Tíminn - 14.07.1974, Qupperneq 9
Sunnudagur 14. júll 1974.
TÍMINN
9
vögnum. Einnig er selt snarl af
matartrillum, sem menn ganga
með um lestina, likt og vinvagn i i
flugvélum, en allt er þetta fok-
dýrt. —
— Við vorum forsjúlir, að
kaupa okkur nesti, segir Óiafur
og við höldum þvi fram, að við sé-
um búnir að innbyrða anzi mikið
af brauði með lifrarkæfu, þennan
tima, sem við vorum á ferðinni.
Þegar hér er komið sögu hefst
löng uppptalning staðarheita, er
þeir félagar heimsóttu á ferð
sinni. Koma þar fyrir fræg nöfn
eins og Hamborg, Salzburg, Vin,
Flórens, Róm og margir fleiri
voru þeir, staðirnir, er þeir heim-
sóttu. Á ferðinni höfðu þeir allná-
kvæmt skipulag, þ.e. þeir skiptu
með sér að sinna hlutverki farar-
stjóra. Einn átti sem sagt að vita
meira um Sviss og Austurriki en
hinir og miðlaði þá fróðleik og
valdi þá staði, er voru heimsóttir.
Töldu þeir félagar, að þetta fyrir-
komulaghefði reynzt ágætlega og
þeir hefðu þannig fengið mun
meira út úr ferðinni. Smám sam-
an hefðu þeir lært á hin ýmsu
óþekktu fyrirbæri, svo sem leigu-
skápa á járnbrautarstöðvum,
vanið sig á það að finna strax
upplýsingamiðstöðvar á þessum
stöðvum og þannig sloppið við að
eyða dýrmætum tima i endalaust
ráp i leit að unglingagistiheimili.
Slíkar upplýsingarstöðvar væru
alls staðar sögðu þeir og hvöttu
fólk til þess að ganga ekki fram
hjá þeim, væri það i húsnæðisleit.
Með farfuglaskirteini upp á vas-
ann væri hægt að fá ódýra gist-
ingu og þeir, sem hefðu slikt skir-
teini gengju yfirleitt fyrir um
húsnæði. t verðinu, sem væri mis-
jafnt, 5-7 mörk væri innifalinn
morgunmatur.
— Tungumát voru ekki neinn
höfuðverkur. Kannsi af þvi, að
Ólafur var með, segir Þórir, en
nánast alls staðar var hægt að
bjarga sér á ensku, þó það gæti
verið erfitt, sérstaklega á ttaliu.
Þá varð maður bara að pata og
benda og það skildist yfirleitt. Og
ég vil einnig koma þvi að, að það
er ekki gáfulegt að flækjast með
mikið af íarangri. Við vorum
tveir með bakpoka, en hinir voru
með léttar töskur. Einhvern veg-
inn eru engin not fyrir alls kyns
flikur af Islandi, sem maður er
gjarn á að draga með sér og slikt
er algjör óþarfi. Það eru viða
möguleikar til þvotta og ætti ekki
að vera nein goðgá fyrir fólk að
þvo af sér spjarirnar.
— Ég sá um Danmörku og
Þýzkaland, eða átti að sjá um
þau lönd og það var eins með þau
og hin, að við skoðuðum fyrst i
stað heilmikið af kirkjum og söfn-
um. Siðar vorum við búnir að
setja rá reglu, að aðeins yrði farið
upp i kirkjuturn, sem væri yfir 550'
þrep. Það reyndist ágætlega, seg-
ir Ólafur. t Kaupmannahöfn
eyddum við timanum mest i
Tivoli, en þegar til Kölnar kom
skoðuðum við Kölnardómkirkju
og stórkostlegt vatnsorgel i nám-
unda við Hamborg auk fjölda
annarra staða, sem of langt mál
yrði upp að telja.
— Við reyndum fyrst að ferðast
innanborga með strætisvögnum,
segir Þórir, en það er dálitið erf-
itt, sé maður ekki þeim kunnugur
i viðkomandi borgum. Hins vegar
er neðanjarðar lestarkerfi þess-
ara borga mjög þrautskipulagt og
ætti að vera auðvelt fyrir menn að
ferðast með þvi. —
— Italia var min deild, segir
Þórir. — Þar var venju fremur
litið um verkföll og þvi auðvelt að
komast leiðar sinnar, en það
vakti athygli okkar hversu mikið
var um lögreglumenn, — alls kon-
ar lögreglumenn, sem virtust
hafa það að aðalstarfi að stöðva
bila. Og bilaumferðin er gifurleg,
sérstaklega i Róm. Ég vildi ekki
eiga að finna stæði fyrir bil þar. —
— Feneyjar voru einnig ákaf-
lega athyglisverðar, segir Gunn-
ar og beinir orðum sinum að
Ólafi. Það var þar, sem Óli missti
myndavélina sina. —
— Jú, rétt, — vélinni varð ég að
horfa á eftir i götuna, og eins og
menn kannski vita, er ekki mikið
um götur i Feneyjum, heldur siki,
mikil og löng. Vélin liggur þvi
þarna einhver staðar á strætum
Feneyja. Strákarnir höfðu af-
skaplega gaman af þessu, en mér
þótti þetta nú heldur sárt, eins og
gefur að skilja. AnnarS eru Fen-
eyjar að grotna niður og satt að
segja sér ekki i borgina fyrir túr-
istum.
— Eitt af þvi merkilegasta,
sem við annars sáum á ttaliu var
Pompeiji og Vesuvisfjallið.
Þangað fórum við i leigubil, og þá
vorum við nú flottir á þvi, segir
Gunnar, og Ólafur tekur við frá-
sögninni. — Að máli við okkur
kom italskur leigubilstjóri, sem
hreint og beint krafðist þess, að
við stigjum upp i bilinn hjá hon-
um, við myndum hvort eð er
þurfa að greiða jafn mikið fyrir
rútuferð út að fjallinu og borg-
inni. Það var auðvitað vitleysa,
eins og við áttum eftir að komast
að, túrinn kostaði okkur um 4 þús.
krónur. En allt um það, við létum
til leiðast og settumst inn i bilinn,
sem var hinn fegursti, en ensku-
kunnátta bilstjórans, sem sam-
kvæmt eigin orðum átti að vera
— Við félagarnir ferðuðumst mest á tveim jafnfljótum, er komið var af lestunum. Hins vegar gátu
ýmsir veitt scr ineiri þægindi, eins og hljóta að vera I þessum vagni.
fullmenntaður i þvi tungumáli,
varekki upp á marga fiska. Hann
ók okkur þó, sem leið lá upp fjall-
iö, og ók greitt og er á toppinn var
komið, benti hann i allar áttir á
hina ýmsu sögustaði, sem ekki
sáust fyrir móðu. — En Popeiji
var stórkostleg. Þar laumuðumst
við inn i hóp með leiðsögumanni
og nutum þvi góðs af þekkingu
mannsins endurgjaldslaust. Mun
efalaust mörgum er til sáu, hafa
þótt það undarlegt, að sjá þá, er
rétt áður stigu út úr bil af dýrustu
gerö, laumast inn i raðir án þess
aö borga, en eitthvað varð maður
að gera til þess að drýgja aurana.
Fleiri urðu sögurnar, sem þeir
félagar höfðu að segja, en þeir
vildu fyrst og fremst hvetja fólk
til þess að sannreyna þetta kosta-
boð, sem þeir töldu, að kostað
hefði þá um 50 þús. krónur, hvern
um sig. Þá hefðu þeir oft að visu
lifað anzi spart, en þetta væri allt
svo skemmtilegt til upplifunar, að
ekki væri hægt að ganga fram hjá
svona tækifæri og sérstaklega
ekki meðan maður væri ennþá
ungur. Við þökkum þeim fyrir
spjallið.
• 'í ■■ • . ■
^mmmm
M I 18
issi...
■ ■ ■ ■ i
©NÝJUNG
frd Fella
Stjörnurakstrarvél
Fasttengd á þrítengi
dráttar.vélarinnar —
er því mjög þægileg og lipur
i flutningi.
Afkastamikil og hreinrakar.
Vinnubreidd 2.80 mtr.
Sérstaklega hentug til
að múga fyrir heybindivélar
og heyhleðsluvagna.
Prófuð af Bútæknideildinni
að Hvanneyri með mjög góðum
árangri.
Hagstætt verð
og skilmálar.
Leitið nánari upplýsinga hjá
okkur um nýju Fella rakstrarvél-
ina.
G/obusi
LÁGMÚLI 5, SÍMI 815 55
— Veðurfar á Evrópuslóðum er yfirleitt mun betra aö sumri til en hér gerist, og var þá oft gott að hvfla
lúin bein i svala gosbrunna. ljósm.: ól. G. Jónsson.
Auglýsitf
í Timanum
fólki með ungu fólki með ungu fólki með
i