Tíminn - 14.07.1974, Qupperneq 5
Sunnudagur 14. júli 1974.
TÍMINN
5
Sauðfé
d færibandi
,
t Kazakhatan i Sovétrikjunum
er sauðfjárrækt stundUð svo að
segja á færibandi. Þar eru nú 32
milljónir sauðfjár, eða einn
fimmti alls sauðfjár i
Sovétrikjunum. Sauðfjárræktin
er stunduð þar á 526 búum, og er
ætlunin að fjölga sauðfénu i 50
milljónir á næstu 10 árum.
Sauðféð er alið upp i girðingum
eins og þeim, sem hér sjást á
myndinni. Véíar eru notaðar við
að koma fæðunni til fjárins og
einnig að aka burtu skitnum, og
I þessum girðingum er féð, á
meðan er verið að fita það fyrir
slátrun. Árangurinn hefur orðið
mjög góður, að þvi er sagt er, og
nýlega var gerð tilraun með
8200 gemlinga og reyndust þeir
vera 50 kiló að þyngd. Við
sauðfjárræktina vinnur margt
ungt fólk, sem hefur mikinn
áhuga á þessari vinnu, þar sem
vélvæðingin við hana lokkar það
til starfa.
★
Faðir í fjórða sinn!
Roger Vadim, 46 ára gamall,
franskur kvikmyndafram-
leiðandi, verður bráðlega faðir i
4. sinn og i hvert skipti er ný
móðir. Fyrsta konan og móðir
Nathaliu dóttur þeirra er
Annette Stroyberg. Barnsmóðir
nr. 2, án þess að hún giftist hon-
um, var Catherine Deneuve.
Þau eignuðust son saman,
Christian. Siðan giftist hann
Jene Fonda, hinni amerisku, og
eignaðist með henni dótturina
Vanessa. Og nú játar frönsk
milljóneradóttir, Catherine
Schneider, að hún sé komin á 6.
mán. Svar Rogers: „Vona að
það standi heima”.
★
Á framabraut
Brezka kvikmyndaleikkonan
Jenny Hanley, hefur nú öðlazt
gott nafn á alþjóðakvikmynda-
markaðnum. Það byrjaði með
James -Bond mynd, „I
leyniþjónustu hennar há-
tignar”, og eftir þ var
auðvelt aðkomast áfrs nny
er dóttir hins fræga brezka
leikara Jimmy Hanley, sem dó,
fyrir þremur árum, og enn
frægari konu hans Diana
Sheridan. ,,Jú, foreldrar minir
hjálpuðu mér mikið, en fyrir
frama minum hef ég sjálf
unnið”.
Systkini saman d ný
Hann er glaumgosi og
ábyrgðarlaus skemmtanafikinn
karlmaður, en hún er
drottning af Belgiu. Hún heitir
Fabiola, en hann Jaime de Mora
y Aragon. Þau eru systkin.
Fabiola er trúuð, en það er
varla hægt að segja það sama
um bróður hennar, að minnsta
kosti er hann það ekki á yfir-
boröinu. Af öllu þessu hefur
Fabiola helzt sem minnst viljað
við bróður sinn tala, og sem
minnst hafa af honum að segja,
en nú er svo komið, að þau hafa
hitzt aftur. Astæðan er sú að
þau eru bæði farin að eldast, og
þá er ekki nema von, að
systurina langi til þess að sjá
bróður sinn. — Kona min og ég
höfðum ei séð Fabiolu i fjölda-
mörg ár. þar til við hittumst nú
fyrir skömmu. segir Jaime, en
hann er hér með konu sinni á
myndinni. — Þegar við svo
hittumst varð mér svo mikið
um. að við sjálft lá að ég gréti.
Þetta segir þessi harðsviraði
glaumgosi. Kannski hann sé
ekki sem verstur, þegar allt
kemur til alls.
Olíuhreinsunarstöð framleiðir teppi
Græðir peninga á kvenfólki
Olfuhreinsunarstöð við Moskvu
hefur stofnað deild, sem á að
framleiða mjög óvanalega
framleiðslu af sliku fyrirtæki að
vera — nefnilega teppi.
Skýringin er sú, að hjá öllum
oliuhreinsunarstöðvum fellur til
mikið af propylengasi. Með sér-
stökum aðferðum er hægt að
breyta gasinu i polypropylen-
korn, en úr þeim má búa til
mjög sterkan þráð.
Þessi nýja verksmiðjudeild
mun geta framleitt 25 þúsund
tonn af propylenþræði á ári en
úr þvi magni má búa til 10 mill-
jónir fermetra af gólfteppum.
Teppin verða i mörgum litum og
mjög sterk. Auk þess granda
þeim hvorki mölur né raki.
Propylenþræði má ennfremur
nota til að framleiða kaðla, rör.
hreinlætistæki o.fl.
George Best græddi lengi vel
peninga á þvi að spila fótbolta.
Nú er hann hættur knattspyrn-
unni fyrir löngu, og þvi verður
hann að fina sér aðra fjár-
öflunarleið. Nýjasta aðferðin
hjá honum til þess að afla sér
fjár er að skrifa greinar um
kvenfólkið, sem hann hefur átt
vingott við. Greinaflokkurinn á
að heita: Stúlkurnar minar eitt
þúsund, og sagt er, að fyrir
hverja grein fái Best 300.000
krónur, eða þar um bil. 1
þessum greinaflokki er meðal
annars talaðum Siv Hedeby, og
þar segir: Hún var yndislega
sólbrennd og með falleg blá
augu. Og svo er sagt frá öllum
hinum 999 og hugsið ykkur, að
120 þúsund nýjar íbúðir í Moskvu
Á hverju ári bætast á milli
100.000 og 120.000 ibúðir i ibúða-
fjölda Moskvu. Á þrem árum
hafa verið byggðar jafnmargar
karlinn skuli geta haldið
reikning yfir þær allar. Sá er
ekkert blávatn.
ibúðir og voru i Moskvu árið
1917. Húsnæöismál i sovézku
höfuðborginni batna óðfluga.