Tíminn - 14.07.1974, Síða 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 14. júli 1974.
f ru o-\
ár
O*:al-* *-* / ■*,
yhJh// 'jCt.-*' f J~- f/- x- <* «•« "
f^ ff /».“'■ ff/x/ f*zJ frr*' * í
f/Á cÁ/fr’Qi , A'
'f/J/L.f/ //*.£ ■£$ /'Á,
-yft/rficn , t. f/i<77rp- t' a.ff/--
g-;W«
/7 .
y'n-*-**/y/'/ v' A ^ /‘■'ý -**., f‘/fr?7
/7«$,'/<' /-* 'fJUÁ*. /f?f)..(Öy
Jf fL-lÁ/!. -7 ■/?/£,/ -
- v -y~r «s.
. / í.
f &r p * , - /C' 4 >£ C^C-! , </cr- -
// Í / ^ xv, O''
'• ' Xl-V **■«* ♦ ■ «. *st v.- . Ý ' .--- -W. .X
*'/ -&*’.* ■ fCca,STVf ,Lf
/'fjf f , C. - /'
*• */ ” y < tr * > - . .:/ . rYO;
/ £>-4 4 < ■ A tyK
Kirkjan d Þingvöllum og bæjarhúsin
til hægri.
ÞREAAENNINGAR
o
sjaldséðasta og tignarlegasta
gos, em nokkur okkar hafði fyrr
séð. Við höfðum ekki tæki til þess
að mæla, hve há gossúlan var eða
hversuhátt hverinn kastaði grjót-
inu. Frönskum visindam., dr.
P. Gaimard, sem kom að Geysi
nokkru á undan okkur, mældist
gosið 93 fet, og bændur úr
nágrenninu sögðu, að gosið, sem
við urðum vitni að hefði orðið
miklu stórfenglegra heldur en
það, sem Frakkarnir sáu. Þetta
gos stóð í tuttugu minútur eða þar
um bil.
Stillilogn var, er hverinn gaus,
og þess vegna reis vatnssúlan
eins hátt og orðið gat.
Hafi áður gætt vonbrigða yfir
þvl, að hverinn myndi ekki bæra á
sér, þá vorum við nú i sjöunda
himni yfir þvi að hafa séð þetta
náttúruundur i allri sinni dýrð.
engu likara en listamaður hafi
grópað farveg hennar. Þessi á
rennur loks i Laugarvatn, sem er
allstórt. A norðurbakka þess eru
tvær heitar laugar, sem þeir
Schmidt og Biering skoðuðu.
A slikum stöðum, þar, sem bæði
er vatn og gras, eru oft hópar
hrossa og nauta, sem eru villt að
hálfu leyti, þvi þau ganga úti
mestan hluta ársins. Sjái slikur
hrossahópar aðra hesta, eins og
nú gerðist, er okkur bar að,
koma þeir hlaupandi og hneggj-
andi, ryðjast að aðkomuhestun-
um, bita og slá. Við urðum að
nota svipurnar til þess að hrekja
þetta stóð frá klyfjahestum okk-
ar. Loks unnum við fullkominn
sigur og hröktum stóðið burt.
Klukkan tvö komum við að
Laugarvatnshelli, sem er skúti i
sandsteins- eða móbergskletti
undir langri fjallshlið, þar sem
við áðum og snæddum hádegis-
mat. t hellinum eru óteljandi
mannanöfn grafin i bergið sem
auðvelt er að rispa með hörðum
steini.
Fæstir ferðamenn, sem þarna
fara um, láta hjá liða að krota þar
nafnið sitt. Við Biering fundum
þarna nöfnin okkar frá fyrri
Geysisferð, og við grófum þau á
ný, Schmidt til samlætis, eins og
við höfðum gert fyrr um sumarið
uppi á hábrún Esju, em er bratt
fjall 2400 feta hátt. Meðal annars
fundum við I hellinum fangamark
Friðriks prins og förunauta hans.
Veðrið hafði verið sérlega gott,
allt frá þvi við lögðum af stað úr
Reykjavik, aldrei ský á himni. En
nú fór að draga upp bliku, og við
fengum lika talsverða regnskúr,
svo að við urðum að fara i vatns
helda galla okkar, sem voru úr
lérefti, sem i var borin gul
terpentinuolia. Við vorum hinir
myndarlegustu i þessum gulu
tygjum.
Við hertum nú reiðina til þess
aö ná til Þingvalla um kvöldið.
Lengi hafði vegurinn verið ágæt-
ur, en þar urðu umskipti, er við
komum á Lyngdalsheiði, þar sem
allt er þakið ósléttu hrauni, er
hrúgazt hefur upp og hrannazt
saman á alla vegu. Þar skoðuð-
um við gig, sem heitir Strompur,
enda strompi likur, mjög djúpur
og holbekktur. Munninn er þröng-
ur, liklega svona fjögur fet i þver-
mál. Úr þessum gig hefur senni-
lega komið hraunið, sem lagðist
þarna yfir landið.
Þegar við komum af heiðinni,
tók Hrafnagjá við. Gjárveggirnir
eru háir, og hún er erfið yfirferð-
ar, þvi að niður i hana er. þrjátiu
faðma langur stigur. Við urðum
að fara af baki og teyma hestana.
En nú vorum við komnir á bakka
Þingvallavatns. Þingvallavatn er
stærsta vatn landsins, ummál
þess niu til tiu milur, og i þvi tvær
eyjar. Sogið er afrennsli þess til
hafs, og það fellur fram hjá
ferjustaðnum Óseyri i grennd við
Eyrarbakka. Bændur i grennd við
vatnið veiða i þvi mikið af silungi,
og það var einmitt silungur úr
vatninu á borðum, er við komum
að Þingvöllum klukkan sjö
um kvöldið og bjuggum um
okkur I kirkjunni. Þegar við
höfðum tekið af hestunum og bor-
ið allan farangurinn inn í
kirkjuna, hitum við kaffi og
prestsmaddaman sendi okkur
soðinn silung, sem bragðaðist
okkur ákaflega vel. Að lokinni
máltiðinni reikuðum við um
nágrennið.
Það hafði verið gert mikið við
kirkjuna siðan við Biering gistum
þar siðast. Gamall bóndi, Ófeigur
á Heiðarbæ hafði málað hana
vandlega að innan, og notað til
þess alla hugsanlega liti. Gamli
maðurinn hefur liklega notað alla
sina listgáfu i þann hrærigraut
lita. Hann hafði ekki einu sinni
þyrmt altaristöflunni, þvi að á
hana hafði hann svo smurt máln-
ingu,aðtæpastvarunntaðsjá, að
myndin átti að tákna heilaga
kvöldmáltið.
Fyrir viðgerðina var við hliðar
vegg kirkjunnar birkihrlsla, sem
þar hafði staðið siðan 1801, mjög
falleg, orðin niu eða tiu fet á hæð,
með mikilli og blaðríkri lim-
krónu, sem breiddi yfir þekjuna á
Svona gosi er ógerlegt að lýsa,
jafnt með penna sem pensli, og
vilji menn fá um það fullkomna
hugmynd, þá fari þeir bara sjálfir
og sjái.
Hveraskálin fylltist aftur, og
um klukkan fjögur kom nýtt gos,
en varla hærra en sextiu til átta-
tiu fet, að okkur virtist.
Föstudagur 22. júll: Geysir
buldraði alla nóttina, og allt nötr-
aði af átökunum, svo að við gát-
um ekki sofið i tjaldinu. En ekki
gaus hann oftar.
Schmidt var jafnhrifinn og við
hinir af þvi, sem gerzt hafði dag-
inn áður, hann vildi með engu
móti halda ferðinni áfram þennan
dag, þvi að hann gerði sér vonir
um, að Geysir gysi enn einu sinni
Samt varð ekkert úr verulegu
gosi. Það komu aðeins smá-
skvettir, sem ekki voru sambæri-
legir við gosin daginn áður. Aftur
á móti gaus Strokkur um morg-
uninn, er við höfðum fleygt i hann
miklu af torfhnausum og grjóti.
Allt var dökkt á lit, vatn og gufa,
og gosið var meira en við höfðum
séð daginn áður.
Siðdegis riðum við upp að
Haukadal og fengum skyr hjá
Páli Guðmundssyni — þessum
manni, sem er einn hinn auð-
ugasti á jörðunni — að minnsta
kosti, ef hann gæti flutt Geysi sinn
og Strokk og umhverfi þeirra til
meginlands Evrópu.
Við bæinn er litil kirkja, sem
mátti heita snotur, hreinleg og
sæmilega við haldið. Húsfreyjan
fylgdi okkur, þvi að maður henn-
ar var blindur, að svokallaðri
Marteinslaug, sem er litill lækur,
er rennur skammt frá. Vatnið i
sjálfum læknum er kalt, en I hon-
um miðjum kemur upp sjóðandi
hver, sem streymir fram öðru
megin og veldur þvi, að vatnið I
öörum helmingi lækjarins er kalt,
en brennheitt hinum megin.
Siðan riðum við aftur til tjalds-
ins, þar sem við eyddum kvöldinu
við matartekju og spilamennsku,
unz við lögðumst til svefns. En
það fór eins og nóttina áður, að
drunurnar voru svo miklar, að
okkur varð ekki svefnsamt.
Laugardagur 23. júli: Klukkan
nlu um morguninn fórum við frá
Geysi og héldum til Þingvalla —
fram hjá bænum Laug, kirkju-
staðnum Múla og að Brúará, sem
er mjög merkileg. Ain er tiu til
tólf faðma breið, og vatnið sem
ekki er djúpt rennur I striðum
straumum niður úr fjöllunum. 1
miðjum árfarv.eginum er djúp
gjá, átta feta breið, og ofan i hana
steypist áin með ótrúlegum
hávaða. Yfir þessa gjá hefur ver-
iö sett mjó brú, sem á aðfara yfir.
Sá, sem eitthvað er veill i höfði
eða á vanda til svima, ætti ekki að
hætta sér út á þessa brú, þvi að
óneitanlega verður manni undar-
lega við að horfa af hestbaki niður
I djúpið undir brúnni og heyra
buldrið I vatninu fyrir neðan sig.
Það virtist ekki heldur laust við,
að hestarnir væru skelkaðir, þeg-
ar þeir áttu að fara yfir brúna. Að
minnsta kosti fetuðu þeir sig
áfram af mikilli varkárni.
Þegar við vorum komnir heilu
og höldnu yfir Brúará, tóku við
niðurgrafnar götur, og voru
bakkarnir á báðar hendur vaxnir
birkikjarri, sem var um mann-
hæðarhátf. Þetta kjarrlendi
náði alla leið að bænum Efstadal,
þar sem Biering afhenti kaffi-
kvörn, er verið hafði til viðgerðar
I Reykjavik.Enda þótt húsfreyjan
staðhæfði, að kvörnin væri hálfu
verri heldur en þegar hún sendi
hana til Reykjavikur, bauð hún
okkur mjólk, sem við þáðum.
Siöan riðum við fram hjá kirkju-
staðnum Miðdal, þar sem er fag-
urt aðhorfa yfir Laugardalinn, en
gegnum hann rennur á, sem
hlykkjast eins og slanga hálfrar
milu leið svo reglulega, að það er
kirkjunni og fram yfir stafninn.
En við viðgerðina hafði hún verið
höggvin án miskunnar, og trúlega
hefur hún hafnað i eldinum hjá
hans æruverðugheitum, sóknar-
prestinum. Þessi prestur tók sem
sagt ekki sinum virðulegu
stéttarbræðrum neitt fram I til-
litssemi, enda hafði hann að mér
var sagt, fyrir nokkrum ár-
um,sennilega vegna eidivið-
arleysis, brennt þrísiglt skip, sem
hékk i kirkjunni, gefið þangað
fyrir mörgum árum af hol-
lenzkum skipstjóra. Sem sagt:
„Adieu paniers, vendanges sont
faites”.
Allt I kring um Þingvelli eru
gjár og hraunsprungur. Svo
einkennilega vill til, að stefna
þeirra allra er frá norðaustri til
suðvesturs, þótt slikar sprungur
séu annars staðar á landinu frá
norðvestri til suðausturs. Þessar
sprungur, sem raunar eru
kallaðar gjár á Islandi, eru mjög
djúpar, liklega fimmtán til
tuttugú faðmar niður að vatns-
boröi, og i mörgum er engan botn
að sjá. Allir ferðamenn hrósa
vatninu i þessum gjám, og það
gerðum við lfka, þvi að það er frá-
bærlega hreint og tært og ennþá
betra en nokkurt lindarvatn.
Af Lögbergi, þar sem setið var
að dómum fyrr á tíð, þegar allir
helztu menn landsins söfnuðust
saman til þings á þessum stað, er
mjög fallegt að horfa á fossinn,
sem steypist niður i Almannagjá
fram af um hundrað feta háum
klettavegg. Neðan við Lögberg er
klöpp, þar sem galdrafólk var
brennt áður fyrr. öskunni var sið-
an stráð i öxará, er myndar
fossinn og rennur út i Þingvalla-
vatn. Presturinn staðhæfði, að
enn megi finna ösku og beinaleif-
ar við ána, en við komumst að
raun um, að það sem átti að vera
aska var ekki annað en svartur
sandborinn leir og beinin úr sauð-
fé. Hattagerðarmaður frá Kaup-
mannahöfn sem við hittum
þarna, tók þó með talsvert af
beinum i þeirri góðu trú að það
væru hinztu leifar galdranorna,
sem brenndar voru á báli endur
fyrir löngu.
Við snerum nú til kirkjunnar og
bjuggum þar um okkur eins vel
og viðgátum. Schmidt hallaði sér
út af hægra megin við altarið, en
við Biering vinstra megin. Þessa
nótt var mjög kalt.
Sunnudagur 24. júll: Þegar við
höfðum snætt morgunverð létum
við leggja á hestana og riðum sið-
an upp Almannagjá, sem er djúp
sprunga, um það bil fjögurra
faðma breið. Þar er vegurinn og á
báðar hendur eru þverhniptir
klettar eins og veggur sé,þrjátiu
til fjörutiu faðma háir. Erfitt er
að komast upp úr gjánni, þvi að
þar er hún ekki nema sex til átta
feta breið, og urðum við að teyma
hestana.
Klukkan tvö komum við að
Seljadal. Þa' var sérlega hlýtt i
veðri. Nú var ferðin senn á enda,
og við áðum og drukkum nokkur
staup af vini. Klukkan á milli
fjögur og fimm komum við heilu
og höldnu til Reykjavikur, harla
ánægðir með ferðina og það, sem
við höfðum séð. Við söknuðum
þess eins, að ferðin hafði ekki
orðið lengri, svo að við fengjum
tækifæri til þess að sjá fleira.
Fyrir þessa ferð og þann
ánægjulega tima, sem ég naut I
félagsskap með samferðamönn-
um minum er ég fjarskalega
þakklátur, og ég mun ævinlega
minnast þessarar ferðar með
þakklátum huga.
Stangveiðifélag
Rangæinga auglýsir:
Veiðitimabil Ranganna hefst
15. júli n.k.
Veiðileyfi verða seld i söluskál-
um Kf. Rangæinga, Hvolsvelli
og Kf. Þórs á Hellu.
Stjórnin.