Tíminn - 14.07.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 14. júli 1974.
<2>
Torfæruakstur
í Sovétríkjunum
Islenzkum bileigendum þykir
mörgum hverjum torfæruakst-
ur spennandi og skemmtilegur.
Hér hefur nokkrum sinnum ver-
ib háð jeppa-aksturskeppni, en
sennilega aldrei keppni i tor-
færuakstri stórra vörubifreiða.
Þessar myndir eru frá borginni
Ryazan i Sovétrikjunum, þar
tóku nýlega 160 ökumenn frá 17
borgum þátt i torfærukeppni, og
voru bilarnir, sem ekið var á frá
verksmiðjum, i Gorky og
Moskvu. Keppnisleiðin var 8
kflómetrar, og þurfti viða bæði á
leikni ökumanns og hæfni bils að
halda til þess að ná mætti settu
marki. Þessi keppni i Ryazan
fer fram árlega og hafa ibúar
borgarinnar mjög mikla ánægju
af að fylgjast með keppninni.
GAZ-69 jeppinn, sem er hér á
einni myndinni komst fyrstur i
mark i sinum riðli. Á annarri
mynd sjáið þið stóran trukk á
erfiðri leið og þriðja myndin
sýnir ZIL-130 bilana vera að
leggja upp, og mikinn fjölda
áhorfenda allt um kring.
0 0
4feh 13 dra gamall skdkmeistari
Nöfn georgisku skákkvennanna
Nonu Gaprindashvili, heims-
meistara kvenna og Nonu
Alexandriu, sem er áskorandi
heimsmeistarans eru vel þekkt i
heimi iþróttanna. Nú hefur eitt
nafn bætzt i þennan ágæta hóp.
Það er hin 13 gamla Maja Tsji-
burdanidze, frá Tbilisi, höfuð-
borg Grúsiu. Samkv. ákvörðun
sovézku heilsuræktar- og
iþróttanefndarinnar er aðeins
hægt að öðlazt iþróttameistara-.
titil eftir 14ára aldur, en i tilfelli
Maju var gerð undantekning og
henni veittur skákmeistara-
titillinn og er hún yngsti hand-
hafi þess titils. Maja er fædd i
Kutaisi. Faðir hennar er
búfræðingur og móðir hennar
skólakennari. Þegar Maja var
smápeð gekk hún i skákhring
Ungherjahallarinnar i Kutaisi.
Arið 1971 varð hún Georgiu-
meistari stúlkna og sama ár
fimmta i kvennakeppni lýðveld-
isins. Á siðast liðnu ári vann
Maja bronsverðlaun i Sovét-
keppni skólastúlkna og silfur-
verðlaunin i keppninni um
Sovétbikarinn. Mesti viðburður-
inn i iþróttaævi Maju var, þegar
★
hún tók þátt i hinni hefðbundnu
alþjóðasveitarkeppni
Júgóslaviu og Sovétrikjanna.
Þar lék hún ásamt heimsfræg-
um skákmönnum, eins og
Tigran Petrosjan, Jefim Geller,
Scetozar Gligoric, Boris Ivkov
og fleirum. Nú stundar Maja
nám við iþróttameistaraskól-
ann i Tbilsi. Hún er með þeim
hæstu, þó að hún taki þátt i
mörgum skákkeppnum. Hér
sést Maja tefla fjöltefli.
★
Plast styrkt
með geislun
Þunn plasthúð verður miklu
sterkari, ef hún er geisluð með
rafeindatæk'jum. Er það eðlis-
efnafræðistofnunin i Kiev, sem
hefur komizt að raun um þetta.
Polyetylen, sem þannig er farið
með verður þrisvar sinnum
hitaþolnara. Það hvorki bráðn-
ar né springur i sólskini. í Kiev
er nú hafin tilraunaframleiðsla
og brátt verður þar hafin
iðnaðarframleiðsla. Verða
framleidd 300 tonn af plastefni á
ári.
★