Tíminn - 14.07.1974, Blaðsíða 27
Sunnudagur 14. júll 1974.
TÍMINN
27
RUDOLF
HESS
einmanalegasti
fangi veraldar
Rudolf Hess/ staögengill
HitlerS/ stendur nú á átt-
ræöu. Þeir, sem sakfelldir
voru ásamt honum i Níirn-
bergréttarhöldunum eru
nú allir látnir ellegar hefur
verið sleppt úr haldi. Hess
er hinn eini, sem enn situr í
fangelsi og hann er eini
fanginn i Spandau-
fangelsinu í Berlín, þar
sem brezkir, franskir
bandarískir og rússneskir
verðir skiptast á um að
gæta hans. Gæzlan kostar
vestur-þýzka ríkissjóðinn
sem svarar um 37 milljón-
um íslenzkra króna
á ári. Flest bendir til þess
að Hess endi ævina í
Spandau, þvi að Rússar
hafa ekki gleymt því sem
hann gerði á hlut þeirra og
neita að láta hann lausan.
Að siðari heimsstyrjöldinni lok-
inni efndu Bandamenn til um-
fangsmikilla réttarhalda, sem
nefnd hafa verið Nurnbergréttar
höldin, þvi að þau fóru fram þar i
borg. Þar voru þeir forsprakkar
nasista, sem ekki höfðu framið
sjálfsmorð, verið drepnir eða
tekizt að flýja, dregnir fyrir dóm.
Einn þeirra, sem sekur var fund-
inn i Nurnberg-réttarhöldunum
1946, var Rudolf Hess. Hann var
dæmdur til ævilangrar fangelsis-
vistar og var ein höfuðsakargiftin
árásin á Pólland og vinna að
undirbúningi herferðar þeirrar,
sem Þjóðverjar fóru i austurátt
inn i Rússland. Þarna mun lik-
lega að finna meginorsök þess, að
Sovétmenn hafa allt til þessa
skellt skolleyrum við öllum
náðunarbeiðnum, þegar Rudolf
Hess hefur átt i hlut, en hann er
nú eini fanginn i Spandau-
fangelsinu i Vestur-Berlin. Hess
er nú áttrætt gamalmenni og ellin
hefur leikið hann grátt.
Hess hlaut strangan dóm, lik-
lega sumpart vegna þess titils,
sem hann bar — „staðgengill
foringjans” — þótt hann hefði litið
raunverulegt gildi. f ákæruskjali
bandamanna var rik áherzla lögð
á það að Hess hefði verið nánasti
trúnaðarmaður Hitlers og vitað
um allar fyrirætlanir hans, allt
þar til hann flaug til Bretlands
1941 eins og frægt varð. Rann-
sóknir allar benda lika til þess að
hin ævintýralega ferð Hess til
Bretlands hafi verið farin i þeim
tilgangi að reyna að semja um
frið við Breta til þess að eiga
hægara með að ráða niðurlögum
Sovétmanna. Þarna hafi þvi verið
um stórpólitiskar refjar að ræða.
Þegar Hitler sat i fangelsi
vegna misheppnaðrar tilraunar
til stjórnarbyltingar árið 1924,
notaði hann timann til þess að
koma saman höfuðstjórnmálriti
sinu „Mein Kampf” og i þvi efni
var samfangi hans, Rudolf Hess,
honum til aðstoðar. Hess hafði
gerzt félagi i nasistaflokknum,
' NSDAP, 1920, varð siðan einka-
ritari Hitlers og staðgengill hans
við valdatökuna 1933. Hann
undirritaði ýmis af þeim lögum,
sem nasistar komu á, og var einn
þeirra, sem unnu að áætluninni
um árásina á Pólland og útrým-
ingu menntamanna þar i landi.
Hins vegar fór svo að pólitisk
áhrif hans þurru á fyrstu árum
striðsins.
Flestir þeir, er gleggst þekkja
sögu nasismans, munu vera
þeirrar skoðunar, að flugferð
Hess til Bretlands 1941 hafi verið
farin til þess að reyna að fá stuðn-
ing Breta við Þjóðverja i barátt-
unni gegn Sovétmönnum. Ilse
Hess, eiginkona Rudolfs Hess,
hefur lika ætið haldið þvi fram, að
för manns hennar hafi verið farin
með vitund Hitlers, og varla er
unnt að neita þvi lengur að til-
gangur fararinnar hafi verið stór-
pólitiskur, þótt Ilse Hess, geti
ekki talist hlutlaust vitni. Svo illa
vildi hins vegar til fyrir Hess að
ferðin fór út um þúfur, þar eð
Bretar vildu ekki semja, og þess
vegna lýsti Hitler þvi yfir að Hess
væri geðveikur.
Hess var áhugamaður um flug
og flaug töluvert sjálfur. Fyrir
tilstilli vinar sins, flugvélasmiðs-
ins Willy Messerschmitt, aflaði
hann sér upplýsinga um orrustu-
vél, sem var i smíðum um þetta
leyti. Vélin nefndist Me 110 og var
tveggja hreyfla og um þessar
mundir var verið að reynslu-
fljúga vélinni. Hún var hrað-
fleygari og liðlegri i lofti en þær
vélar aðrar, sem Luftwaffe, þ.e.
Þýzki flugherinn þá átti.
Vélin var tveggja sæta, en Hess
lét breyta einni vél, þannig að að-
eins rúm fyrir einn flugm. en
Rudolf Hess
fyrrum
„staðgengill
foringjans".
0
komið var fyrir aukabensingeym
um i henni sem svaraði þyngd
annars flugmannsins. Þá var og
sett i vélina fullkomnasta mót-
tökutæki, sem völ var á og Hess
fékk flugkort, þar sem merktar
voru þær flugleiðir, sem vélar
flughersins notuðu og svo var um
hnútana búið, að Hess var til-
kynnt um allar breytingar, sem
gerðar voru i þeim efnum.
Tvivegis mistókst honum að
hefja flug sitt til Bretlands, en allt
er þegar þrennt er, og hinn tiunda
mai 1941 reyndi hann i þriðja sinn
og þá hafði hann til umráða sér-
staka útvarpsbylgjulengd, sem
ætluð var flughernum. Hann
komst til Bretlands i þessari at-
rennu og stökk út i fallhlif til þess
að hin nýja flugvélargerð félli
ekki i hendur Breta.
Vélin gjöreyðilagðist, þegar
hún hrapaði til jarðar, en siðar
var brakinu komið fyrir á safni.
Hess lenti i heysátu og slapp litt
meiddur, en sneri sig þó á fæti.
Þegar hann náðist var honum
Kaupmenn —
Innkaupastjórar
Þar sem lokað verður vegna sumarleyfa
frá 22. júli til 12. ágúst — þá óskast
pantanir á lagervöru sendar sem allra
fyrst.
fyíiAjt (lo ^
SÍMI 2-43-33
umsvifalaust stungið i fangelsi.
„Staðgengill foringjans” fékk
aldrei að tala við ráðherra i
brezku rikisstjórninni, eins og
hann og liklega Hitler lika, höfðu
vonazt til. Hann fékk aðeins að
tala við lágtsettan embættismann
og fréttamann frá BBC og menn
létu samningaboð hans eins og
vind um eyrun þjóta. Það var
ekki fyrr en tveimur dögum siðar,
þegar ljóst var, að Hess hefði
mistekizt, að Hitler lét til sin
heyra og þá var þvi Iýst yfir af
þýzkri hálfu að Hess væri horfinn
úr landi og að hann hefði þjáðst af
geðveiki.
Striðsglæparéttahöldin i Nurn-
berg stóðu mánuðum saman og
allan timann virtist Hess litt taka
eftir þvi sem fram fór i kringum
hann. Þegar dómur var kveðinn
upp yfir honum brá hans hins
vegar við, spratt á fætur og sagði:
— Mér féll sú gæfa i skaut að fá
um langt árabil að vinna fyrir
mesta mikilmenni, sem þjóð min
hefur alið i allri sögu sinni — ég
iðrast einskis!
I október 1966 voru þeir Baldur
von Schirach og Albert Speer
látnir lausir og siðan hefur Hess
verið eini fanginn i Spandau
Brezkir, bandariskir, franskir og
rússneskir varðmenn skiptast á
um að halda vörð um hann,
mánuð i senn. Það kostar sem
svararum 37 milljónum islenzkra
króna árlega og rikissjóður Vest-
ur-Þýzkalands borgar brúsann.
Ef frá er talið loftferðaöryggis-
eftirlitið i Vestur-Berlin, er
Spandau-fangelsið eina stofnunin,
sem hinir fornu bandamenn reka
sameiginlega og á meðan Sovét-
menn neita að láta Hess lausan,
munu vesturveldin þrjú sennilega
ekki heldur fallast á það opinber-
lega, að „staðgengillinn” verði
látinn laus.
Fjármálaráðuneytið
10. júli 1974.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin
á þvi að gjalddagi söluskatts fyrir júni-
mánuð er 15. júli. Ber þá að skila skatt-
inum til innheimtumanna rikissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu i þririti.