Tíminn - 14.07.1974, Side 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 14. júli 1974.
Mannvirkin miklu
á Skeiðarársandi
Landmælingar Islands hafa aö undanförnu unniö aö gerö nýs korts af
Skaftafelli og Skeiöarársandi. Kortiö er gefiö út I 5000 þúsund eintök-
um, þannig aö ekki er aö efa, aö þaö selzt fljótlega upp, þvi aö búizt er
viö mun fleiri feröamönnum til Skaftafells i sumar. Kortiö mun kosta
rösklega 200 krónur. Þaö er prentaö hjá Kassageröinni og Offsetmynd-
um. Hér á Timamynd Róberts sést Syavar Berg Pálsson landmælinga-
maöur viröa hiö nýja kort fyrir séi-.
Vegalengd yfir Skeiöarársand
milli Núpsstaöar og Skaftafellsár
er um 34 km. Allmörg vatnsföil
falla um sandinn. Mest þeirra eru
Núpsvötn og Súla, sem hafa sam-
eiginlegan farveg, Gigja og
Skeiöará. Núpsvötn eru berg-
vatnsá, en hinar árnar koma und-
an Skeiöarárjökli og mega kallast
dæmigeröar jökulár. Eins og aör-
ir skriöjöklar er Skeiöarárjökull
sifeildum breytingum undirorp-
inn. Þetta veldur þvi, aö útföll
jökulánna veröa mjög óstööug og
færa sig gjarnan meöfram jökul-
jaörinum. Arnar bera meö sér
geysimikinn framburö undan
jöklinum, en framburöurinn fell-
ur siöan til botns, eftir þvi sem
straumurinn minnkar, og hækkar
þannig sandinn meö timanum.
Mesta vandamálið við jökul-
árnar á Skeiðársandi eru þó hin
geysistóru jökulhlaup, sem I þær
koma. Jökulhlaup myndast við
það, að vatn, sem safnazt hefur
fyrir við jökulrönd eða undir
jökli, fær skyndilega framrás
undir jökulinn. Vatnsgeymirinn,
sem ef til vill var mörg ár að
safna I sig, tæmist þá á nokkrum
dögum. Oftast skeður þetta, þeg-
ar vatnsstaðan i geyminum hefur
náö þeirri hæð, að hún megni að
lyfta jöklinum. Einnig geta þó
komið til aðrar orsakir svo sem
edsumbrot.
Tveir slikir stórir vatnsgeymar
fá framrás undir Skeiðarárjökul
og fram á Skeiðarársand. Græna-
lón er jaðarlón við vesturjaðar
Skeiðarárjökuls, og vatn úr þvi
fær framrás undan vesturhorni
jökulsins I farveg Súlu. Grims-
vötn eru jökullón nokkuð norðar-
lega i Vatnajökli, og fá hlaup það-
an framrás viða undan jöklinum.
Meginhluti vatnsins rennur þó um
farveg Skeiðarár, en einnig fer
mikið vatn I farveg Gigju. Undan-
farna þrjá áratugi hafa þessi jök-
ulhlaup komið með nokkuð reglu-
legu millibili og verið svipuð að
stærð. Hefur hámarksrennsli i
Skeiðará i hlaupunum verið um
6000—8000 m3/ sek.
Aður fyrr komu jökulhlaup
þessi mun sjaldnar, en voru að
sama skapi stærri. Er áætlað, að
hámarksrennsli i þeim hlaupum
hafi verið allt að 4 sinnum meira
heldur en i siðari hlaupum. Ekki
er fullljóst, hvað veldur þvi, að
hlaup eru nú tiðari og minni, en
talið er liklegt, að það standi I
sambandi við almenna rýrnun
jökla undanfarna áratugi.
Aðdragandi, undirbún-
ingur og fjáröflun.
Meö byggingu brúar á Jökulsá
á Breiðamerkursandi árið 1967 og
brúar á Hrútá árið eftir var
öræfasveit komin i vegasamband
austan frá. Var þar með einnig
náð þeim áfanga, að kominn var
samfelldur vegur umhverfis
landið að Skeiðarársandi undan-
teknum.
Voriö 1968 var samþykkt á Al-
þingi þingsályktun um undirbún-
ing þess að gera akfært umhverf-
is landið. Skyldi áætlun þar að
lútandi hraðað svo sem unnt væri
og að þvi stefnt, að hafa mætti not
af henni við gerð vegaáætlunar
fyrir árin 1972—1976.
Samkvæmt þessari þingsálykt-
un var unnið að mælingum og
rannsóknum á Skeiðarársandi
næstu ár, en búist var við Skeið-
arárhlaupi árið 1970.
Hinn 23. marz 1971 voru sam-
þykkt á Alþingi lög um 200 m. kr.
happdrættislán til greiðslu kostn-
aðar við vega- og brúargerð á
Skeiðarársandi. Lögum þessum
var siðan breytt I desember 1971
og lánsheimildin þá hækkuð I 250
m. kr.
1 október 1971 lagði samgöngu-
ráðherra svo fyrir, að gerð skyldi
frumáætlun um gerð vegar um
Skeiðarársand miðað við fram-
kvæmdir á þremur árum og einn-
ig miðað við framkvæmdir á fjór-
um árum, þó að öllum rannsókn-
um samkvæmt þingsályktuninni
frá 1968 væri ekki lokið.
Frumáætlun um gerð vegar og
brúa á Skeiðarársandi var send
ráðuneytinu I janúarlok 1972. Var
kostnaður við að ljúka fram-
kvæmdum á þremur árum áætl-
aður um 500 m. kr., en 15 m. kr.
minni, ef framkvæmdatiminn
yrði lengdur um 1 ár. Með bréfi
hinn 4. febrúar ákvað samgöngu-
ráðherra, að miða skyldi
framkvæmdir við, að verkinu
yröi lokið á 3 árum. 1 framhaldi af
þessari ákvörðun ráðuneytisins
var framkvæmdaáætlun um
Skeiðarársand felld inn I vegáætl-
un fyrir árin 1972—1975, sem sam-
þykkt var á Alþingi i mai 1972.
Fyrsta happdrættislánið, að
upphæð 100 m. kr., var boðið út I
april 1972, og seldist það upp á
nokkrum dögum. Stóð þá einmitt
yfir Skeiðarárhlaup þaö, sem bú-
izt hafði verið við árið 1970. Alls
hafa verið gefnir út fjórir flokkar
happdrættislána vegna fram-
kvæmda á Skeiöarársandi að
heildarupphæð 580 m. kr.
Seölabanki Islands, sem haft
hefur veg og vanda af útgáfu og
sölu happdrættisbréfanna, hefur
einnig séð um bráðabirgðafjár-
öflun til framkvæmdanna.
Mannvirki,
forsendur
og tilhögun
Við þær aðstæður, sem áður
hefur verið lýst, getur ekki orðið
um neina fasta farvegi i venjuleg-
um skilningi að ræða, heldur hafa
árnar yfirleitt stór svæði, sem
þær flæmast um, þegar jökul-
hlaup koma I þær. Við allar árnar
er þvi aðeins hluti farvegsins brú-
aður, en siðan byggðir varnar-
garðar til að leiða vatnið undir
brýrnar.
Hin mikla óvissa um stærð og
dreifingu jökulhlaupa i framtið-
inni veldur þvi, að ekki þótti fært
að hanna mannvirki með það fyr-
ir augum, að þau taki stærstu
hlaup áfallalaust. Var þvi valin sú
leið, að miðað skyldi við, að
mannvirki gætu tekið á móti jök-
ulhlaupum, eins og þau hafa verið
undanfarna áratugi, án þess að
vegasamband rofni.
Á hinn bóginn er tilhögun
mannvirkja þannig, að sem
minnst tjón hljótist af stórum jök-
ulhlaupum, þó að þau kæmu.
Þannig eru dýrustu hlutar mann-
virkja, þ.e. brýr ásamt vegfyll-
ingum og varnargörðum næst
þeim, hönnuð með þeim hætti, að
þau geti staðizt án alvarlegra
áfalla, en vatnið myndi flæða yfir
varnargarða fjær brúm.
Á meðfylgjandi myndum er til-
högun mannvirkja sýnd I megin-
dráttum.
Vegur er með malarslitlagi og
tvöfaldri akbraut, 6,5 m. breiðri.
Varnargarðar eru byggðir úr
möl og sandi. Armegin eru þeir
varðir með sprengdu grjóti eða
hrauni og grjótpylsum.
Hinar stærri brýr eru allar
sömu gerðar, stálbitabrýr með
timburgólfi á steyptum staurum,
sem reknir eru niður I sandinn.
Allar eru brýrnar með einfaldri
akbraut, en vegna hinnar miklu
lengdar þeirra eru höfð útskot á
þeim með 150—200 m. millibili, til
að farartæki geti mætzt. Brýrnar
eru tiltölulega háar, og er það
gert I þvi skyni, að Isjakar, sem
brotna jafnan úr jökuljaðri i
hlaupum, komist undir þær.
Framkvæmdir
Áður en framkvæmdir gætu
hafizt á Skeiðarársandi, var óhjá-
kvæmilegt að endurbyggja veg-
inn frá Kirkjubæjarklaustri að
Núpsstað að langmestu leyti auk
nokkurra brúa. Ennfremur var
byggður kafli á hringveginum
austan Skeiðarársands milli
Skaftafellsár og Virkisár. Þá
þurfti einnig að byggja nokkuð af
hliðarvegum. Heildarmagn
framkvæmda verður þá sem hér
segir:
Hringvegur:
Nýbygging 61 km
Styrking og endurbætur 7 km
Hliðarvegir 4 km
Varnargarðar 17 km
Brýr(12) 2004 m
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir, þegar þeim er að fullu
lokið, er áætlaður 850m.kr., og er
það innan ramma frumáætlunar-
innar frá 1972, þegar tekið er tillit
til verðhækkana.
Framkvæmdir hófust I april
1972 við Kirkjubæjarklaustur, svo
og austur I öræfum. A sjálfum
Skeiðarársandi var hafizt handa I
september 1972, og hefur siðan
verið lögð áherzla á að nýta vetr-
artimann til framkvæmda, með-
an vatn er minnst i jökulánum. í
lok nóvember 1973 var lokið við
fyrri hluta brúar á Skeiðará. Var
ánni þá veitt undir brúna og vega-
sambandið þar með opnað til
bráðabirgða. 1 dag, 14. júli 1974,
er framkvæmdum svo langt kom-
ið, að unnt er að opna hringveginn
formlega, þó að ekki sé lokið við
alla frágangsvinnu.
Efni og ýmsir byggingarhlutar
voru boðnir út til verktaka, og var
útboð stáls i stálbita og smiði
þeirra langstærst slikra útboða,
en það verk var unnið af brezku
fyrirtæki, Redpath Dorman Long
Ltd. i Glasgow. Að öðru leyti hef-
ur Vegagerð rikisins annazt allar
framkvæmdir við þessa mann-
virkjagerð sem og hönnun mann-
virkjanna.