Tíminn - 14.07.1974, Qupperneq 1
Auglýsingadeild
TÍMANS
Aðalstræti 7
121. tölublað — Sunnudagur 14. júli—58. árgangur
D
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
íslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
1 dag verður mikið um dýröir austur i Skaftafellssýslu, þegar lengsta brú á landinu — sem er
rösklega 900 metra löng — og önnur mannvirki á Skeiðarársandi verða formlcga tekin I notkun og
hringvegur þar meökominn i gagnið. Athöfnin eystra hefst kl. 13.20 og setur sýslumaður Skaft-
fellinga samkomuna. Samgönguráðherra og vegamálastjóri flytja ræöur og skólahljómsveit
Kópavogs leikur. Siðan hefst dagskrá þjóðhátiðarnefndar, en þar tala biskupinn yfir tslandi,
Eysteinn Jónsson og Matthias Jóhannessen. Einnig verður dagskrá um Skeiðarársand fyrr og nú
I samantekt Páls Þorsteinssonar. Er þó fjarri þvl að allt sé talið, sem fram fer þar eystra. —
Myndin, sem hér birtist er af Skeiðarárbrú, lengstu brú landsins.
Timamvnd Gunnar.
Hóspennulínan
norður tilbúin
í órslok '75
hs-Rvik. — Undirbúningur að
framkvæmdum viö háspennu-
linuna norður, byggðalinuna svo-
kölluðu, er nú langt á veg kominn,
þannig að llklega verður byrjað á
að setja niður möstrin i haust. í
sumar hefur verið unnið að þvi að
merkja fyrir möstrunum, en
mælingar fóru fram I fyrra-
suraar.
Ef allar áætlanir standast ætti
að vera hægt að flytja orku eftir
linunni i lok næsta árs, en það fer
eftir ýmsu hvenær fullur orku-
flutningur getur hafizt.
Kostnaðaráætlun liggur ekki enn
fyrir, en er væntanleg mjög fljót-
lega.
Notaðir verða tréstaurar i
möstrin, um 5000 talsins, eða 2500
staurasamstæður, og ef reiknað
er með linunni frá norðurströnd
Hvalfjarðar og norður að Varma-
hlið, er hún um 226 kilómetrar.
Heimili handa
vangefnum
austanlands
SJ-Reykjavik — Akveðið er að
byggja heimili fyrir vangefna i
grennd við Egilsstaði. Ætlunin er
að fyrsti áfangi verði fyrir 24, en
unnt sé að stækka heimilið slðar
eftir þvi scm þörf gerist.
Þrjú skip með brotajdrn til Spánar:
íslenzka brotajárnið hafnar
í spænskum stálbræðslum
— ekki hefur verið tekin ákvörðun um íslenzka stálbræðslu
—hs—Rvik. — Undanfarna daga
hafa verið lestuð milli 10 og 12
hundruö tonn af brotajárni i
danskt skip I Keflavík, og fyrir
skömmu voru lestuð um 420 tonn
af þremur stöðum á Austfjörðum,
Inter-
rail
— ódýr ferðamóti
fyrir ungt fólk
HP.-Reykjavik. — I blaðinu I
dag er viðtal við fjóra unga
menn, sem ferðast hafa um
Evrópu undanfarinn mánuð
á svonefndum Inter-rail-
miðum, sem eru afsláttar-
miðar með járnbrautum
fyrir fólk undir tuttugu og
eins árs aldri. Miðana
keyptu þeir i Kaupmanna-
höfn og kosta þeir aðeins
brot af þeim kostnaði, sem
venjulegt ferðalag heföi haft
i för með sér. Með farfugia-
sklrteini og stúdentakort upp
á vasann ferðuðust þeir um,
bjuggu á unglingagisti-
heimilum og snæddu ódýrt,
og telja sig hafa kostað til
alls þessa um 50 þús krónum,
með fjargjaldi frá islandi.
Sjá nánar á bIs.8-9
Reyðarfirði, Eskifirði og Norð-
firöi. Þriðja skipið er væntanlegt
og byrjar það að lesta brotajárnið
á Raufarhöfn, ef af verður, og fer
siðan á einhverjar fleiri hafnir
fyrir norðan. Það eru Spánverjar
sem kaupa brotajárnið og greiða
1000-1500 krónur fyrir tonnið, en
járnaruslið má vera nánast hvers
kyns sem er. Auk hafnargjalda
greiða kaupendurnir sjálfir út-
skipunarkostnað á hverjum stað.
Eins og fram hefur komið áður,
er verið að kanna möguleika á
verksmiðju hér á landi, sem ynni
úr því brotajárni sem hér fellur
til. Telja fróðir menn nokkuð
góða möguleika á slikri verk-
smiðju, og þvi kemur það svolitið
spánskt fyrir sjónir, þegar verið
er-aðflytja hráefnið úr landi fyrir
svo litið verð, sem raun ber vitni-
Timinn sneri sér til Árna
Snævarr, ráðuneytisstjóra i iðn-
aðarráðuneytinu, með þá fyrir-
spurn, hvernig málin stæðu varð-
andi brotajárnsverksmiðjuna.
Hann sagði, að komin væri til
ráðuneytisins skýrsla frá Fram-
kvæmdastofnuninni, en eftir væri
að taka hana til athugunar og
leggja fyrir ráðherra, áður en
ákvörðunyrði tekin um framhald
málsins. Hann gat ekki að svo
stöddu sagt neitt um innihald
skýrslunnar en sagði að margar
áætlanir hefðu verið gerðar varð-
andi slika verksmiðju á undan-
förnum árum.
Ingimar Sigurðsson var fyrir
svörum i heilbrigðisráðuneytinu,
en þessi hreinsun brotajárns á
landsbyggðinni er gerð fyrir til-
stilli þess og Heilbrigðiseftirlits
rikisins. Ingimar sagði, að þegar
fréttir bárust af þvi, að Akur-
eyringar hafi selt tvo togara úr
landi, fulla af brotajárni, hafi
ráðuneytið leitað fyrir sér um
það, hvort ekki væri unnt að fá er-
lenda kaupendur til að senda skip
til hinna ýmsu hafna landsins og
taka þar brotajárn, sem viðast
Framhald á bls. 17
Styrktarfélag vangefinna á
Austurlandi stendur fyrir þessari
framkvæmd, scm er á frumstigi
enn sem komið er.
Aætlað er að um 1100-1200 van-
gefnir séu á Austurlandi eða öllu
heldur frá Austurlandi, þvi þeir
sem eru á heimilum og stofn-
unum hér syðra eru þarna
meðtaldir. Engin aðstaða er á
Austurlandi til þjálfunar van-
gefinna eða til aðstoðar við
aðstandendur þeirra.
í ráði var að reka sumarbúðir
fyrir vangefna á Fáskrúðsfirði i
sumar en ekki varð úr vegna
ónógrar þátttöku. Tala sumar-
búðagesta hefði orðið að vera 20
manns til að slik starfsemi hefði
reynzt möguleg fjárhagslega. Að
sögn Aðalbjargar Magnúsdóttur
úr stjórn styrktarfélagsins tekur
tima að koma starfsemi sem
þessari i gang, þar sem hún hefur
ekki tiðkazt áður á Austurlandi.
Styrktarfélag vangefinna á
Austurlandi var stofnað 1973 og er
Kristján Gissurarson á Eiðum
formaður þess.
W
Islenzk
heimt
skjöl endur-
frá Noreai
,,Þori ekki að vona, að meðal þeirra sé jarðamat úr Hóla-
biskupsdæmi" — segir Bjarni Vilhjálmsson, þjóðskjalavörður
SJ-ReykjavIk — Það er afskap-
lega fallega gert af Norðmönnum
að afhenda okkur þessi skjöl ótil-
kvaddir, sagði Bjarni Vilhjálms-
son þjóðskjalavörður I viðtali viö
Tímann. En I októberbyrjun mun
Dagfinn Mannsaker rlkisskjala-
vörður Norðmanna koma hingaö
og afhenda þjóðskjalasafninu
skjöl um fslenzk málefni, sem
lentu til Noregs þegar Norðmenn
losnuðu undan Danakonungi 1814.
— Ég vil ekki fullyrða aö þetta
sé stórkostlegur fengur fyrir okk-
ur, en það er mjög gott að fá öll
bréf og skjöl, sem varða islenzk
mál á þessum tima.
— 1 þessum skjölum eru m.a.
gögn um svonefnda striðshjálp
frá 1680, en svo er nefndur skatt-
ur, sem lagður var á danska
þegna og þar með tslendinga eftir
ófarir Dana I striðinu við Svia. ts-
lendingar fengu skatt þennan
lækkaðan um helming frá þvi sem
upphaflega var á þá lagt. Vegna
striðshjálparinnar voru skrifaðar
upp allar jarðir, og til er á þjóð-
skjalasafninu hér skrá yfir Skál-
holtsbiskupsdæmi með mati á
jörðum og nöfnum bænda. Ég
þori ekki að vona að i skjölunum
frá Noregi sé slik skrá, sem okkur
vantar, úr Hólabiskupsdæmi, en
einhver gögn eru i þeim sem lúta
að striðshjálpinni.
— Ég heyrði fyrst um þessi
skjöl I vetur og ég tel að Dagfinn
Mannsöker hafi átt frumkvæði að
þvi að leyfi danska þingsins var
fengið til að afhenda okkur skjöl-
in. t bréfi frá honum fyrir
stuttu sagði, að skjölin væru um
20 hillu sentimetrar að magni til
en meira kynni að bætast við.
Nánar er sagt frá skjölunum
um islenzk málefni, sem aðskilin
hafa verið úr norskum skjölum á
undanförnum árum, i þýddr'
grein i blaðinu i dag. sjá bís.2»