmörkuð, þá tek ég samt undir
orð hans, sem voru á þá leið, að ef
ekki væru til stinn brjóst og
ávalar mjaðmir, heföi hann
aldrei lyft pensli.”
Skyldi Flóki trúa á sjálfan sig,
andskotann eða jafnvel Svein-
björn Beinteinsson? Nei, ,þvi að
„Ég trúi á hina miklu
móðurgyðju, gyðju ástar og
fegurðar, sem er uppspretta alls
lifs, listar, hamingju og aflvaki
allrar jákvæðrar sköpunar.” —
PHL
VIÐ ÞöRFNUMST ÞÍN! — ÞÚ ÞARFNAST OKKAR! — eru slagorðin, seni Siysavarnarféiag tslands
notar í sambandi við happdrættið, sem það er nú að fara af stað með. Um helgina verða miðar seldir um
allt land og er fólk hvatt til að taka vel á móti björgunarmönnunum, sem munu bjóða miöa til sölu. Þeir,
sem ekki rekast á einhvern, sem er að selja miða hér I Reykjavik geta hringt I sima 20360 á milli kl.
13.00-19.00 i dag og þá fá þeir sendan miða um leið. Þessi mynd var tekin I gær er SVFl-menn voru að
selja miða niðri á bryggju, og þar voru undirtektir góðar eins og búast má við aö verði um allt land
næstu daga. (Tlmamynd: Gunnar)
AAálverkasýning á Akureyri:
Sigurður Örlygsson, listmálari
opnar málverkasýningu
Sígurður örlygsson, listmálari,
opnar málverkasýningu I Mynd
smiðjunni á Akureyri, en hún er
tilhúsaá Gránufélagsgötu 9 þar i
bæ.
Sigurður örlygsson er kunnur
ungur málari, sem haldið hefur
margar sýningar, auk þess sem
hann hefur tekið þátt I sam
sýningum. Fyrsta sjálfstæða
sýning hans var i Unuhúsi árið
1971, og árið 1972 sýndi hann
málverk i Norræna húsinu, ásamt
Magnúsi Kjartanssyni. Þá sýndi
hann verk sin ásamt sex öðrum
ungum málurum að Kjarvals-
stöðum árið 1973.
Sýning Sigurðar á Akureyri
mun verða opnuð laugardaginn 9.
marz og verður þá opin yfir helg-
ina. A mánudag , þriðjudag og
miðvikudag verður sýningin
lokuð, þar eð þá er verið að
kenna i húsnæðinu. Siðan opnar
sýningin aftur og verður opin
fram yfir helgi.
Sigurður er sonur Örlygs
Sigurðssonar, listmálara.og konu
hans.Unnar Hjartadóttur.og var
Sigurður Guðmundsson skóla-
meistari á Akureyri þvi afi hans.
Á sýningunni verða 20-30 ný
verk, sem listamaðurinn hefur
unnið að á þessu og seinasta ári.
-JG.
Sigurður örlygsson, listmálari
við eitt verka sinna.
f -itr' ** ^ ►** i. 1
i á Jm P\ o* þ 1
SJ—Reykjavik. — í föstudagsblaöinu urðu þau leiðu mistök aö niður féll myndatexti, sem átti aö vera
undir mynd af mönnum i fornmannabúningum. Undir myndinni stóð hinsvegar Innlenda vor- og sumar-
tizkan kynnt! Fornkappar þessir eru frá Egilsstöðum, fulltrúar prjónastofunnar Dyngju h.f. Komu
þeir skcmmtilega á óvart i miðri tizkusýningu við setningu Kaupstefnunnar tslenzkur fatnaður, sem
haldin er að Hótel Loftleiðum þessa dagana en þeir sýndu þunnar lopapeysur og minntust um leið 1100
ára al'mælis Islenzku sauðkindarinnar. Að þessu sinni birtum við mynd af þunnum peysum úr gerviefn-
um, scm einnig eru framleiddar I Dyngju á Egilsstöðum. Myndina tók Gunnar ljósmyndari Timans en
sýningarfólkið er úr flokki Pálinu Jónmundsdóttur.